Morgunblaðið - 01.10.2005, Blaðsíða 70
70 LAUGARDAGUR 1. OKTÓBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ
Sýnd kl. 2, 4, 6, 8 og 10 B.i. 14 ára
RACHEL McADAMS CILLIAN MURPHY
Sýnd kl. 6, 8 og 10 b.i. 14 ára
Verðið á karlhórum hefur lækkað
töluvert fyrir evrópskar konur!
Sprenghlægileg gamanmynd!
Sýnd kl 4 í þrívídd
Sýnd kl. 10
Sýnd kl. 4, 6 og 8
Göldrótt gamanmynd!
Göldrótt
gamanmynd!
Sýnd kl. 5.45, 8 og 10.15
VARÚÐ: Þú gætir
farið úr kjálkaliðum
af hlátri
Night Watch is F***ING COOL!
Quentin Tarantino
i t t i I !
ti r ti
Sýnd kl. 8 og 10.30 b.i. 16 ára
Ó.H´T RÁS 2
Sýnd kl. 2 og 4 ísl.tal
Sími 564 0000í i
Miða sala opn ar kl. 15.15i l l. 3.30
Sýnd kl. 2, 4 og 6 íslenskt tal
BETRA SEINT EN ALDREI
kl. 2, 4, 6, 8 og 10
HÖRKU SPENNUTRYLLIR FRÁ WES CRAVEN
LEIKSTJÓRA SCREAM MYNDANNA.
Óbeint framhald af
þáttaröðinni Jesú og
Jósefína sem var sýnd
við miklar vinsældir
á Stöð 2 síðustu jól.
Í þessari mynd fylgjumst við
áfram með tímafl akki Jósefínu
og þeim ævintýrum sem
hún lendir í þegar hún
fl akkar aftur í miðaldir!
HÖRKU SPENNUTRYLLIR FRÁ WES
CRAVEN LEIKSTJÓRA SCREAM
MYNDANNA.
Sýnd kl. 6, 8, og 10 B.i. 14 ára
Sýnd kl. 2 og 4
Skemmtilega ævintýramynd
með íslensku tali.
Skemmtilega ævintýramynd
með íslensku tali.
RACHEL
McADAMS
CILLIAN
MURPHY
RACHEL
McADAMS
CILLIAN
MURPHY
Topp5.is
Topp5.is
Miðaverð 450 kr.
TILBOÐ Á FYRSTU SÝNINGAR DAGSINS - AÐEINS 400 KR.
ATH! SÝNINGAR SÉRMERKTAR MEÐ RAUÐU
Sýnd kl. 2
Í 36.000 FETUM VARÐ
HENNAR VERSTA MARTRÖÐ
AÐ VERULEIKA.
Í 36.000 FETUM VARÐ HENNAR VERSTA MARTRÖÐ AÐ VERULEIKA.
Berlininvasion er heitið áumfangsmikilli listsýn-ingatörn Íslendinga hér í
Berlínarborg og fer hún fram á
ýmsum galleríum víðsvegar um
borgina en það er Kynning-
armiðstöð íslenskrar myndlistar
sem að henni stendur. Auk þessa
fara fram tónleikar á morgun í
Club Rio þar sem fram koma m.a.
Singapore Sling, plötusnúðar úr
Gusgus og Kimono, en hljóm-
sveitin sú er flutt í heilu lagi til
Berlínar. Opnunarkvöld Klink og
Bank sýningarinnar var haldið
síðastliðinn miðvikudag.
Sýning Klink og Bank fellur
undir Berliner Liste hátíðina, um-
fangsmikla listastefnu sem gerir
sér far um að sinna nútímalist,
hvaðan sem hún kann að koma.
Opnunin fór fram í listasafni sem
kallast nú um stundir Former
Vitra Design Museum og er hýst í
gamalli rafstöð á Kopenhagener
Straße.
Fjöldi listamanna, flestir þýsk-
ir, opnaði þetta kvöldið í bygg-
ingunni og Klink og Bank-liðar
héldu til á fremur litlu svæði.
Eftir að ég hafði þvælst ásamt
fylgdarliði um nokkra rangala,
alla leið upp á þriðju hæð, fór
loks að glitta í Íslendingana. Há-
vært skvaldur, auk fólks röltandi
um með bjórflösku í hendi, var
nægileg vísbending um að stutt
væri í landann.
Básinn hjá Klink og Bank vareins og lítið sætt helvíti sam-
anborið við önnur sýningarpláss.
Í þeim voru mestmegnis málverk
og skúlptúrar til sýnis, rýmin
voru björt og fólk gekk um hæg-
lætislega og strauk hökuna. Á
meðan var standandi partí hjá
Klink og Bank. Að einhverju leyti
var þetta vegna þess að plássið
var naumt skammtað. Í öðrum
rýmum, svipaðrar stærðar, voru
þetta einn til tveir listamenn að
sýna. Klink og Bank-liðar skiptu
hins vegar mörgum tugum og
einslags karnivalstemning var í
gangi. Þægileg spenna var í loft-
inu og einhvers konar grall-
araskapur líka. Lýsingin var í
minna lagi, alls kyns hljóð láku
út úr hátölurum og kvikmynda-
skeiðum var varpað á gráa, stein-
steypta veggi. Þetta var líkast at-
riði í Twin Peaks. Bensín á
stemninguna var þá verk eftir
Helga Þórsson, sem var bar með
öllu tilheyrandi. Ekki leið á löngu
uns hann var þurrausinn.
