Morgunblaðið - 09.01.2005, Síða 17
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 9. JANÚAR 2005 17
ekki að hinn væri að gera eitthvað algjörlega
óskylt. Fljótlega fundum við hvernig and-
rúmsloftið breyttist, starfsmennirnir urðu já-
kvæðari og fóru að bera meiri virðingu fyrir
starfi hins hópsins.“
Nokkrir fóru þó yfir til Landsbankans við
sameininguna.
„Með sameiningu Búnaðarbanka og Kaup-
þings var verið að sameina viðskiptabanka og
fjárfestingarbanka. Skörunin var því fyrst og
fremst í fjárfestingarbankastarfseminni. Al-
mennir starfsmenn þurftu ekki að keppa við
starfsmenn Kaupþings um sín störf. Fækkun
á fjárfestingabankasviðinu gerði samrunann
við Kaupþing auðveldari heldur en ella. Við
þurftum ekki að segja upp nema örfáum
starfsmönnum fyrir bragðið. Sumir kunna að
hafa óttast að verða undir og missa störf sín
við sameininguna. Aðrir eltu kunningja sína
yfir í Landsbankann. Óneitanlega var mikið
áfall fyrir mig í fyrstu að missa þarna nokkra
lykilstarfsmenn. Ég hafði gengið út frá því eft-
ir samtal við þessa starfsmenn að þeir störf-
uðu með mér að breytingunum en þegar til
kastanna kom kusu þeir að færa sig yfir til
Landsbankans.“
Jákvæð og æskileg þróun
Sólon segist hafa átt auðvelt með að aðlag-
ast breyttri ímynd bankans frá því að vera
hefðbundinn viðskiptabanki í að verða djarfari
viðskipta- og fjárfestingarbanki. „Að mínu
mati hefur þróunin almennt verið mjög góð og
æskileg. Ég hef aldrei átt erfitt með að aðlag-
ast þessum breytingum. Ég hef reyndar alltaf
átt auðvelt með að aðlagast breytingum og
fundist spennandi að taka þátt í ýmiss konar
mótunarstarfi.“
KB banki á talsvert í fyrirtækjum í atvinnu-
lífinu, t.d. Baugi Group. Geta þessi eignatengsl
ekki verið hættuleg?
„Auðvitað getur komið upp hætta ef fyrir-
tæki fjárfesta hvert í öðru. Stefnan verður að
vera alveg skýr, rétt eins og hún hefur verið
hjá Kaupþingi og síðar KB banka. Bankinn
hefur verið að fjárfesta í fyrirtækjum sem
hann hefur verið að styðja við bakið á, t.d. í út-
rás. Af því hefur ekki skapast hætta og fjár-
munirnir verið að skila sér til baka með góðri
ávöxtun í flestum tilfellum.
Því hefur líka verið velt upp hvort eðlilegt sé
að stjórnarformenn séu starfandi í fyrir-
tækjum. Mismunandi reglur gilda um slíkt úti
í hinum stóra heimi. Ég er algjörlega ósam-
mála nýlegu nefndaráliti um að stjórn-
arformenn megi ekki að vera starfandi í fyr-
irtækjum. Ef verkaskipting forstjóra og
stjórnarformanns er skýr er ekkert að því að
stjórnarformaður fyrirtæks starfi innan þess.
Stjórnarformaður KB banka, Sigurður Ein-
arsson, sinnir ákveðnu, afmörkuðu verkefni
innan fyrirtækisins, þ.e. útrásinni. Ég get ekki
séð að störf hans hafi komið niður á bank-
anum. Þvert á móti sé ég mörg dæmi um að
það hafi verið jákvætt fyrir bankann.“
Hefur áhættustýring bankans verið að
breytast í þá átt að hann hafi orðið varkárari
upp á síðkastið?
„Fyrir sameininguna komu upp ýmsar
vangaveltur um að Kaupþing væri alltof
áhættusækið fyrirtæki. Hins vegar kom í ljós
þegar betur var að gáð að áhættustýring þess
var margfalt betri en Búnaðarbankans. Hér er
ég auðvitað að tala um aðra áhættu en útlán.
Útlánaáhættunni er og var stýrt á sama hátt
og var hjá Búnaðarbankanum. Áhættustýring
KB banka er eins og áhættustýring Kaup-
þings á sínum tíma og þetta er allt saman vel
út reiknað. Ég man ekki betur en 7 doktorar í
stærðfræði séu starfandi í áhættustýringu
Kaupþings. Þessir menn kunna að reikna.“
Sólon segir KB banka stefna að því að auka
starfsemi sína töluvert í Finnlandi þar sem
bankinn er nýlega búin að fá bankaleyfi. „Með
sama hætti er vilji fyrir því að auka starfsem-
ina í Noregi, Englandi og jafnvel í Lúxemborg.
