Morgunblaðið - 01.10.2005, Qupperneq 49
hefst 9. október.
VÍDALÍNSKIRKJA: Fjölskylduguðsþjónusta
kl. 11. Rannveig, Hjördís, Jóhann og Birgir
taka á móti ykkur. 5 ára börnum sérstak-
lega boðið, allir velkomnir, á öllum aldri.
BESSASTAÐAKIRKJA: Guðsþjónusta kl.
14. Álftaneskórinn leiðir almennan safn-
aðarsöng undir stjórn organistans, Bjarts
Loga Guðnasonar. Sr. Birgir Ásgeirsson og
Gréta Konráðsdóttir, djákni, þjóna.
ÞORLÁKSKIRKJA: Barnastarfið hefst nk.
sunnudag kl. 11.
NJARÐVÍKURKIRKJA (Innri-Njarðvík):
Sunnudagaskólinn verður í Ytri-
Njarðvíkurkirkju og verður börnum ekið frá
Safnaðarheimil Njarðvíkurkirkju kl.10.45.
YTRI-NJARÐVÍKURKIRKJA: Fjölskyldu-
guðsþjónusta sunnudag kl.11. Kór kirkj-
unnar leiðir söng undir stjórn Natalíu Chow
Hewlett. Meðhjálpari Ástríður Helga Sigurð-
ardóttir. Sunnudagaskóli kl.11 í umsjá
Ástríðar Helgu, Natalíu Chow, Kristjönu
Gísladóttur, Arnars Inga Tryggvasonar og
sóknarprests. Fyrsta skiptið á þessum vetri
og verður nýtt efni kynnt. Bækur og plast-
pokar afhent þeim börnum og foreldrum
sem ætla að vera með í vetur. Kirkjutrúð-
urinn mætir í fyrsta skiptið.
KEFLAVÍKURKIRKJA: Sunnudagaskóli kl.
11 árd. Laufey Gísladóttir, umsjónarmaður
sunnudagaskólans, Arnhildur H. Arnbjörns-
dóttir, Sigríður Helga Karlsdóttir, Sara Val-
bergsdóttir. Guðsþjónusta kl. 14 árd. Prest-
ur sr. Ólafur Oddur Jónsson. Kór
Keflavíkurkirkju leiðir söng. Organisti Há-
kon Leifsson. Meðhjálpari Leifur Ísaksson.
Kaffiveitingar í boði sóknarnefndar eftir
messu.
BORGARNESKIRKJA: Barnaguðsþjónusta
kl 11.15. Umsjónarmenn eru Eva Rós
Björgvinsdóttir og Gunnar Ringsted. Messa
kl 14 – Altarisganga. Sóknarprestur.
MÖÐRUVALLAKIRKJA: Guðsþjónusta verð-
ur fyrir allt prestakallið sunnudaginn 2. okt.
kl. 14. Fermingarbörnin verða kynnt fyrir
söfnuðinum. Mætum öll og bjóðum þau vel-
komin í kirkjuna. Heimili - vettvangur trú-
aruppeldis. Kaffi á prestssetrinu á eftir.
Sóknarprestur.
STÆRRI-ÁRSKÓGSKIRKJA: Guðsþjónusta
kl. 14.DALVÍKURKIRKJA: Barna- og fjöl-
skylduguðþjónusta kl. 11. Lionskonur sjá
um léttan hádegisverð eftir messuna.
AKUREYRARKIRKJA: Guðsþjónusta kl.
11. Sr. Svavar A. Jónsson. Félagar úr Kór
Akureyrarkirkju syngja. Organisti: Eyþór Ingi
Jónsson. Sunnudagaskóli í safnaðarheim-
ilinu á sama tíma.
GLERÁRKIRKJA: Barnastarf og messa
sunnudag kl. 11. Sr. Arnaldur Bárðarson
þjónar. Félagar úr Kór Glerárkirkju syngja.
Organisti Hjörtur Steinbergss.
HJÁLPRÆÐISHERINN á Akureyri: Sunnu-
dagaskóli kl. 11. Samkoma kl. 17. Dagur
Heimilasambandsins.
LAUFÁSPRESTAKALL: Svalbarðskirkja:
Kyrrðarstund sunnudag 2. okt. kl. 21.
