Morgunblaðið - 01.10.2005, Blaðsíða 64
64 LAUGARDAGUR 1. OKTÓBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ
DAGBÓK
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Framferði hrútsins leiðir til ferlis sem
hann hefur enga stjórn á, líkt og þegar
fiðrildi blaktir vængjum í einni heims-
álfu og kemur af stað fellibyl í annarri,
eins og óreiðukenningin segir til um.
Fulltingi tvíbura er lykilatriði í þessu
sambandi.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Nautinu finnst engu líkara en að það sé
að spila tölvuleik þar sem markmiðið er
að víkja sér undan skrímslum og safna
stigum. Reglurnar ættu að vera barna-
leikur, þú samdir þær! Notaðu daginn til
þess að versla og fá afslátt.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Tvíburinn getur leyst nánast hvaða gátu
sem er ef hvatningin er næg. Þú þarft
ekki að vera sérfræðingur til þess að
skilja hvað er á seyði. Glöggt er gests
augað.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Fólki líkar að vera í návist krabbans.
Hann gæti eytt heilum degi í það að
gjalda líku líkt, en ef hann hefur ekki að
atvinnu að blanda geði við fólk er líklega
best að snúa aftur til hversdagsleikans
sem fyrst.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Það er sama þótt þú reynir að leiða nei-
kvætt hegðunarmynstur hjá þér, það
hverfur ekki af sjálfu sér. Sambönd
batna ef maður hefur hugrekki til þess
að horfast í augu við raunveruleikann.
Þú átt gott með að falla öðrum í geð í
dag.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Meyjan á að vinna að umbótum á öllum
sviðum þar sem hægt er að telja. Banka-
reikningurinn og hitaeiningar eru ágæt
dæmi. Það hefur víðtækar afleiðingar.
Málið er ekki endilega bara staðreynd-
irnar, heldur það sem þú gerir úr þeim.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Þú getur ekki stjórnað því hvað öðrum
finnst um þig. Ekki hafa áhyggjur. Ein-
hleypingar athugið: Vinur tekur að sér
hlutverk hjónabandsmiðlara og tekst
frábærlega upp.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Kaupsýsla og félagsandi eru tengd órjúf-
anlegum böndum. Eigðu bara samskipti
við fólk sem þú nærð frábæru sambandi
við. Önnur vatnsmerki eins og krabbar
og fiskar eru í þeim hópi og veita þér
ánægjulega samkeppni.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Ástríðurnar hafa tekið völdin. Þess
vegna er bogmaðurinn svo aðlaðandi í
augum ljónsins og hrútsins. Kláraðu
verkefnið sem þig langar síst af öllu til
þess að ljúka. Að því búnu upplifir þú al-
gert frelsi.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Dagurinn verður erfiður ef þú berst
gegn straumnum. Ef þú stígur ölduna
verður hann hinsvegar frábær. Það gild-
ir einu þótt kringumstæðurnar séu ekki
eins og þú hafðir búist við, þær verða þér
samt í hag.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Ekki er víst að samhengi sé milli tveggja
hluta, þótt þeir tengist innbyrðis. Það
skapar bara ágreining og misskilning að
hrapa að ályktunum. Ekki ganga út frá
neinu, haltu þig við staðreyndir.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Passaðu að samningar séu skriflegir og
skuldbindingar opinberar. Velgengni á
stefnumótum eða í ótilgreindu verkefni
veltur á getunni til þess að leggja fyr-
irframgefnar hugmyndir á hilluna.
Stjörnuspá
Holiday Mathis
Eðlisfræðin segir að sér-
hver verkun feli í sér jafna
gagnverkun. Þegar mann-
legt atferli er annars vegar má búast við
því síðarnefnda fram til 9. desember, því
Mars, stríðsherra dýrahringsins, er í
bakkgír (séð frá jörðu). Við munum
glíma við afleiðingar okkar ágengustu
gjörða, bæði jákvæðar og neikvæðar.
