Morgunblaðið - 19.11.2005, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 19.11.2005, Blaðsíða 4
Sesselja Sveinsdóttir hélt upp á 100 ára afmæli sitt í gær Morgunblaðið/Kristín Ágústsdóttir Sesselja Sveinsdóttir tekur við hamingjuóskum frá barnabarnabarni sínu, Andreu Björk Guðbjartsdóttur. Neskaupstaður | Sesselja Sveins- dóttir frá Firði í Mjóafirði hélt upp á 100 ára afmæli sitt í matsal á heimili sínu í íbúðum aldraðra í Breiðabliki í Neskaupstað í gær. Sesselja er fædd og uppalin í Mjóa- firði, dóttir hjónanna Önnu Þor- steinsdóttur og Sveins Ólafssonar alþingismanns og bónda í Firði. Sesselja segist hafa búið í Mjóa- firði í tuttugu ár, en þá fluttist hún til Norðfjarðar þar sem hún hefur búið síðan. Anna giftist Benedikti Sveinssyni og áttu þau saman tvö börn: Önnu og Svein eldri. Þótt sjón og heyrn séu farnar að daprast er Sesselja hin hressasta og hefur allt fram á þennan dag dundað sér við að prjóna og ráða krossgátur „Ég prjónaði mína síð- ustu lopapeysu 95 ára, en þá var sjónin orðin svo slæm að ég réð ekki lengur við hvíta bandið. Þá byrjaði ég að prjóna togpeysur.“ Verst þykir henni nú að hafa misst sjónina eftir byltu fyrir skömmu, en síðan þá hefur hún átt erfitt með að ráða krossgátur, sem henni þótti afskaplega gaman. Sesselja vann öll hefðbundin sveitastörf þegar hún bjó í Mjóa- firði en eftir að hún fluttist til Norðfjarðar vann hún lengi við fiskvinnslu í frystihúsi Síld- arvinnslunnar. Sesselja segist ekki hafa verið mjög heilsuhraust þeg- ar hún var ung manneskja, en heilsan var betri seinnipart ævinn- ar. Aðspurð taldi Sesselja það eft- irminnilegast á þessum hundrað árum hversu lánsöm hún hefði verið í lífinu, þó að ýmislegt hafi bjátað á. „Ég hef ekki misst neitt, hef fengið að halda mínu. Eins og hjá öðrum hafa skipst á skin og skúrir, en lífið hefur leikið við mig.“ Sesselja fékk gjafir og kveðjur frá fjölda fólks og meðal annars sendi Halldór Ásgrímsson for- sætisráðherra henni blómvönd með þökkum fyrir framlag hennar til þjóðfélagsins og dyggan stuðn- ing við Framsóknarflokkinn. „Lífið hefur leikið við mig“ Eftir Kristínu Ágústsdóttur 4 LAUGARDAGUR 19. NÓVEMBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR ERÓTÍSKUR GÆÐAKRIMMI www.jpv.is „Spennandi og plottið flókið … snjall textahöfundur.“ Sigríður Albertsdóttir / DV Súsanna Svavarsdóttir fer hér ótroðnar slóðir. Æsileg, blóðheit spennusaga sem ögrar viðteknum gildum og þenur taugar lesandans til hins ýtrasta. „Þessa bók leggur maður ekki frá sér ... frábær ... dásamlegt tækifæri fyrir konur að ná í sjálfar sig.“ Úr lesendabréfi ALLS 49 einstaklingar reyndust heimilislausir hér á landi í janúar sl., og dveljast langflestir þeirra í Reykjavík, samkvæmt skýrslu sam- ráðsnefndar félagsmálaráðherra um málefni heimilislausra. Í þessum hópi voru fimm konur. Árni Magn- ússon félagsmálaráðherra upplýsti þetta á Alþingi í gær, í svari sínu við fyrirspurn Jóhönnu Sigurðardóttur, þingmanns Samfylkingarinnar. Ráðherra sagði að samráðs- nefndin legði m.a. til að opnuð yrðu tvö heimili í Reykjavík fyrir samtals sextán húsnæðislausa einstaklinga og að þar yrði sérhæfð og öflug fé- lags- og heilbrigðisþjónusta. Gert væri ráð fyrir því að rekstur fyrra heimilisins hæfist á árinu 2006 og hins heimilisins ári síðar. Lagt er til að ríki og Reykjavíkurborg fjár- magni heimilin sameiginlega. Karlmenn milli þrítugs og fimmtugs Fram kom í máli ráðherra að fyrr- greindur 49 manna hópur ætti ekki í nein hús að venda; þetta væri úti- gangsfólk sem héldi flest til á götum Reykjavíkurborgar og gisti eina nótt í einu á hverjum stað, í t.d. gistiskýli, í yfirgefnu húsnæði eða hjá lögregl- unni. Flestir í hópnum eru einhleypir karlmenn á milli þrítugs og fimm- tugs, sagði ráðherra, og þeir hafa