Morgunblaðið - 06.12.2003, Blaðsíða 87
ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 6. DESEMBER 2003 87
DAGNÝ Linda Kristjánsdóttir,
skíðakona, keppti í gærkvöld
fyrst íslenskra kvenna í brunmóti
í heimsbikarkeppninni, en keppn-
in fór fram í Lake Luise í Kan-
ada. Dagný Linda varð í 48. sæti
á tímanum 1.36,88 en 54 kepp-
endur luku keppni. Fyrir þennan
tíma fékk Dagný Linda 40,92 FIS
stig, sín fyrstu í heimsbikarnum.
Sigurvegari varð franska stúlkan
Carole Montillet á 1.34,03 þannig
að Dagný Linda var 40,92 sek-
úndum á eftir henni. Næsta
stúlka á eftir Dagnýju Lindu varð
Andrine Flemmen frá Noregi á
1.36,90 en bandaríska stúlkan
Libby Ludlow var næst á undan á
1.36,86.
Dagný í
48. sæti
FÓLK
SYLVIA Strass, leikmaður ÍBV,
skoraði 3 mörk fyrir Austurríki
sem sigraði Tékkland, 29:22, á
heimsmeistaramóti kvenna í hand-
knattleik í Króatíu í fyrrakvöld.
Birgit Engl, sem einnig leikur með
Eyjastúlkum, komst ekki á blað
hjá austurríska liðinu sem hefur
unnið fyrstu þrjá leiki sína í
keppninni.
DAVID Beckham, fyrirliði enska
landsliðsins, sagðist ekki hræðast
að leika með Real Madrid gegn
Barcelona. „Ég hef lengi beðið eft-
ir þessari viðurteign. Það var mikil
upplifun að taka þátt í nágranna-
slagnum gegn Atletico í Madrid,
en ég óttast ekki að leika á Camp
Nou,“ sagði Beckham. Stórleikur
Barcelona og Real fer fram í kvöld
í Barcelona.
ÞAÐ er ekki reiknað með að
Arsene Wenger, knattspyrnustjóri
Arsenal, tefli fram fyrirliðanum
Patrick Vieira í leik liðsins gegn
Leicester í dag. Vieira lék sinn
fyrsta leik frá því í september
gegn Úlfunum í vikunni og stóð
sig vel. Þar sem Ray Parlour er
meiddur er reinað með að Wenger
hvíli Vieira fyrir viðureignina þýð-
ingarmiklu gegn Lokomotiv
Moskvu í Meistaradeild Evrópu,
sem fer fram á Highbury á þriðju-
daginn.
THIERRY Henry, sóknarmaður-
inn öflugi hjá Arsenal, meiddist á
fæti á æfingu með liðinu í gær og
verður ekki með þegar Arsenal
tekur á móti Leicester. Tvísýnt er
hvort hann nái leiknum við Loko-
motiv á þriðjudaginn.
DAVID Dein, varaformaður Ars-
enal, hefur sent Sepp Blatter, for-
seta Alþjóða knattspyrnusam-
bandsins, FIFA, skýr skilaboð.
Hann segir að Blatter fái ekki að
ráðskast með ensku úrvalsdeildina
en forsetinn sagði í vikunni að
hann vildi að allar stærstu deildir
Evrópu yrðu minnkaðar, þannig að
í þeim lékju aðeins 16 félög.
TUTTUGU lið leika í ensku úr-
valsdeildinni og Dein, sem einnig
er varaformaður enska knatt-
spyrnusambandsins, segir að ekki
komi til greina að fækka þeim.
Blatter muni ekki ráða ferðinni á
því sviði.
ENSKA knattspyrnufélagið
Wolverhampton Wanderers, sem
Jóhannes Karl Guðjónsson leikur
með, gerði brasilíska sóknarmann-
inum Rivaldo tilboð um að leika
með því. Rivaldo, sem er laus und-
an samningi hjá AC Milan, hafnaði
boðinu.