Staðurogstund
http://www.mbl.is/sos
Sudoku
© Puzzles by Pappocom
Lausn síðustu gátu
Þrautin felst í því
að fylla út í reit-
ina þannig að í
hverjum 3x3-reit
birtist tölurnar
1-9. Það verður
að gerast þannig
að hver níu reita
lína bæði lárétt
og lóðrétt birti
einnig tölurnar
1-9 og aldrei má
tvítaka neina tölu
í röðinni.
Lausn, ábendingar og tölvuforrit á www.sudoku.com
1
7
11
15
22
24
12
14
3
9
20
10
4
8
21
23
25
13
17
5
18
6
19
2
16
Krossgáta
Lárétt | 1 ökutæki, 4
hraka, 7 tælir, 8 krók, 9
blekking, 11 fuglinn, 13
vex, 14 skattur, 15 óm-
júk, 17 ófús, 20 tjara, 22
hitasvækja, 23 líðandi
stund, 24 flækja, 25 gler-
ið.
Lóðrétt | 1 landbún-
aðartæki, 2 ganga, 3
magurt, 4 spýta, 5 stirð-
leiki, 6 kjánar, 10 hagn-
aður, 12 miskunn, 13 op,
15 hangir, 16 hæglát, 18
skrifað, 19 góð-
mennskan, 20 vísa, 21
röskur.
Lausn síðustu krossgátu
Lárétt: 1 ribbaldar, 8 líkir, 9 tinna, 10 tel, 11 tunna, 13
afræð, 15 krafs, 18 illur, 21 tíð, 22 nagli, 23 nabbi, 24
rangindin.
Lóðrétt: 2 iðkun, 3 birta, 4 litla, 5 agnir, 6 blót, 7 garð, 12
nef, 14 fól, 15 kunn, 16 angra, 17 sting, 18 iðnin, 19
lubbi, 20 reit.
Tónlist
Grand Rokk | Dikta kl. 23.
Kaffi Hljómalind | Tvennir tónleikar: kl. 15
spilar MarkúsB (frítt inn). Kl. 20 spila
MarkúsB, Hallvarður og Amelía, og Isidor.
Neskirkja | Anna Helga Björnsdóttir leikur
einleik með Hljómsveit Tónlistarskólans í
Reykjavík á tónleikum kl. 17. Á efnisskrá
er: Egmont forleikur eftir Beethoven, pí-
anókonsert eftir Mendelssohn og Sinfónía
nr. 39 eftir Mozart. Stjórnandi er Gunn-
steinn Ólafsson. Aðgangur ókeypis.
Salurinn | Söngur og harpa. Þóra og
Gunnhildur Einarsdætur. Verk eftir Caplet,
Fauré, Ravel og fleiri. Kl. 16.
Kópavogskirkja | Kristín R. Sigurðardóttir
sópran og Julian Hewlett píanó. Óp-
eruaríur og íslensk sönglög. Kl. 17.
Vídalínskirkja | Páll Jóhannesson tenór
og Ólafur Vignir Albertsson píanó. Kl. 17.
Háskólabíó | Sissel Kyrkjebø. Kl. 20.
Hamrar, Ísafirði | Árlegir minning-
artónleikar um hjónin Sigríði Jónsdóttur
og Ragnar H. Ragnar kl. 17. Á tónleikunum
kemur fram söngkvartettinn Út í vorið en
Bjarni Þór Jónatansson og Daníel Þor-
steinsson leika á píanó og harmóníku.
Myndlist
101 gallery | Sigurður Árni Sigurðsson til
22. október. 101 Gallery er opið fimmtu-
daga til laugardaga frá kl. 14 til 17 eða eftir
samkomulagi.
Aurum | Hjá Aurum fer af stað verkefni 1.
okt. sem kallast Myndlistarveggurinn, en
þar fá ungir listamenn tækifæri á að koma
sér á framfæri. Hver listamaður sýnir í 2
vikur í senn. Þorsteinn Davíðsson er fyrsti
listamaðurinn, sýnir hann málverk unnin
með blandaðri tækni, grafítí og olíu-
málningu.
