Morgunblaðið - 01.10.2005, Side 52

Morgunblaðið - 01.10.2005, Side 52
52 LAUGARDAGUR 1. OKTÓBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR ✝ Guðrún Sigur-björg Ólafsdótt- ir Reykdal fæddist á Siglufirði 16. des- ember 1922. Hún lést á Hjúkrunar- heimilinu Eir 21. september síðastlið- inn. Foreldrar hennar voru Ólafur Jóhannesson Reyk- dal trésmiður á Siglufirði, f. 10. júní 1869, d. 20. desem- ber 1960, og kona hans Sæunn Odds- dóttir, f. 18. júlí 1895, d. 24. júní 1938. Systkini Guðrúnar voru Oddrún, f. 1917, d. 1995, en hún bjó lengi á Siglufirði, og Þórarinn rafveitustjóri á Hólmavík, f. 1919, d. 1993. Guðrún giftist 29. maí 1943 Þ. Ragnari Jónassyni bæjargjald- kera og fræðimanni, f. 27. október 1913, d. 6. október 2003. Foreldr- ar hans voru hjónin Jónas Guð- mundsson bóndi á Eiðsstöðum í Blöndudal í Austur-Húnavatns- sýslu og Ólöf Bjarnadóttir. Börn Guðrúnar og Ragnars eru: 1) Ólafur, bókaútgefandi í Reykja- vík, f. 8. september 1944. Kona hans er Elín Bergs, skrifstofu- maður. Synir þeirra eru: Ragnar Helgi, myndlistarmaður, f. 1971, kona hans er Margrét Sigurðar- dóttir kennari, börn þeirra eru Diljá, Ólafur Kári og Una. Kjartan Örn, f. 1972, MBA, búsettur í New York, kona Ásta Sóllilja Guð- mundsdóttir líffræðingur, börn þeirra eru Valtýr Örn og Elín Halla. 2) Jónas, ritstjóri í Reykja- vík, f. 24. febrúar 1948. Kona hans er Katrín Guðjónsdótt- ir, læknaritari. Syn- ir þeirra eru: Ragn- ar, héraðsdóms- lögmaður, f. 1976, kona hans er María Margrét Jóhanns- dóttir sálfræðinemi. Tómas, laganemi, f. 1980. 3) Edda, hús- móðir í Hollandi, f. 4. október 1949. Maður hennar er Óskar Már Sigurðs- son flugstjóri. Synir þeirra eru: Sigurður Rúnar framkvæmda- stjóri, f. 1975, kona hans er Steph- anie Óskarsson-Colaris, sálfræð- ingur, börn þeirra eru Kjartan Pieter og Karena Lovísa. Ólafur Ragnar, tölvufræðingur, f. 1981. Ásgeir Þór, verkfræðinemi, f. 1984. Barnabörn Ragnars og Guð- rúnar eru því sjö og barnabarna- börnin einnig sjö. Veturinn 1940-1941 var Guðrún farkennari á Engidal og í Héðins- firði. Hún vann við síldarsöltun mörg sumur og hjá Mjólkursam- sölunni á Siglufirði frá 1966 og síðar hjá Kaupfélagi Eyfirðinga á Siglufirði. Guðrún hafði mikinn áhuga á þjóðlegum fróðleik og ættfræði. Hún safnaði þjóðsögum Ásdísar Ólafsdóttur, ömmu sinnar, saman og fjallaði um hana í bók sem gef- in var út árið 1991 undir heitinu „Úr sagnabrunni“. Útför Guðrúnar verður gerð frá Siglufjarðarkirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 14. Siglufjörður var samofinn ævi tengdamóður minnar, Guðrúnar Reykdal. Hún fæddist þar árið 1922 og átti í áttatíu ár heima í húsinu sem faðir hennar byggði og hún fæddist í. Síðasta eitt og hálft ár var hún „að heiman“, fyrst á Heilbrigð- isstofnuninni á Siglufirði, síðan á hjúkrunarheimilinu Eir í Reykjavík þar sem hún lést. Síldarævintýrið setti svip sinn á Siglufjörð þegar Guðrún var á ung- lingsárum og hún lét þar til sín taka sem dugandi söltunarstúlka á með- an það ævintýri stóð. Síðar vann hún við verslunarstörf þar í bænum. Að loknu gagnfræðaprófi var hún farkennari í byggðunum austan og vestan Siglufjarðar og fór þar á milli ýmist sjóleiðina eða yfir fjall- garðana. Síðar á lífsleið hennar naut ungt fólk tengt fjölskyldunni góðs af kennsluhæfileikum hennar. Guðrún giftist liðlega tvítug ung- um Húnvetningi sem örlögin höfðu stefnt til Siglufjarðar eftir alllanga dvöl við