Morgunblaðið - 19.11.2005, Síða 1

Morgunblaðið - 19.11.2005, Síða 1
STOFNAÐ 1913 314. TBL. 93. ÁRG. LAUGARDAGUR 19. NÓVEMBER 2005 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS mbl.is Ragnheiður Gröndal „Það er lyginni líkast að sjá hve hún hefur vaxið með hverri plötu“ | 71 Lesbók, Börn og Íþróttir Lesbók | Samtal við Þorstein frá Hamri  Ferðasaga Vesturports frá Moskvu Börn | Hvað veist þú um Harry Potter?  Verðlaunasaga Íþróttir | Jaxlarnir hans Jewells  Ingveldur Oddný styður Liverpool UMFERÐIN um Miklubraut og reyndar einn- ig víðar í borginni er farin að þyngjast mikið, sérstaklega síðdegis á föstudögum. Seinfarið getur verið um borgina á álagstímum og verða vegfarendur að gera ráð fyrir því. Arinbjörn Snorrason hjá lögreglunni í Arinbjörn segir að nýja Hringbrautin sé til bóta á ákveðnum vegarkafla en áfram sé t.d. mikill flöskuháls á Miklubrautinni. Þá hafi breyting á umferð umhverfis Hlemm haft þær afleiðingar að þar myndast nú umferð- arteppur á álagstímum. Reykjavík segir það ekki nýtt að umferðin sé þung á föstudögum en þó hafi umferðarþung- inn aukist jafnt og þétt undanfarin ár. Hann segir að minniháttar árekstrar verði oft í mik- illi umferð en slys á fólki séu þó sjaldgæf við slíkar aðstæður. Morgunblaðið/Brynjar Gauti Seinfarið á álagstímum Washington. AFP. | Embættismenn í Wash- ington sögðu í gærkvöldi að mikill árangur hefði náðst í samningaviðræðum um frelsi í flugi milli Bandaríkjanna og aðildarlanda Evrópusambandsins (ESB). John Byerly, aðstoðarutanríkisráðherra Bandaríkjanna, sagði að samkomulag hefði náðst um að öll bandarísk flugfélög fengju að „fljúga frá Bandaríkjunum til flugvalla í ESB-löndum og þaðan til annarra flug- valla“. Vélar evrópskra flugfélaga fengju einnig að fljúga til Bandaríkjanna og það- an til annarra landa. Samkomulagið verður nú borið undir ríkisstjórnir Bandaríkjanna og 25 aðild- arlanda ESB. Í yfirlýsingu frá samninga- nefnd ESB sagði að samkomulag um frelsi í flugi yfir Atlantshafið væri háð því skil- yrði að bandarísk stjórnvöld afnæmu regl- ur sem takmarka erlendar fjárfestingar í bandarískum flugfélögum. Stefaan de Rynck, talsmaður evrópsku samninganefndarinnar, sagði að gert væri ráð fyrir því að Bandaríkjastjórn lyki end- urskoðun á reglunum í janúar. Ákvæði hún að ganga að skilyrði ESB gæti sam- komulag legið fyrir á fyrsta fjórðungi næsta árs. Árangur í viðræðum um frelsi í flugi EF nýir raforkunotendur ganga ekki frá skrif- legum raforkukaupasamningi við sölufyrirtæki eftir áramót, þegar samkeppni verður komið á á raforkumarkaði, hækkar rafmagnsreikningur- inn um 50%. Halldór Jónsson hrl., sem tekið hefur þátt í að undirbúa reglugerðir um raf- orkumarkaðinn, segir þetta gert til að örva samkeppni á markaðinum. Stjórnvöld vilji koma í veg fyrir að orkusölufyrirtækin geti gengið að nýjum viðskiptavinum án þess að þeir hafi áður fengið tækifæri til að velja. markaði haldið saman og þær birtar á heima- síðu Neytendastofu. Ingibjörg Valdimarsdóttir, deildarstjóri markaðsdeildar Orkuveitu Reykjavíkur, segist fagna breytingunni, en hún segist þó ekki eiga von á harðri verðsamkeppni. Hún bendir á að flutningur og dreifing orkunnar taki til sín 45– 55% rafmagnsverðsins og þessi hluti verðsins verði áfram háður einkaleyfi. Framleiðslan á orkunni myndi 40–50% verðsins og í þessum geira ríki fákeppni þar sem Landsvirkjun eigi og reki langflestar virkjanir í