Morgunblaðið - 19.11.2005, Blaðsíða 2
ÖLL olíufélögin hafa lækkað
verð á eldsneyti undanfarna
daga, sum jafnvel þrjá daga í
röð. Hafa bensín og dísilolía
lækkað um allt að níu kr. á lítr-
ann síðustu sex vikur. Var verð
á 95 oktana bensíni í gær 104,5
kr. lítrinn hjá Orkunni, ÓB og
Atlantsolíu og 104,6 kr. hjá Egó.
Algengasta verð í sjálfs-
afgreiðslu hjá Essó, Olís og
Skeljungi var 106 kr.
Hæst fór verð á 95 oktana
bensíni í tæplega 123 kr. í sept-
ember á þessu ári en þá náði
heimsmarkaðsverð á olíu há-
marki. Var tunnan af hráolíu þá
seld á 67 dollara en í dag kostar
hún um 55 dollara.
Á heimasíðu Olíufélagsins
Essó má sjá lista yfir breyting-
ar eldsneytisverðs allt til ársins
2001.
Í ár hefur listinn verið end-
urnýjaður 68 sinnum, þ.e. elds-
neytisverði breytt, en árið 2003
voru verðbreytingar 33. Árið
2002 voru verðbreytingar 17 og
þar af voru fimm eftir að Atl-
antsolía tók til starfa í október
það ár. Allt til ársins 1990 voru
verðbreytingar 12 að jafnaði á
ári en þá var algengt að olíufé-
lögin endurskoðuðu verðskrá
sína um hver mánaðamót.
Tíðar verðlækkanir
á bensíni undanfarið
Verðbreytingar hjá Essó hafa verið 68 á árinu
Ökumaður jeppans þræddi fjallshlíðar til þess að leita rjúpna og stórskemmdi gróður og girðingar.
LÖGREGLAN á Húsavík hefur nú til rann-
sóknar mjög ófyrirleitna aksturshegðun jeppa-
manns austan við Kópasker fyrr í vikunni. Vitni
sáu til tveggja manna á jeppa aka um vegi og
vegleysur af ótrúlegri ruddamennsku og mun
lögreglan yfirheyra mennina báða sem vitað er
hverjir eru.
Eftir könnunarleiðangur um vettvang sagði
varðstjóri lögreglunnar að ljóst væri að jeppinn
hefði þrætt fjallshlíðar og farið upp í skorninga
og gil og móa, jafnvel ekið niður skógrækt-
argirðingar. Var þetta gert til að komast að
kjarri vöxnum fjallshlíðum til að leita rjúpna.
Varðstjóri lögreglunnar segist margt hafa séð
í gegnum tíðina en þetta sé með því ófyrirleitn-
asta sem um getur varðandi umgengni bílstjóra.
Vitnum sem sáu til mannanna var nóg boðið og
kærðu þá til lögreglunnar.
Óku niður skógræktargirð-
ingar af ruddamennsku
2 LAUGARDAGUR 19. NÓVEMBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
BORGA 50% MEIRA
Nýir raforkunotendur sem ekki
ganga frá skriflegum raforkukaupa-
samningi eftir áramót, þegar sam-
keppni verður tekin upp á mark-
aðinum, munu þurfa að greiða 50%
hærri upphæð en þeir sem gera
skriflegan samning. Er þetta gert til
að örva samkeppni á markaði.
Skaðlegur samruni
Samruni 365 ljósvakamiðla og
Saga film hefur skaðleg áhrif á sam-
keppni að mati Samkeppniseftirlits-
ins, sem setur skilyrði í átta liðum
fyrir samrunanum, sem eigendur
365 ljósvakamiðla hafa fallist á.
Tugir Íraka féllu
Minnst 75 manns féllu í sprengju-
tilræðum í Írak í gær. Tveir menn
með sprengjubelti á sér sprengdu
sig í loft upp í tveimur moskum síja-
múslíma í Khanaqin, norðaustan við
Bagdad, skömmu eftir að tvær bíl-
sprengjur sprungu fyrir utan hótel í
höfuðborginni.
