Morgunblaðið - 19.11.2004, Page 25

Morgunblaðið - 19.11.2004, Page 25
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 19. NÓVEMBER 2004 25 MINNSTAÐUR Velkomin í Eignamiðlun, elstu starfandi fasteignasölu á landinu. Velkomin í trausta og ábyrga þjónustu hjá fólki sem er með áratuga reynslu af fasteignaviðskiptum. Velkomin í pottþétt fasteignaviðskipti, -við sjáum um allt fyrir þig, -nema flutningana. Velkomin heim! ÍSLEN SKA A U G LÝSIN G A STO FA N /SIA .IS EIG 26088 LJÓ SM YN D : SILJA M A G G Síðumúla 21 sími 588 90 90 www.eignamidlun.is LANDIÐ FÉLAGIÐ IBBY á Íslandi mun færa öll- um leikskólum á landinu myndadagatal að gjöf í því augnamiði að hvetja leik- skólakennara, foreldra og aðra uppal- endur til að lesa sem mest fyrir börn allt frá unga aldri. Fyrsta eintakið afhenti Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráðherra á leikskólanum Hofi við Gullteig í Reykjavík í gær. Margt bendir til að börn lesi sífellt færri bækur, að því er fram kemur hjá Guðlaugu Richter sem sæti á í stjórn IBBY á Íslandi, og að lesskilningur hafi minnkað. Útgáfa dagatalsins er nýtt átak hjá IBBY til að reyna að sporna við þessu. Myndabókadagatalið er hannað af Ás- laugu Jónsdóttur en tólf höfundar eiga myndir í því. Er vonast til þess að með því að láta dagatalið hanga uppi í leikskólum landsins vakni forvitni barnanna á bók- um og um leið hvetji það kennara og for- eldra til að lesa sem mest fyrir börnin. Morgunblaðið/Jim Smart Dagatal Guðlaug Richter sýnir börn- unum á Hofi dagatalið og Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir fylgist með. Hvetja for- eldra til að lesa fyrir börnin Kópasker | „Þetta er spurning um persónuleika. Mér hefur lánast að lifa lífinu með þessum löngu vökt- um,“ segir Sigurður Halldórsson, heilsugæslulæknir á Kópaskeri. Hann hefur nú verið læknir á Kópaskeri í tuttugu ár og bauð af því tilefni samstarfsfólki upp á tertu í vikunni, enda er Sigurður í hópi þeirra starfandi lækna á landsbyggðinni sem lengst hafa unnið einir. Kópasker er læknissetur frá gamalli tíð en í hálfan annan ára- tug, áður en Sigurður kom þangað til starfa, var læknislaust og hér- aðinu þjónað frá Húsavík. Sigurður segir að það hafi verið erfitt fyrir íbúana enda full langt að fara og vegir slæmir. Stöðug framþróun Sigurður segir að á þeim tuttugu árum sem hann hafi starfað á Kópaskeri hafi verið stöðug framþróun og uppbygging á þessu sviði og það sé megin ástæðan fyrir því að hann hafi ekki hugsað sér til hreyfings. Hann nefnir að fyrst þegar hann kom til starfa á Kópa- skeri hafi þetta verið dæmigert ein- menningshérað, eins og algengt var á þeim tíma. Fyrst hafi aðstaðan verið bætt mjög, meðal annars með nýju húsnæði. Svæðið hafi stækkað og hann þjónað Raufarhöfn meg- inhluta tímans. Síðan hafi verið aukin samvinna læknanna í Norð- ur-Þingeyjarsýslu og heilsugæslu- stöðvarnar síðar sameinast undir eina stjórn. „Það varð öllu þægi- legra og auðveldaði manni að kom- ast frá,“ segir Sigurður. Síðar var stofnuð Heilbrigð- isstofnun Þingeyinga um allar heilsugæslustöðvarnar í báðum sýslunum og sjúkrahúsið á Húsa- vík. Sigurður er nú yfirlæknir heilsugæslu í Norður-Þingeyj- arsýslu og