Morgunblaðið - 19.11.2004, Side 68
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040,
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 FÖSTUDAGUR 19. NÓVEMBER 2004 VERÐ Í LAUSASÖLU 220 KR. MEÐ VSK.
NÁLÆGT 150 flugmenn sóttu um
flugmannsstörf hjá Icelandair þegar
þau voru auglýst laus til umsóknar
nýverið og 700–800 manns sóttu um
störf flugfreyja og flugþjóna.
Jens Bjarnason, flugrekstrar-
stjóri Icelandair, sagði í samtali við
Morgunblaðið, að góður meirihluti
þeirra sem sótt hefðu um flugmanns-
störf, eða ríflega 100 manns, hefðu
uppfyllt tilgreind inntökuskilyrði,
þ.e. að hafa atvinnuflugmannspróf
með blindflugsréttindum, lágmarks-
flugreynslu í flugstundum og hafa
lokið námskeiði í áhafnasamstarfi.
Jens sagði að væntanlega yrðu
ráðnir flugmenn í um fjörutíu stöður
hjá félaginu, en mikil aukning væri
fyrirsjáanleg í starfsemi félagsins á
næstu misserum meðal annars
vegna áætlunarflugs til San Frans-
isco í Bandaríkjunum sem hæfist nú
í vor. Þá mætti gera ráð fyrir að 60–
80 nýjar flugfreyjur og flugþjónar
yrðu ráðin og þjálfuð í vetur til að
koma til starfa næsta vor. Sá hópur
kæmi til viðbótar stórum hópi sem
hefði verið ráðinn til starfa síðastlið-
inn vetur.
Jens bætti því við að nú væri mikið
starf fram undan við það að fara í
gegnum umsóknirnar og velja úr þá
sem ráðnir yrðu til félagsins.
150 flugmenn sóttu um starf
Icelandair reiknar með að ráðið verði í 40 stöður
TALSMENN sveitarfélaganna
eru fegnir að búið sé að semja við
grunnskólakennara þótt ljóst sé
að þær kostnaðarhækkanir sem
samningnum fylgja, verði hann
samþykktur, geti orðið þungur
baggi fyrir sveitarfélögin og þá
ekki síst fyrir þau smærri. Víða
virðist sem skera þurfi eitthvað
niður af ólögbundinni þjónustu
sveitarfélaganna til að mæta
auknum útgjöldum.
Einar Oddur Kristjánsson,
þingmaður Sjálfstæðisflokksins og
varaformaður fjárlaganefndar,
gagnrýndi kjarasamninginn við
grunnskólakennara harðlega á Al-
þingi í gær og sagði að með þeim
hefðu sveitarfélögin gert skelfileg
mistök, samningurinn væri stíl-
brot sem auðveldlega gæti fært ís-
lenskt þjóðfélag á bólakaf. „Ég
fullyrði,“ sagði Einar, „að um leið
og gengið hefur verið frá kjara-
samningum grunnskólakennara
mun hver einasti starfshópur rík-
isins reisa kröfur sínar – og þeir
munu allir reisa kröfur sínar – á
þeim samningi sem gerður verður
við grunnskólakennara.“
Kjarasamningurinn við grunn-
skóla gæti haft áhrif á það hvort
samningar Starfsgreinasambands-
ins (SGS) og Samtaka atvinnulífs-
ins halda. Önnur forsenda þeirra
samninga er að „sú launastefna og
þær kostnaðarhækkanir sem í
samningnum felast verði almennt
stefnumarkandi fyrir aðra samn-
ingagerð á vinnumarkaði“ en hin
forsendan er að verðlag þróist í
samræmi við verðbólgumarkmið
Seðlabanka Íslands.
Samningar SGS fólu í sér rúm-
lega 15% hækkun á samningstím-
anum en ljóst er að kjarasamning-
urinn við grunnskólakennara felur
í sér mun meiri hækkun eða um
það bil 30%. Hvort hann nægir til
þess að SGS geti gert kröfu um að
samningar losni eftir eitt ár, þeg-
ar forsendur hans koma til skoð-
unar, ræðst að nokkru leyti af því
hvort samningurinn við grunn-
skólakennara verður fyrirmynd að
öðrum samningum sem opinberir
starfsmenn gera á næstu miss-
erum.
