Morgunblaðið - 19.11.2005, Blaðsíða 63
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 19. NÓVEMBER 2005 63
DAGBÓK
Akstur fólks í umferðinni
Í ÞÆTTINUM Silfri Egils sl.
sunnudag var mikið rætt um um-
ferðarmál í borginni, þunga umferð
á annatímum, hönnunarmál o.fl.
Sitt sýndist hverjum um þau
mál. Umferðarstofa hefur mikið
fjallað um og kvartað undan fólki
talandi í síma án nokkurs hand-
frjáls búnaðar við akstur bifreiðar.
Ég þurfti dag einn að fara vestur á
Seltjarnarnes og til baka inn í
Kleppsholt. Ég komst ekki hjá því
að veita nokkrum frekari eftirtekt
vegna undarlegs hátternis við
keyrslu, enda um nokkur vegamót
að fara. Í fimm tilfellum var um
þrjá menn og tvær konur að ræða,
öll á jeppum, og virtust ekki virða
umferðarreglur á nokkurn hátt.
Þau virtust öll upptekin af allt
öðru en keyrslu þeirra bifreiða
sem setið var í undir stýri. Hver
skyldi vera ástæðan? Jú, þau voru
öll með síma í hendi án nokkurs
búnaðar og þar af reykjandi, í
tveimur tilfellum með vindlinga í
hendi.
Mér finnst þetta mjög svo trufl-
andi, ofan á annað, þegar umferð
er þung og ýtrustu varkárni er
þörf til að forðast vandræði og til
að komast heilu og höldnu á leið-
arenda.
Hver ber ábyrgð á óhöppum
sem eingöngu skapast af fólki tal-
andi í síma með athyglina við allt
annað en akstur þess ökutækis
sem það situr við stjórn í?
Virðingarfyllst,
Svanur Jóhannsson.
Hneyksluð á Sylvíu Nótt
ÉG á ekki til orð yfir hvað ég er
hneyksluð á að þessi Sylvía Nótt
hafi verið kosin sjónvarpsmaður
ársins. Veit ég að svo er um fleiri.
Finnst mér eins og það sé verið að
gera grín að fólki með þessari
kosningu. Og hún á að vera
skemmtikraftur. Þarna voru fram-
bærilegir sjónvarpsmenn í boði
sem hlutu ekki kosningu – það er
eins og sé verið að gera grín að
venjulegu fólki. Finnst mér að það
eigi að endurskoða reglurnar um
kosningu ef taka á þessi verðlaun
alvarlega.
Kona í Austurbænum.
Spurning dagsins
HVERNIG stendur á því að Fram-
sóknarflokkurinn sem enginn kaus
skuli ráða öllu?
S.S.
Velvakandi
Svarað í síma 5691100 frá 10–12
og 13–15 | velvakandi@mbl.is
Morgunblaðið/RAX
Fáðu fréttirnar
sendar í símann þinn
1. d4 Rf6 2. c4 c5 3. d5 e5 4. Rc3 d6
5. e4 Be7 6. Bd3 Rbd7 7. Rge2 h5 8.
f3 h4 9. Be3 g6 10. Dd2 Kf8 11. a3
Kg7 12. b4 a6 13. Ra4 b6 14. Hb1
Rh7 15. bxc5 bxc5 16. O-O Bg5 17. f4
exf4 18. Rxf4 He8 19. Bc2 Kg8 20. h3
Re5 21. Rb2 Rf6 22. Hf2 Hb8 23. Dc3
Rfd7 24. Ba4 Df6 25. Dc2 De7 26.
Bd2 Bf6 27. Bc3 Bg7 28. Hbf1 Dg5
29. Kh1 He7 30. Rfd3 Dg3 31. Bxd7
Bxd7 32. Bd2 g5 33. Be1 Bxh3 34.
gxh3 Dxh3+ 35. Kg1 Rg4 36. e5 Rxf2
37. Dxf2
Staðan kom upp í heimsmeist-
arakeppni landsliða sem lauk fyrir
skömmu í Beer-Sheva í Ísrael. Levon
Aronjan (2724) hafði hvítt gegn kín-
versku skákkonunni Zhao Xue (2478).
Sá armenski hafði fórnað manni
nokkrum leikjum áður fyrir vænlega
sókn og nú var orðið tímabært að
veita hvítum náðarhöggið. 37... Hxb2!
38. Rxb2 Bxe5 39. Dd2 Bd4+ 40. Hf2
He3 gafst hvítur upp enda taflið gjör-
tapað. Í dag kl. 13.00 hefst hið bráð-
fjöruga Ottómót í Ólafsvík. Sætaferð-
ir verða farnar frá BSÍ kl. 10.00. Allir
skákáhugamenn eru hvattir til þess
að taka þátt í þessu mikla skák-
ævintýri.
SKÁK
Helgi Áss Grétarsson | dagbok@mbl.is
Svartur á leik.