Áttu gögn um kjarnavopn
Stjórnvöld í Íran hafa afhent Al-
þjóðakjarnorkumálastofnuninni (IA-
EA) skjal þar sem lýst er mik-
ilvægum þætti í framleiðslu
kjarnavopna. Þykir skjalið renna
stoðum undir ásakanir um að Íranar
hafi reynt að smíða slík vopn á laun.
Y f i r l i t
Í dag
Fréttaskýring 8 Umræðan 37/47
Úr verinu 14 Kirkjustarf 56/57
Viðskipti 18/19 Skák 47
Erlent 22/24 Minningar 50/55
Akureyri 28 Myndasögur 62
Suðurnes 30 Dagbók 62
Landið 27 Víkverji 62
Árborg 31 Staður og stund 63
Daglegt líf 34/35 Velvakandi 63
Ferðalög 36 Ljósvakamiðlar 74
Menning 32/33 Staksteinar 75
Forystugrein 38 Veður 75
* * *
Kynningar – Morgunblaðinu fylgir
blaðið Slökkviliðsmaðurinn frá
Landssambandi slökkviliðs- og
sjúkraflutningsmanna.
Morgunblaðið Kringlunni 1, 103 Reykjavík. Sími 5691100 Innlendar fréttir frett@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Erlendar fréttir Ásgeir Sverrisson, fréttastjóri,
asv@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Björn Jóhann Björnsson, fréttastjóri, bjb@mbl.is Úr verinu Hjörtur Gíslason, fréttastjóri, hjgi@mbl.is Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Menning menning@mbl.is Orri Páll Ormarsson, ritstjórnarfulltrúi,
orri@mbl.is Inga Rún Sigurðardóttir, ingarun@mbl.is Umræðan|Bréf til blaðsins Magnús Finnsson, fulltrúi ritstjóra, magnus@mbl.is Guðlaug Sigurðardóttir, gudlaug@mbl.is Minningar minning@mbl.is Hilmar P. Þormóðsson, Stefán Ólafsson Dagbók|Kirkju-
starf Ellý H. Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp|Sjónvarp Auður Jónsdóttir, dagskra@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is
!
"
#
$
%
&
'() *
+,,,
í fylgd
með fullorðnum
www.jpv.is
steinunn ólína
„Það er kraftur í þessari frásögn.“
Halldór Guðmundsson / FRÉTTABLAÐIÐ
„Blússandi húmor...fín saga.“
Sigríður Albertsdóttir / DV
Metsö lu l i s t i
Eymundsson
Aða l l i s t i / 16. nóv
„[Steinunn] kann galdurinn við að hrífa lesandann með
sér, ýta við honum og heilla hann upp úr skónum.“
Friðrika Benónýs / MORGUNBLAÐIÐ
Jólaljósin kveikt
í miðborginni
Í DAG verða ljós á jólaskreytingum á helstu versl-
unargötum miðborgarinnar tendruð. Safnast verð-
ur saman við söng og hljóðfæraslátt á Hlemmi kl.
16.15. Þar verður krýndur svokallaður miðborg-
arstjóri sem mun kveikja jólaljósin ásamt Alfreð
Þorsteinssyni, forseta borgarstjórnar. Síðan verð-
ur gengið niður Laugaveginn og að Þjóðleikhúsinu
þar sem jólasveinar, harmonikkuleikarar, söng-
fólk og lúðrablásarar skemmta og taka þátt í ljósa-
göngunni. Fremst fer einn af elstu bílum Slökkvi-
liðs höfuðborgarsvæðisins og á hann að minna fólk
á að fara varlega með eld um hátíðarnar.
Verslanir í miðborginni verða opnar til kl. 18.
Tvö slys við Hellis-
heiðarvirkjun
STARFSMAÐUR Hellisheiðarvirkjunar slasaðist
alvarlega um miðjan dag í gær þegar hann varð
undir 500 kg steypumóti á vinnusvæðinu. Verið
var að hífa steypumótið þegar slysið varð og stóð
maðurinn á jörðu niðri þegar mótið skall á honum.