BANANANANAS | Darri Lorenzen opnar
sýninguna sína Kíktu inn kl. 19 í dag.
Byggðasafn Árnesinga | Á Washington-
eyju – Grasjurtir í Norður-Dakóta. Sýning
og ætigarðs-fróðleikur í Húsinu á Eyr-
arbakka. Opið um helgar frá 14 til 17. Til
nóvemberloka.
Café Karólína | Margrét M. Norðdahl opn-
ar myndlistarsýninguna „The tuktuk (a jo-
urney)“ á Café Karólínu kl. 16. Sýningin
samanstendur af myndbandi, hljóði, ljós-
myndum, málverkum og teikningum. Til 4.
nóv.
Eden, Hveragerði | Guðrún Ingibjarts-
dóttir sýnir verk sín til 2. okt.
FUGL, Félag um gagnrýna myndlist |
Ólafur Gíslason til 2. október.
Gallerí 100° | Guðbjörg Lind, Guðrún
Kristjánsdóttir, Kristín Jónsdóttir. Til 25.
október.
Gallerí BOX | Elín Hansdóttir opnar sýn-
ingu kl. 15. Opið er á fim. og laug. kl. 14–17
og eftir samkomulagi. Til 22. okt.
Gallerí Fold | Haraldur Bilson til 2. októ-
ber.
Gallerí Gyllinhæð | Ingunn Fjóla Ingþórs-
dóttir til 2. okt. Opin fim.–sun. kl. 14–18.
Gallerí Húnoghún | Anne K. Kalsgaard og
Leif M. Nielsen til 21. okt.
Gallerí i8 | Ólöf Nordal til 15. okt.
Gallerí Sævars Karls | Völuspá, útgáfu-
sýning á myndum Kristínar Rögnu við ljóð
Þórarins Eldjárns.
Gallery Turpentine | Ásdís Spanó sýnir til
3. október.
Gerðuberg | Þórdís Zoëga til 13. nóv. Einar
Árnason til 6. nóv.
Grafíksafn Íslands | Helga Ármannsdóttir
sýnir verk sín.
Ís-café | Bjarney Sighvatsdóttir með
myndlistarsýningu.
Kaffi Sólon | Kristín Tryggvadóttir til 22.
október.
Kirkjuhvoll, Listasetur | Erna Hafnes sýn-
ir til 9. okt.
Listasafn ASÍ | Anna Þ. Guðjónsdóttir og
Kristleifur Björnsson. Til 9. október. Opið
alla daga nema mán. frá 13–17.
Listasafn Einars Jónssonar | Fastasýn-
ing.
Listasafn Íslands | Íslensk myndlist 1945–
1960. Frá abstrakt til raunsæis.
Listasafn Kópavogs, Gerðarsafn | Meist-
ari Kjarval 120 ára. Afmælissýning úr
einkasafni Ingibjargar Guðmundsdóttur og
Þorvaldar Guðmundssonar. Til 2. október.
Listasafn Reykjanesbæjar | Eiríkur Smith
og konurnar í baðstofunni til 16. okt.
Listasafn Reykjavíkur, Hafnarhús | Guð-
rún Vera Hjartardóttir til 30. des. Erró til
23. apríl. Hvernig borg má bjóða þér? til 2.
okt.
Listasafn Sigurjóns Ólafssonar | Hraun-
blóm: Else Alfelt og Carl-Henning Ped-
ersen. Einnig Svavar Guðnason og Sig-
urjón Ólafsson. Til 27. nóvember.
Listhús Ófeigs | Gunnar S. Magnússon til
26. október.
Ljósmyndasafn Reykjavíkur | Lars Tun-
björk til 20. nóvember.
Nýlistasafnið | Ásta Ólafsdóttir, Daði Guð-
björnsson og Unnar Jónasson Auðarson
til 2. okt.
Næsti Bar | Áslaug Sigvaldadóttir sýnir
olíu á striga. Til 14. október.
