Morgunblaðið - 23.12.2004, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 23.12.2004, Blaðsíða 32
Bókagjöfin kom í góðar þarfir 32 FIMMTUDAGUR 23. DESEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ Hallgrímur B. Geirsson. Styrmir Gunnarsson. Framkvæmdastjóri: Ritstjóri: STOFNAÐ 1913 Útgefandi: Árvakur hf., Reykjavík. Aðstoðarritstjórar: Karl Blöndal, Ólafur Þ. Stephensen. Fréttaritstjóri: Björn Vignir Sigurpálsson. R agnar Önundarson, við- skiptafræðingur í Garða- bæ, ritar grein í Morg- unblaðið síðastliðinn mánudag og fjallar þar um fyrirhugaðar framkvæmdir við breikkun Reykjanesbrautar í Garða- bæ. Hann veitist þar að undirrituðum með sérkennilegum hætti. Það spaugi- lega við greinina er að hann kvartar sáran undan því að mér hafi tekist sér- lega vel til við uppbyggingu vegakerf- isins. Og að samgönguráðherra sé ,,dillað“ fyrir miklar framkvæmdir sem hann kallar ,,gæluverkefni“ og sendir með því tóninn til þeirra sem njóta umferðarmannvirkjanna. Gall- inn virðist vera sá að þau umferð- armannvirki, sem ég hef staðið fyrir að láta gera, gagnast honum ekki. Ég vil leyfa mér að benda Ragnari Ön- undarsyni á að í minni ráðherratíð hefur Reykjanesbrautin verið tvöföld- uð í nágrenni við hann og mislæg gatnamót byggð sem hann nýtir vænt- anlega daglega. Í minni tíð, sem sam- gönguráðherra, hefur verið varið meiri fjármunum til framkvæmda við umferðarmannvirki á höfuðborg- arsvæðinu en í annan tíma. Það er jafnframt ljóst að ég hef ekkert dregið af mér við að tryggja vegabætur um landið allt. Það hefur ríkt sátt um það á Alþingi að bæta samgöngukerfið í landinu og vinna hratt að þeim verk- efnum svo sem kostur er. Ragnar kynnir sig sem sjálfstæð- ismann í Garðabæ. Vissulega er það ánægjulegt að hann skuli gera les- endum grein fyrir því að hann sé sjálf- stæðismaður. Ekki verður hins vegar séð hverju það skiptir hvort hann er í einum flokki fremur en öðrum þegar hann fjallar um skipulagsmál og und- irbúning framkvæmda við breikkun einnar mestu umferðaræðar vegakerf- isins. Af langri reynslu minni sem póli- tískur bæjarstjóri (var sautján ár bæj- arstjóri), þingmaður og ráðherra tel ég það augljósan vott um vondan mál- stað þegar menn skreyta sig með flokksskírteini í þeim tilgangi að njóta forréttinda eða gera tilraun til þess að koma höggi á menn í því skjóli sem viðkomandi halda að þeir hafi af því að vera í stjórnmálaflokki. Það dregur mjög úr trúverðu um augum þegar beitt. Fyrir mér e sjálfstæðismaður hugsjónum heiða flokksmanna. En líðst til lengdar a það sem sverð til eða skjöld til varn vondum málstað í inhagsmunaskyni geta veifað flokks skírteini Sjálfstæ isflokksins. Það e mín að Ragnar Ö arson átti sig á þe staðreyndum og g hófs í málflutning Gerð umferðar virkja er vandasa verkefni. Gildir þ síst í þéttbýli þar byggð hefur verið lögð nærri fjölför Á Íslandi gilda lö hvernig sveitarstj yfirvöld koma að mannvirkja á bor eru um okkar fag irbúning að breik brautar í Garðabæ verið farið að lögu hafa verið settar áður