Morgunblaðið - 01.10.2005, Síða 63

Morgunblaðið - 01.10.2005, Síða 63
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 1. OKTÓBER 2005 63 DAGBÓK Samtök áhugafólks um áfengis- og vímu-efnavandann blása til baráttufundar íHáskólabíói næstkomandi þriðjudag 4.október klukkan 20 undir yfirskriftinni „Bráðamóttaka eða biðlisti“. Margir þekktir lista- menn koma fram á sjálfum fundinum en í anddyri Háskólabíós sem opnar klukkan 19. verður sýning og kynning á starfsemi samtakanna. Í byrjun þessa árs var óhjákvæmilegt að loka bráðamóttöku við Sjúkrahúsið Vog sem rekin hef- ur verið undanfarin tvö ár. Auk þessa var dregið úr innritunum sem nemur 250 á ársgrunni. Þór- arinn Tyrfingsson, yfirlæknir á Vogi, segir að síð- ustu mánuði hafi starfsmenn á Vogi þurft að horfa upp á afleiðingar þessa. „Aðgerðirnar bitna að- allega á þeim sjúklingum okkar sem verst eru staddir,“ segir Þórarinn. „Þeir þurfa nú að bíða lengur eftir nauðsynlegri sjúkrahúsvist en áður. Slíkt er kostnaðarsamt fyrir aðrar heilbrigð- isstofnanir og þjóðfélagið í heild en hættulegast einstaklingunum sem þurfa að bíða.“ Hér er í raun um að ræða árlegan fund sem haldinn er á afmælisdegi samtakanna. „Það er um þetta leyti sem samtökin voru stofnuð á sínum tíma fyrir 28 árum í Háskólabíói. Þetta er eins konar afmælisfundur og við höfum komið þarna í Háskólabíó árlega,“ segir Þórarinn, en bætir við að nú sé málefnið afar brýnt sem þarf að kynna fyrir gestum fundarins. „Við viljum vekja athygli á baráttu okkar fyrir því að betri bráðaþjónusta sé í boði fyrir vímuefnaneytendur sem eru illa staddir í Reykjavík. Það er það verkefni sem við teljum brýnast þessa stundina.“ Hvernig er ástandið núna? „Flestir geta nú fengið þjónustu fljótt, en þeir sem eru ungir og illa farnir og hafa verið hér í meðferð fyrir nokkrum mánuðum eða tveim ár- um, það fólk getur lent í því að bíða eftir því að komast inn. Ef það er styttra en tvö ár síðan það var hérna hjá okkur, þá getur það lent í því að bíða. Það er ekki í sjálfu sér gott, hvorki fyrir þá eða aðstandendur þeirra eða nokkurn mann að þeir þurfi að bíða eftir sjúkrahússvist ef þeir þurfa á henni að halda. Þeir eru sjálfir í stjórnlausri neyslu. Það má segja að ef þeir fá ekki þessa þjón- ustu þurfi þeir frekar að fara inn á bráðamóttökur spítalanna og inn á slysavarðstofuna vegna slysa og bráðaveikinda. Auk þess má nefna öll þau óþægindi sem þeir sjálfir, fólkið í kringum þá og sérstaklega aðstandendur þeirra þurfa að ganga í gegnum á meðan á þessu stendur. Svo eru ónefnd þau gríðarlegu félagslegu vandamál sem stafa af þessu og alltaf eru fréttir af í blöðunum.“ SÁÁ | Blása til baráttufundar fyrir bættri bráðaþjónustu fyrir unga fíkniefnaneytendur Biðlistinn ekki góður fyrir neinn  Þórarinn Tyrfingsson er fæddur í Reykjavík árið 1947. Hann lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum í Reykjavík 1967 og læknaprófi frá Háskóla Íslands árið 1975. Þórarinn hefur starfað hjá SÁÁ frá árinu 1979 og hefur verið yfirlækn- ir á Vogi frá árinu 1984. Þá hefur hann verið stjórnarformaður SÁÁ frá árinu 1988. Þórarinn er kvæntur Hildi Guðnýju Björns- dóttur og eiga þau saman fimm börn auk barnabarna. Árnaðheilla dagbók@mbl.is 70 ÁRA afmæli. Á morgun, 2.október, verður sjötugur Gunn- ar Hermannsson, Rauðhömrum 12, Reykjavík. Hann tekur á móti vinum og vandamönnum í sal Sjálfstæð- isfélagsins Austurströnd 3, Seltjarn- arnesi, á afmælisdaginn, milli kl. 14 og 17. Velvakandi Svarað í síma 5691100 frá 10–12 og 13–15 | velvakandi@mbl.is Bílastæðisvandamál við Leifsstöð ÉG vil koma því á framfæri að þeir sem stjórna bílastæðamálum á Kefla- víkurflugvelli upplýsi fólk um það hvernig það eigi að haga sér þegar það notar bílastæðin. Ég var sótt þegar ég kom úr flugi og sá sem sótti mig tók