DAVE Jones, knattspyrnustjóri
Wolves, sagði í dag að hann hefði
fengið svarið sem hann bjóst við,
Rivaldo vildi eflaust komast að hjá
stærra félagi. „En það sakaði ekki
að spyrja, öðruvísi gerist ekki
neitt,“ sagði Jones.
LOKAHNYKKURINN í und-
irbúningi íslenska landsliðsins
í handknattleik fyrir Evr-
ópumótið sem fram fer í Slóv-
eníu 22. janúar til 1. febrúar
verður þátttaka á fjögurra
þjóða móti sem fram fer í Dan-
mörku og Svíþjóð dagana 15.–
17. janúar.
Íslendingar mæta Dönum í
Farum í Danmörku fimmtu-
daginn 15. janúar, föstudaginn
16. jaúnar verður spilað við
Svía í Baltiska höllinni í
Malmö í Svíþjóð og gegn
Egyptum í Farum hinn 17.
Fyrsti leikur Íslands á Evr-
ópumótinu verður á móti
heimamönnum í Slóveníu hinn
22. október í Celje.
Mæta
Dönum,
Svíum og
Egyptum
ÓSKAR Elvar Óskarsson, fyrrum
fyrirliði handknattleiksliðs HK,
hefur framlengt samning sinn við
svissneska félagið Lyss og leikur
með því til vorsins 2005.
Óskar Elvar er nú á sínu öðru ári
hjá félaginu, sem leikur í 2. deild.
Lyss er í þriðja sæti í sínum riðli
deildarinnar og á góða möguleika á
að komast í úrslitakeppni um sæti í
1. deild.
Óskar Elvar skoraði 9 mörk í síð-
asta leik liðsins en þá sigraði það
Birsfelden, 29:25.
Óskar Elvar áfram í Sviss
Víkingur lauk keppni í riðlinummeð fullt hús stiga út úr
heimaleikjum sínum en KA-menn
biðu sinn fyrsta
ósigur á útivelli.
Það mátti snemma
greina í Víkinni í
gær að heimamenn
ætluðu að selja sig dýrt. Baráttu-
glaðir Víkingar náðu fljótlega und-
irtökunum. Drifnir áfram af góð-
um leik Bjarka Sigurðssonar og
Reynis Reynissonar í markinu
virtust Víkingar ætla að kafsigla
norðanmenn. Vörn KA-manna var
í molum og markvarslan sömuleið-
is og þegar Víkingar náðu mest
sex marka forskoti í fyrri hálfleik,
16:10, stefndi allt í öruggan Vík-
ingssigur. Arnór Atlason hélt hins
vegar lífi í KA-mönnum en þessi
frábæri leikmaður skoraði átta af
mörkum KA-liðsins í fyrri hálfleik
og það var fyrir hans framlag sem
KA náði að minnka muninn niður í
þrjú mörk fyrir leikhlé.
Víkingar hófu síðari hálfleikinn
af krafti. Þeir skoruðu þrjú fyrstu
mörkin og Reynir Reynisson hélt
uppteknum hætti í marki Víkinga.
Þegar staðan var orðin, 24:15, eftir
tíu mínútna leik virtist aðeins
formsatriði að ljúka leiknum en
svo var nú alls ekki. KA-menn
tóku sig taki og bættu sérstaklega
varnarleik sinn og með elju og
baráttu tókst þeim að hleypa
spennu í leikinn á lokakaflanum.
Andrius Stelmokas fór mikinn í
liði KA. Hann skoraði á skömmum
tíma fimm mörk flest úr hraðaupp-
hlaupum og þegar Jónatan Magn-
ússon minnkaði muninn í tvö
mörk, 27:25, sjö mínútum fyrir
leikslok var Víkingum mjög brugð-
ið.
