Morgunblaðið - 19.11.2005, Side 11

Morgunblaðið - 19.11.2005, Side 11
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 19. NÓVEMBER 2005 11 FRÉTTIR HNATTREISAN - FRUMSÝNING Ferðaklúbbur Ingólfs HEIMSKRINGLA Upplýsingar og pantanir í síma 861 5602 - Fax 581 4610 Skógarhlíð 18, sími 595 1000, fax 595 1001 - www.heimsferdir.is Söluumboð: í myndum Gunnars V. Andréssonar og í máli Ingólfs Guðbrandssonar. MENNINGARVIÐBURÐUR í Háskólabíói, sal 1, kl. 13.15 í dag. Miðasala frá kl. 12.30. Aðgöngumiðinn er miði í happdrætti að verðmæti kr. 100.000 inneign. THAILANDS UNDRIÐ 30. janúar 2006. HNATTREISA okt. 2006 – 30 dagar. Ath. Engin Edduhátíð - engin verðlaun til höfundanna en FULLT AF HEIMSMENNINGU N æ st Þessar skemmtilegu og spennandi sögur hins kunna höfundar Enid Blyton fjalla um nokkur börn og vini þeirra úr dýraríkinu sem lenda í ótrúlegustu ævintýrum. í fjársjóðsleit á Fagurey Fimm ÆVINTÝRAfjallið NÝ ÚTGÁFA KOMIN TIL LANDSINS Hver man ekki eftir Fimm-bókunum og Ævintýra-bókunum. Hér eru þær komnar aftur í nýrri útgáfu til óbland- innar ánægju fyrir öll börn og unglinga – og jafnvel foreldra þeirra, afa og ömmur! KLASSÍSKAR BARNABÆKUR Sími 562 2600 SAMNINGAVIÐRÆÐUR um loft- ferðasamninga á milli Íslands og Mongólíu annars vegar og Katar hins vegar fóru fram í Reykjavík í vikunni. Í báðum tilvikum náðist samkomulag um mjög víðtæk gagn- kvæm flugréttindi en á meðfylgjandi mynd undirrita Ólafur Egilsson, sendiherra, og Ibrahim Abdul- Quader Ibrahim, frá Katar, bókun varðandi undirbúning loftferða- samnings á milli landanna. Samningarnir við löndin tvö, sem bæði eru mjög miðlæg í alþjóðlegu flugi, munu koma íslenskum flug- rekendum að verulegu gagni í vax- andi sókn þeirra á erlendum mörk- uðum, sem búast má við að aukist enn meira á næstu misserum, og auðvelda þeim til muna bæði leigu- flug og fraktflug til ríkjanna. Und- irbúningur samningsins við Katar hefur tekið á annað ár en Íslend- ingar hafa verið iðnir við samnings- gerð á þessu svæði og hafa nú verið undirritaðir loftferðasamningar við fjögur lönd við Persaflóa. Áður náð- ust samningar við Óman, Sameinuðu arabísku furstadæmin og Barein. Loftferða- samningar undirritaðir HÆSTIRÉTTUR hefur hnekkt dómi Héraðsdóms Reykjavíkur í máli Íslenskra aðalverktaka og sænska verktakafyrirtækisins NCC International gegn Vegagerðinni með því að dæma Vegagerðina skaðabótaskylda vegna hagnaðar- missis fyrirtækjanna tveggja í kjöl- far þess að öllum tilboðum í Héðins- fjarðargöng var hafnað árið 2003. Jafnframt vísaði Hæstiréttur frá dómi kröfu Vegagerðarinnar um að felld yrði úr gildi ákvæði úrskurðar kærunefndar útboðsmála um að ólögmæt hafi verið ákvörðun Vega- gerðarinnar um að hafna öllum út- boðum í Héðinsfjarðargöng og að Vegagerðin bæri skaðabótaskyldu við fyrirtæki vegna kostnaðar við að undirbúa tilboð og taka þátt í útboð- inu. Kaupandi skal velja hagkvæmasta tilboðið Í dómi Hæstaréttar segir að sam- kvæmt lögum um opinber innkaup skuli kaupandi í opinberum innkaup- um velja það tilboð sem hagkvæmast er en það boð skal talið hagkvæmast sem lægst er að fjárhæð eða fullnæg- ir best þörfum hans samkvæmt þeim forsendum sem fram koma í útboðs- gögnum. Tekið er fram í lögunum að óheimilt sé að meta tilboð á grund- velli annarra forsendna en þeirra sem fram komi í útboðsgögnum. Í ákvæði í útboðslýsingu Vegagerðar- innar vegna