Safn | Ólafur Elíasson „Limbo lamp for
Pétur“ til nóvember. Stefán Jónsson „Við
Gullna hliðið“ til miðs október.
Skaftfell | Bryndís Ragnarsdóttir til 8. okt.
Suðsuðvestur | Með Ferðalokum býður
Jón Sæmundur áhorfendum að skyggnast
inn í hans eigin draumfarir með nýrri inn-
setningu í SSV. Opið fim. og fös. kl. 16–18,
um helgar kl. 14–17.
VG Akureyri | Sex ungir listamenn sýna
verk sín til 14. október.
Þjóðarbókhlaðan | Brynjólfur Sveinsson
og 17. öldin í sögu Íslendinga. Sýningin
stendur til áramóta.
Þjóðmenningarhúsið | Sýning á tillögum
að tónlistarhúsi. Til 5. október.
Þjóðminjasafn Íslands | Í Bogasal Þjóð-
minjasafns Íslands stendur sýningin Mynd
á þili.
Þjóðminjasafn Íslands | Skuggaföll. Port-
rettmyndir Kristins Ingvarssonar. Til 2.
okt. Ljósmyndasyrpa Haraldar Jónssonar,
The Story of Your Life. Til 2. okt.
Þrastalundur, Grímsnesi | Reynir Þor-
grímsson til 5. október.
Húfur sem hlæja | Bergljót Gunnarsdóttir
opnar sýningu á mósaíkspeglum í versl-
uninni Húfur sem hlæja, Laugavegi 70, 1.
okt. kl. 16. Sýningin stendur til 22. okt.
Söfn
Gljúfrasteinn – Hús skáldsins | Gljúfra-
steinn er opinn kl. 10–17 alla daga nema
mánudaga í vetur. Hljóðleiðsögn um húsið,
margmiðlunarsýning og gönguleiðir. Nánar
á www.gljufrasteinn.is.
Listasafn Reykjavíkur, Hafnarhús | Opinn
skipulagsdagur kl. 10–17. Ráðgjafarfyr-
irtækið Alta heldur áfram með opinn
skipulagsdag fyrir alla landsmenn.
Þjóðminjasafn Íslands | Sýningin Eldur í
Kaupinhafn – 300 ára minning Jóns Ólafs-
sonar úr Grunnavík er samvinnuverkefni
Þjóðminjasafnsins og Góðvina Grunnavík-
ur-Jóns og fjallar um fræðimanninn Jón
Ólafsson (1705–1779), ævi hans og störf.
Til 1. des.
Skemmtanir
Cafe Catalina | Garðar Garðars spilar í
kvöld.
Klúbburinn við Gullinbrú | Hljómsveitin
Logar frá Vestmannaeyjum leikur fyrir
dansi.
VÉLSMIÐJAN, Akureyri | Dans-
hljómsveit Friðjóns leikur fyrir dansi í
kvöld. Húsið opnað kl. 22, frítt inn til mið-
nættis.
Mannfagnaður
Húnabúð | Á vegum Húnvetningafélagsins
í Reykjavík verður dagskrá á morgun, um
ævi og störf Jóns Lárussonar frá Hlíð á
Vatnsnesi, einn af virtustu kvæðamönnum
landsins. M.a. kveðskapur niðja hans, gest-
ir frá Kvæðamannafélaginu Iðunni o.fl.
Kaffisala. Húsið opnað kl. 13.30. Allir vel-
komnir.
Uppákomur
Kaffi Hljómalind | Prúttmarkaður kl. 13.
Bækur o.fl. Plötusnúður spilar vínilplötur á
meðan. Kl. 15 spilar MarkúsB á gítar og
syngur.
Sýningar
Reiðhöll Fáks í Víðidal | Haustsýning
Hundaræktarfélags Íslands verður í dag
og á morgun, kl. 8–17, báða dagana.