nám og störf í Danmörku. Það var Þ. Ragnar Jónasson sem var bæjargjaldkeri á Siglufirði til margra ára. Þau gengu í hjónaband í maí- mánuði 1943 og voru óaðskiljanleg upp frá því og höfðu verið gift í rúm sextíu ár þegar Ragnar féll frá fyrir tæpum tveimur árum. Það var ekki aðeins að þau hefðu bæði brennandi áhuga á velferð barna sinna og fjölskyldna þeirra heldur fylgdust þau vel með lands- málum og siglfirskum málefnum og létu þau til sín taka. En þótt þau væru með á nótunum í nútímanum var það ekki síður fortíðin sem heill- aði þau bæði. Ragnar hafði áratug- um saman unnið að fræðistörfum og skriftum, skrifað í blöð og tímarit og sendi frá sér fimm binda verk um mannlíf, lífshætti og þjóðtrú í Siglufjarðarbyggðum. Guðrún tók mikinn þátt í öflun heimilda vegna þessara verka Ragnars, bæði úr bókum og handritum og þegar þau komu til Reykjavíkur lá leið þeirra oft á Þjóðskjalasafnið til þess að afla gagna. Guðrún stundaði jafnframt sínar eigin rannsóknir, helgaði sig ætt- fræði um árabil og náði að koma saman miklum ættartölum með heimildaöflun, bréfaskriftum og bóklestri. En þjóðmenning og þjóðtrú heilluðu hana ekki síður enda átti hún ekki langt að sækja þann áhuga því að amma hennar í föðurætt, Ásdís Ólafsdóttir, var kunn sem þjóðsagnaþulur í Eyja- firði og Þingeyjarsýslum og var haft á orði í blaðagrein um son hennar, Jóhannes Reykdal, föðurbróður Guðrúnar, að eftir að hún kom suð- ur til sonar síns hefðu Reykvíkingar sent eftir henni til Hafnarfjarðar „mann og hest til þess að fá hana til að koma og segja þjóðsögur einkum af huldufólki“. Guðrún lagði sig mjög eftir að safna saman þjóðsögum ömmu sinn- ar sem sumar höfðu birst en aðrar voru til í handritum á söfnum. Þess- ar sögur voru gefnar út fyrir hálf- um öðrum áratug í bók sem hlaut nafnið „Úr sagnabrunni“. Allir þeir sem kynntust Guðrúnu sáu að þar fór vel gefin og vel gerð kona, heilsteypt og heiðarleg, dug- leg og samviskusöm og ljúf í allri umgengni. Það fór heldur ekki framhjá þeim sem áttu samskipti við þau Guðrúnu og Ragnar hve miklir kærleikar voru með þeim. Það má segja að þau hafi alla tíð verið eins og nýgift. Hlýjan skein af þeim, kærleiksrík orð fóru á milli þeirra og vænt- umþykjan var innsigluð á hverjum morgni þegar Ragnar gaf Guðrúnu „skeggkossinn“ er hann var búinn að raka sig. Hún hefur ekki notið þessara kossa undanfarin tvö ár en hver veit nema „skeggkossarnir“ verði endurvaktir þegar þau Guð- rún og Ragnar hittast að nýju á öðru sviði en því jarðneska. Fyrir hönd fjölskyldunnar vil ég þakka starfsfólki Heilbrigðisstofn- unarinnar á Siglufirði og Hjúkrun- arheimilisins Eir hlýja og góða umönnun. Það var ánægjulegt og lærdóms- ríkt að eiga samleið með þeim Guð- rúnu og Ragnari í nærri fjóra ára- tugi og óteljandi góðar og hlýjar minningar munu geymast um ókomin ár. Blessuð sé minning elskulegrar tengdamóður minnar, Guðrúnar Reykdal. Elín Bergs. Aftur er komið sumar. Leiðin liggur til Siglufjarðar, tilfinningin er tilhlökkun. Hólshyrnan er komin í sumarkjólinn, hneigir sig um leið og hún tekur brosandi á móti okkur. Við nálgumst Hlíðarveg 27. Á stétt- inni við þröskuldinn taka Guðrún og Ragnar, tengdaforeldrar mínir, á móti okkur, þau haldast í hendur. Það glittir í gleðitár um leið og við birtumst. Löngu búið að leggja á borð, allir eiga sín föstu sæti, ynd- isleg tilfinning. Rósir úr garðinum hennar Guðrúnar prýða borðið. En, eins og Ragnar sagði