Endasprettur Víkinga
kom of seint
Þeim tókst hins vegar að halda
haus og enn og aftur kom Reynir
sínum mönnum til bjargar með
góðri markvörslu og eins skoraði
Litháinn Tomas Kavolius mikilvæg
mörk á lokasprettinum.
„Við ætluðum að klára okkar og
gerðum það svo sannarlega en því
miður kom þessi góði endasprettur
í riðlinum of seint. En engu síður
er ég stoltur af strákunum. Við rif-
um okkur vel upp og eftir að við
fengum Bjarka og Litháann inn í
liðið töpuðum við ekki leik. Við er-
um svo sannarlega komnir á kortið
og ég segi að við getum unnið
hvaða lið sem er. Nú tekur við að
byggja ofan á það sem við höfum
gert í síðustu leikjum og ég lofa
því að við komum enn sterkari til
leiks á nýju ári,“ sagði Gunnar
Magnússon, þjálfari Víkings, við
Morgunblaðið.
Reynir Þór átti frábæran leik í
markinu en hann varði vel á þriðja
tug skota, mörg úr opnum færum.
Bjarki Sigurðsson og Tomas Kav-
olius skiluðu báðir afbragsleik,
Bjarki í landsliðsklassa og Lithá-
inn öflug skytta og góður varn-
armaður. Þá átti Ásbjörn Stefáns-
son góðan leik í horninu og
heildarsvipurinn á Víkingsliðinu
góður.
KA-menn virkuðu hálf væru-
kærir og sú barátta og kraftur
sem einkennt hefur liðið megnið af
tímabilinu var ekki til staðar. Arn-
ór Atlason var yfirburðamaður í
norðanliðinu en Víkingar náðu þó
heldur að hægja á honum í seinni
hálfleik. Stelmokas var daufur
framan af en náði góðri rispu í
seinni hálfleik en menn eins og
Einar Logi Friðjónsson og Jón-
atan Magnússon náðu sér ekki á
strik frekar en vörnin og mark-
verðirnir þrír sem allir fengu að
spreyta sig.
Morgunblaðið/Þorkell
Benedikt Örn Jónsson, Víkingur, skorar hér eitt fjögurra marka sinna gegn KA í gærkvöldi í Vík-
inni án þess að Andríus Stelmokas komi vörnum við.
Víkingar sitja eftir
þrátt fyrir sigur á KA
VÍKINGAR héldu sigurgöngu sinni áfram á handboltavellinum í gær
þegar þeir lögðu KA-menn frá Akureyri , 31:29, í hröðum og fjör-
ugum leik í Víkinni. Þetta var sjöundi sigurleikur Víkinga í röð, en
hann dugði þó ekki til að fleyta þeim röndóttu inn í úrvalsdeildina
sem hefst í febrúar. Víkingar sitja eftir í fimmta sæti norðurriðilsins
og hafa lokið keppni en til marks um jafna keppni tróna KA-menn á
toppnum með jafnmörg stig og Víkingur og hafa tryggt sér sæti í úr-
valsdeildinni.
Guðmundur
Hilmarsson
skrifar
RYAN Giggs frá Manchester United
var í gær úrskurðaður í tveggja
leikja bann með landsliði Wales af
aganefnd UEFA. Giggs var fundinn
sekur um að hafa gefið rússneska
varnarmanninum Vadim Evseev
olnbogaskot í fyrri leik þjóðanna um
sæti í lokakeppni EM. Giggs tekur
bannið út í tveimur fyrstu leikjum
Walesbúa í undankeppni HM.
Rússar kröfðust þess að Giggs
yrði úrskurðaður í bann strax eftir
fyrri leik þjóðanna í Moskvu, sem
endaði 0:0. UEFA taldi hins vegar of
skamman tíma á milli leikjanna til að
skoða málið til hlítar og Giggs lék
því seinni leikinn í Cardiff, sem
Rússar unnu, 1:0, og komust með því
í lokakeppnina í Portúgal.
Giggs fékk
tvo leiki