Morgunblaðið - 01.10.2005, Qupperneq 14
14 LAUGARDAGUR 1. OKTÓBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Húsin eru seld á þremur byggingastigum.
Verð frá kr. 955.000 m/vsk.
Húsin verða tilbúin til afhendingar feb.-mars 2006.
5 ára reynsla á Íslandi.
Sjá nánar heimasíðu okkar: www.kvistas.is
Sölumaður: Jóhannes, sími 482 2362.
Kvistás s/f Selfossi.
kvistas@simnet.is
Gestahús
24 fm gestahús,
byggð úr gegnheilum
harðvið
„ÉG GET ekki annað en tekið undir
með þeim sjónarmiðum sem þarna
koma fram,“ segir Bragi Guðbrands-
son, forstjóri Barnaverndarstofu,
þegar borin er undir hann gagnrýni
Helga Áss Grétarssonar á langa
málsmeðferð umgengnismála sem
var til umfjöllunar hér á síðum
blaðsins á fimmtudag.
Bragi bendir á að umsagnir
barnaverndarnefnda í umgengn-
isréttardeilum eru ekki eitt af meg-
inverkefnum barnaverndarnefnda
samkvæmt gildandi lögum. „Heldur
er þeim falið þetta sem eins konar
hliðarverkefni. Aðstæður hafa verið
með þeim hætti á Íslandi að
barnaverndarnefndir eiga fullt í
fangi með að axla sínar frumskyldur
varðandi barnavernd í landinu,
þannig að að mörgu leyti má segja
að þetta sé óhjákvæmileg niðurstaða
af því. Engu að síður er það alvar-
legt mál að ekki sé unnt að sinna
þessum málaflokki, þ.e. umgengn-
isréttarágreiningi, með þeim hætti
sem þarf að vera. Málin taka allt of
langan tíma og því fer víðsfjarri að
lögð sé næg rækt við það að leysa úr
ágreiningi,“ segir Bragi og bendir í
því samhengi á að mjög skorti t.d. á
að skilnaðar- og fjölskylduráðgjöf sé
í boði sem og stuðningur við þau
börn sem upplifa skilnað foreldra
sinna.
Vangeta kerfisins til að
taka á þessum málum
Meðal þess sem Helgi Áss benti á
er að litlu máli geti skipt að hvaða
efnislegri niðurstöðu menn komast
að við meðferð umgengnismála þeg-
ar meðferð málsins hefur jafnvel
tekið mörg ár án neinnar umgengni
á þeim tíma. Aðspurður segist Bragi
sammála þeirri niðurstöðu Helga
Áss að hinn langi málsmeðferðartími
geti haft óbætanleg áhrif á samband
barns og foreldris sem það býr ekki
hjá. „Þetta er alveg hárrétt nið-
urstaða sem hann kemst þarna að.
Vangeta kerfisins til þess að leysa úr
þessum málum veldur því oft á tíð-
um að þegar loksins er kveðinn upp
úrskurður þá er einfaldlega orðið
vonlaust að framfylgja honum og
þetta á við í mörgum tilfellum.“
Aðspurður segist Bragi sammála
því að bagalegt sé að umgengnismál
falli undir tvo aðila, þ.e. ríki og sveit-
arfélög. „Augljóslega eru hnökrar í
þessari framkvæmd og brýnt að
bæta þar úr.“ Spurður hvernig megi
bæta þar úr segir Bragi margar leið-
ir koma til greina.
„Mér finnst sú
leið sem Helgi
Áss nefnir [um
aukna samvinnu
fagaðila, þ.e. lög-
fræðinga, sál-
fræðinga og fé-
lagsráðgjafa,
innan sýslu-
mannsembætt-
isins í stað þess að
senda mál til umsagnar hjá barna-
verndarnefndum] mjög vel koma til
álita. Einnig mætti hugsa sér jafnvel
enn þá róttækari útfærslu sem
tengdist ekki einvörðungu um-
gengnismálum heldur jafnframt for-
sjárágreiningi og úrlausn þeirra fyr-
ir dómstólum. Mér finnst það þess
virði að skoða hvort unnt er að end-
urskoða þau mál í einu lagi, því oft á
tíðum eru forsjárdeilur og umgengn-
ismál tvær hliðar á sama pening. Ég
tel því nauðsynlegt að líta á hvoru
tveggja þegar menn endurskoða fyr-
irkomulagið á þessu,“ segir Bragi og
bætir við að ljóst megi vera að nú-
verandi ástand mála sé allsendis
ófullnægjandi og hafi verið lengi.
„Núverandi ástand mála
allsendis ófullnægjandi“
Bragi
Guðbrandsson
silja@mbl.is
„SÁ MÁLSMEÐFERÐARTÍMI
sem þarna kom fram er of langur,
á það ber að fallast,“ segir Rúnar
Guðjónsson, sýslumaður í Reykja-
vík, þegar leitað var viðbragða
hans við gagnrýninni á langa máls-
meðferð í umgengnismálum sem
fram kemur í kanditatsritgerð
Helga Áss Grétarssonar í lögfræði.