lengi átt samskipti við Félagsþjón- ustuna í Reykjavík. Ráðherra sagði að ekki lægju fyrir nákvæmar upplýsingar um heilsufar þessara einstaklinga. Um 74% af hópnum væru þó öryrkjar og lang- flestir glímdu bæði við fíkn og alvar- legar geðraskanir. Jóhanna Sigurðardóttir benti á að í svari fjármálaráðherra vorið 2004 hefðu 102 einstaklingar verið álitnir heimilislausir það árið. Hún furðaði sig á að fækkað hefði í hópnum frá þeim tíma. Ráðherra sagði hins veg- ar að sveitarfélögin hefðu haft til- hneigingu til að telja með heimilis- lausum fólk sem í raun hefði húsaskjól en byggi við erfiðar að- stæður. Alls 49 einstak- lingar á götunni SIGURJÓN Stefáns- son, fyrrverandi skip- stjóri, lést á fimmtudag, 85 ára að aldri. Hann var einn af kunnustu togaraskipstjórum landsins á seinni hluta síðustu aldar. Sigurjón fæddist 15. ágúst 1920 á Hólum í Dýrafirði. Hann lauk fiskimannaprófi frá Stýrimannaskólanum árið 1945. Á námsárun- um var Sigurjón til sjós, m.a. á bv. Belgaum og bv. Fylki. Sigurjón varð skipstjóri á nýsköpunartogaranum Ingólfi Arnar- syni RE 201 árið 1952. Hann var óslit- ið með Ingólf í 20 ár eða þar til hann tók við skuttogaranum Bjarna Bene- diktssyni og síðar nýj- um Ingólfi Arnarsyni. Árið 1977 kom hann í land og tók við fram- kvæmdastjórn Togara- afgreiðslunnar hf. Hann var um árabil í stjórn skipstjóra- og stýri- mannafélagsins Ægis og í Sjómannadagsráði. Sigurjón var félagi í Oddfellowreglunni. Sigurjón var sæmdur Riddarakrossi hinnar íslensku fálkaorðu árið 1977. Einnig var hann sæmdur heiðursmerki Sjómanna- dagsins árið 1983. Eftirlifandi eiginkona Sigurjóns er Ragnhildur Jónsdóttir og eignuðust þau fjögur börn. SIGURJÓN STEFÁNSSON Andlát ÖRYRKJAR, ellilífeyrisþegar og at- vinnulausir munu fá í sinn hlut þá ein- greiðslu sem aðilar vinnumarkaðar- ins sömdu um sín á milli í vikunni. Tekin var ákvörðun um þetta á fundi ríkisstjórnarinnar í gær, og er miðað við að hún komi til útborgunar hinn 1. desember nk. Í samkomulagi Alþýðusambands- ins og Samtaka atvinnulífsins frá því á þriðjudag fólst m.a. að launþegar sem eru í fullu starfi fái 26 þúsund króna eingreiðslu um næstu mánaða- mót. Samkvæmt upplýsingum úr for- sætisráðuneytinu er ekki búið að reikna út endanlegan kostnað við ein- greiðslu til öryrkja, ellilífeyrisþega og atvinnulausra, en reiknað sé með því að kostnaður ríkisins verði um 750 milljónir króna. Öryrkjabandalag Íslands (ÖBÍ) fagnaði í gær þessari ákvörðun rík- isstjórnarinnar. Í yfirlýsingu lýsir ÖBÍ yfir fullum vilja til samráðs við stjórnvöld um málefni fatlaðra eins og kveðið er á um í 1. grein laga um mál- efni fatlaðra og ítrekar að ÖBÍ verði boðið að taka þátt í fyrirhuguðu nefndarstarfi um breytingar á ör- orkumati. Mikið fagnaðarefni Margrét Margeirsdóttir, formaður Félags eldri borgara, sagði þessa ákvörðun ríkisstjórnarinnar mikið fagnaðarefni. Þeir ellilífeyrisþegar sem ekki fá tekjutryggingu, t.d. vegna greiðslna úr lífeyrissjóði, munu ekki fá eingreiðsluna þar sem hún er reiknuð sem álag á tekjutrygginguna. Margrét segir ljóst að sá hópur sem lægstar tekjurnar hafi, þeir sem fái tekjutryggingu og tekjutryggingar- auka, muni njóta góðs af þessu. Bótaþegar fá eingreiðslu ÁRNI M. Mathiesen, fjármálaráð- herra, kynnti frumvarp til laga um breytingu á lögum um olíugjald og kílómetragjald á ríkisstjórnarfundi í gærmorgun. Að sögn Árna felur frumvarpið í sér að tímabundin lækkun á lögbundnu gjaldi á dísil- olíu gildi til 1. júlí á næsta ári í stað þess að áður var kveðið á um tíma- bundna lækkun til áramóta. Að sögn Árna er markmiðið með tíma- bundinni lækkun olíugjaldsins að vega upp á móti hækkun á heims- markaðsverði á dísilolíu. Tímabundin lækkun olíugjalds lengd
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.