landinu. Um næstu áramót verður komið á samkeppni á raforkumarkaði. Landsmenn, bæði heimili og fyrirtæki, geta þá keypt sér rafmagn af þeim sem þeir kjósa helst. Samkeppnin nær til orku- vinnslu og sölu, en flutningur og dreifing verður áfram háð einkaleyfi. Um áramótin verður raf- magnsreikningum skipt í tvennt milli flutnings og dreifingar annars vegar og vinnslu og sölu hins vegar. Þeir sem kjósa að færa orkuvið- skiptin til nýs aðila fá tvo reikninga, frá sölufyr- irtækinu og dreififyrirtækinu. Ýmislegt verður gert til að reyna að stuðla að virkri samkeppni á markaðinum. T.d. verður upplýsingum um orkuverð allra seljenda á Heimili og fyrirtæki geta valið sér orkusölufyrirtæki um næstu áramót Nýir notendur verða að velja sér seljendur Eftir Egil Ólafsson egol@mbl.is  Barátta um nýja notendur | 8 Tókýó. AP. | Hvítstorkur í Japan fékk gervigogg í gær eftir að hafa verið með brotinn gogg í eitt ár. Goggur storksins, sem nefnist Taisa, brotnaði þegar hann festist í vír fyrir ári. Storkurinn horaðist niður þar sem hann átti erfitt með að veiða fisk og hann gat ekki lengur samþýðst maka sínum vegna streitu, að sögn starfsmanna dýragarðs í borginni Akita í norðanverðu landinu. Tannlæknir festi plastgogg við enda goggsins með lími sem notað er við tannlækningar. Taisa tilheyrir storka- tegund sem er í útrýmingarhættu.AP Storkur fær gervigogg Vín. AFP, AP. | Stjórnvöld í Íran hafa afhent Alþjóðakjarnorkumálastofn- uninni (IAEA) skjal þar sem lýst er mikilvægum þætti í framleiðslu kjarnavopna, að sögn embættis- manna stofnunarinnar í gær. Íranar sögðust hafa fengið skjalið árið 1987 frá mönnum sem boðist hefðu til að selja þeim upplýsingar um framleiðslu kjarnavopna en til- boðinu hefði verið hafnað. Skjalið er rakið til pakistanska kjarnorkuvís- indamannsins A.Q. Khans, en hann lét Líbýumönnum í té upplýsingar um framleiðslu kjarnavopna sem þeir ákváðu síðar að eyða. Krefst skýringa Í skjalinu kemur fram hvernig breyta þarf úrani til að hægt sé að nota það í kjarnavopn. Gregory Schulte, sendiherra Bandaríkjanna í Vín, krafðist þess að Íranar útskýrðu hvers vegna þeir fengu skjalið, hvernig þeir hefðu notað upplýsing- arnar og hvers vegna ekki var skýrt frá skjalinu fyrr. Íranar hafa sagt að þeir hafi að- eins í hyggju að hagnýta kjarn- orkuna í friðsamlegum tilgangi. Stjórnvöld í Bandaríkjunum og fleiri löndum telja hins vegar að Íranar hafi reynt að þróa kjarnavopn og lík- legt er að þau noti skjalið til að knýja á um að stjórn IAEA vísi málinu til öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna. Íranar áttu gögn um smíði kjarnavopna UNGLINGAR sem eiga ættir að rekja til Asíu og eru nú búsettir á Íslandi segjast ekki líta á sig sem Íslendinga og upplifa mikla fordóma í sínu daglega lífi. Þetta kemur fram í samtali í Lesbók í dag við Lindu Dögg Hlöðversdóttur en hún hef- ur nýlokið við að skrifa meistaraprófs- ritgerð við The London School of Econ- omics and Political Science um áhrif fjölmiðla á sjálfsmynd útlendinga á Íslandi. Í henni ræddi hún við tólf unglinga af er- lendu bergi brotna sem búsettir eru hér á landi. „Enginn af unglingunum tólf sagðist vera íslenskur, hvorki þeir sem hafa flust hingað né þeir sem eru fæddir hér og hafa alist upp alfarið á Íslandi. Það fannst mér frekar slá- andi,“ segir Linda Dögg. | Lesbók Líta ekki á sig sem Íslendinga ♦♦♦

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.