Héðinsfjarðarganga sagði að samanburður tilboða yrði eingöngu fjárhagslegur. Fyrirtækin tvö gerðu lægsta tilboðið í verkið og var verulegur munur, rúmlega 386 milljónir króna, á fjárhæð þess og boðsins sem næst kom. Fjárhæð til- boðs fyrirtækjanna var rúmlega 3% yfir kostnaðaráætlun Vegagerðar- innar en fyrir lá að líkt var ástatt um lægsta tilboð sem Vegagerðin tók nokkru áður í gerð Fáskrúðsfjarð- arganga. Taldi Hæstiréttur því ekk- ert benda til að Vegagerðin hefði ástæðu til að hafna tilboðinu vegna fjárhæðar þess. Með því að velja til- tekna verktaka, þar á meðal fyrir- tækin tvö, í forvali til þátttöku í lok- uðu útboði á verki hafi Vegagerðin tekið afstöðu til þess að þau væru að öðru óbreyttu hæf til að taka verkið að sér. Því yrði ekki borið við að nokkuð hafi gerst eftir forvalið sem breytt gæti því mati. Hæstiréttur taldi þá að fyrirtækin hefðu leitt nægar líkur að því að þau hefðu orðið fyrir tjóni með því að leggja fram gögn varðandi forsendur fyrir útreikningi á tilboði þeirra í göngin. Leit Hæstiréttur til þess að tilboðið var hærra en nam kostnað- aráætlun Vegagerðarinnar en í henni hlyti að hafa verið gengið út frá því að væntanlegur verktaki hefði einhvern hagnað af fram- kvæmd verksins. Málið dæmdu hæstaréttardómar- arnir Markús Sigurbjörnsson, Garð- ar Gíslason, Guðrún Erlendsdóttir, Gunnlaugur Claessen og Hrafn Bragason. Jóhannes Karl Sveinsson hrl. flutti málið fyrir fyrirtækin og Einar Karl Hallvarðsson hrl. fyrir Vega- gerðina. Vegagerðin skaða- bótaskyld vegna höfnunar tilboða Eftir Örlyg Stein Sigurjónsson orsi@mbl.is JÓHANNES Karl Sveinsson, lög- maður NCC og ÍAV, segir að í kjöl- far dóms Hæstaréttar frá því á fimmtudag, verði hafist handa við að ná samningum við Vegagerðina á grundvelli þess að fyrirtækin tvö eiga rétt á skaðabótum sem nema töpuðum arði þeirra af framkvæmd- inni hefðu þau unnið verkið. Engin leið sé að segja til um það hvort höfðað verði dómsmál til að fá til- tekna skaðabótafjárhæð greidda en að sjálfsögðu verði samningaleiðin reynd fyrst. „Auðvitað er sá mögu- leiki fyrir hendi að reyna dóm- stólaleiðina ef menn ná ekki saman,“ segir hann. Dómur Hæstaréttar er fyrsti dóm- ur sinnar tegundar, þ.e. dómur sem varðar bótaskyldu vegna útboðs, að sögn Jóhannesar. „Röksemdir okkar voru þær, að þótt heimilt væri sam- kvæmt útboðsgögnum og hluta til í lögum að hætta við útboð, þyrftu að vera málefnalegar ástæður fyrir því s.s. að eitthvað væri að verktökum, tilboð allt of há eða aðstæður á verk- stað hefðu breyst. En hér var ekki um slíkt að ræða, heldur báru yf- irvöld því við að staða efnahagsmála væri öðruvísi og því ætti að fresta framkvæmdinni. Hæstiréttur taldi þetta ekki góðar og gildar röksemd- ir, heldur yrði að styðjast við ein- hverjar forsendur í útboðsgögnum ef menn vildu hætta við. Það var ekki talið forsvaranlegt að menn gætu boðið út sama verkið aftur og aftur og látið verktakana bera kostnað af verðkönnunum. Enn- fremur býður það hættunni heim á misnotkun á útboðsforminu ef hald- ið er áfram að bjóða út þar til ein- hver bjóðandi kemur sem er kaup- anda þóknanlegur. Hæstiréttur tekur mjög skýra afstöðu hvað varð- ar það að opinberir verkkaupar verði að hafa málefnaleg og veiga- mikil rök ef þeir ætla að hætta við verk að loknu forvali.“ Samningaleið- in reynd fyrst

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.