Morgunblaðið - 01.10.2005, Page 4
4 LAUGARDAGUR 1. OKTÓBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
„Ég er finnskur rithöfundur –
sjálfhverfur, alvarlegur,
gráðugur, vel á mig kominn,
grannholda og þröngsýnn,
niðurdrepandi og gaman-
samur.“
Kari Hotakainen
(um sjálfan sig)
1. sæti
Skáldverk - kiljur
Penninn Eymundsson
og Bókabú›ir MM
7. – 27. sept.
Súperstöff
sem slær í gegn ...
Toppsætið í 3
vikur
Bókmenntaverðlaun
Norðurlandaráðs 2004
Frábærlega vel skrifuð og skemmtileg saga
sem farið hefur mikla sigurför um flest
lönd Evrópu og alls staðar orðið
metsölubók. Finnskur húmor eins og hann
gerist bestur.
„Ég hló svo mikið að ég var nærri dottinn
af stólnum.“
- Lasse Pöysti
„Frábærlega unnið verk ... Súperstöff.“
- Páll Baldvin Baldvinsson, DV
FULLTRÚAR sýslumannsins í Reykjavík lögðu
í gær hald á tölvupósta á ritstjórnarskrifstofum
Fréttablaðsins í lögbannsgerð að kröfu Jónínu
Benediksdóttur. Lagt var lögbann við því að
Fréttablaðið birti opinberlega einkagögn, að
hluta til eða í heilu lagi, hvort heldur sem um er
að ræða tölvupóst þar sem gerðarbeiðandinn
Jónína er ýmist sendandi eða viðtakandi. Sama
gilti um persónuleg einkaskjöl gerðarbeiðanda
sem Fréttablaðið hafði í sinni vörslu.
Lögbannsúrskurðurinn var kveðinn upp í
gærmorgun í húsnæði Fréttablaðsins og fylgi-
athöfnin þ.e. lögbannsgerðin framkvæmd með
því að taka gögnin. Samkvæmt upplýsingum frá
fullnustudeild sýslumanns var fallist á kröfu lög-
manns Jónínu um að boða aðila ekki til gerð-
arinnar hjá sýslumanni því hann taldi hættu á
því að af hálfu Fréttablaðsins yrði skotið undan
gögnum.
Lögbannsgerð er bráðabirgðagerð og til að
hún haldi gildi þarf að fara í staðfestingarmál
fyrir héraðsdómi innan einnar viku. Fellur lög-
bannið niður að öðrum kosti.
Langt seilst til fanga
Þegar fulltrúar sýslumanns mættu á Frétta-
blaðið afhentu starfsmenn blaðsins umbeðin
gögn. Hinkrað var með aðgerðina þar til Einar
Þór Sverrisson, lögmaður gerðarþola, kom á
vettvang til að gæta hagsmuna þeirra. Jón
Magnússon lögmaður mun hins vegar annast
málið fyrir Fréttablaðið þegar það verður reifað
fyrir héraðsdómi og látið reyna á lögbannið.
Jón reiknaði með því að farið verði fram á
flýtimeðferð í málinu og þá ætti niðurstaða að
liggja fyrir fljótlega. Að líkindum muni reyna á
hefðbundin sjónarmið, annars vegar varðandi
friðhelgi einkalífsins og ákvæði þar að lútandi í
hegningarlögum og fjölmiðlalögum, og hins veg-
ar tjáningarfrelsi. „Eftir frumskoðun á málinu
sýnist mér að þarna hafi ansi langt verið seilst
til fanga og lengra en hægt er að samþykkja að
geti gengið gagnvart almennum reglum stjórn-
arskrár um málfrelsi,“ segir Jón. „Þegar búið er
að birta á prenti ákveðna hluti er spurning
hvernig réttlætanlegt er að banna frekari um-
fjöllun um þau atriði.“ Býst Jón því við að
Fréttablaðið muni gera ítrustu kröfur á grund-
velli ákvæða prentfrelsis, málfrelsis og tjáning-
arfrelsis.
Jónína Benediktsdóttir hefur sent lögreglunni
í Reykjavík erindi þar sem óskað er eftir lög-
reglurannsókn á meintum stuldi Fréttablaðsins
á tölvupóstum hennar. Rannsókn er ekki hafin
hjá lögreglu en beðið er komu Jónínu til
skýrslugjafar, en hún mun vera stödd erlendis.
