Morgunblaðið - 06.12.2003, Síða 84

Morgunblaðið - 06.12.2003, Síða 84
ÍÞRÓTTIR 84 LAUGARDAGUR 6. DESEMBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ JÓHANNES Karl Guðjónsson, landsliðsmaður í knatt- spyrnu, sagði við Evening Mail í gær að Wolves myndi nota skellinn gegn Arsenal á Highbury í deildabik- arnum til að rífa sig í gang á ný í ensku úrvalsdeildinni. Úlfarnir steinlágu, 5:1, gegn Arsenal sem aðeins tefldi fram þremur leikmönnum úr aðalliðshópi sínum. Wolv- es fer aftur til norðurhluta London í dag og leikur þar við Tottenham. „Þegar við mættum Arsenal var þetta einn af þessum dögum þar sem við lékum illa en þeir voru frábærir. Fyrsta markið sem við fengum á okkur var ódýrt, og eftir að hafa séð leikinn í sjónvarpi tel ég að um rangstöðu hafi verið að ræða í tveimur síðustu mörkunum, svo lokatölurnar voru dálítið ýktar. Þetta var slæmur leikur en við erum ekki vanir að gefast upp og munum halda okkar striki. Vonandi getum við næsta vor litið til baka á þennan leik við Arsenal og sagt að það hafi verið hann sem kom okkur í gang,“ sagði Jóhannes Karl. Wolves situr á botni deildarinnar ásamt Leeds með 11 stig. Tottenham er aðeins fjórum stigum fyrir ofan. Nýta sér skellinn á Highbury Jóhannes Karl Guðjónsson HERMANN Hreiðarsson, landsliðsmaður í knatt- spyrnu, og félagar í Charlton eiga enn í talsverðum vandræðum vegna meiðsla og útlit er fyrir að sjö sterka leikmenn vanti þegar þeir sækja Southampton heim í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu á morgun. Ljóst er að Luke Young, Richard Rufus, Gary Rowett og Shaun Bartlett verða ekki með vegna meiðsla og þá er mjög tvísýnt um Jonatan Johansson, Kevin Lisbie og Paolo di Canio. Hermann verður hins vegar á sínum stað í vörninni. Charlton er í 5. sæti úrvalsdeildarinnar og hefur aldrei byrjað tímabilið þar jafn vel, þrátt fyrir að liðið hafi aldrei getað stillt upp öllum sínum sterkustu leik- mönnum. Charlton tapaði óvænt fyrir botnliði Leeds á dögunum en hafði áður leikið sjö leiki í röð án þess að bíða lægri hlut. Eiður Smári Guðjohnsen verður fjarri góðu gamni vegna meiðsla þegar Chelsea, sem er í efsta sæti deild- arinnar, heimsækir botnliðið, Leeds, í dag. Nokkuð er um meiðsli leikmanna Chelsealiðsins. Mikið um meiðsli hjá Charlton FJÖLMARGIR landsliðsþjálf- arar liða í Evrópu voru mættir til Frankfurt til að fylgjast með drættinum í riðla í heims- meistarakeppninni. Þar í hópi voru Dick Advocaat (Hol- landi), Oleg Blochin (Úkra- ínu), Sven-Göran Eriksson (Englandi), Giovanni Trapat- toni (Ítalíu), Horst Heese (Möltu), Morten Olsen (Dan- mörku), Otto Rehhagel (Grikklandi), Ásgeir Sigur- vinsson og Logi Ólafsson, Berti Vogts (Skotlandi), Luiz Felipe Scolari (Portúgal), sem stýrði Brasilíumönnum til sig- urs í heimsmeistarakeppninni í Suður-Kóreu og Japan 2002, Hans-Peter Briegel (Albaníu), Hans Krankl (Austurríki), Jac- ques Santini (Frakklandi) og Allan Simonsen (Lúxemborg). Margar gamalkunnar þýsk- ar hetjur verða á staðnum, eins og þýski landsliðsþjálfar- inn Rudi Völler, Franz Beck- enbauer, Uwe Seeler, bræð- urnir Uli Hoeness og Dieter Hoeness, Karl-Heinz Rumme- nigge, Oliver Bierhoff og Jür- gen Klinsmann. Ásgeir sagði að það hafi verið gaman að hitta og ræða við marga gamla félaga og menn sem hann kynntist er hann var leikmaður hjá Bay- ern München og Stuttgart í Þýskalandi – í hófi FIFA á fimmtudagskvöldið. Ásgeir og Logi Ásgeir og Logi í góðra manna hópi ALÞJÓÐA knattspyrnusambandið, FIFA, tilkynnti í gær að það komi ekki til greina að tvær Afríkuþjóðir haldi heimsmeistarakeppnina 2010, eins og Suður-Kórea og Japan gerðu 2002. Fimm Afríkuþjóðir hafa sótt um að halda heimsmeist- arakeppnina – Suður-Afríka, Egyptaland, Líbýa, Marokkó og Túnis. Líbýa og Túnis höfðu sýnt áhuga á að fá að halda keppnina saman. Það verður ákveðið í Zürich í Sviss 15. maí 2004 hvaða þjóð fær keppnina, en mestar líkur eru á að Suður-Afríka verði fyrir valinu. HM 2010 í Afríku Ísland hefur ekki áður leikið gegnKróatíu, en hefur mætt Búlgaríu, Ungverjalandi og Möltu í undan- keppni HM og Sví- þjóð í undankeppni Evrópukeppni landsliða. „Það er ljóst að það verður hart barist í þessum riðli. Svíar, Króatar og Búlgarar eru fyrir