Morgunblaðið - 19.11.2004, Síða 16

Morgunblaðið - 19.11.2004, Síða 16
16 FÖSTUDAGUR 19. NÓVEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR LANDSPÍTALI – háskólasjúkrahús gekkst í gær fyrir árlegri ráðstefnu um fjármögnunarleiðir í heilbrigðis- kerfinu, undir yfirskriftinni „Auð- legð í heilbrigðiskerfinu“. Aðallega var fjallað um reynslu sjúkrahúsa hér og erlendis af svonefndu fram- leiðslumælikerfi, DRG, sem er nokk- urs konar sjúkdómamiðuð flokkun á aðgerðum og afköstum sjúkrahúsa. Af erindum og samtölum við fyr- irlesara má ráða að innleiðing þessa kerfis hér á landi er langt komin og reynsla af því betri en víða annars staðar. Þannig hefur aðferð LSH við innleiðingu kerfisins vakið athygli sjúkrastofnana erlendis og tilboð m.a. borist um samstarf frá Svíþjóð. Dr. Birgir Jakobsson, barnalækn- ir og forstjóri St. Göran sjúkrahúss- ins í Stokkhólmi, flutti tvö erindi á ráðstefnunni í gær. Hann hefur verið búsettur í Svíþjóð í meira en aldar- fjórðung og stýrir nú eina einka- rekna bráðasjúkrahúsi Svíþjóðar. Þar starfa um 1.500 manns og veltir sjúkrahúsið um einum milljarði sænskra króna á ári, eða tæpum 10 milljörðum króna. Birgir segir í samtali við Morgun- blaðið að DRG-kerfið sé bara einn hluti þeirra bóta sem koma þurfi á í heilbrigðiskerfinu en engu að síður afar nauðsynlegur. Mikilvægt sé að fá kunnáttu heilbrigðisstarfsmanna til að nýtast sem best í þessu starfi. Hann segir engan vafa leika á því að hagstætt sé fyrir Íslendinga að koma inn í þá vinnu sem fram fari á sjúkra- húsum á Norðurlöndum í að bæta rekstur þeirra og hagkvæmni. Í dag séu Íslendingar að mörgu leyti komnir lengra í þessari vinnu en önnur Norðurlönd. „Svíar eru komnir langt í að nota kerfið en hérna er búið að þróa það mjög vel. Mikilvægast er að sjá til þess að kerfið sé notað í raun. Hug- myndaauðgi er mikil hér á landi og margir möguleikar á að koma góðum hlutum til leiðar,“ segir Birgir og tekur sem dæmi hvernig lyfjakostn- aði er dreift á Landspítalanum og hvernig honum er skipt á sjúklinga. Þetta sé nokkuð sem hafi tekið 15 ár að ræða um í Skandinavíu án lausn- ar. Ánægð með Íslendinga Dr. Jugna Shah flutti erindi um uppruna og þróun DRG-kerfis í Bandaríkjunum og reynslu af flokk- unarkerfi á legu- og göngudeildar- sjúklingum þar í landi. Hún hefur sérhæft sig í breyttri fjármögnun í ferliþjónustu og stýrir fyrir hönd tveggja bandarískra stofnana inn- leiðingu á breyttri fjármögnun í heil- brigðisþjónustu í Austur-Evrópu. Hún segist í samtali við Morgun- blaðið hafa orðið undrandi á að sjá hvað Landspítalinn hafi áorkað miklu undanfarin fjögur ár í að breyta fjármögnun sinni. Í fyrstu hafi hún spurt sig þeirrar spurning- ar af hverju lítið land á borð við Ís- land hafi þurft að nota mælikerfi á borð við DRG. Þeirri spurningu hafi verið auðsvarað þegar hún áttaði sig á hve rekstur og starfsemi Landspít- alans væri umfangsmikil. Góð reynsla og þekking sé til staðar og DRG-kerfið hafi í raun þegar verið komið í notkun áður en farið var að tala um breytta fjármögnun í rekstri spítalans. „Ég er mjög ánægð að sjá hve Íslendingar hafa náð miklum ár- angri á jafnskömmum tíma og óvenjulegt hvernig frumkvæðið kemur meira frá sjúkrahúsinu held- ur en stjórnvöldum,“ segir Shah. Hún segir reynsluna í Bandaríkj- unum af notkun DRG-kerfis vera góða. Í upphafi hafi verið efasemd- araddir um að þjónusta sjúkrahúsa myndi versna og gæðin um leið. Sá ótti hafi reynst ástæðulaus. Hún segir það ekki miklu skipta í þessu tilliti hvort sjúkrahús eru í op- inberri eigu eða einkarekin. Í hvoru tilviki fyrir sig þurfi allir kaupendur þjónustunnar, þ.e. stjórnendur sjúkrahúsa, stjórnvöld og sjúkling- ar, að vita hvað þeir séu að kaupa. Kerfi eins og DRG gefi möguleika á samanburði milli sjúkrahúsa. Þannig megi velta fyrir sér og skoða ástæð- ur þess að tvö sambærileg sjúkrahús hafi annars vegar 5 legudaga að meðaltali og hins vegar 12 daga. Upplýsingar sem þessar geti skipt stjórnvöld eða eigendur sjúkrahúsa máli þegar leggja þurfi til fjármagn í reksturinn. Guðrún Björg Sigurbjörnsdóttir, verkefnisstjóri LSH í breyttri fjár- mögnun, kynnti stöðu þessa verkefn- is, sem hefur verið í gangi frá árinu 2000. Af máli hennar mátti ráða að verkefnið væri langt komið og DRG- kerfið yrði komið í notkun á flestum deildum