svo oft: Fal- legasta blómið í garðinum er hún Guðrún mín og smellir léttum kossi á kinn elskunnar sinnar. Hún bros- ir, en fer hjá sér. Svo mikil ást. Nú er fallegasta blómið í garð- inum, hún Guðrún, hjá Ragnari sín- um, sem mun vökva blómið sitt með gleðitárum, hvern einasta dag. Katrín Guðjónsdóttir. Þegar ég kvaddi Ragnar afa minn fyrir tveimur árum varð mér hugs- að til orða Platóns um ástina; um það hvernig maðurinn hafi í upphafi verið settur saman úr tveimur sam- föstum líkömum sem guðirnir höfðu síðan af illkvittni deilt í með tveim- ur; skapað þannig mann og konu sem sífellt leita að „hinum helmingi sjálfs sín“. Amma og afi voru svo lánsöm að finna hinn helming sjálfs sín hvort í öðru. Fyrir mér voru þau sem ein sál í tveimur líkömum; svo hreint, tært og einhvern veginn náttúrulegt var samband þeirra í mínum augum. Amma mín var amma eins og lýst er í bókum – í gömlum bókum – eig- inlega bara í gömlum barnabókum af þeirri tegund sem ekki þykja sér- lega móðins nú um stundir, líklega vegna þess að mörgum finnst þær ekki vera sérlega raunsæjar. En einhvern veginn fór hún amma mín að því að vera svona í alvörunni: ró- lynd og nægjusöm, heiðarleg, blíð, góð – ætíð gjafmild á umhyggju sína. Þetta var hún meira að segja allt í senn um leið og hún bar í mann fleiri kökur, meira kaffi og spjallaði um daginn og veginn. Amma fór létt með það að vera hún sjálf þótt hún væri að gera annað. Það þarf líklega ekki að vera fullt starf að vera maður sjálfur. Hún var óvenju heil manneskja, sem áreynslulaust bar alltaf um sig sérstakan hjúp hlýju og væntum- þykju sem öllum var velkomið að sækja í. Það er mitt lán að hafa fengið að njóta gjafmildi hennar. Amma bjó alla ævi í sama húsinu, því sama og hún fæddist í og pabbi hennar byggði. Hún átti aldrei bíl, fór ekki til útlanda á hverju ári og lifði á ellilífeyrinum. Samt man ég aldrei nokkurn tímann til þess að hafa heyrt á henni að hana vantaði neitt. Enn á maður margt ólært. Ég held líka að amma hafi átt al- veg vandræðalaust samband við al- mættið. Trú hennar var sjálfgefinn hluti af lífinu og þess vegna ekkert áberandi – frekar en aðrir sjálf- sagðir hlutir í hversdeginum. Vissa um styrka og flækjulausa trú henn- ar á Guð léttir mér kveðjuna. Eftir að afi dó fyrir tveimur árum dró hratt af ömmu. Hún var eftir það sem hálf. Hún saknaði helmings sjálfrar sín. Allir sem hittu hana fundu fyrir þessum djúpa og sára söknuði sem setti sitt mark sífellt sterkar á hana. Hún fann fyrir afa þótt hann væri farinn, kannski á sama hátt og fólk sem missir útlim finnur enn fyrir honum, þótt hann sé horfinn – og tíminn líði. En nú er amma lögð af stað á eft- ir afa og brátt finnast þau á ný. Þá verður aðskilnaður þeirra á enda. Ég ætla að leyfa mér að sakna ömmu um stund, en ekki of lengi. Slíkt væri eigingirni, því ég held að hún sé heilli þar sem hún nú er en þar sem hún var. Ég kveð ömmu eins og hún kvaddi mig alltaf: Guð fylgi þér, amma mín. Ragnar Helgi Ólafsson. Það var fastur punktur í tilver- unni, frá því við munum eftir okkur, að fara til Siglufjarðar á sumrin og heimsækja ömmu Guðrúnu og afa Ragnar. Það var alltaf mjög sérstök tilfinning að koma út úr göngunum og keyra upp að hvíta húsinu við Hlíðarveg, eftir langan akstur. Allt- af sama tilhlökkunin, hvort sem við vorum tveggja ára eða tuttugu ára, og í raun fannst manni ekkert breytast á öllum þessum árum. Við uxum úr grasi, fórum í