Inni í Klink og Bank-rýminu
mátti sjá Þorfinn Guðnason kvik-
myndagerðarmann með tökuvél á
lofti en mynd hans 20 Minutes of
Schlingensief’s Animatograph var
frumsýnd þetta sama kvöld. Klink
og Bank-liðar tóku síðan á
þrengslum með því að vera með
uppákomur í porti og á bar jarð-
hæðarinnar sem átti eftir að
reynast Íslendingunum af-
drifaríkur. Utan við rýmið stóð
svo Hafsteinn Mikael, íklæddur
hesthnakki og bauð gestum og
gangandi á bak. Inni í rýminu sat
Ragnar Kjartansson hins vegar á
stól, spilaði á gítar og raulaði
með sjálfum sér á meðan nýhilist-
inn Haukur Már Helgason stóð á
bakvið luktar dyr og las ljóð yfir
þeim sem þorðu að stíga inn fyr-
ir. Sprellandi glundroði lá undir
öllu og var hann hressandi, all-
tént miðað við restina af húsinu.
Sumir listamannanna tókust þá
beint á við það umhverfi sem þeir
voru í. T.a.m. mátti sjá forláta
styttu af Berlínarbirninum eftir
Ásdísi Sif Gunnarsdóttir, hag-
anlega mótaða úr litlum, svörtum
gúmmíbjörnum. Þá hékk uppi
málverk af Hitler eftir Snorra
Ásmundsson.
Ég rakst þarna á Godd (Guð-mund Odd Magnússon) og
tjáði hann mér að Klink og Bank
væri orðið að hálfgerðu vöru-
merki („brand“). Það væri ein-
hver heildarára yfir starfsemi
þeirra ólíku listamanna sem
starfa undir merkjum Klink og
Bank sem væri farin að vekja at-
hygli á alþjóða vettvangi. Þessi
þróun hefði m.a. stuðlað að því
að þessari sýningu var landað.
Undir þetta tók dr. Christian
Schoen, forstöðumaður Kynning-
armiðstöðvar íslenskrar mynd-
listar, sem var og á staðnum. „Ég
fékk boð um að vinna að Berliner
Liste en þá vissu menn ekki að ég
var byrjaður að vinna hér á Ís-
landi,“ útskýrði hann. „Ég sagðist
ekki eiga færi á að sinna hátíð-
inni en svo kviknaði skyndilega á
perunni. Því ekki að nota þau
sambönd sem ég hef til að reyna
að koma því í gang sem við erum
að upplifa núna?“
Schoen er þýskur og er því eðli
málsins samkvæmt í einkar góðri
stöðu til að bera saman íslenska
nútímalist og þýska. Hann segir
að það sem honum finnist hvað
athyglisverðast sé hversu náið
samstarfið sé á milli íslensku
listamannanna og hversu óbangn-
ir þeir séu við að hræra saman
hinum ólíku formum.
Fólk var nú hafið að færa sig
niður á jarðhæðina, enda barinn
hans Helga tómur. Auk þessa var
stutt í það að gjörningar Íslend-
inga brystu á. Þar fór Ásmundur
Ásmundsson á miklum kostum í
fyrirlestri. Ásmundur hefur leikið
sér að því að storka áhorfendum
og koma þeim í vandræði.
Er hér var komið sögu varjörfagleði mikil tekin að ein-
kenna íslenska hópinn. Áfengi er
jafnan á boðstólum á myndlist-
aropnunum og haga Íslendingar
sér þá stundum eins og lítil börn
í leikfangabúðum, enda búa þeir
við mikil umgengnishöft hvað það
varðar og ef þeir komast í fría
ódáinsdrykki halda þeim iðulega
engar hömlur. En ekki það að Ís-
lendingar hafi orðið sér til ein-
hverrar sérstakrar skammar
þetta kvöldið. Alls ekki. Það var
bara mikið stuð og mikil gleði.
Það mikil gleði á tímabili að lá
við ofgleði. Þannig var eigandi
jarðhæðarbarsins kominn niður á
svokallað VIP-svæði rétt undir
miðnætti þar sem einhverjir Ís-
lendingarnir höfði glutrað niður
VIP-kortum sínum fyrr um kvöld-
ið. Freyðivínsflaska hafði þá
horfið af barnum og reynt var að
þjófkenna einn Íslendinginn. Lá
við handalögmálum um hríð og
um tíma voru nærfellt allir Ís-
lendingarnir komnir út í port, lítt
velkomnir innandyra. Gekk þetta
svo langt að ísfirsku tuddarokk-
urunum í Nine elevens var mein-
að að spila á barnum, sökum
þjóðernis. Það var ekki fyrr enn
Christoph Schlingensief, einn um-
deildasti samtímalistamaður Þjóð-
verja og nýlegur Íslandsvinur,
gekk í það að sætta mál að um
hægðist. Schlingensief þessi hef-
ur unnið með listamönnum úr
Klink og Bank og verk hans
Animatograph var frumflutt á
umliðinni Listahátíð í Reykjavík.
Allt fór því vel að lokum og
Nine elevens rokkuðu út í nóttina
í hæfilegri friðsemd og spekt.
Segja má að markmiði Christian
Schoen, þ.e. að gera Íslendinga
vel sýnilega í Berlín, hafi verið
rækilega framfylgt þetta kvöldið.
Það er spurning hvernig tónleik-
arnir á morgun fara …
Umsáturs-
ástand í Berlín
’Tjáði hann mér aðKlink og Bank væri
orðið að hálfgerðu
vörumerki.‘
AF LISTUM
Arnar Eggert Thoroddsen
Morgunblaðið/Arnar Eggert
DJ Musician stendur hér við verk eftir Snorra Ásmundsson.
arnart@mbl.is