á næsta ári. Þjónustusamn- ingur yrði jafnvel gerður við ríkið á næsta ári og árið 2006 mætti tala um að breytt fjármögnun LSH væri endanlega orðin að veruleika. Guðrún sagði verkefnið hafa verið kynnt á erlendis og fengið mjög góð viðbrögð og nokkra athygli. Sagði hún tilboð vera komið frá sjúkrahúsi í Svíþjóð um samstarf við innleiðingu DRG-kerfis. Þar hefði athyglin m.a. beinst að því hve nákvæm sýn feng- ist við kostnað af rekstri sjúkrahúsa með því að flokka þjónustuna eftir sjúkdómum og aðgerðum. Guðlaug Rakel Guðjónsdóttir, sviðsstjóri lyflækningasviðs I, sagði að þrátt fyrir stutta reynslu af notk- un DRG-kerfis á legudeildunum hefði margt áunnist. Þessi vinna færi fram um leið og illa gengi að ná end- um saman við rekstur sviðsins. Stöð- ug aukning væri á legutíma á dag- og göngudeildum, legurýmum hefði fækkað úr 200 fyrir þremur árum niður í 166 í dag og á þessu ári stefndi í 7% umframkeyrslu fjár- heimilda, hátt í 200 milljónir króna. Ef vel tækist til við notkun kerfisins yrði hægt að rökstyðja betur þá fjár- muni til deildanna sem óskað væri eftir. Mestu skipti að þjónustan við sjúklingana minnkaði ekki, starfs- menn sjúkrahúsa yrðu ávallt að muna að þeir væru þar til staðar fyr- ir sjúklingana og enga aðra. Ráðstefna Landspítalans um nýjar fjármögnunarleiðir í heilbrigðiskerfinu Ísland komið lengra í mælingu á afköstum TENGLAR .............................................. www.lsh.is/drg Morgunblaðið/Sverrir Ráðstefna Landspítalans var fjölsótt. Fyrir miðju á fremsta bekk er Jóhannes M. Gunnarsson, settur forstjóri LSH. Birgir Jakobsson Jugna Shah FRAMLEIÐSLUMÆLIKERFIÐ DRG (Diagnosis Related Groups), eða sjúkdómamiðuð flokkun, er bandarískt að uppruna og hefur náð hvað mestum vinsældum meðal sjúk- lingaflokkunarkerfa á sjúkrahúsum. Er kerfinu ætlað að skilgreina starf- semi sjúkrahúsa í formi „afurða“ og halda utan um allan kostnað sem ligg- ur að baki hverri aðgerð. Byggist kerfið á flokkun sjúklinga eftir sjúk- dómsgreiningum, aðgerðum og með- ferðum, kyni, aldri og eðli útskriftar í 500 greiðsluflokka. Markmiðið er að sjá nákvæmlega í hvað fjármunum spítalans er varið og verður þannig til nokkurs konar verðskrá. Eftir nokkurt hlé var kerfið tekið upp að nýju hér á landi fyrir fjórum árum, við sameiningu Sjúkrahúss Reykjavíkur og Ríkisspítalanna. Ver- ið er að þróa séríslenska útgáfu, DRG-IS, á Landspítalanum og hefur það verið innleitt á flestum deildum. Fá þær framlög með tilliti til afkasta en algengast er að um þriðjungur af fjármagni til deilda LSH er tengdur afköstum, annað fjármagn er á föst- um framlögum. Er allur kostnaður færður á með- ferð sjúklinga nema stofn- og við- haldskostnaður, S-merkt lyf á dag- og göngudeildum og kennslu- og vís- indakostnaður. Þannig sýnir DRG- kerfið að meðalkostnaður við meiri háttar aðgerð í brjóstholi var 830 þús- und krónur á síðasta ári. Alls fóru 68 sjúklingar í slíka aðgerð en kostnaður við sjö „dýrustu“ sjúklingana var frá 1,3 milljónum kr. upp í 2,1 milljón, eða um 20% af heildarkostnaði af stórum brjóstholsaðgerðum. Ef skoðun spít- alans leiðir í ljós að aukinn kostnaður er vegna innra skipulags, mismun- andi aðferða, skráningar eða þess að reglur eru óskýrar er tækifæri til um- bóta, segir í nýjum bæklingi Land- spítalans um breytta fjármögnun. Hvað er DRG-kerfi? EITT af markmiðum framleiðslu- mælikerfis, DRG, á Landspít- alanum er að ganga frá öllum upp- lýsingum í sjúkraskrá og draga úr hættu á rangri skráningu. Í erindi sviðsstjóra lyflækningasviðs I, Guð- laugar Rakelar Guðjónsdóttur, kom m.a. fram að eftir fyrstu níu mánuði þessa árs hefðu um 16% sjúkra- skráa á lyflækningasviðinu verið ófrágengnar og stefnan væri sett á 1% hlutfall. Fyrir ári var þetta hlut- fall í um 30%. Í lok september sl. átti sem sagt eftir að ganga frá um 1.200 sjúkraskrám af 7.500 útskrif- uðum sjúklingum á legudeildum Guðrún Björg Sigurbjörnsdóttir, verkefnisstjóri breyttrar fjármögn- unar hjá Landspítalanum, fullviss- aði ráðstefnugesti um að kerfið léti örugglega vita ef karlmaður væri skráður fyrir fæðingu barns eða ef aldraður sjúklingur væri skráður í sjúkraskrá með nýburagulu. Slíkar skráningar ættu að uppgötvast í tæka tíð. Lætur vita ef karl er skráður fyrir fæðingu!

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.