Morgunblaðið - 31.05.2005, Page 23
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 31. MAÍ 2005 23
MINNSTAÐUR
AUSTURLAND
Neskaupstaður | Færeyska blaðið
Norðlýsið segir frá því að færeyski
kútterinn Jóhanna TG 326 sé vænt-
anlegur til Norðfjarðar á sjómanna-
daginn. Tilefni ferðarinnar er að Jó-
hanna er einn þeirra færeysku
kúttera sem sigldu milli Íslands og
Skotlands með fisk á stríðsárunum.
Ýmist fiskuðu kútterarnir sjálfir í
sig á Íslandsmiðum eða keyptu fisk
til að selja í Skotlandi. Nú þegar 60
ár eru frá stríðslokum vilja Fær-
eyingar minnast þessarar þátttöku
sinnar í heimsstyrjöldinni. Jóhanna
á að sigla frá Vogi í Færeyjum 2.
júní og koma til Norðfjarðar á sjó-
mannadaginn 5. júní. Þar ætla skip-
verjar að kaupa eitt tonn af fiski
sem siglt verður með daginn eftir til
Aberdeen í Skotlandi, þar sem fisk-
urinn verður seldur. Tuttugu manns
verða um borð í kútter Jóhönnu í
ferðinni, þeirra á meðal færeyskir
og íslenskir myndatökumenn. Með-
an kútterinn stoppar á Norðfirði
verður hann almenningi til sýnis. Í
frétt Norðurljóssins segir að borg-
arstjóranum á Norðfirði sé kunnugt
um þessa ferð og sé mjög spenntur
fyrir henni. Á meðan Johann verður
á Norðfirði verður sérstök mynda-
sýning um borð. Víst er að þessi
heimsókn á eftir að setja mikinn
svip á sjómannadagshátíðarhöldin í
Neskaupstað, sem standa yfir í þrjá
daga, enda líkir Norðurljósið sjó-
mannadeginum á Norðfirði við
Ólafsvöku í Færeyjum.
Færeyskur kútter
til Norðfjarðar
Morgunblaðið/Steinunn Ásmundsdóttir
Færeyski kútterinn Jóhanna er væntanleg til Norðfjarðar.
Seyðisfjörður | María Gaskell, tón-
listarkennari á Seyðisfirði, frum-
samdi tónlist í tilefni opnunar
listahátíðar Seyðfirðinga, Á Seyði,
sem hófst nýlega í tíunda sinn.
María samdi lag í klassískum
stíl með þjóðlegu ívafi. Lagið
hennar heitir Undir Háubökkum
og er innblásið af göngutúrum út
á Vestdalseyrar og ljóði eftir Vil-
borgu Dagbjartsdóttur. Lagið var
frumflutt á opnunarathöfn Á Seyði
í Seyðisfjarðarkirkju. Með Maríu
léku Elfa Hlín Pétursdóttir á
blokkflautu, Eydís Bára Jóhanns-
dóttir á blokkflautu og Muff
Worden á gelíska hörpu. Sjálf lék
María á píanó.
Morgunblaðið/Steinunn Ásmundsdóttir
Undir Háubökkum
Víðtækar upplýsingar | Marg-
miðlunardiskur frá Markaðsstofu
Austurlands var nýverið tilnefndur
fyrir Íslands hönd til hinna al-
þjóðlegu WSA-verðlauna (World
Summit Award) í flokki ferðaþjón-
ustukynninga. Í umsögn dómnefnd-
ar segir meðal annars: „Geisladisk-
urinn nýtist vel sem kynning til
ferðaþjónustuaðila erlendis, stuðlar
að mótun nýrra tækifæra í við-
skiptum og veitir litlum og með-
alstórum fyrirtækjum í ferðaþjón-
ustu stuðning. Kynningin kemur á
framfæri víðtækum upplýsingum
um margvíslega þjónustu og menn-
ingarstarfsemi í héraðinu.“ Alls
taka 168 þjóðir þátt í þessari
keppni og verða úrslitin kynnt á
Heimsþingi um upplýsinga-
samfélagið (World Summit on the
Information Society) í Túnis 16.
nóvember næstkomandi.
Styrkja Örvar | Á dögunum fengu
félagar í Örvari, íþróttafélagi fatl-
aðra á Fljótsdalshéraði og í Fjarða-
byggð, ríflega 200 þúsund krónur
að gjöf. Þessir peningar eru af-
rakstur söngskemmtunar Karla-
kórsins Drífanda og Kvenfélags
Skriðdæla að Arnhólsstöðum í
Skriðdal síðasta vetrardag. Þetta
er í fimmta sinn sem karlakórs-
menn og kvenfélagskonur halda
þessa skemmtun til styrktar fé-
lögum í Örvari. Líflegt starf er hjá
Íþróttafélaginu Örvari og eru fé-
lagar þar nýkomnir frá Akureyri
þar sem þeir kepptu á Hængs-
mótinu í boccia. Starfssvæði félags-
ins nær yfir Fljótsdalshérað og
Fjarðabyggð og er þetta eina
íþróttafélagið á Austurlandi sem
starfar í þessum tveimur sveit-
arfélögum. Frá þessu segir á vefn-
um egilsstadir.is.
Austurland
fær næsta
Vaxtarsamning
Egilsstaðir | Í gær var haldinn
óformlegur kynningarfundur á
Egilsstöðum um svokallaðan Vaxtar-
samning fyrir Austurland, en slíkir
samningar hafa verið unnir fyrir
Eyjafjarðarsvæðið, Vestfirði og
Suðurland.
Í maí 2002 samþykkti Alþingi
þingsályktun um stefnu í byggða-
málum fyrir árin 2002–2005. Eitt
meginmarkmið þeirrar stefnu er að
treysta búsetuskilyrði á landsbyggð-
inni, ekki síst með því að efla
byggðakjarna og sjálfbæran hagvöxt
einstakra svæða. Til að efla byggða-
kjarna er unnið einskonar stöðumat
á viðkomandi svæðum í samvinnu
ríkis, sveitarfélaga og einkaaðila.
Slíkt stöðumat hefur síðan leitt til
Vaxtarsamninga. Í þessum samning-
um er lögð áhersla á sérstöðu og
styrkleika svæðis og samkeppnis-
hæfni atvinnulífs, þar sem byggt er á
markaðstengdum aðgerðum. Mark-
miðið er að auka hagvöxt svæðisins,
fjölga atvinnutækifærum og treysta
viðkomandi byggðakjarna svo hann
geti enn frekar sinnt því lykilhlut-
verki að vera miðstöð atvinnu, menn-
ingar og þjónustu.