Morgunblaðið - 01.10.2005, Page 38

Morgunblaðið - 01.10.2005, Page 38
38 LAUGARDAGUR 1. OKTÓBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ Hallgrímur B. Geirsson. Styrmir Gunnarsson. Framkvæmdastjóri: Ritstjóri: STOFNAÐ 1913 Útgefandi: Árvakur hf., Reykjavík. Aðstoðarritstjórar: Karl Blöndal, Ólafur Þ. Stephensen. Fréttaritstjóri: Björn Vignir Sigurpálsson. MAT á kostnaði við kjarasamningaleiðir í ljós að hann er 15,8% hvaðvarðar starfsfólk í Starfsgreina-sambandi Íslands, en 31,2% hvað félagsmenn í Kennarasambandi Íslands varð- ar. Samningstíminn er 46 mánuðir hjá fé- lagsmönnum SGS, en 43 hjá KÍ. Þetta kom fram í máli Sigríðar Ingibjargar Ingadóttur, hagfræðings hjá Alþýðusambandi Íslands, en hún hafði framsögu um efnahags- og kjara- mál á þingi Alþýðusambands Norðurlands sem nú stendur yfir á Illugastöðum í Fnjóskadal. Hún sagði efnahagsstefnu nú ganga þvert á markmið síðustu kjarasamninga, en mark- mið þeirra var að stuðla að efnahagslegum stöðugleika og jafnvægi á vinnumarkaði, sem hvort tveggja væri grundvöllur uppbygging- ar og fjölgunar starfa. Verðbólga átti sam- kvæmt forsenduákvæðum að vera sem næst verðbólgumarkmiðum Seðlabankans og launaþróun annarra að vera sambærileg og í samningum SGG og Samtaka atvinnulífsins. Sigríður sagði að menn yrðu nú að setjast niður „og reyna að koma samningum aftur inn á rétt spor“. Hún kvaðst finna fyrir mikilli ólgu meðal fólks vegna ástands mála og það væri engan veginn viðunandi að „félagsmenn innan Al- þýðusambandsins væru einir að sýna ábyrgð, sem og kannski Seðlabankinn. Við viljum gera allt til að fá fleiri til að koma að málum með okkur,“ sagði Sigríður. Hún nefndi að nú væri mikilvægt að hreyf- ingin skapaði sér vígstöðu, m.a. með því að gefa sér tíma til að fara yfir mál, tala einum rómi og að setja sér raunhæf markmið. Möguleg markmið í stöðunni væru t.d. að krefjast launabóta, sérstaklega hvað lægstu laun varðar, bæta réttindi, gera úrbætur á líf- eyriske markað Sigrí væri u stóriðju hagker hækka ruðning þetta m ríkissjó og raun fjármá „Í al innan A Sigríðu rýrnun mannv þar til fólks í kaupm Sigríður Ingibjörg Ingadóttir, hagfræðingur hjá A Efnahagsstefna gengur þvert á markmið kjarasamninga Sigríðu mið kja Á þingi Alþýðusambands Norðurlands í gær var staðan í kjara- málum rædd. Hagfræðingur ASÍ segir að kaupmáttur stórra hópa innan sambandsins hafi rýrnað á síðustu misserum. Margrét Þóra Þórsdóttir fylgdist með umræðum á þinginu. SEÐLABANKINN OG PENINGASTEFNAN Seðlabankinn hækkaði í fyrradagstýrivexti um 0,75 prósentustigog var lýst yfir því að verð- bólgumarkmiðið myndi ekki nást fyrr en árið 2008 yrðu stýrivextir ekki hækkaðir frekar. Það er erfitt að sjá hvað Seðlabankinn getur annað gert við núverandi aðstæður í efnahags- málum en að hækka stýrivexti en það er jafnframt erfitt að sjá til hvers það leiðir og með hvaða hætti það leysir þann vanda, sem við stöndum frammi fyrir. Athyglisvert var að lesa viðbrögðin við þessum aðgerðum bankans. Hjá greiningardeildum bankanna var við- kvæðið það að Seðlabankinn ætti við trúverðugleikavandamál að stríða. „Þegar fjórir mánuðir líða án þess að Seðlabankinn grípi til aðgerða til að sporna við vaxandi verðbólgu hefur það óhjákvæmilega þau áhrif að fólk fer að efast um vilja eða getu bankans til að takast á við vandann,“ sagði Edda Rós Karlsdóttir, forstöðumaður greiningardeildar