menntaskóla og háskóla en ein- hvern veginn fannst manni tíminn standa í stað á Hlíðarvegi 27, hjá ömmu og afa. Það er mjög dýrmætt að eiga þessar minningar og verða þær sterkari með hverju árinu sem líður. Það er erfitt að hugsa til þess að geta ekki lengur heimsótt ömmu Guðrúnu og afa Ragnar á Hlíðar- veginum á sumrin. En minningarn- ar lifa áfram og það er gott að vita til þess að nú séu þau sameinuð á ný á öðrum stað. Ragnar og Tómas. Í dag kveðjum við í hinsta sinn frá Siglufjarðarkirkju Guðrúnu Reykdal eða Góu eins og við systk- inin kölluðum hana alltaf. Öll okkar bernskuár á Siglufirði áttum við systkinin trausta og góða vini á Hlíðarvegi 27 í þeim Góu og Ragnari föðurbróður okkar. Hlíð- arvegur 27 er ekkert venjulegt hús, heldur hús með stórri sál. Þar eru mörg herbergi, mikið af bókum og margt að skoða. Þetta var sann- kallað ævintýrahús í augum okkar krakkanna, og þar gleymdum við oft stund og stað í alls kyns grúski eða í leik við kisurnar sem þau áttu ófáar um ævina. Allir hlutir áttu sinn vissa stað, enda voru þau hjón- in einstök snyrtimenni. Í þessu húsi fæddist Góa og bjó alla sína ævi ut- an síðustu missera er hún dvaldi á Hjúkrunarheimilinu Eir þar sem hún lést. Eftir að við fluttum frá Siglufirði var ætíð fastur liður þegar við kom- um norður að kíkja inn hjá Góu og Ragnari. Þá þurfti alltaf mikið að spjalla og segja frá hvað á dagana hefði drifið síðan í síðustu heim- sókn. Góa og Ragnar fylgdust ætíð vel með okkur og börnum okkar og sýndu okkur ætíð mikla væntum- þykju sem við mátum ætíð mikils. Þau voru stolt af sínum börnum, tengdabörnum, barnabörnum og barnabarnabörnum. Þau Góa og Ragnar voru einstak- lega samrýnd hjón og höfðu verið gift í rúmlega 60 ár þegar Ragnar féll frá fyrir um tveimur árum. Þeirra framlag til sögu Siglufjarðar verður seint fullþakkað. Eftir Ragn- ar liggja fimm bækur um sögu Siglufjarðar og framlag Góu í þeirri miklu vinnu var einnig mjög mikið. Er þá aðeins lítils getið af þeirra fræðistörfum og útgefnu efni. Ekki var komið að tómum kofanum hjá þeim þegar spáð var í örnefni eða sögu Siglufjarðar eða hvaðeina sem sneri að Siglufirði eða Siglufjarð- ardölum. Meiri Siglfirðinga en þau voru vandfundnir. Góa var mikil hannyrðakona og leiðbeindi hún nokkrum okkar í hannyrðum. Einnig las hún með flest öllum okkar ensku fyrstu vet- urna sem við lærðum hana. Þau Ragnar áttu einnig einstaklega fal- legan garð sem var margverðlaun- aður og þau eyddu ófáum stundum í að fegra sitt umhverfi. Á skilnaðarstundu þökkum við systkinin fyrir allar stundirnar á Hlíðarveginum. Heimsóknir á Siglu- fjörð verða fátæklegri hér eftir en við erum rík af minningum sem við geymum með okkur um ókomin ár. Ég sendi þér kæra kveðju, nú komin er lífsins nótt. Þig umvefji blessun og bænir, ég bið að þú sofir rótt. Þó svíði sorg mitt hjarta þá sælt er að vita af því þú laus ert úr veikinda viðjum, þín veröld er björt á ný. Ég þakka þau ár sem ég átti þá auðnu að hafa þig hér. Og það er svo margs að minnast, svo margt sem um hug minn fer. Þó þú sért horfinn úr heimi, ég hitti þig ekki um hríð, þín minning er ljós sem lifir og lýsir um ókomna tíð. (Þórunn Sig.) Guð blessi minningu Guðrúnar Reykdal. Ólöf, Helga, Ásta Jóna, Kristín, Jónas og Inga Margrét. Nyrst á Tröllaskaga gnæfa hin tignarlegu Siglufjarðarfjöll sem mynda skjólveggi næstum því hringinn um fjörðinn fagra. Nú hafa þau tekið á sig haust- eða jafnvel