Þar kom fram að á árunum 2002–
2003 tók það að meðaltali níu mán-
uði hjá sýslumanni að úrskurða í
umgengnismálum.
Aðspurður segir Rúnar ástæður
þess að mál taka of langan tíma
hjá sýslumanni geta verið marg-
víslegar. „Við meðferð umgengn-
ismáls þarf að hafa í heiðri máls-
meðferðarreglur, s.s. andmæla-
reglur og rannsóknarreglu. Það að
þær málsmeðferðarreglur eru virt-
ar til hins ýtrasta, getur komið
niður á málshraðanum,“ segir
Rúnar, en bendir þó á að að
óbreyttum lögum sé hægt að end-
urskoða verkferla og verklag við
vinnslu málanna. „Með það að
markmiði að gera hana skilvirkari,
en eðlilegur málshraði er mikil-
vægt atriði þegar lagt er mat á
gæði málsmeðferðarinnar. Ég tel
rétt að leggja áherslu á sáttastarf
með foreldrum, þrátt fyrir að oft
geti töluverður tími farið í það.
Það var mikilvægt skref til úrbóta
að setja í barnalögin úrræðið um
sáttameðferð hjá sérfræðingi.
Áherslan á að ljúka máli með
samkomulagi er í samræmi við það
viðhorf að ábyrgðin á því að vel
fari liggi hjá foreldrunum,“ segir
Rúnar og telur að unnt sé að gera
breytingar á barnalögunum sem
miði að skilvirkari og árangursrík-
ari meðferð málanna.
„Það verður þó að horfast í augu
við að í ákveðnum tilvikum eru mál
það erfið að sáttameðferð, rann-
sókn og uppkvaðning úrskurðar
tekur að samanlögðu langan tíma
sem erfitt er að stytta svo nokkru
nemi,“ segir Rúnar og tekur fram
að full ástæða sé að taka til athug-
unar þær tillögur til úrbóta sem
fram koma í ritgerð Helga Áss.
Segist hann í því sambandi vera
sammála athugasemd Helga Áss
um að kærufrestur sé of langur.
„Ég tel að foreldri ætti ekki að
þurfa tvo mánuði til að gera upp
við sig hvort úrskurði sé unað.“
Meðal þess sem Helgi Áss legg-
ur til í ritgerð sinni sem leið til úr-
bóta væri að sýslumaður fái al-
menna lagaheimild til að kveða á
um umgengnisrétt til bráðabirgða,
sem ekki væri kæranlegur til
dómsmálaráðuneytisins.
Umsögn barnaverndar-
nefndar tekur of langan tíma
Aðspurður segir sýslumaður
þennan möguleika vel geta nýst til
að koma af stað umgengni þegar
inn koma mál þar sem engin um-
gengni er og ekki tekst að koma
henni af stað í gegnum sáttameð-
ferð. „En eftir sem áður yrði að
leggja áherslu á sáttameðferð við
upphaf máls. Full ástæða til að
skoða þessa leið, en þarna þyrfti
að breyta lögunum.“
Helgi Áss leggur í ritgerð sinni
mikla áherslu á mikilvægi þess að
umgengnismál fari ekki út úr
starfsstöð sýslumanns. Hann vill
að hætt verði að senda mál til
barnaverndarnefndar og í staðinn
verði ráðnir sálfræðingar og fé-
lagsráðgjafar til sýslumannsemb-
ættisins sem álitsgjafar. Þegar
þetta er borið undir sýslumann
segir hann ljóst að það úrræði til
rannsóknar máls að leita umsagnar
barnaverndarnefndar hafi tekið of
langan tíma. „Mikilvægt er að um-
sagnaraðili, hvort sem það er
barnaverndarnefnd eða fagaðili
sem sýslumaður hefur ráðið í þjón-
ustu sína, skili umsögn sinni svo
fljótt sem auðið er.“ Spurður um
tillögu Helga Áss að aukinni sam-
vinnu fagstétta segir Rúnar það án
efa árangursríka leið til umbóta í
meðferð umgengnismála. „Sýslu-
menn þyrftu að fá aukið fjármagn í
málaflokkinn til að geta keypt
þjónustu, eða ráðið til sín sálfræð-
inga og félagsráðgjafa eða aðra
fagmenn.“
Sýslumaðurinn í Reykjavík segir að meira fjármagn þurfi til að vinna í umgengnismálum
„Endurskoða má
verkferla og verklag
við vinnslu mála“
Eftir Silju Björk Huldudóttur
silja@mbl.is
„ÉG ER sammála Helga Áss um að
þessi tími sé of langur,“ segir Björn
Bjarnason, dómsmálaráðherra, þeg-
ar gagnrýni Helga Áss Grét-
arssonar, á langan málsmeðferð-
artíma ráðuneytisins í
umgengnismálum, er borin undir
hann. Aðspurður um skýringar á
löngum málsmeðferðartíma vísar
Björn til kandídatsritgerðar Helga
Áss í lögfræði sem til umfjöllunar
var í Morgunblaðinu í gær. „Skipu-
lagt átak hefur verið gert innan
ráðuneytisins undanfarin misseri til
að stytta hann og hefur það tekist.