Landsbankans. „Við trúum því ekki að þeim muni tak- ast að ná verðbólgumarkmiðinu og það er þeirra að sanna það að þeir geti það. Ég sé það ekki fyrir mér,“ sagði Ingólfur Bender, forstöðumaður Greiningar Íslandsbanka. Birgir Ísleifur Gunnarsson, for- maður bankastjórnar Seðlabankans, sagði aftur á móti að nú væri ætlunin að senda út sterk skilaboð þess efnis að bankinn hygðist halda verðbólgu- markmiðinu til streitu og kvaðst vona að trúverðugleiki bankans væri orð- inn það mikill að vaxtahækkanir hans myndu hafa áhrif til lækkunar verð- bólgu. Það er augljóst að staða íslensks efnahagslífs er viðkvæm um þessar mundir. Birgir Ísleifur dró upp ómyrka mynd af ástandinu þegar hann greindi frá hækkun stýrivaxt- anna og líkti því við stöðuna undir lok tuttugustu aldar: „Ójafnvægið er jafnvel meira nú: viðskiptahalli meiri, raungengi hærra, íbúðaverð lengra yfir langtímajafnvægi og skuldsetn- ing heimila, fyrirtækja og þjóðarbú- skaparins í heild töluvert meiri. Ým- islegt er frábrugðið. Mikill vöxtur einkaneyslu sl. tvö ár hefur fremur verið knúinn áfram af skuldasöfnun heimilanna en vexti ráðstöfunar- tekna, sem jukust töluvert hraðar ár- in 1998 til 2000 en nú. Áhrif aukins launakostnaðar á verðbólguna eru ekki jafnmikil, en þáttur hækkunar húsnæðisverðs er áhrifameiri.“ Niðurstaða Birgis Ísleifs var sú að vandamálin, sem nú blöstu við væru jafnvel meiri en um aldamótin. Það þarf enginn að efast um mik- ilvægi þess að halda í stöðugleikann í efnahagslífinu og allra hagur að vinna gegn því að verðbólga fari úr bönd- unum. Það er auðvelt að gagnrýna Seðlabankann, en hann hefur aðeins takmörkuð úrræði, sem ekki duga ein og sér til að hemja þensluna í efna- hagslífinu. Það er til dæmis stór spurning hvernig stendur á því að aukning einkaneyslu skuli nú knúin af skuldasöfnun, en ekki því að fólk hafi meira á milli handanna. Hvað skyldu bankarnir segja um það? Hver er þeirra trúverðugleiki? Og ekki má gleyma áhrifum stórframkvæmda á borð við Kárahnjúkavirkjun. Halldór Ásgrímsson forsætisráð- herra segir í Morgunblaðinu í dag að hann efist um að frekari hækkanir stýrivaxta af hálfu Seðlabankans leiði til árangurs. Hann kveðst ekki í nokkrum vafa um að útlán til einka- neyslu hafi verið allt of mikil. Vand- inn sé hins vegar sá að bæði fyrirtæki og einstaklingar hafi aðgang að er- lendu fjármagni á lægri vöxtum, en tíðkist hér heima og því hafi hækkun stýrivaxta ekki þau áhrif, sem til sé ætlast. Ljóst er að fleiri en Seðlabankinn þurfa að hugsa til heildarinnar eigi að takast að halda jafnvægi í efnahags- lífinu. Takmörk Seðlabankans lýsa sér í þeim tvíbentu áhrifum, sem þeirra eina tæki til að hafa áhrif á efnahagslífið hefur. Tilgangurinn er að slá á þenslu, en hækkun stýrivaxta leiðir einnig til hækkunar á gengi krónunnar og hún getur verið sárs- aukafull fyrir marga í hinu almenna atvinnulífi þjóðarinnar. Sjávarútvegurinn hefur gengið ótrúlega vel hingað til þrátt fyrir gengishækkun krónunnar og þá fyrst og fremst vegna þess að afurðaverð hefur hækkað á erlendum mörkuðum. Ekki fer á milli mála að lítil fyr- irtæki í ferðaþjónustu eiga í vök að verjast vegna gengishækkunar. Þau verða að hækka svo mjög verð á þjón- ustu sinni að nánast fyrirsjáanlegt er að þau verðleggja sig út af markaðn- um. Viðskiptavinirnir fara einfald- lega annað. Stærstu fyrirtækin í sjávarútvegi standa vel og skila góðri