Morgunblaðið - 23.12.2004, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 23.12.2004, Blaðsíða 22
22 FIMMTUDAGUR 23. DESEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ MINNSTAÐUR Jólagjöfin hennar: Leðurjakkar Pelsar og kápur Gjafakort l j Krónunni, 2. hæð, sími 462 3505, Hafnarstræti 97, 600 Akureyri. HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ AKUREYRI Reykjavík | Börn og starfsfólk frí- stundaheimilis ÍTR í Melaskóla, Selinu, buðu borgarstjóra í heimsókn í gær. Í Selinu eru alla jafna um 140 börn en á milli 40–50 börn voru þar í gær, enda frí í skólum og margir foreldrar einnig komnir í frí. Að sögn Ástu Friðriksdóttur, starfs- manns í Selinu, hafa börnin átt náðuga daga vikurnar fyrir jól og þau dundað sér við að föndra og skreyta fyrir jólin. Steinunn Valdís Óskarsdóttir borg- arstjóri var leyst út með stærðar jóla- korti sem börnin hafa föndrað að und- anförnu, þegar hún heimsótti þau í gær. Fékk risajólakort að gjöf Morgunblaðið/Jim Smart Reykjavík | Formaður samgöngunefndar Reykjavíkurborgar sagði á fundi borgarstjórn- ar í fyrradag að borgin legði mikla áherslu á að auka tíðni ferða strætisvagna á stofnleiðum í nýju leiðarkerfi, og ef önnur sveitarfélög á höf- uðborgarsvæðinu væru ekki tilbúin til að taka þátt í kostnaði við það yrði að skoða þátttöku Reykjavíkur í byggðasamlaginu Strætó bs. í því ljósi. Ekki stuðningur allra við nýtt kerfi Í nýsamþykktri fjárhagsáætlun er gert ráð fyrir fjárframlagi til Strætó vegna nýs leið- arkerfis, með aukinni tíðni ferða á stofnleiðum á álagstímum. Árni Þór Sigurðsson, formaður samgöngunefndar, sagði að svo virtist sem það væri gegn vilja sumra af sveitarfélögunum sem eiga aðild að Strætó bs. „Það er einfaldlega vegna þess að við leggjum mikla áherslu á það að í tengslum við hið nýja leiðarkerfi verði tíðni ferða aukin á álagstímum á stofnleiðum, og við leggjum okkar af mörkum í því sambandi. Og ef nágrannasveitarfélögin sem eru með okkur í byggðasamlaginu Strætó bs. eru ekki reiðubú- in til þess verður auðvitað að skoða aðild okkar og þátttöku í byggðasamlaginu í því ljósi,“ sagði Árni. „Það er engin tilviljun að mínum dómi að í þeim sveitarfélögum þar sem sjálf- stæðismenn ráða för vilja menn heldur draga úr og sjá á eftir hverri krónu sem fer í almenn- ingssamgöngurnar.“ Rætt var um skýrslu VSÓ ráðgjafar um sporvagnakerfi í Reykjavík og sagði Árni að nú væri það komið á hreint hver kostnaðurinn við sporvagnakerfi myndi vera, samanborið við aðra kosti. „Ég tel að það sé einmitt næsta skref að leggja drög að því og leggja í það vinnu að efla almenningssamgöngurnar innan þess kerfis sem við búum nú við.“ Betra að nýta strætisvagnana Kjartan Magnússon, borgarfulltrúi Sjálf- stæðisflokksins, segir að í raun sé ótrúlegt hversu lengi hugmyndir um sporvagnakerfi hafi fengið að ganga, og hafi sjálfstæðismenn frá upphafi bent á að nær væri að notast við það kerfi strætisvagna sem fyrir er í borginni. „Mun ódýrara væri að ná árangri og ná fram fjölgun farþega með því að bæta það kerfi held- ur en að byggja upp nýtt kerfi frá grunni. Hafa þarf í huga að sætanýting í strætisvögnum er í kringum 10–12% og borgaryfirvöld hljóta fyrst að hugsa um að bæta það kerfi og fá fleiri upp í vagnana áður en farið er út í tugmilljarða króna fjárfestingar.“ Kjartan segir sjálfstæðismenn hafa bent á að vaxtakostnaðurinn einn við að koma kerfi sporvagna í gang myndi líklega duga til að fjölga þeim strætisvögnum um helming sem nú aka um Reykjavík og tvöfalda ferðatíðnina. Vilja frekar strætis- vagna en sporvagna Morgunblaðið/Eggert Stefnt verður að því að auka tíðni ferða á stofnleiðum í nýju leiðakerfi Strætó bs. á höf- uðborgarsvæðinu sem tekur gildi á næsta ári. Rætt um almenningssamgöngur á síðasta fundi í borgarstjórn fyrir jól Reykjavík | Hægt hefur verið að senda gömul jólakort rafrænt á vef Reykjavíkurborgar að undanförnu og í gær- morgun höfðu yfir 10.000 gömul jólakort ver- ið send með þeim hætti af vef borgarinnar og yfir 30.000 flettingar skráðar í kortasafni. Það er Borgarskjalasafn sem á heiðurinn af þessu uppátæki og hafa viðtökurnar verið framar björtustu vonum. Mjög einfalt er að senda kort á vefnum á slóðinni rvk.is, með því að fara á heimasíðu Borgarskjala- safns. Elstu kortin sem finna má á vefnum eru frá því um það bil 1920. 