vetrarblæ með sína hvítu snjóslæðu. Það haustar að í náttúrunni og það haustar einnig að í huga þeirra sem sakna nú um þessar mundir brott- hvarfs Guðrúnar Reykdal sem kvatt hefur þennan heim. Hugurinn reikar aftur í tímann til uppvaxtarára hennar og æsku. Guð- rún fæddist í húsi númer 27 við Hlíðarveg á Siglufirði. Þar bjó hún allt sitt líf en húsið tók að vísu nokkrum breytingum á þessu tíma- bili. Það var kreppa í landinu á æskuárum hennar. Hún ólst upp við það að ekki þýddi að gera kröfur, það varð að nýta alla hluti til hins ýtrasta og það varð hennar lífs- mottó. Guðrún var yngst þriggja systkina. Hún missti móður sína ung að árum en það kom í hennar hlut að annast heimilið þar sem eldri systkinin stofnuðu brátt sín eigin heimili. Hún annaðist föður sinn til hárrar elli og fórst það vel eins og annað er hún tók sér fyrir hendur. Ekki var um langa skóla- göngu að ræða fyrir ungar stúlkur á þessum árum. Löng skólaganga segir ekki allt – í stað þess var hún víðlesin og fróð um flesta hluti sem nægði henni í gegnum lífið. Hún hafði ákveðnar skoðanir um menn og málefni og myndaði sér sínar eigin skoðanir og hélt þeim ákveðið fram. 23. maí 1943 gengu þau í hjóna- band Þ. Ragnar Jónasson, bæjar- gjaldkeri og fræðimaður, og Guð- rún. Hjónaband þeirra reyndist mjög farsælt þar sem það var fyrst og fremst byggt á trausti og virð- ingu hvert fyrir öðru og þannig hélst það alla tíð. Undirritaður var hálfgerður fóstursonur þeirra á fyrstu búskaparárum þeirra og fylgdist vel með þeim alla tíð og varð vitni að því að ekkert myndi rjúfa það nema dauðinn einn. Heimili þeirra bar vott um reglu- semi, snyrtimennsku og hlýleika. Þangað var alltaf gaman að koma, hlý handtök og léttur koss á kinn. Veisluborð voru alltaf til staðar og þar fann maður sig velkominn. Þarna var fræðasetur. Mikið skrifað og söfnun gamalla sagna og ýmis fróðleikur dreginn fram í sviðsljós- ið. Árangurinn varð að út komu fimm bækur frá þeim um ýmiss konar fróðleik og sagnir sem tengd voru atvinnusögu og framþróun í Siglufjarðarbyggðum. Þar er margt að finna sem ekki hafði áður komið fram. Þetta var samstillt starf þeirra beggja sérstaklega hin síðari ár. Einnig kom út bók sem þau tóku saman sem í voru þjóðsögur, sagnir og ævintýri Ásdísar Ólafsdóttur ömmu Guðrúnar. Guðrún og Þ. Ragnar eignuðust þrjú mannvænleg börn; Ólaf, Jónas og Sæunni Eddu sem öll hafa getið sér mjög gott orð. Frá þeim er kominn myndarlegur hópur vaskra og vel menntaðra einstaklinga. Guð- rúnu og Þ. Ragnari var mjög annt um að börnin og barnabörnin menntuðu sig og fylgdust grannt með hverjum þeim áfanga sem þau náðu. Miklar sólskinsstundir voru í lífi þeirra þegar fjölskyldumeðlim- irnir voru nærstaddir en fjarlægð- irnar voru oft miklar og þar af leið- andi samverustundirnar færri en ella. Þegar aldurinn færðist yfir fór að halla undan fæti. Nú um þessar mundir eru rétt tvö ár síðan Þ. Ragnar féll frá þá á nítugasta ald- ursári. Hann hafði þá átt við erf- iðleika í hreyfigetu að stríða um nokkurt skeið. Guðrún annaðist hann langt umfram það sem hún hafði heilsu og kraft til. Sextíu ára farsælt hjónaband var að baki. Nú var hennar hlutverki að ljúka. Lífs- kraftur fór að þverra og lífslöngun ekki fyrir hendi sem áður fyrr var drifkraftur í hennar lífi. Þegar hér var komið sögu var hennar heilsa einnig á þrotum og brátt kom að því GUÐRÚN REYKDAL

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.