Grenilundur : Guðsþjónusta sunnudaginn
2. okt. kl. 16. Grenivíkurkirkja : Guðsþjón-
usta sunnudaginn 2. okt. kl. 14. Kyrrð-
arstund mánudaginn 3. okt. kl. 20.
PRESTSBAKKAKIRKJA á Síðu: Guðsþjón-
usta sunnudag kl. 14:00. Prestur er séra
Haraldur M. Kristjánsson. Kór kirkjunnar
syngur undir stjórn Brians R. Haroldssonar
organista. Væntanleg fermingarbörn, for-
eldrar þeirra eða forráðamenn sérstaklega
hvött til að mæta. Helgistund verður á
hjúkrunarheimilinu Klausturhólum á Kirkju-
bæjarklaustri, sama dag, kl. 15:00.
VÍKURKIRKJA í Mýrdal. Guðsþjónusta
sunnudag kl. 11. Organisti er Kristín
Waage. Kór Víkurkirkju leiðir söng. Vænt-
anleg fermingarbörn og foreldrar sér-
staklega hvött til að mæta. Sóknarprestur.
ODDAKIRKJA á Rangárvöllum: Kirkjuskóli
barnanna byrjar á laugardaginn, 1. október
kl. 11 fyrir hádegi í Safnaðarheimili Odda-
sóknar að Dynskálum 8 á Hellu, og verður
þar vikulega á sama tíma í vetur. Verið með
frá byrjun. Sóknarprestur.
ÓLAFSVALLAKIRKJA: Guðsþjónusta
sunnudag kl. 14. Fermingarbörn eru boðuð
til að taka á móti Biblíum frá kirkjunni.
SKÁLHOLTSDÓMKIRKJA: Messa sunnu-
dag kl. 11. Sóknarprestur.
HRAUNGERÐISKIRKJA: Messa nk. sunnu-
dag kl. 13.30. Kristinn Á Friðfinsson.
STRANDARKIRKJA: Veiðimannamessa nk.
sunnudag kl. 16. Allir velkomnir. Prestur sr.
Kristinn Á Friðfinnsson.
SÓLHEIMAKIRKJA: Messa nk. sunnudags-
kvöld kl. 20. Prestur sr. Kristinn Á. Frið-
finnsson.
SELFOSSKIRKJA: Messa kl. 11. Ferming-
arbörn og foreldrar þeirra sérstaklega hvött
til þess að koma. Barnastundin hefst í
Safnaðarheimili kl. 11.15. Léttur hádeg-
isverður eftir athöfnina. Morguntíð þriðju-
daga til föstudaga kl. 10. Fyrirbæn og tekið
á móti bænarefnum. Kaffisopi á eftir.
Kirkjuskóli þriðjudaginn 4. okt. í Fé-
lagsmiðstöðinni, Tryggvagötu 23, kl. 14.
Miðvikudaginn 5. okt. er pabba- og mömmu
morgunn kl. 11. Opið hús, spjall og hress-
ing. Sama dag, 5. okt., kynning á 12 spora
starfinu í Selfosskirkju í safnaðarheimilinu
kl. 20. Og aftur kynning á sama stað mið-
vikudaginn 12. okt. Sr. Gunnar Björnsson.
STOKKSEYRARKIRKJA: Guðsþj. kl. 11.
HVERAGERÐISKIRKJA: Guðsþjónusta og
barnastarf kl. 11. Foreldramorgnar eru á
þriðjudagsmorgnum kl. 10-11.30 í Safn-
aðarheimilinu. Upplýsingar um kirkjustarf á
heimasíðu Hveragerðisprestakalls: http://
notendur.mi.is/hvgpkall/
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 1. OKTÓBER 2005 49
KIRKJUSTARF
Fræðsla og messur
í Hallgrímskirkju
FRÆÐSLUMORGNAR fyrir messu
á sunnudögum hefjast 2. október kl.
10. Fyrirlesari: Dr. Vilhjálmur
Árnason heimspekingur ræðir efnið
Uppeldi og frelsi í neyslusamfélagi.
Messa og barnastarf kl. 11. Sr. Jón
Dalbú Hróbjartsson prédikar og
þjónar fyrir altari ásamt sr. Sigurði
Pálssyni. Organisti verður Björn
Steinar Sólbergsson og hópur úr
Mótettukórnum syngur. Ferming-
arbörn aðstoða við messuna og
Magnea Sverrisdóttir djákni stýrir
barnastarfinu. Kl. 18 verður sam-
verustund fyrir fermingarbörnin í
safnaðarsal kirkjunnar.
