Morgunblaðið - 19.11.2004, Qupperneq 55

Morgunblaðið - 19.11.2004, Qupperneq 55
SÖNGSVEITIN Fílharmónía heldur tónleika í Hóladómkirkju nk. sunnudag kl. 14. Eru þeir hinir fyrstu af þrennum tón- leikum sem kórinn flytur í dóm- kirkjum landsins. Í tilefni þess að aðventan fer í hönd eru flest verkin á efnisskránni tengd að- ventu og jólum. Þar er að finna m.a. verk eftir rússnesku tón- skáldin Rachmaninov og Tsjak- ovskí, pólska tónskáldið Gor- ecky, enska endurreisnartón- skáldið William Byrd, Jón Ásgeirsson og Jakob Tryggva- son. Í mörg ár hefur Söngsveitin haldið aðventutónleika í Reykjavík en bregður nú út af vananum með því að fara að Hólum í Hjaltadal og í Skálholt en Reykvíkingar eiga þess einn- ig kost að hlusta því laugardags- kvöldið 27. nóvember verða tón- leikarnir í Dómkirkjunni í Reykjavík sem hefjast kl. 22.00. Þeir síðustu verða svo í Skál- holti á fullveldisdaginn 1. des- ember og hefjast kl. 21.00. Stjórnandi söngsveitarinnar er Óliver Kentish og meðleikari Guðríður St. Sigurðardóttir. Raddþjálfun annast Bjarney Ingibjörg Gunnlaugsdóttir. Söngsveitin Fílharmónía fagnar á þessu starfsári 45 ára afmæli sínu en fyrstu tónleika sína hélt kórinn í Þjóðleikhúsinu vorið 1960 þegar hann frum- flutti hér á landi tónverkið Carmina Burana eftir Carl Orff. Frekari upplýsingar um Söng- sveitina er að finna á heimasíð- unni www.filharmonia.mi.is. Næsta stóra verkefni verður Carmina Burana sem flutt verð- ur í lok apríl í Langholtskirkju. Fílharm- ónía á Hólum MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 19. NÓVEMBER 2004 55 MENNING BJÖRK Guðnadóttir er myndlistarkona sem hefur verið að merkja sér stöðu í íslensku myndlistarlífi upp á síðkastið. Sýning hennar, Eilífðin er líklegast núna, í Nýlistasafninu er mér að vit- andi stærsta einkasýning hennar. Uppistaðan eru fjöl- margir málaðir form- skúlptúrar úr gifsi í anda listamanna snemmmódern- ismans, s.s Constantine Brancusi og Jean Arp, sem listakonan raðar smekklega meðfram veggjum, dregur svo einn úr hópnum og af- markar hann í gegnsæju pólýester-tjaldi. Brýtur þannig upp rýmiskennd og röðun. Eflaust má setja þann gjörning hennar í sam- hengi við yfirskrift sýning- arinnar, allavega liggur það fyrir með formrænu sjálfra skúlptúranna. Línur þeirra hafa tilvísun í sveigða líkama grískrar klassíkur. En klass- ísk fagurfræði byggir ein- mitt á hugmynd um full- komnun, eða réttara sagt möguleika á fullkomnun, sem við getum kallað eilífa. Skúlptúrar Bjarkar munu þó seint teljast í nánd við ein- hverja fullkomnun. Virðast sem furðulega krumpaðir og bundnir pokar sem færa mann frá háleitum klass- ískum og módernískum gild- um og í átt að skopmyndum. Með snemmmódernisma og skopmyndagerð saman undir einni sæng hlýtur þá að vera fæddur „poppkúbismi“, svona til samræmis við poppmínimalisma, popps- úrrealisma, raunsæissúrreal- isma og hvað þetta kallast nú allt saman. Sýning Bjarkar er marg- ræð, verkin hæglát en húm- orísk og alltaf gaman að sjá hvernig ólíkir þættir lista- sögunnar mætast í sam- tímalistum og umbreytast í eitthvað allt annað, enda úr ansi mörgu að moða. Morgunblaðið/Golli Björk Guðnadóttir: Poppkúbískur skúlptúr? MYNDLIST Nýlistasafnið Opið miðvikudag til sunnudags frá 13–17. Sýningu lýkur 19. des- ember. Skúlptúr - Björk Guðnadóttir Jón B.K. Ransu NÚTÍMALISTASAFNIÐ í New York, MoMA, verður opnað á ný á morgun. Safn- ið hefur verið lokað í rúm tvö ár og hafa endurbæt- urnar kostað 425 