Lögbann sett á birtingu Frétta-
blaðsins á tölvupóstum Jónínu
FÉLÖG Framsóknarflokks og
Samfylkingar í Garðbæ hafa sam-
þykkt að bjóða fram sameiginlegan
lista í bæjarstjórnarkosningunum
vorið 2006. Á félagsfundum beggja
félaganna var ákveðið að efnt yrði
til sameiginlegs opins prófkjörs um
efstu sæti framboðslistans eigi síð-
ar en 31. janúar nk.
Öðrum en flokksfólki Samfylk-
ingar og Framsóknarflokks er
heimilt að bjóða sig fram og taka
þátt í prófkjörinu. Með því verði
opnuð leið til þess að auka breidd
framboðsins. Prófkjörið verður
bindandi fyrir þrjú efstu sæti
framboðslistans og ekki gert ráð
fyrir girðingum af neinu tagi.
Eyþór Rafn Þórhallsson, for-
maður Framsóknarfélagsins í
Garðabæ, segir samstöðu ríkja
meðal framsóknarmanna með mál-
ið. „Síðastliðið miðvikudagskvöld
voru haldnir félagsfundir á sama
tíma bæði hjá Samfylkingu og
Framsókn og þessi tillaga var sam-
þykkt samhljóða í báðum félögum,“
segir Eyþór, sem kveðst vonast til
að flokkarnir nái meirihluta með
því að leiða saman hesta sína. „Við
opnum líka fyrir að óháðir komi
með okkur og það má taka þátt í
þessu opna prófkjöri eins og aðrir.
Við vonumst með þessu til að ná
saman breiðri fylkingu Garðbæ-
inga.“
Samfylking og Framsókn í
Garðabæ saman með framboð
STJÓRN Blaðamannafélags Íslands sendi frá
sér tilkynningu vegna aðgerða sýslumannsins í
Reykjavík á Fréttablaðinu og mótmælir þeim
með þeim orðum að sýslumaður eigi ekkert er-
indi inn á ritstjórnarskrifstofur íslenskra fjöl-
miðla.
Í tilkynningunni segir ennfremur:
„Með þessum aðgerðum er verið að veitast að
tjáningarfrelsinu og þeim rétti blaðamanna að
afla sér gagna og vinna úr þeim. Aðgerðirnar
ógna einnig nauðsynlegri vernd blaðamanna við
trúnaðarmenn sína. Fjölmiðlar gegna lykilhlut-
verki í lýðræðissamfélagi og trúnaður þeirra við
heimildamenn er einn af hornsteinum þess.
Vernd blaðamanna við heimildamenn er þar að
auki staðfest með dómi Hæstaréttar. Aðgerðir
sýslumanns eru atlaga að þeim rétti.“
Blaðamanna-
félagið mótmælir
aðgerðunum
JÓN Kristjánsson heilbrigðis-
ráðherra ræddi um offituvandann í
ávarpi sínu á aðalfundi Lækna-
félags Íslands í gær og lýsti sig
reiðubúinn til að leggja sitt af
mörkum til að skapa vettvang þar
sem læknasamfélagið, heilbrigð-
isráðuneytið og Lýðheilsustöð gætu
sameinað krafta sína í baráttu fyrir
betri heilsu landsmanna. Forvarnir
og barátta fyrir betri heilsu á þeim
grundvelli, sem Alþingi, alþjóða-
stofnanir og samtök lækna hafa
ályktað um, eru að mati ráðherra
ekki aðeins skynsamlegar, faglega
og peningalega, heldur líka nauð-
synlegar og forsenda fyrir fram-
þróun í lækningum, að því er fram
kom í ávarpinu.
Ráðherra sagði að læknar væru í
lykilhlutverki við að snúa við hinum
sívaxandi offituvanda. Rifjaði hann
upp eigin orð þess efnis að vaxta-
kostnaðurinn af heilsufarsláni sem
íslenska þjóðin hefði verið að taka
með hreyfingarleysi, óhollu matar-
æði og lakari lífsháttum væri farinn
að hlaðast hratt upp. Innan skamms
þyrfti að fara að greiða af láninu
með versnandi heilsu. Ráðherra
lýsti því sem alvarlegum hlut að hér
á landi væru 57% karla og 40%
kvenna á aldrinum 15–80 ára yfir
kjörþyngd árið 2002.
Minnti ráð-
herra á þings-
ályktunartillögu
heilbrigðis- og
tryggingamála-
nefndar Alþingis
sem samþykkt
var 11. maí sl.