Kvöldmessa verður kl. 20 í umsjá
sr. Jóns D. Hróbjartssonar. Hulda
Björk Garðarsdóttir sópran syngur
einsöng við undirleik Björns Stein-
ars Sólbergssonar, organista.
Kvöldmessur eru með einföldu
formi, stuttri hugvekju, heilagri
kvöldmáltíð og bænastund. Bæna-
ljós verða tendruð og þátttakendum
gefst kostur á að skrifa bænir á
bænaseðla.
Dr. Vilhjálmur Árna-
son á fræðslumorgni
í Hallgrímskirkju
SUNNUDAGINN 2. október kl. 10
verður fyrsti fræðslumorgunn í
Hallgrímskirkju á þessu hausti. Þar
mun dr. Vilhjálmur Árnason flytja
erindi sitt: Uppeldi og frelsi í neyslu-
samfélagi.
Líta má á þetta erindi sem hluta
af viðleitni Hallgrímskirkju til að
taka þátt í átakinu Verndum
bernskuna, enda sækir neyslu-
samfélagið margvíslega að börnum
og unglingum og gerir uppalendum
erfitt fyrir.
Í dag, laugardag, kl. 11 til 15 er
dagskrá í Hallgrímskirkju og er yf-
irskrift hennar: Fjölskyldan í fyr-
irrúmi, barnanna vegna. Dagskráin
verður sem hér segir: Kl. 1: Er kom-
inn tími á fjölskylduna? Elínborg
Bárðardóttir læknir. Kl. 12: Léttur
málsverður. Kl. 13: Tíðarandi og til-
finningatengsl. Dr. Sigrún Júl-
íusdóttir prófessor. Kl. 14: Ræðum
saman: Uppeldisaðferðir foreldra
og velferð barna og unglinga. Dr.
Sigrún Aðalbjarnardóttir prófessor.
Hægt er að sækja einstaka fyr-
irlestra.
Allir eru velkomnir og er þátttaka
ókeypis. Börn eru velkomin og verð-
ur haft ofan af fyrir þeim meðan á
fyrirlestrunum stendur.
Barnastarf og krafta-
verk í Fríkirkjunni í
Reykjavík
BARNAGUÐSÞJÓNUSTA á sunnu-
dag kl. 14. Stundin byggist á helgi-
sögum, lífsgildaumræðum, leik-
ritum og söngvum. Biblíumyndir,
þessar gömlu góðu, eru ávallt með í
farteskinu og fær hvert barn slíka
mynd í lok stundar. Andabrauðið er
á sínum stað eftir kirkjusamveruna.
Kvöldmessa er í kirkjunni kl. 20.
Umræðuefni hennar eru krafta-
verk. Altarisganga. Ása Björk
Ólafsdóttir sér um stundirnar.
Feminískir
Biblíulestrar
Á ÞESSUM haustdögum annast
guðfræðinemarnir Ingibjörg María
Gísladóttir og Arndís Bernhar-
dsdóttir Linn mjög áhugaverða trú-
fræðslu á mannræktarkvöldum
Laugarneskirkju.
Mannræktarkvöldin hefjast kl. 20
á kvöldsöng í kirkjunni og halda svo
áfram með ýmsum tilboðum í safn-
aðarheimilinu kl. 20.30. Trú-
fræðslan fer fram í sjálfu kirkju-
skipinu og geta þátttakendur hvort
heldur komið í kvöldsönginn á und-
an eða komið beint í trúfræðsluna.
Framsetning efnisins er í fyr-
irlestraformi en á eftir gefst þátt-
takendum kostur á að spyrja spurn-
inga og ræða efnið. Fyrirlestrarnir
eru tvískiptir og byrjað er á að fara
yfir hefðbundnar kristnar kenn-
ingar sem guðfræðingar hafa sett
fram í gegnum aldirnar. Í síðari
hlutanum er sjónum beint að kenn-
ingum femínískra guðfræðinga sem
hafa verið að hasla sér völl á síðustu
áratugum. Vitnað er í íslenska og
erlenda fræðimenn.