milljónir dollara, eða um 28 milljarða íslenskra króna. Ungfrúrnar upp á vegg Steingrim Laursen, frá Louisiana nútímalistasafn- inu í Danmörku sést hér ganga í gærdag framhjá einu þekktasta málverki síð- ustu aldar, „Les Demoiselle d’Avignon“, eða „Ung- frúrnar frá Avignon“, eftir spænska málarann Pablo Picasso.AP MoMA opnað aftur íðs hafi enn vinninginn), Interlude f. píanó er minnti sérkennilega á sönghæfan essercizo (sembalsónötu) eftir Domenico Scarlatti, Vögguvísu með smekklega spunnum vókalísum Eivarar Pálsdóttur milli erinda við dúnlipurt marimbuspil Pét- urs Grétarssonar, og Sofðu unga ástin mín, er í seiðandi trúbadúrstúlkun Eivarar skyggði stórum á kunnara íslenzka „þjóðlagið“ (ef það er þá ekki eftir Sveinbjörn Sveinbjörnsson), þó að kontrabassistinn virtist fremur ókunnugur laginu. Umdeilanlegasta útsetn- ingin kom beint á eftir, Draumur þrælsins í söng- túlkun Bergþórs Pálssonar, þar sem miðhlutinn lýsti í jákvæðasta ljósi ánauð text- ans með hæstóvanalegum pákukjuðaslætti Péturs á trommusettið. Eftir hlé komu m.a. við sögu skemmtilegar Ást- arglettur, dável spilaðar af Sigrúnu Eðvalds og Snorra Sigfúsi í stílblöndu af skozk- um þjóðlögum, Kreisler og Bellman. Síðan kom bráð- ljúft Í rökkurró, þó að Bergþór félli ekki að öllu leyti sannfærandi að létt- djössuðu útsetningunni frekar en þarnæst í Vorvísu við sparneytinn píanóleik Kjartans Valdimarssonar à la Jan Johansson. Í Sólin ei hverfur glansaði ljóðrænn tenór Eyjólfs Eyjólfssonar ótæpt við samleik Önnu Guðnýjar, og heiðþéttur sópran Sigrúnar Hjálmtýs- dóttur ekki síður í vand- meðförnu Ave Maria við fagmannlegan píanóleik Önnu Guðnýjar. Ríkarður Ö. Pálsson TÓNLIST Salurinn Verk eftir Björgvin Guðmundsson. Sigrún Hjálmtýsdóttir sópran, Bergþór Pálsson barýton, Eivør Pálsdóttir söngur og gítar, Eyjólf- ur Eyjólfsson tenór, Karlakórinn Fóstbræður u. stj. Árna Harðar- sonar; Anna Guðný Guðmunds- dóttir, Snorri Sigfús Birgisson & Kjartan Valdimarsson píanó, Birg- ir Bragason kontrabassi og Pétur Grétarsson slagverk/harmónika. Þriðjudaginn 16. nóvember kl. 20. Útgáfutónleikar Í TILEFNI af nýútgefnum hljómdiski með lögum eftir Björgvin Guðmundsson var efnt til tónleika í Salnum á þriðjudag. Hófust þeir nokkuð óvenjulega með því að Fóstbræður sungu þrjú lög standandi á tröppum niður úr fordyri, áður en áheyrendum var hleypt inn í salinn. Kórinn söng einn Á Finnafjallsins auðn með miklum bravúr og hið al- kunna Þei, þei og ró, ró af jafnrammíslenzkri karla- kórsmýkt, en undir með Sigrúnu Hjálmtýsdóttur hið ekki síður þekkta Íslands lag frá 1914. Tekin voru 19 númer af 22 á diskinum, og af hinum 3 slepptu sá undirritaður langmest eftir Fúgunni yfir „Til austurheims“, er veitt hefði áhugamönnum um þá sérgrein ekki ógleggri hug- mynd um tæknikunnáttu og pólýfónískt hugmyndaflug Björgvins en aldýr sléttu- bandaríma um færni kvæða- manns. Stiklað á stóru úr löngu prógrammi mætti nefna hálfskozka rælinn Litlu hjónin (þó að lag Páls Ís- ólfssonar við sama ljóð Dav- UM SÍÐUSTU helgi bauð Fréttablaðið upp á þá nýjung að fá almenning til að gagn- rýna nokkur myndlistarverk. Fékk til þess 5 manns úr ólík- um stéttum þjóðfélagsins, allt samt menntafólk. Var for- vitnilegt að lesa umjöllun þeirra sem stað- festi svart á hvítu að Íslendingar skoða myndlist- arverk jafnan með stofu sína til við- miðunar. Þ.e. að listaverkin sem voru tekin fyrir stóðust prófið eða hlutu falleinkunn eftir því hvort við- komandi gat séð þau