ofan okkur á styrkleikalistanum og Ungverjar voru með sterkasta liðið sem var í fimmta styrkleikaflokki. Ég tel að Króatar, Búlgarar og Ung- verjar séu svipaðir að styrkleika. Það verður hörð barátta í öllum leikjum og lið eiga eftir að tæta stig af hvert öðru,“ sagði Ásgeir, sem var ekki búinn að jafna sig á drættinum þegar Morgunblaðið hafði samband við hann strax eftir dráttinn. Hræðast Laugardalsvöllinn Ásgeir sagði að til að ná sem lengst í riðlinum yrði íslenska liðið að ná sem bestum árangri á heima- velli. „Við vitum að andstæðingar okkar hræðast Laugardalsvöllinn, þar sem við höfum náð góðum ár- angri á síðustu árum. Okkar sterk- asta vopn er heimavöllurinn og við ætlum okkur að halda því vopni hátt á lofti. Þá hefur það sýnt sig að við getum náð stigum á útivöllum. Nú verðum við að spýta í lófana og hefja undirbúning okkar fyrir átökin,“ sagði Ásgeir. Þrír mótherjar í sviðsljósinu í EM í Portúgal Ásgeir og Logi Ólafsson fá mörg góð tækifæri til að fylgjast með mót- herjum Íslands fyrir átökin sem hefjast í september 2004. Þrír mót- herjar Íslands verða í sviðsljósinu í Evrópukeppni landsliða í Portúgal næsta sumar – Búlgaría og Svíþjóð, sem leika í sama riðli og Króatía. Þetta eitt sýnir hvað riðillinn sem Ís- land leikur í, er sterkur. „Við verðum að fá nokkra lands- leiki í vetur og næsta sumar, til að undirbúa okkur sem best fyrir átök- in – stilla saman strengi okkar,“ sagði Ásgeir. Ísland hefur aldrei áður leikið landsleik gegn Króatíu, en Ásgeir þekkir þó vel til manna í herbúðum Króata. „Formaður knattspyrnu- sambands Króatíu var fyrsti þjálfari minn, er ég hóf atvinnuknattspyrnu- feril minn hjá Standard Liege í Belg- íu,“ sagði Ásgeir, sem var 18 ára er hann byrjaði að leika með Standard Liege 1973. Formaðurinn heitir Vlatko Markovic. Ásgeir þekkir einnig þjálfara Króatíu vel. „Otto Baric var þjálfari minn hjá Stuttgart eitt keppnistímabil,“ sagði Ásgeir. Fyrri viðureignir á stórmótum Ísland hefur einu sinni leikið í riðli með Ungverjum í heimsmeistara- keppni. Það var fyrir HM í Banda- ríkjunum 1994. Ísland vann þá óvæntan sigur í Búdapest 1992 – er Hörður Magnússon skoraði sigur- markið, 2:1. Sigur vannst einnig í Reykjavík 1993 – 2:0. Í síðustu heimsmeistarakeppni lék Ísland í riðli með Búlgaríu og Möltu. Búlgarar fögnuðu sigri í Sofíu, 2:1, en jafntefli var í Reykjavík, 1:1. Ís- land fagnaði sigri á Möltumönnum á Möltu 4:1 og í Reykjavík, 3:0. Fyrir EM í Englandi 1996 lék Ís- land í riðli með Svíþjóð og Ungverja- landi. Svíar unnu í Reykjavík, 1:0. Jafntefli varð í Gautaborg – þar sem heyra mátti saumnál falla þegar Arnar Gunnlaugsson jafnaði með skoti beint úr aukaspyrnu, 1:1. Þögn- in á vellinum var eins og á sumar- kvöldi í Ásbyrgi. Stuttu eftir leikinn í Gautaborg voru Ungverjar lagðir að velli í Reykjavík, 2:0. Ungverjar fögnuðu síðan sigri í Búdapest, 1:0. Ásgeir Sigurvinsson sagði að hann og Logi hefðu ekki fengið það sem þeir óskuðu sér „Geysilega sterkur og erfiður riðill“ „ÞAÐ er ljóst að við höfum hafn- að í geysilega sterkum og erf- iðum riðli. Þetta var ekki beint það sem við óskuðum okkur, en við verðum að taka á málunum,“ sagði Ásgeir Sigurvinsson, landsliðsþjálfari í knattspyrnu, eftir að búið var að draga í riðla í undankeppni heimsmeistara- keppninnar í Þýskalandi 2006 – í Frankfurt í gærkvöldi. Íslend- ingar halda niður Balkanskag- ann og leika þar við Króatíu og Búlgaríu, ásamt því að fara til Svíþjóðar, Ungverjalands og Möltu. Reuters Króatinn Ivica Olic mun leika gegn Íslandi. Hér á hann í höggi við Englendinginn Rio Ferdinand. Eftir Sigmund Ó. Steinarsson 1, Tékkland 2. Holland 3. Rúmenía 4. Finnland 5. Makedónía 6. Armenía 7. Andorra 1. Frakkland 2. Írland 3. Sviss 4. Ísrael 5. Kýpur 6. Færeyjar 1. Tyrkland 2. Danmörk 3. Grikkland 4. Úkraína 5. Georgía 6. Albanía 7. Kasakstan 1. Portúgal 2. Rússland 3. Slóvakía 4. Lettland 5. Eistland 6. Liechtenstein 7. Luxemborg 1. RIÐILL 2. RIÐILL 3. RIÐILL 4. RIÐILL Róðurinn verður erf- iður hjá Íslendingum í undankeppni HM. Þeir verða í sviðsljósinu – Ívar Ingimarsson, Eið- ur Smári Guðjohnsen, fyrirliði landsliðsins, og Logi Ólafsson landsliðsþjálfari.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.