Nú eru fimm kvöld eftir af fyr-
irlestraröðinni og hafa þeir fjórir
sem þegar eru fluttir verið mjög
áhugaverðir og umræður góðar. Er
full ástæða til að hvetja enn fleiri til
að nýta sér þetta góða tilboð og
kynnast róttækri guðfræði sem
byggð er á heiðarlegri nálgun og lif-
andi trú.
Ekki þarf að skrá sig til þátttöku,
heldur er öllum frjálst að koma og
fara að vild. Bæklingar með nánari
upplýsingum liggja frammi í safn-
aðarheimilinu.
Tólf sporin – andlegt
ferðalag í Óháða
söfnuðinum
Í VETUR verður boðið upp á tólf
spora hópastarf í kirkju Óháða safn-
aðarins. Fundir verða á fimmtudög-
um kl. 19–21. Fyrsti fundurinn verð-
ur 6. október. Starfið fer fram í
litlum hópum, svokölluðum fjöl-
skylduhópum, og starfa kynin hvort
fyrir sig. Fyrstu 4 fundirnir eru öll-
um opnir en frá og með fjórða fundi,
sem áætlaður er 27. október, verður
hópunum lokað. Í fjölskylduhóp-
unum deilir fólk reynslu sinni, styrk
og von hvert með öðru og myndar
þannig vináttu- og trúnaðartengsl.
Unnið er eftir vinnubókinni Tólf
sporin – andlegt ferðalag en hún
fæst í Kirkjuhúsinu og í stærri bóka-
verslunum. Einnig er hún seld í
kirkjunni á fyrstu fundunum. Hvert
spor er vandlega unnið á tveimur
vikum og þarf að vinna heimavinnu
sem felst í því að svara skriflega
þeim spurningum sem í bókinni eru.
Tólf spora vinnan er gagnleg öll-
um sem í einlægni vilja vinna með
sínar eigin tilfinningar að bættri líð-
an og meiri lífsfyllingu og leita
skjóls í kristna trú. Þátttaka er
ókeypis og í boði kirkjunnar að öðru
leyti en því að kaupa þarf verk-
efnabókina, eins og að framan
greinir, og leggja lítilsháttar í kaffi-
sjóð vikulega.
Nánari upplýsingar sjá heimasíðu
Vina í bata, viniribata.is
Fermingarstörfin
í Selfosskirkju hafin
FYRSTI spurningatími vetrarins
var þriðjudaginn 27. september sl.
Þá gengu börn í 8. bekk GBG til
spurninga. Sama dag kl. 14.30; 8.
bekkur SIÞ. Á miðvikudag 28. sept-
ember kom 8. bekkur BA kl. 14.15
og 8. bekkur SÞ kl. 15.15. Er stefnt
að því að tímarnir verði með þessu
sama móti fram til vors.
Fyrirhugaðar eru fermingar, sem
hér segir: Pálmasunnudag 9. apríl,
skírdag 13. apríl, annan í páskum
17. apríl, fyrsta sunnudag eftir
páska, 23. apríl, annan sunnudag
eftir páska, 30. apríl og þriðja
sunnudag eftir páska, 7. maí.
Þess er vænst, að fermingarbörn
og foreldrar þeirra sæki messur í
Selfosskirkju á sunnudögum kl. 11
eftir því sem við verður komið. Eig-
um saman hátíðlega stund og þiggj-
um léttan hádegisverð í safn-
aðarheimilinu að messu lokinni.
Fyrsta messan, með þátttöku
fermingarbarna og foreldra þeirra,
verður sunnudaginn 5. október
næstkomandi kl. 11.
Sr. Gunnar Björnsson.
Léttmessa
Árbæjarkirkju
FYRSTA léttmessa vetrarins í Ár-
bæjarkirkju verður sunnudaginn 2.
október kl. 20.
Þetta er áttundi veturinn sem
boðið er upp á kvöldmessur fyrsta
sunnudag hvers mánaðar í Árbæj-
arkirkju. Við höfum kosið að kalla
þær léttmessur þar sem haft er að
leiðarljósi að eiga kyrrláta og góða
stund í kirkjunni. Þar sem guðsorð
er haft um hönd og tónlist sem höfð-
ar til allra aldurshópa. Þessar mess-
ur hafa verið vel sóttar og er það
ánægjulegt. Fengnir eru listamenn
úr dægur og klassíska tónlistargeir-
anum.