hefur því yfirumsjón með starfseminni á Þórshöfn þar sem læknir er starfandi, auk Rauf- arhafnar og Kópaskers sem hann sinnir sjálfur. Síðasta atriði framþróunarinnar sem Sigurður nefnir er kennsla læknakandídata. Heilbrigð- isstofnun Þingeyinga hefur tekið lækna í starfsnám í heimilislækn- ingum og hefur Sigurður annast það. Loks má geta þess að hann kemur að reyksímanum sem rekinn er af Heilbrigðisstofnuninni og er til að aðstoða fólk við að hætt að reykja. Hjúkrunarfræðingar á veg- um stofnunarinnar svara fyr- irspurnum fólks og leita til Sig- urðar þegar upp koma læknisfræðilegar spurningar. Sigurður samsinnir því að mikið álag fylgi því að starfa einn. Menn séu á vakt í bráðatilvikum í langan tíma og það hafi fælt lækna frá ein- menningsstöðvunum. „Þetta hefur batnað með auknu samstarfi sem auðveldar manni að komast frá. Eigi að síður er vaktbindingin mik- il. Maður verður að læra að lifa með þessu. Það verður að vera hluti af lífsstílnum að lifa lífinu án þess að bíða eftir því að bráðatilvikin komi upp en vera tilbúinn að taka því þegar það gerist. Ég held að mér hafi tekist það,“ segir Sigurður. Hann segir að auk samstarfsins innan Heilbrigðisstofnunar Þing- eyinga hafi það hjálpað mikið að eiga fjölskyldu í héraðinu. Sigurður er frá Valþjófsstöðum í Öxarfirði og býr þar í húsi sem nefnist Vin. „Svo er ég kvæntur sálfræðingi. Það hjálpar að geta ausið úr sér þegar á þarf að halda,“ segir Sigurður, en kona hans er Ingunn St. Svav- arsdóttir sálfræðingur og myndlist- armaður, fyrrverandi sveitarstjóri á Kópaskeri. En Sigurður sér marga kosti við starfið. „Það er gefandi að starfa úti á landi. Starfið er afar fjölbreytt og allt að því hvaða vandamál sem er geta komið upp. Þá eru íbúarnir ekki fleiri en svo að maður getur haldið vel utan um hópinn. Undan því kvarta einmitt læknar í þéttbýl- inu. Og fólkið er þakklátt, ég fæ að finna það að starf mitt er metið og það er ekki svo lítils virði,“ segir Sigurður. Kom sér upp afleysingamanni Á ýmsu hefur gengið í atvinnulíf- inu á svæði Sigurðar á þessum tíma, þar hefur stundum verið mik- ill uppgangur og bjartsýni en einn- ig samdráttur og svartsýni. Hann segir að fólki hafi fækkað en það hafi ekki dregið úr umfangi lækn- isstarfsins því meðalaldur hafi hækkað. Þá segir hann ýmislegt já- kvætt að gerast, meðal annars í samgöngumálum. Loksins sé kom- inn góður vegur fyrir Tjörnes og það komi sér vel fyrir hann. Kristbjörg dóttir Sigurðar er læknir og hefur leyst hann af í sum- arleyfum undanfarin ár. „Ég varð að koma mér upp afleysingamann- eskju,“ segir Sigurður og segir að það hafi létt álaginu að hafa trygga afleysingu síðustu árin. „Ég veit það nú ekki, en ég læt engan bilbug á mér finna,“ segir Sigurður þegar blaðamaður hyggst panta viðtal við hann um sama mál eftir önnur tutt- ugu ár. Boðið í tertu á heilsugæslustöðinni á Kópaskeri á tuttugu ára starfsafmæli læknisins Verður að lifa lífinu með löngu vöktunum Morgunblaðið/Kristbjörg Sigurðardóttir Tuttugu ár á vaktinni Sigurður Halldórsson kann því vel að starfa í Öx- arfirði. Hann er í hópi þeirra lækna sem lengst hafa starfað einir.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.