Ekki er ólíklegt að stuðlað verði að því að
koma starfseminni í þessum löndum upp í
svipað umfang og í Danmörku og Svíþjóð. Ríf-
lega 200 manns í hvoru landi hefur mönnum
þótt góð eining. Þarna erum við ekki að tala
um viðskiptabankaþjónustu nema að mjög
litlu leyti í Svíþjóð. Annars eru þetta bara fjár-
festingarbankar.“
Hvernig hefur gengið að innleiða KB „kúlt-
úrinn“ í erlendu bönkunum?
„Það tekur sinn tíma að innleiða KB „kúlt-
úrinn“ í öllum þessum bönkum. Andinn er svo
gjörólíkur á milli allra þessara landa. Hann er
ólíkur á milli Danmerkur og Svíþjóðar, Finn-
lands og Svíþjóðar og áfram mætti telja.
Bankinn verður einfaldlega að vera þol-
inmóður og reyna að gera sitt besta,“ segir
Sólon og er spurður að því við hverja sé auð-
veldast að eiga. „Af öllum öðrum er svoleiðis
langauðveldast að vinna með Englendingum.
Þeir eru svo vanir því að vinna með útlend-
ingum.“
Frekari samruni erfiður
„Ég hefði viljað sjá sparisjóðina sameinast
einhverjum bankanna,“ segir Sólon þegar
hann er spurður hvort hann sjái fyrir sér frek-
ari samruna innan íslenska bankakerfisins.
„Með því móti hefðu orðið til þrjár öflugar
bankablokkir í landinu. Tvær bankablokkir
eru of fáar og fjórar of margar í jafnlitlu landi
og Íslandi. Með lagasetningu um sparisjóðina
var nánast alveg komið í veg fyrir að hægt
væri að hagræða í bankakerfinu með þátttöku
sparisjóðanna. KB banki hafði gengið frá
kaupum á Sparisjóði Reykjavíkur þegar lögin
voru sett afturvirkt.
Ekki má heldur gleyma því að með lögunum
komu alþingismennirnir í veg fyrir að við sölu
til bankanna yrð eigið fé sparisjóðanna gert að
styrktar- og menningarsjóðum. Svona sjóðir
hefðu getað orðið til í Reykjavík, Hafnarfirði,
Keflavík og víðar og orðið mikil stoð og styrk-
ur fyrir menningar- og íþróttalíf svo ekki sé
minnst á góðgerðarstarfsemi í landinu. Ég get
nefnt sem dæmi að hægt hefði verið að úthluta
600 milljónum á höfuðborgarsvæðinu á hverju
ári. Ég get ekki ímyndað mér annað en að al-
þingismennirnir séu búnir að uppgötva mistök
sín núna,“ segir Sólon og vill lítið segja um
hugsanlega sameiningu Íslandsbanka og
Landsbanka. „Ég verð þó að viðurkenna að ég
sé ekki alveg hvernig Samkeppnisstofnun ætti
að fara að því að samþykkja slíka sameiningu.
Maður skyldi þó aldrei segja aldrei.“
Sólon viðurkennir að honum þyki góð til-
finning að skila af sér góðu búi. „Auðvitað er
fínt að geta hætt á toppnum. Ég efast þó ekki
um að ungu mennirnir eigi eftir að hefja bank-
ann í hærri hæðir. Ég hef fulla trú á að Hreið-
ar Már eigi eftir að halda vel á spöðunum í
bankanum. Hann er ótrúlega fljótur að setja
sig inn í mál og óragur við að taka ákvarðanir.
Það er það sem skiptir máli.“
Fjölskyldan í fyrsta sæti
En hvað ætli hann sjálfur ætli að taka sér
fyrir hendur. „Ég ætla að dúlla við konuna og
barnabörnin. Ég hef afskaplega gaman af
barnabörnunum mínum 8 og af því að tvær af
fjölskyldunum þremur búa í útlöndum, New
York og Sviss, tekur mig talsverðan tíma að
ferðast á milli þeirra. Ég hef reyndar af-
skaplega gaman af því að ferðast og ætla að
gera meira af því í framtíðinni. Svo hef ég
gaman af því að lesa góðar bækur, veiða og
leika golf. Ég er farinn að geta stundað golfið
aftur eftir langt hlé og stefni að því að ná mér
aftur niður í gömlu forgjöfina. Svo fór ég að
stunda líkamsrækt fyrir ári. Þegar fólk undr-
aði sig á því sagðist ég vera að undirbúa mig
fyrir að hætta. Ég er yfirleitt í Laugum fyrri-
part dags. En eins og ég segi þá verður fjöl-
skyldan í fyrsta sæti hér eftir.“
aðlagast breytingum
’Auðvitað er fínt að getahætt á toppnum. Ég efast
þó ekki um að ungu menn-
irnir eigi eftir að hefja
bankann í hærri hæðir.‘
ago@mbl.is