afkomu en hætta er á að hið sama eigi ekki við um lítil fjölskyldufyrirtæki, sem hafa ekki jafn mikla burði til að standa hækkunina af sér. Stærstu fyrirtæki í ferðaþjónustu standa enn vel að vígi en telja má víst að litlu fyrirtækin, fjölskyldufyrir- tækin, standi höllum fæti. Gengishækkun krónunnar býður upp á spákaupmennsku með gjald- miðil okkar. Hvað gerist þegar bólan springur? Gengið fellur, spákaup- mennirnir selja, hlutabréfin falla í verði og tugmilljarða ef ekki hundr- aða milljarða lán vegna hlutabréfa- kaupa hækka í íslenzkum krónum á sama tíma og verðmæti veðanna lækkar. Seðlabankinn hefur efnisleg rök fyrir sínum ákvörðunum en þegar horft er fram í tímann spyrja sig margir þeirrar spurningar hvar veg- ferð Seðlabankans endi, ekki að ástæðulausu. Hver er skoðun ríkisstjórnarinnar? Er ekki ljóst að efnahagsstefnan er að lenda í öngstræti? Er ekki tímabært að ríkisstjórn og stjórnarflokkar reyni að brjótast út úr þeirri sjálf- heldu, sem efnahagspólitíkin er að lenda í? Með mikilli virðingu fyrir Seðla- bankanum geta stjórnarflokkarnir ekki setið hjá og látið sem ekkert sé. Það er fyrirsjáanlegt að á næsta ári byrji mannfallið hjá smærri fyrir- tækjunum. Það er alveg saman hvernigmenn stilla því máli uppfyrir sér. Það er mikið bil ámilli þess sem menn töldu sig vera að semja um og þess sem staðan er í dag,“ sagði Grétar Þor- steinsson forseti Alþýðusambands Íslands á Þingi Alþýðusambands Norðurlands, en það hófst á Ill- ugastöðum í Fnjóskadal í gær. Grét- ar sagði að það ætti ekki að koma flatt upp á neinn að reyna myndi á endurskoðunarákvæði kjarasamn- inganna. Viðfangsefni næstu vikna væri að brúa bilið, „eins og alltaf eru til fleiri en ein leið til þess, en fyrsta úrræðið er að semja við atvinnurekendur,“ sagði Grétar. Hann sagði að þess yrði freistað að endurreisa þau markmið sem lagt var upp með, en vissulega væri æði margt í mark- miðum kjarasamninga sem ekki hefði náðst fram. Nefndi Grétar m.a. að áhersla hefði verið lögð á nýjan sáttmála um þríhliða samstarf, verkalýðshreyfingar, atvinnurek- enda og stjórnvalda. Það hefði ekki gengið eftir, „og ég held því blákalt fram að það sé ekki síst þess vegna sem kjarasamningar eru í upp- námi.“ Kusu að feta ekki þessa slóð með okkur Benti Grétar á að áhersla hefði verið lögð á að jafna lífeyrisréttindi, treysta réttindi til atvinnuleys- istrygginga, fullorðinsfræðslu, end- urmenntunar og sjúkradagpeninga, auk sérstakrar áherslu á að bæta af- komu barnafjölskyldna sem og að fjallað var ítarlega um mále lendinga á íslenskum vinnu „Ég ætla ekki að fara í gr með þá skoðun mína að höf- uðástæðan fyrir því að við e þeirri stöðu sem raun ber v að stjórnvöld og atvinnurek kusu að feta ekki þessa slóð okkur, nema að takmörkuð Sáttmálinn sem við buðum kölluðum eftir hefur ekki or veruleika og samráðið hefur aukist,“ sagði Grétar. Reynum til þrautar að s Forsendur kjarasamninga v brostnar og nú reyndi á end unarákvæði þeirra. Hvatti h þingfulltrúa til að nálgast vi efnið af fullri ábyrgð, „eins gerum alltaf. Við hljótum að Forseti ASÍ segir að reyna muni á endurskoðunarákv Reynum fyrst til þr Forsendur kjarasamninga eru brostnar og höfðu fulltrúar á þingi Alþýðusambands Norðurlands áhygg næstu helgi heldur Starfsgreinasamband Íslands þing á Akureyri. Á þessum þingum verður mótuð afst

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.