Morgunblaðið - 19.11.2005, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 19.11.2005, Blaðsíða 30
30 LAUGARDAGUR 19. NÓVEMBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ MINNSTAÐUR SUÐURNES Vogar | Tekin hefur verið í notkun viðbygging við Stóru-Vogaskóla í Vogum á Vatnsleysuströnd. Við það nærri tvöfaldast flatarmál skólahús- næðisins. Viðbyggingin var tekin formlega í notkun við athöfn í skól- anum í gær. Íbúum Vatnsleysustrandarhrepps hefur fjölgað ört á undanförnum ár- um og sveitarstjórnin stöðugt verið að stækka skólann til að reyna að halda í við fjölgun barna. Fram kom hjá Jóhönnu Reynisdóttur sveitar- stjóra í gær að við markaðsátak sveitarstjórnarinnar hefði verið lögð mest áhersla á að ná til fjölskyldu- fólks. Það hefði gengið eftir og orðið til þess að hlutfall barna á grunn- skólaaldri væri orðið mun hærra en í öllum öðrum sveitarfélögum sem hafa þúsund íbúa eða fleiri. Fasteign á húsið og hreppurinn tekur það á leigu Undirbúningur að stækkun skól- ans og þarfagreining hófst í byrjun síðasta árs. Samið var við Eignar- haldsfélagið Fasteign ehf. um að byggja skólann og leigja hreppnum og um leið gerðist Vatnsleysustrand- arhreppur hluthafi í félaginu. Byggingaframkvæmdir hófust haustið 2004 og tókst að hefja kennslu þar í haust. Í gær afhenti Ragnar Atli Guðmundsson, fram- kvæmdastjóri Fasteignar ehf., Jó- hönnu sveitarstjóra og Snæbirni Reynissyni skólastjóra húsnæðið formlega. Við sama tækifæri var tekinn í notkun sparkvöllur á skólalóðinni. Fasteign annaðist þá framkvæmd sem fram fór samkvæmt sparkvalla- áætlun Knattspyrnusambands Ís- lands. Heildarkostnaður við fram- kvæmdina er áætlaður 248 milljónir króna. Steinunn Kristjánsdóttir á Teikni- stofu Halldórs Guðmundssonar teiknaði húsið. KS-verktakar byggðu húsið en samið var við fyr- irtækið eftir útboð á verkinu. Fram kom í gær að aðstaða fyrir starfsfólk og sameiginleg aðstaða fyrir nemendur sem nú hefur verið komið upp dugar fyrir 400 til 500 nemenda skóla en nú eru liðlega 200 nemendur við skólann. Aðeins þarf að bæta við kennslustofum þegar nemendum fjölgar og er gert ráð fyr- ir þeim möguleika við hönnun við- byggingarinnar. Þá er í skólanum fjölnota salur, Tjarnasalur, sem á að nýtast sem félagsheimili Voga- manna. Svigrúm til breytinga Snæbjörn Reynisson skólastjóri kvaðst ánægður með nýja húsnæðið og sagði að það skipti skólann miklu máli. Skapast hefðu möguleikar til breytinga og þróunar á skólastarfi. Í vetur hefði verið hægt að gera ým- islegt sem ekki var hægt í fyrravet- ur. Nefndi Snæbjörn sveigjanlegri kennsluhætti og fjölbreyttari sem miðuðu að því að veita hverjum og einum nemanda sem besta þjónustu, en út á það ætti skólastarf að ganga. Aðeins væri búið að taka fyrsta skrefið og starfið yrði þróað áfram þannig að skólinn yrði ennþá betri. Húsnæði Stóru-Vogaskóla á Vatnsleysuströnd tvöfaldast með viðbyggingu Nemar fái sem besta þjónustu Morgunblaðið/Helgi Bjarnason Lyklavöldin afhent Ragnar Atli Guðmundsson, lengst til hægri, afhenti Snæbirni Reynissyni og Jóhönnu Reynisdóttur lyklavöldin að skólanum. Sungið á dönsku Nemendur úr Stóru-Vogaskóla sungu lag á dönsku við opnunarathöfnina. Tilefnið er dönskunám þeirra í