fyrir sér í stof- unni heima hjá sér eða ekki. Það er auðvitað mikil byrði að bera heila stofu á bakinu þegar maður skoðar myndlistarsýningu sem væntanlega skyggir á listaverkin sem ekki lúta sömu lögmálum og mublur. Sýning Ráðhildar Inga- dóttur, Inni í kuðungi – einn díll, í Nýlistasafninu er út frá því sjónarhorni kolfallin. Inn- setning sem fáir mundu sam- þykkja inn í stofuna heima hjá sér, allavega í þeirri mynd sem hún er í Nýlistasafninu. Gólf og veggir er málað í ljós- bláum lit, hvelfd form á gólfi sem breytist í hvassan tröppugang upp með veggj- um safnsins. Á gólfi stendur holur skúlptúr, kuðungur unninn úr tré og gifsi, einnig hvass og kantaður en jafn- framt ávalur að hluta. Á vegg rúllar svo myndskeið af tungl- um sólkerfis líkt og dílar á vegg. Myndlíking Ráðhildar er nokkuð hittin. Spírallögun kuðungsins vísar til hring- rásar lífsins og myndskeiðið sem er endurtekið í sífellu vísar þannig séð til sömu hringrásar. Blái liturinn sem jafnar vegg og gólf leysir upp rýmið sem segir okkur að Ráðhildur vilji ekki aðskilja hluta rýmisins. Að allt sé eitt. Hið smæsta og stærsta í senn. Þessi þverstæða er auðvitað margsönnuð staðreynd vís- indanna og notar listakonan listrýmið til að skapa vett- vang svo við megum upplifa þessa staðreynd án fræði- legra röksemda vísindanna. Fá vitneskjuna beint í hjart- að. Listrýmið þjónar því til- gangi sínum vel fyrir tilraun Ráðhildar og maður getur tekið listaverkið heim með sér í stofuna án þess að hrugga við mublunum. Geymt það þá innra með sér í formi upplif- unar. Allt er þetta hvort sem er eitt og sama rýmið. MYNDLIST Nýlistasafnið Opið miðvikudaga til sunnudags frá 13–17. Sýningu lýkur 19. des- ember. Innsetning - Ráðhildur Ingadóttir Jón B.K. Ransu Í holum kuðungi Ráðhildar Ingadóttur má finna heilt sólkerfi. Morgunblaðið/Golli DÓMKÓRINN í Reykjavík stóð á dögunum fyrir samkeppni um ný lög og ljóð til að nota við kirkju- legar hjónavígslur. Alls bárust 14 ljóð og 11 lög í keppnina og voru þau kynnt á tónleikum í Dóm- kirkjunni. Kirkjugestum gafst kostur á að greiða atkvæði sitt að loknum tón- leikum og tóku rúmlega 300 kirkjugestir þátt í atkvæðagreiðsl- unni. Verðlaunuð voru tvö lög og ljóð og féllu atkvæði þannig að í fyrsta sæti var lag Magnúsar Kjartanssonar, „Hin eina sanna ást“ og ljóð Hjálmars Jónssonar dómkirkjuprests „Nú leikur blær um lífsins vor“ varð hlutskarpast í ljóðasamkeppninni. Í öðru sæti var lag Heimis Sindrasonar „Brúðkaupsbæn“ en ljóðahöfundurinn, Ari Harðarson, hlaut einnig önnur verðlaun áheyrenda. Dómnefnd kórsins ákvað einnig að veita þeim Haraldi Vigni Sveinbjörns- syni og Þóru Mar- teinsdóttur við- urkenningar fyrir ný lög við gamla sálma, „Ó himnafað- ir hjá oss ver“ og „Vor Guð, í Jesú nafni nú“ og Sig- urlín Hermannsdóttir fékk einnig viðurkenningu dómnefndar fyrir ljóðið „Við biðjum Guð að blessir þú“. Að sögn Marteins H. Friðriks- sonar stjórnanda þakkar Dómkór- inn öllum þeim sem tóku þátt í keppninni fyrir þátttökuna og hvetur þá, jafnt og aðra lands- menn, til að búa sig undir nýja samkeppni að ári liðnu, en þá verður leitað eftir nýjum lögum og ljóðum til að nota við ferming- arguðsþjónustur. Einnig þakkar Dómkórinn styrkveitingar frá Tónmenntasjóði Þjóðkirkjunnar og Nýsköpunarsjóði STEFS. Tónlist | Brúðkaupslaga- og ljóðasamkeppni Dómkórsins Magnús og sr. Hjálmar hlutskarpastir Magnús KjartanssonSr. Hjálmar Jónsson
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.