Morgunblaðið - 19.11.2004, Page 29
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 19. NÓVEMBER 2004 29
DAGLEGT LÍF
MatsölustaðurinnBanthai við Laugaveg130, skammt fyrir of-an Hlemm, heyrist æ
oftar nefndur þegar talið berst að
áhugaverðum veitingahúsum í
Reykjavík. Hér er um að ræða taí-
lenskan stað sem hjónin Dúna og
Tómas Boonchang eiga og reka,
en þau settust að á Íslandi árið
1987. Tómas sagði að þau hefðu
fljótlega sett upp veitingahús með
íslensku sniði, en sá rekstur gekk
ekki upp. Árið 1991 hófu þau
rekstur Banthai þar sem áherslan
var lögð á taílenskar matarhefðir
og þá fór að ganga betur og sagði
Tómas að nú væri yfirleitt fullt
um helgar og oft fastagestir í
miðri viku. Þau hjónin hafa nú
opnað annan stað með verslun,
Nanathai í Skeifunni 4, þar sem
hægt er að fá allt hráefni til taí-
lenskrar matargerðar.
„Ég legg áherslu á gæði hráefn-
isins,“ segir Tómas. „Taílensk
matargerð á sér langa sögu og
Taílendingar leggja mikið upp úr
fjölbreyttu úrvali hráefnis í rétti
sína. Maturinn er yfirleitt létt eld-
aður og hráefnið helst stökkt. Á
þann hátt heldur það næring-
argildi sínu og upprunalegu
bragði. Taílenskur matur er oft
mikið kryddaður, þökk sé fjöl-
breyttu úrvali chili-kryddjurta. En
fólk kemst þó yfirleitt fljótt á
bragðið, enda fer styrkleiki
kryddsins alveg eftir smekk og
óskum hvers og eins. Ég mæli
ekki með notkun MSG (þriðja
kryddsins).“
Tómas sagðist oft hafa verið
beðinn um uppskriftir af réttum
veitingahússins, en aldrei gefið
þær upp fyrr en nú, er blaðamað-
ur Morgunblaðsins kom í heim-
sókn og pantaði sér forrétt og að-
alrétt samkvæmt ábendingum
lesenda um uppáhaldsrétti sína.
Annars vegar var um að ræða
Tom Kha Kai, hefðbundna taí-
lenska kjúklingasúpu, bragðbætta
með kókósmjólk, súraldini, svepp-
um og galangal. Í fyrstu var
bragðið talsvert sterkt, en hafði
þá eiginleika að venjast vel og
smám saman fór maður að leita
aftur og aftur í súpuna, jafnvel
eftir að byrjað var á aðalréttinum,
sem var Thai BBQ Seua Rong
Hai, eða „Öskur tígursins“, sem er
frægur taílenskur réttur; þunnt
skorið, grillað nauta-sirloin,
kryddað með myntu og kóríander.
Borið fram á salatbeði með fersku
súraldini og chilisósu. Er skemmst
frá því að segja að maturinn
bragðaðist einstaklega vel og full
ástæða til að mæla með honum.
Ekki sakar heldur að bragða á taí-
lenskum drykkjarföngum með taí-
lenska matnum og raunar bara
rökrétt og eðlilegt, en á Banthai
er boðið upp á borðvín, sem koma
frá elsta og stærsta vínhéraði Taí-
lands og bragðaðist Monsoon Vall-
ey Red Pokdum sérlega vel með
kjötréttinum. Þá er einnig hægt
að fá taílenskan bjór,
og er hægt að mæla
sérstaklega með
Singha, sem er mest
seldi bjórinn í Taí-
landi að sögn Tóm-
asar, sem bauð
blaðamanni jafn-
framt að smakka á
forréttinum Poh Pia
Tord, sem eru djúp-
steiktar vorrúllur,
bornar fram með
súrsætri hnetusósu
og má segja að sá
réttur hafi ekki
bragðast síður en
hinir tveir.
Andrúmsloftið á
Banthai er þægilegt,
afslappað og heim-
ilislegt og á efri hæð
veitingahússins er
boðið upp á sér-
aðstöðu í hlýlega inn-
réttuðum her-
bergjum fyrir allt frá
sex og upp í þrjátíu manna hópa.
Réttirnir sem hér er fjallað um
kostuðu á bilinu 1.590 til 2.890
krónur.
Einnig er sérstakur matseðill
fyrir mat sem hægt er að taka
með sér og kostar þá hver réttur
1.390 krónur.
Tom Kha Kai Súpa
Fyrir fjóra.
Innihald
170 g (6 oz.) niðurskorið kjúk-
lingakjöt
170 g (6 oz.)
niðurskornir sveppir
2-3 miðlungsstórir Galanga
(taílensk engiferrót)
7,5-2,5 cm langir bútar af
sítrónugrasi.
28 g (1 oz.) niðurskorið
kóríander
7 dl (24 oz.) vatn
5,7 dl (2 oz.) Pichaya-kókosmjólk
1 dl (4 oz.) Pichaya-súraldinsafi
eða sítrónusafi
1 dl (4 oz.)
Pichaya-fiskisósa
1 msk kraminn rauður chilipipar
2-3 fersk chili
örlítill sykur
Hitið vatnið í potti. Bætið kók-
osmjólkinni við, Galanga-engifer
og sítrónugrasinu. Setjið svo kjúk-
linginn í. Látið vatnið sjóða í 2
mínútur. Bætið svo við ferskum
chili og sveppum. Setjið svo Picha-
ya-safann og fiskisósuna í skálina
sem þið ætlið að bera réttinn fram
í. Ekki láta súraldinsafann og
fiskisósuna í sjóðandi súpuna!
Þegar kjúklingurinn er soðinn, er
súpan sett í skálina með fiskisós-
unni og safanum. Skreytið með
kóríander, kryddið eftir smekk
með rauðum chilipipar og berið
fram.
Bætið við sykri eftir smekk.
Thai BBQ – Nautakjöt
„Seua Rong Hai“
Fyrir fjóra
Um ½ kg (1 pund)
nautakjöt (fillet)
Sósa (ídýfa):
1 msk Thai chiliduft
1 msk kóríanderlauf
1 msk sneiddur vorlaukur
¼ b Pichaya-fiskisósu
5 msk Pichaya-súraldinsafi
Blandið öllu saman. Marínerið
kjötið í 3 matskeiðum af Pichaya-
fiskisósu og 3 matskeiðum af
dökkri, sætri Pichaya-sojasósu í
u.þ.b. klukkutíma.
Setjið kjötið á þéttriðna járn-
grind yfir grill og steikið. Snúið
kjötbitunum öðru hverju, þar til
það er tilbúið.
Berið fram með salatbeði með
fersku súraldini og chilisósu.
BANTHAI | Uppáhaldsrétturinn kjúklingasúpa og þunnt skorið, grillað nauta-sirloin
Öskur tígursins berst víða
Hefðbundin taílensk kjúklingasúpa: Tom Kha Kai.
Seua Rong Hai: Eða „Öskur tígursins“ er frægur taílenskur kjötréttur.
Hjónin Dúna og Tómas Boonchang: Eigendur
Banthai með pott af taílenskri kjúklingasúpu.
www.thaimatur.com
Hægt er að skoða matseðil á:
www.simnet.is/banthai
Hægt að skoða matseðil Nanathai
á:
www.nanathaistore.com
svg@mbl.is
Morgunblaðið/Jim Smart
Fæst í
bókabúðum
Fréttir á SMS