hefur þekks landi. Af hálfu sam hafa engar athug við það og engin s Sturla Böðvarsson svarar Ragnari Önundarsyni ’Við undirbúning aðbreikkun Reykjanes- brautar í Garðabæ hefur í einu og öllu verið farið að lögum og reglum. Þar hafa verið settar strang- ari kröfur en áður hefur þekkst við vegagerð hér á landi. ‘ Hvers á Garðabær að Við finnum fyrir mikilli aukn-ingu beiðna milli ára, en éggeri ráð fyrir að vel á þriðjaþúsund einstaklinga hafi leit- að til okkar í desembermánuði einum,“ segir Ragnhildur Guðmundsdóttir, for- maður Mæðrastyrksnefndar, en nefnd- in hefur úthlutað þrisvar í viku síðastlið- inn mánuð. Síðasti úthlutunardagurinn var sl. mánudag, en Ragnhildur var við símann í gær til þess að bregðast við neyðartilfellum. Aðspurð segir Ragn- hildur sífellt fleira yngra fólk leita sér aðstoðar fyrir jólin. „Auk þess verð ég vör við að það er stór hópur að leita til okkar í fyrsta skiptið. Sjálf hef ég einnig miklar áhyggjur af stöðu erlends starfs- fólks sem er illa sett og veit jafnvel ekki hvar það getur leitað sér aðstoðar.“ Að sögn Ragnhildar felst aðstoðin í því að gefa föt, jólagjafir, leikföng og bækur auk matar. „En mörg fyrirtæki hafa gefið okkur góðar gjafir,“ segir Ragnhildur og nefnir sérstaklega mat- armiða að gjöf frá Bónus sem komið hafi í góðar þarfir. Vilborg Oddsdóttir, félagsráðgjafi hjá Hjálparstafi kirkjunnar, segist finna þó nokkra aukningu hjálparbeiðna milli ára. „Ég myndi áætla að aukningin væri kringum 15% miðað við í fyrra, en alls hafa rúmlega ellefu hundruð fjöl- skyldur leitað til okkar nú í desem- bermánuði.“ Aðspurð segir Vilborg mun meira um að ungt fólk og einstæð- ingar leiti aðstoðar. „Ég sé talsvert aukna þörf á ákveðnum svæðum í Reykjavík, má þar nefna innan póst- svæðis 101, og mikla aukningu utan Reykjavíkur, sérstaklega á Suðurlandi og Suðurnesjum og þar sem langvar- andi atvinnuleysis hefur gætt,“ segir Vilborg. Vantar aukatekjur Miriam Óskarsdóttir, verkefnastjóri hjá Hjálpræðishernum, áætlar að þar á bæ hafi eitthvað á fjórða hundrað ein- staklinga fengið aðstoð fyrir jólin og segir hún það nokkra aukningu milli ára. Var þar bæði um að ræða gjafaút- tektir í Bónus og úthlutun fatnaðar í fatabúð hersins í Garðastræti. Á að- fangadag verður Hjálpræðisherinn að vanda með opið hús þar sem boðið er upp á jólamat. Miriam segir erfitt að áætla fyrirfram hvað þau geti átt von á mörgum. . Aðspurð segir Miriam hóp- inn sem leiti til Hjálpræðishersins afar blandaðan, en ávallt sé nokkuð um að sama fólkið leiti til þeirra ár eftir ár. „Enda virðist fólk sem lendir í fjárhags- erfiðleikum eiga erfitt með að ná sér úr þeim aftur. Það segir sig sjálft að fólk sem lent hefur í skuldabagga og nær sér ekki upp aukatekjur til að dag um jólin,“ seg að ekki leiti allir s henni að halda. Fólk á að kom Áætla má að um staklingar séu að sem borist hafa Fj það sem af er ári, allt landið. Að s Flosadóttur, form Þörf á neyðar hefur aukist m ÓLAFUR Jóhann Ólafsson rithöfundur færði Fjölskylduhjálp Íslands á fimmta