Þessa fyrstu léttmessu vetrarins
heiðra okkur listafólkið Páll Óskar
Hjálmtýsson söngvari og Monika
Abendroth hörpuleikari. Sr. Þór
Hauksson þjónar fyrir altari. Sókn-
arnefndarfólk les ritningargreinar.
Almenn kirkjubæn flytur fólk úr
hinum ýmsu starfi kirkjunnar.
Á eftir er kaffihlaðborð sem fé-
lagar úr gospelkór kirkjunnar selja
á 500 krónur. Afrakstur sölunnar
fer í ferðasjóð kórsins. Vanræktu
ekki andlegu hliðina. Láttu sjá þig í
léttmessu á sunnudaginn.
Bænabandið
ÞJÁLFUN í lífslöngun og í því að
lifa í návist Guðs.
Námskeið í notkun bænabandsins
hefst þriðjudaginn 4. október kl. 20 í
Grensáskirkju á vegum Leikmanna-
skóla kirkjunnar. Kennari á nám-
skeiðinu er sr. Halldór Reynisson
verkefnisstjóri á Biskupsstofu. Á
námskeiðinu er stuðst við bókina
Bænabandið sem Karl Sigurbjörns-
son biskup hefur þýtt og staðfært.
Bænabandið er talnaband, sem
sænski biskupinn Martin Lönnebo
kom fram með fyrir nokkrum árum,
ný gerð talnabands. Hann nefndi
það „Frälsarkransen“ – krans, eða
sveig frelsarans. Bænabandið er
byggt upp af átján perlum í ýmsum
litum og gerðum. Hver og ein hefur
sitt heiti og merkingu. Þarna er
Guðsperlan, gyllt að lit; ílangar og
brúnar þagnarperlur, „perlan þín“
úr perlumóður, skírnarperlan,
reynsluperlan, æðruleysisperlan,
kærleiksperlan, fórnarperlan, perl-
ur leyndarmálanna, svarta næt-
urperlan fyrir allt það dimma og
þungbæra og upprisuperlan.
Skráning á námskeiðið fer fram í
síma 535 1500 eða á vef Leikmanna-
skólans, www.kirkjan.is/leik-
mannaskoli. Kennt er í þrjú skipti,
tvo tíma í senn. Bænabandið sjálft er
innifalið í námskeiðsverðinu en bók-
in um það er til sölu í Kirkjuhúsinu,
Laugavegi 31
Haustfundur
Safnaðarfélags
Grafarvogskirkju
SAFNAÐARFÉLAG Grafarvogs-
kirkju heldur haustfund sinn í safn-
aðarsal kirkjunnar mánudaginn 3.
október nk. kl. 20.
Jóhanna Kristjónsdóttir, rithöf-
undur og blaðamaður, sem dvalið
hefur langdvölum í Mið-Aust-
urlöndum segir frá lífi kvenna þar.
Kaffiveitingar og fyrirspurnir.
Mætum vel og tökum með okkur
gesti.
Stjórnin.
Námskeið í
Grafarvogskirkju
ÞRIÐJUDAGINN 4. október kl. 20
hefst námskeiðið „Að búa einn/ein“.
Námskeiðið er ætlað þeim sem
gengið hafa í gegnum skilnað ný-
lega og er markmið þess að koma til
móts við þá einstaklinga, gefa þeim
vettvang og tækifæri til að vinna úr
erfiðum tilfinningum sem upp koma
við skilnað. Námskeiðið stendur yfir
í átta vikur.
Í upphafi er fyrirlestur um skiln-
aðarferlið og afleiðingar skilnaðar á
tilfinningar, félagslega stöðu þeirra
sem skilja og síðast en ekki síst
nauðsyn þess að endurmeta og
byggja upp líf sitt og tilfinningar að
nýju. Við lítum svo á að námskeiðið
sé leið sálgæslu fyrir þennan hóp
fólks, því ljóst er að skilnaður hefur
afleiðingar sem geta sett mark sitt á
sálir þeirra sem ganga í gegnum þá
sáru reynslu. Námskeiðið kostar kr.
6.500.
Séra Anna Sigríður Pálsdóttir,
Grafarvogskirkju.
Morgunblaðið/Brynjar Gauti