miða í hliðinu og beið í 15–30 mínútur. Þegar við er- um búin að koma farangrinum fyrir í bílnum og ætluðum út áttum við að setja miðann í tækið og borga. Við gerðum þetta, miðinn fór í tækið, visa-kortið sett í - en á skjánum birt- ist - getur ekki lesið kortið. Við ákváðum þá að borga við hliðið. Þeg- ar við komum í hliðið er enginn þar til aðstoðar. Sá sem er á fyrsta bílnum í röðinni er eitthvað óöruggur og það myndast löng röð. Þá kemur þar að maður úr röðinni og vill að við bökk- um (við á vörubíl) til að hann komist áfram. Við biðum róleg. Svo kemur röðin að okkur, við setjum Visa-kortið í – en þá vantar miðann sem við sett- um í vélinni inni. Við stoppum allt. Það var hægt að ná sambandi við ein- hvern kvenmann í þessum kassa og ég segi henni að við höfum sett mið- ann í vélina inni. Hún segir að við þurfum að sækja hann. Ég segi við hana að ég sé með danskar krónur og hvort hægt sé að borga með þeim. Nei, við tökum ekki við dönskum pen- ingum. Við vorum strönduð þarna í hliðinu og bílaröð fyrir aftan sem þurfti að komast út. Það kemur strákur hlaup- andi til að hjálpa okkur og ég spurði hann hvort hann geti tekið við dönsk- um peningum. Hann segist ekki mega gera það – en gerði það samt og við komumst í gegn. Það vantar að birta leiðbeiningar í fjölmiðlum um hvernig eigi að haga sér við þessar vélar. Maður er ekki þarna á ferðinni á hverjum degi og það vantar alla aðstoð á staðnum. Og svo finnst mér óþarfi að láta fólk borga fyrir þessi stæði. Ekki er ætl- ast til þess að maður lesi allar leið- beiningar á kassanum á meðan röð af bílum bíður eftir að komast út. Ég fer fram á það að þeir sem þurfi á þessum hundraðköllum að halda gefi út leiðbeiningar til hægt sé að komast þarna í gegn stórslysalaust. Finnst þetta léleg þjónusta. Hulda Guðmundsdóttir. Ráðlegging NÝLEGA var um það fjallað í blöð- um að það væri hættulegt að sofa með rafmagnstæki, klukkur, úr og síma nálægt sér. Það er alveg tilvalið að tína ís- lenska steina í fjörunum og setja steinana á náttborðið hjá sér því það dregur úr þessari rafleiðni sem fjallað var um. Kona. Lyklakippa í óskilum LYKLAKIPPA fannst í Roðasölum 1 (Dagdvöl). Tveir húslyklar á lykla- kippu sem er rauð stjarna úr plasti. Upplýsingar á staðnum og í síma 564 2491. Morgunblaðið/Árni Sæberg 50 ÁRA afmæli. Í dag, 1. október,er fimmtug Valdís Ósk Jón- asdóttir. Hún og fjölskylda hennar taka á móti vinum og ættingjum í kvöld milli kl. 19.30–22 í Kiwanishúsinu í Mosfellsbæ. Brúðkaup | 27. ágúst sl. voru Freydís Aðalbjörnsdóttir og Róbert Línberg Runólfsson gefin saman í Háteigs- kirkju af séra Hjálmari Jónssyni. Þau eru búsett í Reykjavík. LEITAÐ er að leikkonu/söngkonu til að taka þátt í uppfærslu Leik- félags Reykjavíkur og Íslenska dansflokksins á Carmen, leikriti með söngvum, sem byggir á óperu Bizets. Æfingar hefjast í nóvember nk. og frumsýnt verður í janúar 2006. Leikstjóri er Guðjón Pedersen. Danshöfundur er Steven Shrop- shire og tónlistarstjóri Agnar Már Magnússon. Umsóknareyðublöð fást í Borg- arleikhúsinu og á heimasíðunni, www.borgarleikhus.is. Umsækjendur verða valdir til þátttöku í prufunni. Umsóknir, ásamt mynd, þurfa að hafa borist fimmtudaginn 6. októ- ber. Leitað að leikkonu Morgunblaðið/Ómar MÁLVERKASÝNING verður opn- uð í Garðabergi, Garðatorgi 7, Garðabæ, á mánudag. Árni Björn Guðjónsson sýnir landslagsmyndir málaðar í olíu. Sýningin stendur til 31. október og opið er daglega frá kl. 12.30 til 16.30, nema þriðjudaga. Lokað um helgar. Árni Björn í Garðabergi ♦♦♦ verður haldið að Suðurgötu 3 í dag laugardaginn 1. október milli 9 og 21. Kosningavaka verður á Póstbarnum við Austurvöll og hefst strax að loknum kjörfundi. Forval VGR fyrir borgarstjórnarkosningarnar 2006

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.