Morgunblaðið - 19.11.2005, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 19.11.2005, Blaðsíða 36
36 LAUGARDAGUR 19. NÓVEMBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ DAGLEGT LÍF | FERÐALÖG Sex konur, sem allar erustarfsmenn Sparisjóðsins íKeflavík, brugðu sér af bæum síðustu helgi. Þær ákváðu að taka sér langa helgar- rispu í námunda við páfann, nánar tiltekið í ítölsku höfuðborginni Róm. Þær flugu í beinu leiguflugi á fimmtudegi með Úrval-Útsýn og mættu svo endurnærðar í vinnuna á ný á þriðjudagsmorgni. Þetta er ald- eilis ekki í fyrsta skipti sem ferða- þráin gerir svona rækilega vart við sig í Sparisjóðnum því vinnufélag- arnir hafa það á stefnuskránni að fara saman út fyrir landsteinana á tveggja ára fresti. Til að markmiðin gangi eftir hafa þær stofnað með sér ferðasjóð, sem í rennur smá upphæð á útborgunardögum. „Þetta er í fjórða skiptið sem þessi hópur ferðast saman og það er alltaf voða gaman hjá okkur,“ sagði Sigurlaug Gunnarsdóttir í samtali við Ferðablaðið að aflokinni vel heppnaðri Rómarförinni. „Í fyrsta skiptið fórum við til Mall- orka. Í annað skiptið var ferðinni heitið að Gardavatn- inu á Ítalíu og í þriðja skiptið voru frændur okkar í Kaup- mannahöfn sóttir heim í jóla- mánuðinum sem er yndis- legur tími þar.“ Pompei og Péturskirkjan Þær stöllur fóru í tvær skipulagðar skoðunarferðir á meðan á Rómardvölinni stóð. Á föstudeginum var lagt í hálfs dags ferð í Vatík- anið, sem dregur að sér tíu þúsund gesti daglega, Vatík- ansafnið, Sixtusar kapelluna og Péturskirkjuna, sem er stærsta og að margra mati, fegursta kirkja heims. Á sunnudeginum ákvað hópurinn svo að takast á hendur dagsferð til hafnarborgar- innar Pompei, sem fór undir ösku árið 79 eftir Krist í eldgosi þegar eldfjallið Vesúvíus gaus. Þar skoð- uðu þær óviðjafnanlegar og heilleg- ar fornminjar Rómverja frá keisara- tímanum. Margt fallegt í búðunum „Svo má ekki gleyma því sem líka er bráðnauðsynlegt í svona konu- ferðum. Við vorum nefnilega einkar duglegar við að mæla göturnar og kíkja í búðirnar. Margt flott og fal- legt er til í búðunum í Róm og þar er sömuleiðis hægt að gera góð kaup þar sem evran er okkur hagstæð nú um mundir. Útikaffihúsin höfðu líka visst aðdráttarafl enda var veðrið hreint himneskt þessa daga. Hitinn fór yfir 20 stig á daginn og niður í 10 stig á kvöldin. Kvöldunum eyddum við svo á góðum veitingahúsum og mæli ég sérstaklega með skemmti- legum veitingastað, sem heitir II Brillo Parlante og er staðsettur í skemmtilegum kjallara með alls konar litlum herbergjum hvert inni af öðru. Þar fengum borðuðum við m.a. perur með parmaosti í forrétt og safaríka nautasteik í aðalrétt,“ segir Sigurlaug og bætir að lokum við að hópurinn hafi haldið til á Del Mellini, sérlega glæsilegu fjögurra stjörnu hóteli í göngufjarlægð við miðborgina og Vatíkanið.  