Morgunblaðið - 01.10.2005, Blaðsíða 76
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040,
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 LAUGARDAGUR 1. OKTÓBER 2005 VERÐ Í LAUSASÖLU 220 KR. MEÐ VSK.
TVEIR unglingar á bifhjóli slösuðust þegar
ökumaðurinn missti vald á hjólinu í Ártúns-
brekkunni í Reykjavík síðdegis í gær og ók utan
í að minnsta kosti tvo bíla, samkvæmt upplýs-
ingum læknis og lögreglu. Hlutu ökumaðurinn
og farþegi hans, sem eru 18 og 19 ára, beinbrot
og áttu þeir að gangast undir aðgerðir á Land-
spítalanum í gærkvöldi. Þeir voru þó ekki í lífs-
hættu að sögn læknis á slysadeild Landspít-
alans.
Miklar tafir urðu á umferð þegar lögregla og
sjúkralið athöfnuðu sig á vettvangi.
Slösuðust í bifhjólaslysi
Morgunblaðið/Júlíus
EFNAHAGSSTEFNA ríkis-
stjórnarinnar gengur þvert á
markmið síðustu kjarasamninga,
en markmið þeirra var að stuðla
að efnahagslegum stöðugleika og
jafnvægi á vinnumarkaði, sem
hvort tveggja væru grundvöllur
uppbyggingar og fjölgunar
starfa. Þetta er mat Sigríðar
Ingibjargar Ingadóttur, hag-
fræðings hjá Alþýðusambandi Ís-
lands, en hún hafði framsögu um
efnahags- og kjaramál á þingi Al-
þýðusambands Norðurlands sem
stendur nú yfir á Illugastöðum í
Fnjóskadal.
Sagði Sigríður ennfremur í er-
indi sínu að kaupmáttarrýrnun
hefði orðið hjá þriðjungi verka-
fólks í mannvirkjagerð á liðnu ári
og um helmingur verkafólks í
iðnaði hefði orðið fyrir kaupmátt-
arrýrnun á sama tímabili. Nið-
urstaðan væri enn sorglegri hjá
starfsfólki í fiskvinnslu og stór-
iðju. Þá hefðu um 70% skrifstofu-
fólks í iðnaði orðið fyrir kjara-
rýrnun á tímabilinu.
Sigríður sagði þó stöðu efna-
hagsmála um margt góða. Hag-
vöxtur væri mikill og atvinnu-
leysi minnkandi, en þó væri
ýmislegt sem vert væri að hafa
áhyggjur af. M.a. nefndi hún at-
vinnuleysi á landsbyggðinni, vax-
andi verðbólgu og veikara
atvinnulíf í lok stóriðjufram-
kvæmda.
Mörg markmið
ekki náðst fram
„Það er alveg sama hvernig
menn stilla því máli upp fyrir
sér. Það er mikið bil á milli þess
sem menn töldu sig vera að
semja um og þess sem staðan er í
dag,“ sagði Grétar Þorsteinsson,
forseti Alþýðusambands Íslands,
á þinginu.
Sagði Grétar viðfangsefni
næstu vikna að brúa bilið og væri
fyrsta úrræðið að semja við at-
vinnurekendur. Grétar sagði
ennfremur að þess yrði freistað
að endurreisa þau markmið sem
lagt var upp með, enda væri
margt í markmiðum samning-
anna sem ekki hefði náðst fram.
Þannig hefði verið lögð áhersla á
nýjan sáttmála um þríhliða sam-
starf verkalýðshreyfingar, at-
vinnurekenda og stjórnvalda, en
það hefði ekki gengið eftir. Taldi
Grétar það ljóst að það væri ekki
síst vegna þess sem kjarasamn-
ingarnir væru í uppnámi.
Hagfræðingur og forseti ASÍ ómyrkir í máli á þingi ASN í gær
„Efnahagsstefnan setur
kjarasamninga í uppnám“
Efnahagsstefna | Miðopna
LESBÓK Morg-
unblaðsins verður
áttatíu ára 4. októ-
ber og er því fagn-
að í blaðinu í dag.
