Morgunblaðið - 01.10.2005, Qupperneq 25
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 1. OKTÓBER 2005 25
MINNSTAÐUR
AKUREYRI
BEIÐNI um að Slippstöðin á Ak-
ureyri verði tekin til gjaldþrota-
skipta var lögð fram hjá Héraðsdómi
Norðurlands eystra í gær, af lög-
manni fyrirtækisins. Freyr Ófeigs-
son dómstjóri sagði að afstaða til
beiðninnar yrði tekin fyrir á mánu-
dagsmorgun. Fyrirtækið hafði áður
fengið greiðslustöðvun til 4. október
nk. Hákon Hákonarson, formaður
Félags málmiðnaðarmanna, sagði
það bæði grafalvarlegt og sorglegt
komi til þess að fyrirtækið verði tek-
ið til gjaldþrotaskipta. Hákon sagði
að Akureyri ætti nokkur sérein-
kenni og að Slippstöðin væri eitt af
þeim. „Nú þurfa menn að setjast yfir
hlutina og það er mín einlæg ósk að
heimamenn bretti upp ermar og taki
til sinna ráða og tryggi það að Slipp-
stöðin megi starfa hér áfram um
ókomin ár. Það er það eina sem ég sé
í stöðunni og ég undirstrika að það
þurfi að vera undir forystu heima-
manna og er bjartsýnn á það gerist,“
sagði Hákon.
Björn Snæbjörnsson, formaður
Einingar-Iðju, sagði þetta verulega
slæm tíðindi. „Þarna er um að ræða
100 manna vinnustað og ég vona svo
sannarlega að það takist að endur-
reisa fyrirtækið sem allra fyrst, þótt
vissulega skapist nú óvissuástand
hjá starfsmönnum.“
Starfsmenn Slippstöðvarinnar,
sem áttu að fá laun sín greidd á
fimmtudag og í gær en fengu ekki,
gripu til aðgerða í gærmorgun. Þeir
lokuðu athafnasvæði félagsins og
kyrrsettu flutningabifreið á vegum
Landsvirkjunar í skemmu fyrirtæk-
isins. Flutningabíllinn kom til Ak-
ureyrar í gærmorgun til að sækja
rafsuðuvír og ýmsan búnað, sem
flytja átti á Kárahnjúka. Starfs-
mennirnir rafsuðu hurð á skemm-
unni fasta sem flutningabílnum hafði
verið ekið inn í og lögðu krana fyrir
hurðina. Aðgerðir starfsmanna hóf-
ust áður en gjaldþrotabeiðnin var
lögð fram en þeir töldu sig vera að
verja sinn rétt með því að koma í veg
fyrir að verðmæti væru flutt úr fyr-
irtækinu á meðan þeir ekki fengju
laun sín greidd.
Þorsteinn Haraldsson, trúnaðar-
maður í Slippstöðinni, sagði eftir að
hann heyrði af gjaldþrotabeiðninni,
að starfsmenn myndu halda aðgerð-
um sínum áfram og halda úti vakt á
vinnusvæðinu um helgina. „Það kom
hingað lögfræðingur frá Lands-
banka Íslands og bað okkur að
hætta aðgerðum en við urðum ekki
við því. Bankinn vill ekki tryggja
okkur laun og bendir á Ábyrgðasjóð
launa.“
Þorsteinn sagði að aðgerðir
starfsmanna hefðu farið fram með
friði og spekt. „Ég held að það hafi
flestir skilning á því að menn vilji fá
launin sín greidd og fæstir hafa ein-
hverjar vikur eða mánuði til að bíða
eftir þeim.“ Þorsteinn sagði það
mikið áfall að fram væri komin
beiðni um gjaldþrotaskipti og að
loka ætti 100 manna vinnustað í
bænum. Hann er þó bjartsýnn á
endurreisn fyrirtækisins. Ekki náð-
ist í Hilmi Hilmisson, stjórnarfor-
mann Slippstöðvarinnar, í gær.
Beiðni um gjaldþrota-
skipti lögð fram í gær
Lokað Starfsmenn Slippstöðvarinnar lokuðu flutningabíl á vegum Lands-
virkjunar inni í skemmu fyrirtækisins með því að rafsjóða hurðina.
Starfsmenn Slippstöðvarinnar gripu til aðgerða
Morgunblaðið/Kristján
Trúnaðarmenn Þorsteinn Haraldsson og Gísli Bergsson, trúnaðarmenn í
Slippstöðinni, voru allt annað en ánægðir með þróun mála hjá fyrirtækinu.
Biðstaða Fulltrúar Landsvirkj-
unar og þýska fyrirtækisins DSD
Stahlbau GmbH bíða átekta fyrir
utan skemmu Slippstöðvarinnar.
KOSNINGASKRIFSTOFAN
OPNAR Í GLÆSIBÆ KL. 14 Í DAG
4. SÆTIÐ
www.jorunn.is
FRÍMANNSDÓTTIR
JÓRUNN
Jórunn Frímannsdóttir opnar kosningaskrifstofu í dag,
laugardaginn 1. október kl. 14:00 í Glæsibæ.
Vegna prófkjörs Sjálfstæðisflokksins í
Reykjavík sem haldið verður 4.-5. nóvember.
Í tilefni dagsins höldum við veglega fjölskylduhátíð.
Söngur og flautuleikur, hoppukastali, andlitsmálning og grillaðar
pylsur fyrir yngri kynslóðina. Veitingar á staðnum. Allir velkomnir.
Sími á kosningaskrifstofu 517 0617
Stuðningsmenn
PÓSTSENDUM
www.simnet.is/heilsuhorn
Glerártorgi, Akureyri, sími 462 1889,
fæst m.a. í
Lífsins Lind í Hagkaupum,
Maður Lifandi Borgartúni 24,
Árnesapóteki Selfossi,
Yggdrasil Skólavörðustíg 16, Fjarðarkaupum,
Lyfjaval Hæðasmára og Þönglabakka,
Lífslind Mosfellsbæ, Stúdíó Dan Ísafirði
Multidophilus-12
12 tegundur lifandi
mjólkursýrugerla.
Geymdir í kæli
og þess vegna virkari.
Yfir 20 milljarðar
í hverjum skammti.
Berið saman lesningu
á umbúðum.