vetur. Eftir Helga Bjarnason helgi@mbl.is Sandgerði | Þjóðsögur og ævintýri svifu yfir vötnunum á sal Grunn- skóla Sandgerðis í gær þegar nem- endur sýndu foreldrum og öðrum gestum afrakstur þemaviku. Við sama tækifæri var opnað nýtt tölvu- ver skólans og nýr vefur skólans. Þjóðsögur og ævintýri voru við- fangsefni barnanna á þemavikunni nú í ár. Pétur Brynjarsson skóla- stjóri segir að nemendum hafi verið blandað saman þannig að fimmtán manna aldursblandaðir hópar hafi unnið saman að margvíslegum verkefnum. Nefnir hann að búnar hafi verið til nýjar þjóðsögur, fjallað um þjóðsögur í heimabyggð og gerðir um þær leikþættir og þjóðlög sungin. Búin voru til vegg- teppi, unnið í H.C. Andersens- smiðju og þæfð ull til að nota við smíði tröllkarla úr steini, svo nokk- uð sé nefnt. Allir hóparnir fengu að fást við einhvern þátt allra verkefn- anna. Pétur segir að vel hafi til tekist. „Tilgangurinn með þessum þema- vikum er að brjóta upp skólastarfið. Einnig að stuðla að innbyrðis kynn- um nemenda og skapa samkennd og vinsamlegt andrúmsloft í skólan- um,“ segir Pétur og telur að það hafi tekist. Segir hann að eldri nem- endurnir hafi gengið í það að leið- beina og hjálpa þeim yngri í hóp- unum við verkefni þemavikunnar. Fjöldi foreldra og annarra gesta mætti á kynningu á verkefnum vik- unnar sem fram fór á sal skólans í gær. Þar voru einnig börnin í elstu deild leikskólans í Sandgerði en þau hefja skólagöngu í grunnskólanum næsta haust. Nýtt tölvuver Allur tölvukostur skólans, bæði kennara og nemenda, hefur verið endurnýjaður og var tækifærið not- að til að opna nýtt tölvuver skólans og nýja heimasíðu sem er á slóðinni sandgerdisskoli.is. Pétur segir að aðstaðan sé orðin mjög góð. Segja þjóðsögur og ævintýri í Sandgerði Morgunblaðið/Reynir Sveinsson Ævintýri Börnin fylgdust með þegar félagar þeirra kynntu afrakstur þemavikunnar. Fjöldi gesta var á sal Sandgerðisskóla við athöfnina. Reykjanesbær | Stjórn Fasteignar ehf., sem á mestallt skóla- og íþrótta- húsnæði Reykjanesbæjar auk ann- arra opinberra bygginga, hefur ákveðið að lækka leigugreiðslur vegna eldri eigna sem félagið hefur keypt. Við það lækka leigugreiðslur Reykjanesbæjar um 14 milljónir á næsta ári. Reykjanesbær á 35% í Fasteign ehf. á móti sjö öðrum sveitarfélögum og tveimur fjármálastofnunum. Hlutur bæjarins er 35%. Á Suður- nesjum á Fasteign ehf. skóla- og íþróttamannvirki, einnig í Vogum og Sandgerði. Í fréttatilkynningu frá Reykja- nesbæ kemur fram að rekstur fé- lagsins hafi gengið mjög vel. Þess vegna hafi eigendur félagsins ákveð- ið að lækka leigugreiðslur vegna eldri eigna úr 0,73% af kaupverði í 0,693%. Þrátt fyrir það nái félagið þeirri arðsemiskröfu sem áætlanir gerðu ráð fyrir. Leiga lækkar um 14 millj- ónir króna Keflavík | Leikfélag Keflavíkur frumsýndi í Frumleikhúsinu í gær- kvöldi verkið Trainspotting eftir Irv- ine Welsh. Megas þýddi verkið og Jón Mar- inó Sigurðsson leikstýrir. Sýningin er bönnuð innan 14 ára en í sýning- unni eru atriði sem gætu lagst illa í ungar sálir. Næstu sýningar verða um helgar fram að jólum og hugsanlega eitt- hvað eftir jól. Trainspotting í Frumleikhúsinu ♦♦♦
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.