Hraði má hins vegar ekki verða til
þess að draga úr vandaðri máls-
meðferð, embættismenn stjórna
ekki einir hraðanum vegna þess að
aðilar máls fá tíma til að segja álit
sitt og hafa uppi andmæli,“ segir
Björn og tekur undir það að ein leið
til að stytta tímann væri að stytta
fresti fyrir aðila máls. „En innan
ráðuneytisins hníga hugmyndir um
breytingar ekki í þá átt,“ bætir
Björn við.
Í ritgerð sinni gagnrýnir Helgi
Áss að farið sé með umgengnismál
eins og önnur stjórnsýslumál. Þeg-
ar þetta er borið undir Björn og
hann inntur eftir því hvort hann
muni beita sér fyrir breytingum
þar á bendir Björn á að hann hafi
efnt til fundar í ráðuneytinu með
Helga Áss og þeim embætt-
ismönnum, sem helst koma að þess-
um málaflokki þar sem ræddar
voru hugmyndir Helga Áss um
breytingar. „Ég hef ekki tekið af-
stöðu til þeirra allra en tel til dæm-
is koma til álita að breyta lögum á
þann veg, að kæra til æðra stjórn-
valds fresti ekki heimild sýslu-
manns til að þrýsta á framkvæmd
úrskurðar um umgengni með dag-
sektum.“
Eitt af því sem Helgi Áss leggur
til í ritgerð sinni er að úrskurðir
ráðuneytisins í umgengnismálum
verði birtir opinberlega þar sem
það sé, að hans mati, áhrifaríkasta
leiðin til að auka þekkingu og skiln-
ing fagaðila á eðli þessa málaflokks.
Aðspurður segir Björn það vera til
skoðunar hjá ráðuneytinu hvort
ekki sé hægt að
birta úrskurði
ráðuneytisins
með sama hætti
og Hæstiréttur
birtir dóma sína í
forsjármál á Net-
inu, en þar er
hafður sá háttur
á að hylja nöfn
aðila. „En þó
held ég að miðlun
upplýsinga á annan hátt en með því
að birta einstaka úrskurði gæti ekki
síður verið áhrifarík. Útgáfa á leið-
beiningum í hvaða formi sem er
mun skila árangri á þessu sviði eins
og öðrum.“
Í ritgerð sinni segir Helgi Áss að
draga megi verulega í efa að ís-
lensk stjórnvöld hafi virt mannrétt-
indi umgengnisforeldra. Þegar
þetta er borið undir Björn segist
hann þeirrar skoðunar að íslensk
stjórnvöld virði mannréttindi á
þessu sviði eins og öðrum.
Dómsmálaráðherra um gagnrýni Helga Áss Grétarssonar
„Hraði má ekki vera á kostnað
vandaðrar málsmeðferðar“
Björn
Bjarnason
silja@mbl.is
FRYSTITOGARINN Akureyrin
EA festi troll í skrúfuna á veiðum á
Vestfjarðamiðum sl. fimmtudags-
kvöld. Að sögn Guðmundar Freys
Guðmundssonar skipstjóra reyndist
ekki unnt að losa trollið á miðum úti
sökum þess hve veður var vont og
var frystitogarinn Baldvin Þor-
steinsson EA því fenginn til að draga
Akureyna áleiðis til hafnar í gær-
morgun, en Baldvin dró skipið inn að
mynni Skutulsfjarðar.
Þar tók fjölveiðiskipið Vilhelm
Þorsteinsson, EA, Akureyrina svo á
síðuna og dró til hafnar á Ísafirði.
Ekki tókst betur til en svo að Vil-
helm fékk líka í skrúfuna á leiðinni til
hafnar, þó ekki í aðalskrúfu heldur
hliðarskrúfu, sem reyndist að sögn
Guðmundar lítið mál að losa.
Þessi skipakoma vakti að vonum
nokkra athygli á Ísafirði, enda hét
Baldvin Þorsteinsson áður Guðbjörg
ÍS, öðru nafni Guggan, og var gerð
út frá Ísafirði. Nú er skipið í eigu
Samherja á Akureyri eins og hin
skipin tvö sem komu til Ísafjarðar í
gær.
Tókst vel að skera úr skrúfunni
Þegar blaðamaður náði tali af
Guðmundi í gærkvöldi var hljóðið í
honum gott. Sagði hann aðeins hafa
tekið kafara um hálftíma að skera
trollið úr skrúfunni á Akureyrinni.
„Þannig að það reyndist miklu
minna mál en menn höfðu óttast,“
sagði Guðmundur, sem var að gera
skipið klárt til að halda aftur út á
miðin ásamt bæði Baldvini og Vil-
helm. Öll eru skipin í eigu Samherja
á Akureyri.
Morgunblaðið/Halldór Sveinbjörns
Akureyrin og Vilhelm
fengu trollið í skrúfuna