Morgunblaðið - 01.10.2005, Síða 28
28 LAUGARDAGUR 1. OKTÓBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ
MINNSTAÐUR
LANDIÐ
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ
Eiðar | Hugsanlegt er að samningi
um sölu Eiðastaðar til Sigurjóns Sig-
hvatssonar og Sigurðar Gísla Pálma-
sonar frá árinu 2001 verði rift. Á
fundi bæjarráðs Fljótsdalshéraðs nú
fyrir helgi var fjallað um málefni
Eiðastóls ehf., og samning við sveit-
arfélagið um uppbyggingu á Eiðum.
Í samningi við kaupendur Eiða
sem staðfestur var 31. júlí 2001, er
ákvæði um að þeir skuli verja að lág-
marki 50 milljónum króna til starf-
semi á staðnum á tímabilinu, ella geti
sveitarfélagið rift kaupunum. Sigur-
jón Sighvatsson og Sigurður Gísli
Pálmason skiluðu fyrir skömmu inn
skýrslu um starfsemina til bæjar-
stjórnar og var sérstakur starfshóp-
ur settur á laggirnar í kjölfarið til að
yfirfara þau gögn.
Á fundi bæjarráðs var niðurstaða
starfshópsins tekin til umfjöllunar,
en hún er sú að framlögð gögn Eiða-
stóls varðandi uppbyggingu á Eiðum
sýni ekki fram á að áfallinn fram-
kvæmdakostnaður nái 50 milljóna
króna markinu, eins og samningur-
inn kveður á um. Þar af leiðandi hafi
ekki verið staðið við samninginn,
sem þýði að kaupréttarákvæði verði
ekki virk. Er þar m.a. átt við ákvæði
um að jörðin Gröf skuli vera föl eig-
endum Eiða fyrir 10 milljónir króna
ef samningurinn haldi. Starfshópur-
inn kveður jafnframt upp úr með að
riftunarákvæði í samningnum hafi
öðlast virkni.
„Við erum búin að vera í sambandi
við Sigurjón vegna fundar og reikn-
um með honum í kringum 17. októ-
ber n.k“ segir Eiríkur Bj. Björgvins-
son, bæjarstjóri Fljótsdalshéraðs.
„Sigurjón lagði fram sín gögn og við
fórum með þau í starfshóp hjá okkur,
fengum lögfræðing og endurskoð-
anda til að fara yfir gögnin og þeir
skiluðu inn greinargerð sem við
byggjum okkar faglega mat á. Næst
þarf að ræða stöðu samningsins og
framhaldið og þar fá kaupendurnir
tækifæri til að rökstyðja sitt mál.“
Um þau viðbrögð Sigurjóns Sig-
hvatssonar að Eiðar hafi unnið skv.
markmiðum samningsins, í honum
séu ýmis túlkunaratriði og margt af
því sem framkvæmt hafi verið á Eið-
um frá því kaupin voru gerð huglægs
eðlis og erfitt að meta til fjár, segir
Eiríkur að það geti vel verið og hann
vilji ekki dæma um það að svo
stöddu. „Nú ræða menn niðurstöð-
una og ekki síst framhaldið.“ Hvað
gerðist ef sölunni á Eiðum yrði rift
vildi Eiríkur ekki tjá sig um. „Sú um-
ræða er ekki tímabær.“
Talið að kaupendur Eiða hafi ekki uppfyllt samning
Blikur á lofti á Eiðum
Morgunblaðið/Steinunn Ásmundsdóttir
Eftir Steinunni Ásmundsdóttur
austurland@mbl.is SIGURJÓN Sighvats-
son, annar eigenda
Eiðastaðar, segist líta
svo á að hann hafi unn-
ið í anda samningsins
sem gerður var við
sveitarfélagið og staðið
við hann. Með fram-
lögum sem lögð voru
fram í upphafi og á
þessum fjórum árum
sé búið að leggja góð-
an grunn að framtíð-
arstarfsemi á Eiðum
sem verði öllum til
sóma.
„Við höfum fengið
heilmikinn stuðning
þess efnis, ekki síst frá Eiðavinum
sem standa hvað næst Eiðum og
menningarsögu staðarins.
Í stefnumótun um framtíð Eiða
hefur farið gífurlegur tími ekki
bara okkar eigenda, heldur einnig
ýmis fagfólks sem hefur látið mikið
af mörkum eingöngu vegna áhuga á
Eiðum og þeim möguleikum sem
þar geta falist.
Einnig hafa farið miklir peningar
ekki bara í uppbyggingu heldur
einnig rekstur og viðhald á staðnum
þangað til „lokaímynd“ staðarins
hefur verið mótuð.“
Sigurjón segir að það yrði því
verulegur skaði fyrir uppbyggingu
Eiða ef samningnum yrði rift. „Við
höfum átt gott samstarf við bæj-
arráð og teljum í heild að þrátt fyr-
ir tiltölulega fáar en háværar and-
stöðuraddir einstakra
héraðsbúa, sem eru
meira mótaðar af per-
sónulegum hagsmun-
um en ákveðinni sýn á
framtíð Eiða, hafi
myndast góður skiln-
ingur á okkar framtíð-
arhorfum eftir því sem
þær hafa mótast á
þessum tíma þótt hin
raunverulega upp-
bygging sé í raun og
veru rétt að hefjast.“
Sigurjón segir alltaf
áhyggjuefni þegar
menn séu sakaðir um
að standa ekki við
gerða samninga. Eigendur Eiða
hafi yfirleitt reynt að standa við þá
samninga sem þeir hafi gert á
hvaða vettvangi sem er. Tjón og
skaði af slíkum fullyrðingum og
riftun yrði þess vegna meira en
bara peningalegt.