tug áritaðra eintaka af nýjustu bók sinni, Sakleysingjunum. Bókunum var dreift til þeirra sem leituðu til Fjöl- skylduhjálparinnar í vikunni. Einnig hefur hann styrkt starfið með veglegri peningagjöf. Ásgerður Jóna Flosadótt- ir, formaður Fjölskylduhjálparinnar, þakkaði Ólafi Jóhanni Ólafssyni fyrir gjöfina. Auk þeirra eru á myndinni Árni Ólafsson sonur Ólafs Jóhanns, hjálp- arkonurnar Ragna Rósantsdóttir, Ingi- björg Arelíusardóttir, Guðrún Magn- úsdóttir, Guðbjörg Pétursdóttirásamt ungu fólki sem hjálpaði til nú fyrir jólin. Margví Rauða „UM 40 úthluta fleiri úthlutani nákvæmar tölu flokkunarstöðv anfarin ár hafa kvæmt upplýsi neyðaraðstoð t Kópavogsde að neyðarstoð v jólin. Samstarf Lionsklúbbinn aðstoð fyrir jól Rauða kross Ís urlandi. Hjálpa Konukot, ath opið yfir hátíða Talsmenn hjálparsamtaka segja mikla þörf á að að- stoða einstaklinga fyrir jól. Njóta þau liðveislu margra fyrirtækja. RAFRÆN SAMSKIPTI Í gær voru undirritaðir samningarsem leiða til þess að svonefnd læknabréf verða send rafrænt á milli aðila. Það er nútíminn og af því leiðir töluverðan sparnað. Þessi samningar ætti hins vegar að vekja upp spurningar um það hvort ekki sé tímabært að önnur samskipti lækna verði einnig færð í rafrænt form a.m.k. að töluverðu leyti. Þar er átt við samskipti á milli lækna og sjúklinga þeirra. Enn ríkir það fyrirkomulag alltof víða að sjúklingar þurfa að hringja í lækni á tilteknum tíma á degi hverjum ef þeir þurfa á því að halda að komast í samband við hann. Símatími læknanna er í mörgum tilvikum klukkutími eða svo og þá hefst mikil seta við símann hjá þeim sem þurfa á þjónustu að halda. Mikill fjöldi sjúklinga hringir gjarnan á sama tíma og augljóst hversu óhagkvæmt þetta kerfi er fyrir alla aðila. Notkun tölvupósts er orðin mjög víðtæk. Auðvitað er ljóst að í mörgum tilvikum þurfa sjúklingar að tala við lækna sína eða heimsækja þá á stofu þeirra. En í öðrum tilvikum dugar sjúklingunum að eiga samskipti við viðkomandi lækni með tölvupósti. Þessi samskiptaaðferð er nú þegar notuð í takmörkuðum mæli en hvað mælir á móti því að taka upp almenn rafræn samskipti á milli læknis og sjúklings þegar það á við? Síminn er alls ekki orðinn úrelt sam- skiptatæki heldur þvert á móti. Notk- un hans hefur farið vaxandi eftir að farsímar komu til sögunnar. En það gefur auga leið að samskipti um tölvu- póst eru þægilegri fyrir báða aðila, lækna og sjúklinga, þegar það sam- skiptaform á við. Aukin rafræn samskipti geta aug- ljóslega stuðlað að því að bæta þjón- ustu heilbrigðiskerfisins við sjúklinga. Þess vegna á að taka þau upp með skipulegum hætti og í ríkara mæli en nú er. SAMIÐ VIÐ LEIKSKÓLAKENNARA Ígærkvöldi náðust nýir kjarasamn-ingar á milli launanefndar sveit-arfélaganna og Kennarasam- bands Íslands vegna leikskóla- kennara. Ná samningarnir fram á haust 2006. Sérstök ástæða er til að fagna þess- um samningum. Margir hafa haft af því áhyggjur að ný og erfið kjaradeila væri í uppsiglingu í kjölfar kjaradeilu grunnskólakennara. Nú eru þær