Tillagan snýst
um að grípa til
aðgerða til að
bæta heilbrigði Íslendinga með
hollara mataræði og aukinni hreyf-
ingu. Faghópur á vegum forsætis-
ráðuneytisins á að greina vanda
sem tengist óhollu mataræði, offitu,
átröskun og hreyfingarleysi, bæði
orsakir vandans og afleiðingar.
Gert er ráð fyrir að faghópurinn
geri tillögur að samræmdum að-
gerðum og framkvæmdaáætlunum
sem lagðar verði fyrir ríkisstjórn-
ina í apríl 2006.
Þótt málið væri á hendi forsætis-
ráðuneytisins sagðist ráðherra hafa
ýtt við mönnum og kannað stöðu
málsins. Sagðist hann geta upplýst
að þar á bæ litu menn vandann
sömu augum og hann sjálfur. Legg-
ur hann áherslu á að læknar og
samtök þeirra verði höfð með í ráð-
um í þeirri vinnu sem nú er verið að
skipuleggja til að hrinda vilja Al-
þingis í framkvæmd.
Ráðherra vill taka
á offituvandanum
með samhentu átaki
Jón Kristjánsson
Morgunblaðið/Golli
Sigurjón M. Egilsson, fréttaritstjóri Fréttablaðs-
ins, tók á móti fulltrúum sýslumanns í gær.
MJÖG mikil árekstrarhrina reið
yfir höfuðborgina í gær en alvarleg
slys urðu þó ekki á fólki að undan-
skildu bifhjólaslysi í Ártúnsbrekku
þar sem tvö ungmenni slösuðust.
Þegar klukkan var orðin 19 í
gærkvöld höfðu 32 árekstrar orðið
í borginni. Er þetta nærri þrefalt
meira en meðaltalið segir til um en
að jafnaði verða um 11 árekstrar að
meðaltali í borginni á hverjum degi.
Mikil árekstra-
hrina í borginni
RÍKISLÖGREGLUSTJÓRI hefur
ákveðið að fresta almannavarnaæf-
ingunni Bergrisanum 2005 sem átti
að halda dagana 21. til 23. október
nk. Lögreglustjóri í Rangárvalla-
sýslu óskaði eftir frestuninni svo að
lengri tími gæfist til að undirbúa
viðbragðsaðila og íbúa Rangár-
vallasýslu, en mikil þáttaka heima-
manna er mikilvæg fyrir góðan ár-
gangur, segir í tilkynningu frá
embætti ríkislögreglustjóra.
Bergrisinn er heiti allsherjaræf-
ingar viðbragða vegna mögulegra
eldsumbrota í Mýrdalsjökli eða
Eyjafjallajökli, með jökulhlaupi og
jafnvel flóðbylgju í sjó. Reiknað er
með að um þúsund manns taki þátt í
æfingunni af hálfu opinberra aðila,
auk fjölda annarra þátttakenda,
t.d. flestra íbúa og annarra sem
staddir verða á svæðinu. Ríkislög-
reglustjóri kannaði afstöðu lög-
reglustjóranna í Vík, Vestmanna-
eyjum, Keflavík og á Selfossi til
frestunar æfingarinnar. Þá var
málið rætt í Almannavarnaráði og
vinnuhópi viðbragðsaðila til að
undirbúa æfinguna, svokölluðum
bakskipulagshópi. Að höfðu sam-
ráði við ofangreinda aðila hefur
ríkislögreglustjóri frestað æfing-
unni en ný tímasetning verður 24.
til 26. mars á næsta ári.
Æfingunni Berg-
risanum frestað
VEGNA orðalags í forystugrein
Morgunblaðsins í gær skal tekið
fram, að viðtal það við Atla Gísla-
son, lögmann, sem blaðið birti í
fyrradag var persónulegt viðtal,
þar sem lögmaðurinn lýsti sínum
persónulegu skoðunum en ekki
samtal við hann sem lögfræðing
Blaðamannafélags Íslands.
AthugasemdUMFERÐARÓHAPP varðundir Hafnarfjalli milli kl.
fimm og sex í gær þegar hjól
losnaði undan flutningabíl og
lenti framan á jeppabifreið
sem kom úr gagnstæðri átt.
Skemmdist jeppinn mikið og
var óökufær á eftir. Fernt var
í bílnum og kenndi einn sér
eymsla.
Hjól undan
flutningabíl
skall á jeppa