Morgunblaðið - 23.12.2004, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 23.12.2004, Blaðsíða 8
8 FIMMTUDAGUR 23. DESEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR SOLIS PartyGrill JÓLATILBOÐ: KR 14.900,- „FRÁBÆR jólagjöf!“ Uss, þú hefur ekki vit á listum frekar en rolluskjáta, þú hefur ekki einu sinni vit til að kaupa fölsuð málverk. Á þessu ári hefurverið lagt hald ámeira magn am- fetamíns og kókaíns hér á landi en dæmi eru um áð- ur. Þessi sterku örvandi fíkniefni hafa raunar verið í stöðugri sókn undanfarin ár. Umræða um kókaín hefur verið sérstaklega áberandi síðustu daga vegna fjögurra tilrauna á tæplega einum mánuði til að smygla umtalsverðu magni af kókaíni um Keflavíkurflugvöll. Í þess- um tilvikum var lagt hald á 1,8 kíló af kókaíni sem er talsvert meira magn en lagt var hald á allt árið í fyrra. Á árinu öllu hefur verið lagt hald á rúmlega fimm kíló af kók- aíni, um fjórfalt meira magn en í fyrra. Lögregla og tollgæsla hafa einnig lagt hald á meira amfeta- mín á þessu ári en áður eða um 15 kíló. Munar þar mest um að á þessu ári komst upp stærsta am- fetamínmálið hér á landi til þessa en við rannsókn þess var lagt hald á um 11 kíló af efninu. Fimm manns eru enn í gæsluvarðhaldi vegna rannsóknar málsins. Aukið magn af kókaíni og am- fetamíni sem lögregla og tollgæsla leggja hald á þýðir ekki endilega að smygl til landsins hafi aukist sem því nemur. Þrátt fyrir að magnið sé mun meira en áður er fjöldi smyglmála ekki mikið meiri en í fyrra. Fleiri stór mál hafa hins vegar komist upp. Þó að árangur lögreglu og tollgæslu byggist á því hvaða starfsaðferðum er beitt og hvaða áhersla er lögð á málaflokk- inn, er það að hluta til tilviljunum háð hversu mikið magn næst í hvert skipti. Þá geta nokkur stór mál verulega hleypt upp heildar- magninu og skekkt samanburð milli ára. Auðvelt að ná í kókaín En hefur neysla kókaíns og am- fetamíns aukist á síðustu árum? „Já, það fer ekki á milli mála,“ segir Ásgeir Karlsson, yfirmaður fíkniefnadeildar lögreglunnar í Reykjavík. Neysla þessara efna hafi aukist jafnt og þétt á síðustu árum og sé nú orðinn fastur þátt- ur í skemmtanalífi landsmanna. Stór hópur fólks noti fíkniefni endrum og sinnum. Þetta eigi ekki síst við um kókaín en talsverður hópur fólks virðist nota það þegar það fer út að skemmta sér og er kókaíns gjarnan neytt samhliða áfengi. Neyslan sé mismikil og sumir noti kókaín aðeins við ein- stök tækifæri. Ásgeir segir ljóst að talsverður hópur fólks noti kókaín með þessum hætti án þess að það komist nokkurn tímann í kast við lögreglu og það leiti held- ur ekki á náðir sjúkrastofnana. Ásgeir segir að það sé tiltölu- lega auðvelt sé fyrir fólk sem vel þekki til í skemmtanalífinu að út- vega sér kókaín. Fyrir ókunnuga geti það hins vegar reynst tölu- vert flókið. Þessi neytendahópur er þó ekki sá eini sem hefur stækkað því eins og fram kom í Morgunblaðinu í gær hefur neyslan færst neðar í aldursflokka. Á síðustu árum hefur verið lögð aukin áhersla á fíkniefnamál, t.d. með auknum fjárframlögum, og ef miðað er við magn sem lögregla og tollgæsla hafa lagt hald á, hefur árangurinn aukist eftir því. En þó að árangur lögreglu og tollgæslu teljist góður eykst neyslan jafnt og þétt. Ásgeir segir alveg ljóst að aldrei vinnist fullnaðarsigur í bar- áttunni gegn fíkniefnum. Það þýði hins vegar ekkert að slá slöku við og lögregla muni halda áfram að sporna við fíkniefnaneyslu rétt eins og öðrum afbrotum. Þórarinn Tyrfingsson, yfir- læknir á Sjúkrahúsinu Vogi, segir að menn geti orðið háðir kókaíni á mjög skömmum tíma. Þróun áfengisfíknar sé jafnan talin í ár- um ef ekki áratugum þá geti menn fengið kókaínfíkn á örfáum mán- uðum. Efnið virki stutt og hægt sé að nota mikið af því á stuttum tíma. Þórarinn segir að virkni kók- aíns sé að mörgu leyti svipuð og annarra örvandi efna. „Þegar menn eru undir áhrifum efnisins eru þeir mjög örir, líkt og líkam- inn sé að búa sig undir mikil átök. Mestallt blóðstreymi er til vöðva og miðtaugakerfis og menn verða mjög hugaðir og kröftugir,“ segir hann. Þegar víman rennur af mönnum tekur hið gagnstæða við. „Þá verða menn lélegir, kjarklitlir og þunglyndir og líður almennt mjög illa. Þetta er hinn dæmigerði niðurtúr og þá vilja menn ná í meira efni svo þeim líði betur.“ Þórarinn segir að það geti tekið menn margar vikur að jafna sig eftir neyslu efnisins og þá ein- kennist hegðun þeirra af þung- lyndi og dapurleika. Þá virðist sem langvarandi neysla geti leitt til varanlega breytinga á persónu- leika, menn verði þunglyndir, kvíðnir og almennt ekki til mikilla átaka í lífinu. Þórarinn segir vitað að fleiri en fíklar noti örvandi efni, s.s. e-töfl- ur og amfetamín og það sé spurn- ing hvort það sé að verða algeng- ara að kókaín sé notað á sama hátt. „Það má vel vera að kókaín sé „inni“ núna í skemmtanalífinu,“ segir Þórarinn. Fréttaskýring | Aldrei hefur verið lagt hald á jafnmikið af sterkum fíkniefnum Kröftugir og kraftlausir Aukinn árangur tollgæslu og lögreglu en á sama tíma eykst neysla fíkniefna Eins gott að missa ekki stjórn á neyslunni. Menn geta orðið háðir kókaíni á skömmum tíma  Neysla kókaíns hefur aukist jafnt og þétt og sá hópur ungs fólks fer vaxandi sem notar efnið í tengslum við skemmtanalíf en teljast ekki vera eiturlyfjafíklar. Þessi hópur notar efnin endrum og sinnum en lifir að öðru leyti venjulegu lífi. Kókaín er engu að síður hættulegt fíkniefni og menn geta orðið háðir því á til- tölulega skömmum tíma. Þá eru mörg dæmi um andlát vegna of- neyslu kókaíns. runarp@mbl.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.