Morgunblaðið - 01.10.2005, Blaðsíða 1
STOFNAÐ 1913 265. TBL. 93. ÁRG. LAUGARDAGUR 1. OKTÓBER 2005 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS mbl.is
Nakin undir
hreindýrsfeldi
Ása Pettersson flakkar um með
Samatjaldið og 10 hreindýraskinn | 34
Lesbók | Rödd úr tómarúmi Lifun | Svarthvítir straumar
Börn | Sissa og sælgætisgerðin Íþróttir | Fjórir sterkir áfram
í Fylki Enska knattspyrnan | Cruyff gagnrýnir Mourinho
SEX nemendur voru færðir á
heilsugæslu eftir að veikjast
skyndilega í heimilisfræðitíma í
Grunnskólanum á Egilsstöðum á
fimmtudag.
Ekki er staðfest að um mat-
areitrun hafi verið að ræða, en heil-
brigðiseftirlit rannsakar málið og
er niðurstöðu að vænta eftir helgi.
Sigurlaug Jónasdóttir skólastjóri
segir 11 börn hafa verið í mat-
reiðslutímanum þegar atburðurinn
varð.
„Þetta bar mjög brátt að, en
börnin voru fljót að jafna sig og tók
það um tvær klukkustundir og voru
þau því öll komin heim til sín seinni-
partinn,“ segir Sigurlaug, en börn-
in voru samkvæmt læknisráði
heima í gær að jafna sig þar sem
þeim hafði verið sagt að taka því
rólega fyrst um sinn. „Þau fengu
magaverki og ógleði og sum upp-
köst. Sex börn fóru á heilsugæsluna
til aðhlynningar með þremur
sjúkrabifreiðum, en þrjú önnur
börn fundu til vægra ógleðiein-
kenna sem hurfu svo. Börnin voru í
venjubundnum matreiðslutíma þeg-
ar þetta gerðist og menn eru mjög
hissa á þessu. Þar sem ekki er vitað
hvað gerðist var allt hráefni og
matur tekinn og heilbrigðiseft-
irlitið er að greina það. Börnin voru
í þessu tilfelli að baka brauð og elda
tortellini með ostasósu, sem inni-
hélt m.a. pylsur, og höfðu neytt ein-
hvers af matvælunum.“
Sigurlaug segir börnin talsvert
eftir sig því átökin hafi verið mikil.
„Bæði þeir sem urðu fyrir þessari
óskemmtilegu reynslu og aðrir sem
horfðu upp á þetta gerast urðu auð-
vitað skelkaðir. Við höfum verið í
góðu samstarfi við heilsugæsluna
og skólahjúkrunarfræðinginn okk-
ar um að upplýsa nemendur og for-
eldrar voru auðvitað allir kallaðir
til,“ segir Sigurlaug.
Voru að baka brauð og elda tortellini með ostasósu, sem innihélt m.a. pylsur
Sex börn veiktust í matreiðslutíma
Morgunblaðið/Steinunn Ásmundsdóttir
Sex nemendur Egilsstaðaskóla fengu magakvalir og uppköst.
Eftir Steinunni Ásmundsdóttur
steinunn@mbl.is
Genf. AP, AFP. | Alþjóðaheilbrigðisstofnunin,
WHO, varaði í gær við stórkarlalegum yf-
irlýsingum um fuglaflensufaraldur en í
fyrradag sagði annar embættismaður
WHO, að slíkur faraldur gæti kostað allt að
150 millj. manna lífið.
Dick Thompson, talsmaður WHO í fugla-
flensumálum, sagði útilokað að spá um
mannfall af völdum hugsanlegs fuglaflensu-
faraldurs. „Við megum ekki vera með ein-
hvern hræðsluáróður,“ sagði Thompson.
Daginn áður sagði David Nabarro, sem
samræmir aðgerðir WHO gegn flensu og
fuglaflensu, að fuglaflensa gæti drepið
„fimm til 150 millj. manna“.