RÓM | Vinnufélagar hjá Sparisjóðnum í Keflavík tóku sér langt helgarfrí og flugu á slóðir páfans „Það er alltaf gaman hjá okkur“ Ferðafélagarnir og íslensku bankastarfsmennirnir við bankainngang fortíðarinnar í Pompei, frá vinstri: Oddný Leifsdóttir, Eydís Eyjólfsdóttir, Ragnheiður Halldórs- dóttir, Dagbjört Bragadóttir, Hjördís Brynleifsdóttir og Sigurlaug Gunnarsdóttir. Ítalskir þjónar á veitingahúsinu L’ambsciata D’abruzzo í Paroli-hverfi sprella við gesti sína. Í Pompei, borginni sem grafin var upp úr ösku. Þær vinna saman og hafa stofnað ferðasjóð til að nota í spennandi ferðalög til útlanda ann- að hvert ár. Jóhanna Ingvarsdóttir forvitn- aðist um nýafstaðna Rómarferð. join@mbl.is Listaverk við Vatikanið. frá11.300 3 dagar í Danmörku Opel Corsa eða sambærilegur kr. - ótakmarkaður akstur, kaskó, þjófavörn, flugvallargjald og skattar. ÍS LE N SK A A U G LÝ SI N G A ST O FA N /S IA .I S H ER 30 00 9 10 /2 00 5 Sími: 50 50 600 www.hertz.is Bókaðu bílinn heima - og fáðu 500 Vildarpunkta www.gisting.dk sími: 0045 3694 6700 Ódýr og góð gisting í hjarta Kaupmannahafnar Ódýrari bílaleigubílar fyrir Íslendinga. Bílar frá dkr. 1.975.- pr. viku. Innifalið í verði; ótakmarkaður akstur, allar tryggingar, engin sjálfsábyrgð. ( Afgr.gjöld á flugvöllum. ) Höfum allar stærðir bíla, 5 - 7 manna og minibus 9 manna og rútur með/án bílstjóra Sumarhús Útvegum sumarhús í Danmörku af öllum stærðum - frá 2ja manna og uppí 30 manna hallir. Valið beint af heimasíðu minni. Pantið núna fyrir árið 2006 og greiðið staðfestingar- gjald eftir áramót. Fjölbreyttar upplýsingar á heimasíðu; www.fylkir.is Fylkir.is ferðaskrifstofa sími 456-3745 Eina ferðaskrifstofan á Vestfjörðum sem ekki nýtur styrkja frá opinberum aðilum. Bílaleigubílar. Sumarhús í DANMÖRKU Ísumar býður ferðaskrifstofanTerra Nova Íslendingum upp ávikulegt flug til Búlgaríu. Að sögn Bjarna Hrafns Ingólfs- sonar markaðsstjóra hjá Terra Nova verður flogið vikulega frá 18. maí til 21. september til Varna í Búlgaríu. Áfangastaðurinn Golden Sands er í um tuttugu mínútna aksturs- fjarlægð frá flugvellinum og rétt innan við fimm tíma tekur að fljúga til Varna. Golden Sands er ferðamanna- staður við Svartahafið. Aðstaðan er að sögn Bjarna frábær og gististað- irnir líka því í boði eru 4–5 stjörnu hótel og nýjar íbúðir. Íslenskur far- arstjóri verður í sumar á svæðinu og boðið upp á fjölda skoðunarferða. Bjarni bendir á að verð sé hag- stætt í Búlgaríu og það eigi bæði við um matvörur og annan varning. Hægt verður að fá ferðir á innan við fjörutíu þúsund krónur á mann miðað við 4 manna fjölskyldu í viku og þá er dvalið í nýrri íbúð. Bjarni segir að ef tekið sé dæmi um tvo sem deila herbergi með morgunverði sé verðið fyrir viku frá rúmlega 48.000 krónum. Flogið verður með spánska flug- félaginu Futura. Sala í ferðirnar til Búlgaríu hefst að sögn Bjarna á morgun, sunnudag.  NÝR ÁFANGASTAÐUR | Ferðaskrifstofan Terra Nova Vikulegt flug til Búlgaríu Flogið verður til Búlgaríu með spænska flugfélaginu Futura í allt sumar.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.