Samningarnir erfiðir
mörgum sveitarfélögum
Skelfileg mistök, sagði Einar Oddur
Kristjánsson í umræðum á Alþingi
Þungur baggi/4
Forsendur samninga/8
Skelfileg mistök/10
BORGARRÁÐ hefur samþykkt að úthluta
Félagsstofnun stúdenta byggingarrétti á
lóð nr. 46 við Lindargötu til að reisa á
henni fjölbýlishús með um 100 náms-
mannaíbúðum.
Andri Óttarsson, stjórnarformaður Fé-
lagsstofnunar stúdenta (FS), segir stefnt
að því að framkvæmdir við byggingu húss-
ins geti hafist fyrir næsta vor og að þeim
verði að fullu lokið árið 2007 en að hluti
námsmannaíbúðanna verði tekinn í notk-
un árið 2006. Andri segir ástæðu þess að
reistar séu íbúðir við Lindargötu vera þá
að byggingarmöguleikar við Háskólann
séu uppurnir og staðsetning íbúða við
Lindargötu að mörgu leyti heppileg, m.t.t.
fjarlægðar við háskólann og samgangna.
Andri segir mikla eftirspurn vera eftir
námsmannaíbúðum hjá FS og stofnunin
muni leita eftir fleiri lóðum undir íbúðir.
Um 100 námsmanna-
íbúðir við Lindargötu
KRISTJÁN Jóhanns-
son tenórsöngvari
sendir frá sér nýja
geislaplötu 1. desem-
ber næstkomandi. Á
plötunni eru sönglög
sem flest hafa verið
samin fyrir Kristján
á síðastliðnum þremur árum.
Lögin á plötunni, sem heitir Portami
Via, eða Berðu mig burt, eru meðal annars
eftir Falloni, Helfer, Bonomi og Ines, en
einnig syngur Kristján á plötunni tvö lög
eftir Gunnar Þórðarson.
Kristján hefur stjórnað bæði hljómsveit
og upptökum síðastliðin þrjú ár, en þetta
mun hafa verið eins konar gæluverkefni
hans. Á plötunni kemur fram á sjötta tug
hljóðfæraleikara og þess má geta að Rann-
veig dóttir hans kemur fram í einu laginu.
Skífan mun gefa plötuna út.
Ný sönglagaplata
Kristjáns
Í LAGAFRUMVARPI menntamálaráð-
herra er lagt til að skrásetningargjöld Há-
skóla Íslands, Kennaraháskóla Íslands og
Háskólans á Akureyri hækki um 12.500
krónur eða úr 32.500 í 45 þúsund fyrir
heilt skólaár. Verði lögin samþykkt taka
þau gildi 1. janúar á næsta ári. /10
Skrásetningargjöld
hækki um 38%
KULDALEGT hefur verið í Aðaldal þessa vik-
una og hríðarveður flesta daga. Hestarnir á
Syðra-Fjalli létu kuldann lítið á sig fá enda
hafa þeir nóg hey og gott skjól sem þeir geta
farið í þegar þeir vilja. Þrátt fyrir hríðina kusu
þeir frekar að vera úti um miðjan dag í gær.
Töluvert frost var þá um allt land og allt að
20 stig þar sem gaddurinn var mestur á miðhá-
lendinu. Veðurstofan spáir vaxandi austlægri
átt og hlýnandi veðri á morgun. Þó áfram
frosti fyrir norðan, en 0 til 7 stiga hita á sunnu-
dag.
Morgunblaðið/Atli Vigfússon
Bjóða kuldabola birginn
MENNTAMÁLARÁÐUNEYTIÐ hefur
ákveðið að samræmt próf í íslensku í 4. og
7. bekk verði haldið fimmtudaginn 3. febr-
úar og samræmt próf í stærðfræði föstu-
daginn 4. febrúar.
Upphaflega stóð til að halda prófin 14. og
15. október en vegna verkfalls grunnskóla-
kennara var ákveðið að halda þau 25. og 26.
nóvember að því gefnu að kennsla yrði með
eðlilegum hætti sem ekki gekk eftir.
Búast má við að ákvörðun um samræmd
próf í 10. bekk verði tekin mjög fljótlega en
þar átti að prófa í ensku, dönsku, sam-
félagsgreinum, náttúrufræði og stærðfræði
dagana 2. til 10. maí í vor.
Samræmd próf 4. og
7. bekkjar í febrúar