Dýrkeypt slemmuleit.
Norður
♠ÁKG83
♥D75 V/Allir
♦107
♣ÁK8
Vestur Austur
♠1042 ♠75
♥G92 ♥106
♦Á8432 ♦K5
♣D3 ♣10976542
Suður
♠D96
♥ÁK843
♦DG97
♣G
Sagnir NS fóru víða úr böndunum í
spilinu að ofan, sem er frá raðkeppn-
inni á HM. Hollendingar keyrðu í
slemmu á móti bandarísku A-sveitinni
og unnu þegar ekki kom út tígull. En
í leik Ítala og B-sveitar Bandaríkj-
anna voru spiluð fimm hjörtu á báð-
um borðum – og það var einum of
mikið.
Vestur Norður Austur Suður
Bocchi Gitelman Duboin Moss
Pass 1 spaði Pass 2 hjört
Pass 3 hjörtu Pass 3 spaðar
Pass 3 grönd * Pass 4 hjörtu
Pass 5 lauf Pass 5 hjörtu
Allir pass
Sagnir eru að mestu eðlilegar; tvö
hjörtu er geimkrafa og hækkunin í
þrjú hjörtu þar með tilboð í slemmu.
Síðan taka við fyrirstöðuþreifingar og
það upplýsist ekki fyrr en á fimmta
þrepi að tvo efstu vantar í tígulinn.
Fátt er neyðarlegra en að fara nið-
ur á fimm í hálit eftir slemmuleit, en
það varð hlutskipti Moss í þetta sinn.
Bocchi kom út undan tígulásnum og
spilaði svo tígli í þriðja sinn, sem
Duboin trompaði með tíu. Þar með
var gosi vesturs öruggur slagur.
Vestur Norður Austur Suður
Hampson Fantoni Greco Nunes
Pass 1 spaði Pass 2 hjörtu
Pass 3 hjörtu Pass 4 lauf
Pass 4 spaðar Pass 5 hjörtu
Allir pass
Á hinu borðinu hlaut Nunes sömu
örlög eftir sambærilegar sagnir.
Hampson spilaði út litlum tígli og
spilið fór einn niður.
Annars vekur það furðu að Nunes
skyldi ekki passa fjóra spaða, því
hann veit þar og þá að tígullinn er op-
inn.
BRIDS
Guðmundur Páll Arnarson | dagbok@mbl.is
Traustur kaupandi óskar eftir einbýli-, rað- eða parhúsi í Suðurhlíðum
Reykjavíkur. Æskileg stærð 250-300 fm. Staðgreiðsla í boði.
Nánari upplýsingar veitir Sverrir Kristinsson, lögg. fasteignasali.
HÚSEIGN Í SUÐURHLÍÐUM
RVÍK ÓSKAST
Sverrir Kristinsson lögg. fasteignasali
Hænur eru
hermikrákur
Er á lista yfir 10 best skreyttu barnaækur
USA 2005.
Lesið verður upp úr bókinni kl. 14.00
Fiskur!
Einstök leið til að auka
vinnugleði og bæta starfsárangur
Hin mörgu andlit
trúarbragðanna
Kl. 15.15 mun
Þórhallur Heimisson kynna
metsölubók sína,
svara sprningum og árita.
Já, ég þori,
get og vil
Glæsilegur minnisvarði og hvatning
fyrir alla sem vilja betri heim.
Krassandi
samvera
Kl. 16.00 fagnar Salka
nýútkominni mydasögubók um þau
heiðurshjón Mimí og Mána
sem hafa verið daglegir
gestir á myndasíðu
Morgunblaðsins.
Laugardagsdagskrá í IÐU
Salka kynnir: fallegar-skemmtilegar-sögulegar og athyglisverðar, nýútkomnar bækur.
Lækjargata 2a s. 511-5001 opið 09 - 22 alla daga
fullt verð. 1.990,-
1.490,-
fullt verð. 2.290,-
1.590,-
fullt verð. 2.990,-
1.995,-
fullt verð. 3.990,-
2.795,-
fullt verð. 1.690,-
1.183,-
tilboðin gilda til 24.11.2005
Nýkomin heim
frá Þýskalandi!
Hjón með 2 börn, 3ára og 3ja mánaða,
leita að 3ja-4ra herb. íbúð á stór-Reykjavíkur-
svæðinu eða miðsvæðis í Hafnarfirði.
Erum reglusöm.
Vinsamlegast hafið samband við Guðrúnu
Rós í síma 823 9858 eða 587 0905.
Félag harmonikuunnenda í Reykjavík
og Þjóðdansafélag Reykjavíkur. F.H.U.R
Nú er lag í Glæsibæ
Árshátíðardansleikur kl. 22.30 í
kvöld.Harmonikuhljómsveit Geirmundar
Valtýssonar leikur.