10.000 jólakort send með tölvupósti ÞAÐ var handagangur í öskjunni í kennslueldhúsi Verkmenntaskólans á Akureyri í gær en þar voru nokkr- ir ungir menn að búa til eplabökur fyrir allt að 250 manns. Martin Kell- ey, matreiðslunemi á Foss-Hóteli á Húsavík, fór fyrir hópnum en hann hafði lesið viðtal við Magnús Garð- arsson í Mangó Grilli í Grafarvogi í Reykjavík. Þar fram kom að Magn- ús ætlaði að hafa veitingastað sinn opinn á aðfangadagskvöld og bjóða þangað í mat þeim sem minna mega sín í þjóðfélaginu, auk þess sem hann ætlar að færa þeim gjafir. „Mér fannst þetta flott framtak, hringdi í Magnús og bauðst til þess að taka þátt í þessu með honum og gera eftirréttinn, sem hann þáði. Ég fékk aðstöðu hér í VMA og með mér í þessu verkefni eru fimm félagar mínir, frá Húsavík og Akureyri. Fyrir valinu varð uppskrift að epla- bökunni hennar mömmu, sem hún er alltaf með á aðfangadagskvöld,“ sagði Martin. Hann ætlar að keyra bökurnar suður til Reykjavíkur í dag og fékk hann lánaðan sendibíl hjá bygg- ingafyrirtækinu Hyrnu til far- arinnar. Fleiri fyrirtæki lögðu þeim félögum lið, Nettó, Norðurmjólk, Heildverslun Valgarðs, Bautinn og Greifinn. Eplabökur fyrir 250 manns Morgunblaðið/Kristján Félagarnir með eplaböku úr ofninum, f.v. Baldur Ragnarsson, Arnar Þór Sigurðsson, Ævar Ómarsson, Atli Sveinbjörnsson og Martin Kelley. Sá sjötti úr hópnum, Viðar Helgason, var að sendast eftir ís þegar myndin var tekin. Skákmót | Halldór Brynjar Hall- dórsson sigraði á 15 mínútna móti Skákfélags Akureyrar. Halldór hlaut 4 vinninga af 6 mögulegum en keppendur voru aðeins 4 og tefldu þeir tvöfalda umferð. Í öðru sæti varð Þór Valtýsson með 3 vinninga. Næstu mót hjá félaginu eru jóla- hraðskákmótið mánudaginn 27. des- ember kl. 20 og hverfakeppnin fimmtudaginn 30. desember kl. 20. Teflt er í KEA-salnum í Sunnuhlíð og eru allir velkomnir.    ÁKVEÐIÐ hefur verið að Ak- ureyrarbær sendi engin jóla- kort til starfsmanna sinna en styrki þess í stað gott málefni líkt og gert var í fyrra. Að þessu sinni er styrknum deilt niður í tvo staði og hann hljóta Hetjurnar, félag aðstandenda langveikra barna á Norður- landi, og Aflið, systursamtök Stígamóta á Akureyri. Kristján Þór Júlíusson, bæj- arstjóri, sendi starfsfólki Ak- ureyrarbæjar jólakveðju með tölvupósti og segir þar meðal annars: „Líkt og í fyrra hef ég ákveðið að ráðstafa þeim fjár- munum sem ella hefðu farið í að prenta og senda út jólakort, til að styrkja gott málefni og veita tveimur félagasamtökum fjárhagslegan stuðning. Ég er þess fullviss að þið virðið og styðjið þá ákvörðun mína. Þetta hefur verið gott ár fyrir okkur Akureyringa. Bæjarbúum fjölgar Ljóst er að bæjarbúum fjölg- ar árið 2004 umfram landsmeð- altal fimmta árið í röð og lítur allt út fyrir að um áramót verðum við orðin 16.600. Slík- ur samfelldur vöxtur væri aldr- ei mögulegur án góðs starfs- fólks sem leggur allan sinn metnað í að efla hag bæj- arfélagsins.“ Hetjurnar og Aflið fá styrk Friðarljós | Friðarljós verða seld úr bíl sem verður í göngugötunni í Hafnarstræti í dag, Þorláksmessu frá kl. 11 til 23 og einnig verður tekið við framlögum til Hjálparstarfs kirkjunnar. Friðarljósin verða einn- ig seld við Kirkjugarðinn á Akureyri á aðfangadag. HJÁLPARSTARF kirkjunnar á Akureyri fékk í vikunni góða gjöf, 80 matarpoka sem verður dreift til skjólstæðinga hennar í Eyjafirði og á Húsavík núna fyrir jólin. Í hverj- um poka er hamborgarhryggur frá Norðlenska ásamt meðlæti. Andri Teitsson, framkvæmda- stjóri KEA, og Ingvar Már Gíslason, markaðsstjóri Norðlenska, segja að með þessum gjöfum vilji KEA og Norðlenska létta undir með því fólki sem þurfi á aðstoð að halda fyrir jól- in. Norðlenska leggur fleiri fé- lagasamtökum lið á einn eða annan hátt, t.d. Mæðrastyrksnefnd. Jón Oddgeir Guðmundsson, sem veitti matarpokunum viðtöku fyrir hönd Hjálparstofnunar kirkjunnar á Akureyri, segir að sem fyrr sé mikil þörf fyrir aðstoð Hjálparstarfsins og þetta framlag komi því í góðar þarf- ir. Jón Oddgeir segir að um 50 aðilar í Eyjafirði og á Húsavík leiti eftir að- stoð frá Hjálparstarfinu og til við- bótar verður haft samband við ein- staklinga sem talið er að sé hjálpar þurfi. Fékk 80 matarpoka að gjöf Góð gjöf Ingvar Már Gíslason, markaðsstjóri Norðlenska, Jón Oddgeir Guðmundsson hjá Hjálparstarfi kirkjunnar og Andri Teitsson, fram- kvæmdastjóri KEA, við afhendingu matarpokanna.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.