áhyggjur úr sögunni. Leikskólar hafa ekki skipað þann sess í skólakerfi landsmanna, sem þeim ber. Þegar þeir fóru að ryðja sér til rúms að ráði fyrir 30-40 árum var deilt um tilvistarrétt þeirra og margir voru þeirrar skoðunar, að lítil börn hefðu ekki gott af því að vera á leik- skólum. Aðrir töldu leikskóla geymslustaði fyrir börn meðan for- eldrar sinntu störfum utan heimilis. Þessar deilur eru að baki. Nú er það talin sjálfsögð krafa að barn geti feng- ið inngöngu í leikskóla. Að vísu hefur samfélagið enn ekki staðið sig nógu vel í að uppfylla þær skyldur en væntan- lega er ekki langt í að það takist. Enn ríkir það fornaldarfyrirkomulag að skólagjöld eru greidd á leikskólastigi á meðan enn er deilt um hvort taka eigi upp skólagjöld á háskólastigi. Auðvit- að eiga leikskólar að vera ókeypis eins og grunnskólar og framhaldsskólar. Störf leikskólakennara verða seint ofmetin. Þeir gegna afar mikilvægum störfum og geta haft mikil áhrif á það hvernig einstaklingi farnast í lífinu. Góður leikskóli er gulls ígildi. Það er ánægjulegt að ekki skyldi til þess koma að leikskólakennarar þyrftu að fara í verkfallsaðgerðir til að ná fram betri kjörum. Þeir áttu rétt á betri kjörum. MÁL KHODORKOVSKÍS Míkhaíl Khodorkovskí, rússneskiauðkýfingurinn, sem sakaður hefur verið um einhver stórfelldustu skattsvik í sögu Rússlands, sagði í fyrradag, að rússnesk stjórnvöld hefðu eyðilagt eitt bezt rekna olíufélag í land- inu með sölu hluta þess um síðustu helgi. Sá hluti var seldur til þess að knýja fram greiðslu á ógreiddum skött- um. Mál Khodorkovskís hefur vakið mikla athygli um allan heim, alveg sér- staklega í Rússlandi og á Vesturlönd- um. Dagblöð á Vesturlöndum hafa í lang- flestum tilvikum gagnrýnt Pútín Rúss- landsforseta mjög harðlega vegna með- ferðarinnar á Khodorkovskí og talið, að mál hans mundi draga úr erlendum fjárfestingum í Rússlandi. Þessi viðbrögð eru að því leyti til um- hugsunarverð að ekkert þessara blaða mundi gagnrýna stjórnvöld á sínum heimaslóðum fyrir að gera ráðstafanir til að stöðva stórfelld skattsvik og ekk- ert þeirra hefur haldið því fram, að Khodorkovskí hafi verið sakaður rang- lega um mikil og víðtæk skattsvik. Er verið að halda því fram, að rúss- nesk stjórnvöld megi ekki taka á skatt- svikum heima fyrir? Er verið að halda því fram, að erlendir fjárfestar fáist ekki til að fjárfesta í rússnesku at- vinnulífi nema tryggt sé að þeir geti stundað þar skattsvik að vild? Hafi einhverjir eyðilagt rússneska olíufélagið Yukos eru það augljóslega þeir stjórnendur þess, sem ábyrgð bera á skattsvikum, sem ekki hafa verið véfengd. Þótt Stalín og glæpaverk hans séu mönnum á Vesturlöndum enn í fersku minni er ekki hægt að setja samasem merki á milli hans og Pútíns og halda því fram, að Pútín megi ekki koma á lögum og reglum í Rússlandi, sem hann hefur verið kjörinn til að stjórna í lýð- ræðislegum kosningum, sem heldur ekki hefur verið dregið í efa, að hafi far- ið sæmilega vel fram.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.