Matthías Johann-
essen segir í grein
af þessu tilefni:
„Og nú er Lesbók
orðin akadem-
ískasta blað lands-
ins og fyllir þannig
upp í tómarúm í
hávaðasömu, fjölnismannalausu og lág-
reistu poppsamfélagi síðustu ára, þar sem
holtaþokuvælið og lágkúran eru hafin til
skýja, jafnvel verðlaunuð í auglýs-
ingaskruminu, og gasprandi pólitíkusar
(og ýmsir aðrir) stynja í fjölmiðlum af und-
irgefni við kjaftfora, ósvífna nýkapita-
lista.“
Lesbókin mun efna til málþings 13.
október í tilefni af tímamótunum um
menningu og samfélag. Þar verður reynt
að varpa ljósi á samræðu eða samskipta-
leysið milli menningarlífs annars vegar og
stjórnmálalífs og atvinnulífs hins vegar.
Meðal annars verður spurt hvað fyrir-
tækin sem styðja menninguna græði á
henni og hvort það skipti einhverju máli í
raun og veru hvað sé verið að sýna í Hafn-
arhúsinu en þar fer málþingið fram.
Lesbók 80 ára
Lesbók
FJÖGUR met voru
sett í Kauphöll Ís-
lands í gær en þá
varð skipting Burð-
aráss á milli Lands-
banka Íslands og
Straums Fjárfest-
ingarbanka að veru-
leika.
Fyrst ber að telja
stærstu færslu frá
upphafi í Kauphöll-
inni þar sem bréf í
Burðarási fyrir tæp-
lega 97,5 milljarða króna skiptu um eigend-
ur í einni færslu.
Í öðru lagi var dagurinn í gær sá veltu-
hæsti í hlutabréfaviðskiptum frá upphafi en
velta dagsins nam alls tæplega 113 millj-
örðum króna. Þá var septembermánuður sá
veltuhæsti frá upphafi en velta mánaðarins
nam um 251,7 milljörðum. Loks fór velta í
viðskiptum með hlutabréf það sem af er árs-
ins í um 814,4 milljarða króna og er það
tæplega 100 milljörðum meira en velta alls
síðasta árs.
Stærsta
færsla frá
upphafi
Metdagur | 20
)*
(
+,
-
-,
(
+,
/
+,
%!
I#
JJ#
#
J
(
+,
TVEIR stórlaxar úr kvik-
myndaheiminum, leikstjór-
inn Clint Eastwood og
kvikmyndatökumaðurinn
Tom Stern, sem báðir
komu að gerð myndarinnar
Flags of our Fathers hér á
landi í sumar, fjárfestu í
tólf málverkum eftir ís-
lenska myndlistarmenn
meðan á dvöl þeirra hér-
lendis stóð.
Verkin sem um ræðir eru eftir sex mynd-
listarmenn; JBK Ransu, Georg Guðna, Hú-
bert Nóa, Kristin Má Pétursson, Aron Reyr
og Arngunni Ýr. Þau voru keypt í Turpentine-
galleríinu við Ingólfsstræti og staðfesti
Sveinn Þórhallsson gallerísti kaupin við
Morgunblaðið. Hann segist sjálfur hafa kynnt
verkin fyrir kaupendunum.
Eastwood keypti íslensk málverk
Málverk eftir Húbert Nóa seljast vel. M.a. er Clint Eastwood ánægður með verk listamannsins.
Clint Eastwood
FYRSTA síldin sem berst til Neskaup-
staðar á þessari haustvertíð kom á land í
gærmorgun þegar Beitir NK kom með góð
200 tonn sem fengust í nót í Berufjarðarál.
Síldin er góð og er að meðalvigt um 300
grömm og fer hún öll í frystingu hjá Síld-
arvinnslunni.
Fyrsta síldin
Morgunblaðið/Ágúst
♦♦♦