„Og ég ítreka að samstarf okkar
við alla þá aðila sem komið hafa að
málinu hefur verið gott og fulltrúar
bæjarins sem tilnefndir hafa verið
til samskipta við okkur hafa sýnt
sanngirni og skilning á því flókna
verkefni sem endur- og uppbygging
Eiða er.“
Sigurjón sagði ekki rétt sem
haldið hefði verið fram að núver-
andi eigendur Eiða hefðu verið að
ásælast jarðir. Hann benti á að eig-
endurnir hefðu boðist til að gefa
eftir forkaupsrétt að jörðinni Gröf.
Höfum staðið
við samninginn
Sigurjón Sighvatsson
SENDIHERRA Noregs á Íslandi,
Guttorm A. Vik, opnaði í gær í
Ráðhúsi Reykjavíkur sýninguna
„Af norskum rótum. Gömul timb-
urhús í Noregi og á Íslandi“.
Sýningin byggist á norskri sýn-
ingu um verksmiðjuframleiðslu á
húsum og byggingarhlutum hjá
Strømmen Trævarefabrik í
Strømmen nálægt Lillestrøm.
Vegna þeirra áhrifa sem norsku
sveitserstílshúsin höfðu á Íslandi
þótti tilvalið að setja sýninguna
upp hérlendis með viðbót um
katalóghús og sveitserstílshús á
Íslandi.
Á vef Reykjavíkurborgar segir
að að öllum líkindum hafi hús ver-
ið flutt tilsniðin frá Noregi þegar
á fyrstu árum búsetu norrænna
manna á Íslandi og sennilega hafi
slíkur innflutningur átt sér stað á
öllum öldum síðan. Elstu hús sem
varðveist hafi á Íslandi og með
vissu eiga uppruna sinni í Noregi
séu frá seinni hluta 18. aldar.
Sýningin er hluti af aldarafmæli
friðsamlegra sambandsslita Nor-
egs og Svíþjóðar 1905. Hún stend-
ur til 17. október og á sunnudög-
um verður efnt til gönguferða
með leiðsögn, hin fyrsta nk.
sunnudag.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Sýningin „Af norskum rótum. Gömul timburhús í Noregi og á Íslandi“ er í Ráðhúsi Reykjavíkur.
Íslensk timburhús af norskum rótum
NÁM Í DANMÖRKU
Í boði er:
Á ensku og dönsku
•Byggingafræði
•Byggingaiðnfræði
•Markaðshagfræði
Á dönsku
• Veltækni
• Veltæknifræði
• Landmælingar
• Tölvutæknifræði
• Aðgangsnámskeið
• Byggingatæknifræði
• Framleiðslutæknifræði
• Útfl utningstæknifræði
Hjá VITUS BERING í Horsens
bjóðum við upp á margvíslega
menntun.
Fulltrúi skólans – Johan Eli Ellendersen, verður
í Reykjavík á Radisson SAS, Hótel Sögu.
Á tímabilinu - 1. til 15. Október 2005.
Þeir sem hafa áhuga geta haft samband við
Johan Eli Ellendersen með því að hringja til
Hótel Sögu í síma 525 9900 eða leggja inn
skilaboð, og við munum hringja tilbaka, eða
hringið beint í Eli í síma + 45 60100151.
VITUS BERING DENMARK
CHR. M. ØSTERGAARDS VEJ 4
DK-8700 HORSENS
TEL. +45 7625 5000
FAX: +45 7625 5100
EMAIL: CVU@VITUSBERING.DK.www.vitusbering.dk
Hafnarfjörður | Stjórnarfundur 60+ í
Hafnarfirði sem fram fór á dögunum
samþykkti tillögu þar sem minnt var
á bága stöðu aldraðra og nauðsyn
þess að hluta af andvirði sölu Lands-
símans yrði varið til þess að bæta lífs-
skilyrði aldraðra.
Ályktun stjórnarfundarins var svo-
hljóðandi: „Með tilliti til hugmynda er
fram hafa komið um ráðstöfun þeirra
rúmlega 60 milljarða er fást fyrir sölu
Símans krefst stjórn 60+ Hafnarfirði
að tillit verði tekið til óska eldri borg-
ara um að allgóðum hluta þessa fjár
verði varið til hagsbóta fyrir eldri
borgara þessa lands.
Við minnum á að sárlega skortir
t.d. hjúkrunarheimili fyrir þennan
aldurshóp.
Nauðsynlegt er að tryggja að fram-
færslueyrir verði hækkaður fyrir
eldri borgara.
Minnum á að fram hefur komið að
yfir 10 þúsund eldri borgarar hafa
innan við 110 þúsund til framfærslu
sinnar á mánuði, sem síðan eru
greiddir skattar af.
Virðisaukaskatt á lyfjum þarf
nauðsynlega að lækka úr rúmlega 24
prósentum í 14 prósent.
Þetta eru einungis nokkur atriði
sem nauðsynlegt og sanngjarnt telst
að lagfæra sem allra fyrst.“
Eldri borgarar í Hafnarfirði vilja
sinn skerf af Landssímasölunni