Fréttir
Púlsinn, ævintýrahús | Mæðgur á öllum
aldri koma saman í Púlsinum í Sandgerð-
isbæ kl. 13–17. Á dagskrá er dans, leiklist,
söngur, jóga og slökun.
Fundir
Hverfisráð Laugardals | Hverfisráðið býð-
ur eldri borgurum sem búsettir eru í Laug-
ardal á íbúaþing á Grand Hótel 3. október
kl. 12.30–16.30.
Kristniboðssalurinn | Aðalfundur Kristi-
legs félags heilbrigðisstétta verður 3.
október kl. 20. Jón Jóhannsson djákni
flytur hugvekju. Kaffiveitingar.
Lífeyrisþegadeild lögreglumanna | Fundur
lífeyrisþegadeildar Landssambands lög-
reglumanna verður í dag kl. 10, í Braut-
arholti 30.
OA-samtökin | OA-fundur fyrir matarfíkla
kl. 11.30–12.45, í Gula húsinu Tjarnargötu
20. Nýliðamóttaka kl. 11.
Safnaðarheimilið Kirkjuhvoll | Félag eldri
borgara í Garðabæ heldur félagsfund kl 14.
Kynntar verða tryggingar fyrir eldri borg-
ara svo og ávöxtunarkostir. Myndasýning
frá ferðum sumarsins og einsöngur. Boðið
upp á kaffiveitingar.
Fyrirlestrar
Zontaklúbbur Akureyrar | Björg Bjarna-
dóttir sálfræðingur heldur fyrirlestur kl.
14, í sal Zontaklúbbs Akureyrar, Að-
alstræti 54. Fyrirlesturinn nefnist
Draumar í þjóðtrú Íslendinga og er um
drauma Íslendinga fyrr og síðar. Eftir fyr-
irlesturinn verður opin spjaldasýning í
Minjasafninu á Akureyri um sama efni.
Sýningin stendur 1.–2. okt. og 8.–9. okt. kl.
14–17. Aðgangur ókeypis.
Námskeið
Áttun | Námskeið í streitustjórnun verður
8. október kl. 10–16, á Suðurlandsbraut 10,
2 hæð. Skráning á: info@life-naviga-
tion.com eða gsm 6638927. Nánar á:
www.lifenavigation.com.
Blues.is | Halldór Bragason leiðbeinir á
gítarnámskeiðum. Upplýsingar í síma
6975410.
Gigtarfélag Íslands | Þriggja kvölda
fræðslunámskeið fyrir fólk með vefjagigt
hefst 5. okt. Skráning og upplýsingar á
skrifstofu í síma 5303600.
Ráðstefnur
Viðskipta- og hagfræðideild HÍ | Ráð-
stefnan „Skapandi atvinnugreinar: Þýðing
þeirra fyrir hagvöxt og velmegun á Ís-
landi“ verður kl. 10–16. Ráðstefnan er
haldin af viðskipta- og hagfræðideild Há-
skóla Íslands, Viðskiptaháskólanum í
Kaupmannahöfn, Listaháskóla Íslands og
Iðntæknistofnun. Nánar um dagskrá á:
www.vidskipti.hi.is.
Útivist
Ferðafélagið Útivist | Jeppaferð um Von-
arskarð 7.–9. okt., sem hefst í Hrauneyjum
en þangað er ekið á föstudagskvöldi. Verð
4.200/4.900 kr. Sjá nánar www.utivist.is.
Þríhyrningur í Rangárvallasýslu, brottför
frá BSÍ kl. 9. Verð 2.900/3.400 kr. Sjá á
www.utivist.is.
Þingvellir | Á vegum þjóðgarðsins á Þing-
völlum verður ganga kl. 13. Gengið verður
frá Gjábakka að þjónustumiðstöðinni á
Leirum og er gengið yfir um þær gjár sem
afmarka sigdældina Hrafnagjá að aust-
anverðu og Almannagjá að vestan.
Staður og stund á mbl.is.
Nánari upplýsingar um viðburði dagsins er að
finna á Staður og stund undir Fólkið á mbl.is
Meira á mbl.is