Thompson sagði, að hið opinbera mat
WHO á fjölda dauðsfalla af völdum fugla-
flensu væri 2 til 7,4 millj. manna og við það
væri miðað í alþjóðlegum undirbúningi. Það
væri þó líka bara ágiskun.
Varað við
„hræðslu-
áróðri“
London. AFP. | Hjónabandið virðist vera
að láta undan síga í Bretlandi, æ fleiri
kjósa að búa annaðhvort saman án
nokkurra lögformlegra skilmála eða
einir út af fyrir sig. Í skýrslu um þró-
un þessara mála næstu áratugi til
2031 segir að gert sé ráð fyrir að hlut-
fall giftra karla muni minnka úr 53%
árið 2003 í 42% fram til 2031, hlutfall
giftra kvenna fara úr 50% í 40%.
Því er spáð að sambýli þar sem gift-
ing hefur ekki komið við sögu muni
verða hlutfallslega mun fleiri en nú og
fjöldi ógiftra para í sambúð verða 3,8
milljónir. Byggt er á tölum sem sýna
að giftingum fækkar ört hjá fólki und-
ir þrítugu þessi árin. Þegar eldri kyn-
slóðirnar falla smám saman frá mun
því hlutfall ógiftra í landinu hækka
hratt.
Hjónabönd
að slitna
Lesbók, Lifun, Börn og Íþróttir
BEIÐNI um gjaldþrotaskipti Slippstöðvarinn-
ar á Akureyri var lögð fram hjá Héraðsdómi
Norðurlands eystra í gær, af lögmanni fyrir-
tækisins.
Starfsmenn fyrirtækisins áttu að fá laun sín
greidd á fimmtudag og í gær en fengu ekki.
Gripu þeir því til aðgerða í gærmorgun og lok-
uðu athafnasvæði félagsins og kyrrsettu flutn-
ingabifreið á vegum Landsvirkjunar. Að sögn
starfsmanna vildi lögfræðingur Landsbankans
ekki tryggja þeim laun og benti á Ábyrgðarsjóð
launa.
Þorsteinn Haraldsson, einn af trúnaðarmönn-
um í Slippstöðinni, segir baráttuandann stöð-
ugan meðal starfsmanna fyrirtækisins. „Við
stöndum vaktir hér í nótt, fjögurra tíma vaktir,
tíu manna hópar, þar til við fáum einhverjar
fréttir,“ segir Þorsteinn. „Okkur skilst að
stjórnarformaður fyrirtækisins sé á leiðinni
hingað ásamt lögfræðingi til að tala við okkur og
við vonumst til að sjá sem flesta fjölmiðla hér á
svæðinu milli tíu og ellefu í fyrramálið (í dag).“
Þorsteinn segir að svo virðist sem Lands-
bankanum sé mikið í mun að ná eignum fyr-
irtækisins út fyrir gjaldþrot. „Það virðist allt
snúast um að ná þessu út áður en fyrirtækið er
tekið til gjaldþrotaskipta og það væri gaman ef
einhver spyrði Landsbankann af hverju.“
Slá skjaldborg um laun
Eftir Kristján Kristjánsson
krkr@mbl.is
Beiðni um gjaldþrotaskipti lögð fram | 25
Morgunblaðið/Sverrir
SISSEL Kyrkjebø söng sig inn í hug og hjarta Íslendinga á tónleikum í Háskólabíói í gærkvöldi. Segja má að ákveðin hefð hafi skapast fyrir því að
erlendir klassískir söngvarar sem hingað koma gleðji landann með því að flytja íslenska söngva. Þar var Kyrkjebø engin undantekning og söng hún
annars vegar Á Sprengisandi og hins vegar hinn angurværa söng Sofðu unga ástin mín. Athygli vakti að söngkonan kom fram í glæsilegum kjól sem
hún hafði keypt í Spaksmannsspjörum og fetar þar í fótspor erlendra kvenstjarna sem hingað hafa lagt leið sína og fallið fyrir íslenskri hönnun.
Söng sig inn í hug og
hjarta viðstaddra