Hann var fluttur á slysadeild Landspítalans en að
sögn læknis þar hlaut maðurinn m.a. mjaðma-
grindarbrot. Hann var þó ekki í lífshættu og átti að
gangast undir aðgerð í gærkvöldi. Tildrög slyssins
eru í rannsókn hjá lögreglunni á Selfossi og Vinnu-
eftirliti ríkisins.
Fyrr um daginn varð annað slys við Hellisheið-
arvirkjun er starfsmaður slasaðist lítillega þegar
hann féll úr bíl á ferð.
FRESTUR til að skila inn fram-
lögum í undankeppni söngva-
keppni evrópskra sjónvarpsstöðva
rann út á miðnætti í gær, en alls
bárust innlegg frá 240 til 250 höf-
undum. Keppnin fer fram í febr-
úar næstkomandi, en að sögn
starfsmanna framleiðslufyrirtæk-
isins Basecamp mun liggja fyrir
hvaða lög komast í undanúrslit
eftir rúman mánuð.
Rafn Rafnsson, framleiðslustjóri
hjá Basecamp, segir áhugann á
keppninni greinilega mjög mikinn.
„Við höfum orðið vör við gríð-
arlegan áhuga núna á síðustu dög-
unum,“ segir Rafn. „Þetta fór
hægt og rólega af stað og kom eitt
og eitt lag, en í gær og í dag hef-
ur þetta komið í bunkum og um-
slögin skipta hundruðum.“
Samkvæmt áætlun er hug-
myndin að vera með þrjá undan-
úrslitaþætti þar sem verða átta
lög í hverjum þætti, samtals tutt-
ugu og fjögur lög. Síðan keppa
þau tólf lög sem komast áfram á
úrslitakvöldi. „Ég myndi halda að
það væri um mánuður þar til ein-
hverjar fréttir fara að berast frá
dómnefnd um hvaða lög fara í
undanúrslitin,“ segir Rafn. „Þá
hafa lagahöfundar möguleika á að
útsetja lagið og ganga frá því til
flutnings, sem mjög líklega lendir
á hljómplötu. Höfundum verður
boðið upp á það að útsetja lögin
og taka þau upp í hljóðupp-
tökuverum Basecamp. Þeir hafa
fullt vald til að fá bæði hljóðfæra-
leikara og flytjendur, hvort sem
um er að ræða söng eða hljóð-
færi.“
Yfir 200 lög bárust í
undankeppni Evróvisjón
Eftir Svavar Knút Kristinsson
svavar@mbl.is
MISMUNUNIN sem felst í útdeilingu sérstakrar
eingreiðslu samkvæmt samkomulagi Alþýðusam-
bands Íslands og Samtaka atvinnulífsins er eins-
dæmi í sögu íslenskrar verkalýðshreyfingar, að
mati sambandsstjórnarfundar Samiðnar.
Í samþykkt fundarins í gær er lýst yfir megn-
ustu óánægju „með samkomulag forsendunefndar
ASÍ og SA um útdeilingu á sérstakri eingreiðslu.
Fundarmenn telja þá mismunun sem í henni felst
vera einsdæmi í sögu íslenskrar verkalýðshreyf-
ingar. Einnig benda fundarmenn á að líklega er
þetta í fyrsta skipti í sögunni að þeir sem skipt
hafa um starf á árinu hafi jafnframt verið að segja
upp hluta af launahækkunum framtíðarinnar“.
Vonbrigði með drög
Þá var á fundinum lýst yfir ánægju með þá
ákvörðun stjórnvalda að fallast á að sett verði lög
um starfsmannaleigur en jafnframt lýst yfir von-
brigðum með fyrirliggjandi drög að frumvarpi til
laga þar að lútandi. Sambandsstjórnin telji mik-
ilvægt að í lögum um starfsmannaleigur og tengd-
um lögum sé ábyrgð notendafyrirtækja skýr hvað
varði upplýsingagjöf um starfskjör og starfsrétt-
indi til stéttarfélaga og að starfskjör séu í sam-
ræmi við kjarasamninga og lög.
Segja mis-
munun vera
einsdæmi
♦♦♦
♦♦♦