Morgunblaðið - 19.11.2005, Qupperneq 22
22 LAUGARDAGUR 19. NÓVEMBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
Hvað finnst þér?
Kæri Kópavogsbúi
Þín skoðun skiptir máli!
Íbúaþing í Lindaskóla, í dag, 19. nóvember
Sjá nánar um dagskrána á www.kopavogur.is
Líttu inn milli kl. 10-16
M
IX
A
•
fí
t
•
5
0
9
8
8
FORSÆTISRÁÐHERRA Sri
Lanka, vinstrimaðurinn Mahinda
Rajapakse, sigraði í forsetakosning-
um sem fram fóru á fimmtudag.
Hlaut hann rétt rúman helming at-
kvæða. Stærsti stjórnarandstöðu-
flokkurinn krafðist þess í gær að
kosningarnar yrðu endurteknar í
norðurhluta landsins þar sem upp-
reisnarmenn samtaka tamíla-tígr-
anna svonefndu, sem nefnast Frels-
istígrar Tamil Eleam, eru sagðir
hafa beitt hótunum til að koma í veg
fyrir að fólk mætti á kjörstað.
Seinna kjörtímabili núverandi for-
seti, Chandrika Kumaratunga, lýkur
eftir tvær vikur ef úrslitin verða látin
standa. Rajapakse sigraði naumlega
í kosningunum, samkvæmt opinber-
um tölum sem birtar voru í gær-
morgun, fékk 50,3%. Fyrrverandi
forseti, Ranil Wickremesinghe, sem
er stuðningsmaður markaðshyggju
og einkavæðingar, fékk 48,4%.
Rajapakse er sósíalisti, fyrrver-
andi kvikmyndastjarna og fagnaði 60
ára afmæli sínu í gær. Rajapakse er
eindreginn stuðningsmaður aukinna
ríkisafskipta. Sigurvegarinn er einn-
ig þekktur fyrir að mæla með auk-
inni hörku í baráttunni gegn tamíla-
tígrunum. Vill hann að allt friðarferl-
ið verði endurskoðað.
Stjórnmálaskýrendur segja að úr-
slitin dragi úr líkum á því að end-
anlegur friður náist í landinu sem
hefur verið þjakað af blóðugri borg-
arastyrjöld í meira en tvo áratugi en
ótryggt vopnahlé hefur ríkt um hríð.
Friðarviðræður hafa ekki farið fram
síðan 2003 og hefur það komið í veg
fyrir að hægt sé að veita Sri Lanka
milljarða dollara í aðstoð til að
byggja upp svæði sem urðu fyrir
tjóni í flóðbylgjunni miklu í fyrra.
Þorri íbúa Sri Lanka er úr röðum
sinhala en tamílar eru fjölmennastir
í norðri og vilja fá aukna sjálfsstjórn
og sumir algert sjálfstæði.
„Nýi forsetinn mun ekki geta hafið
friðarviðræður alveg á næstunni
vegna þess að þjóðernissinnarnir
sem styðja hann munu ekki leyfa
honum að gera neinar tilslakanir,“
sagði Harry Gunatillake, fyrrver-
andi yfirmaður flughers Sri Lanka, í
gær. Sagði Gunatillake ennfremur
að Norðmenn, sem hafa verið milli-
göngumenn í deilunum við tamíla,
myndu eiga erfitt með að laga sig að
breyttum aðstæðum í stjórnmálalífi
landsins. Það myndi enn tefja frið-
arferlið að nú þyrftu aðilar að kynn-
ast og átta sig hver á öðrum.
Nær engir kusu í Jaffna
Tamílar eru um 12,6% af íbúum
Sri Lanka. Kosningaþátttaka í
Jaffna-héraði, þar sem tamílar eru í
meirihluta, var innan við 0,01%.
Segja eftirlitsmenn með kosningun-
um að Tígrarnir hafi með fortölum
og hótunum í reynd valdið því að
kosningarnar hafi verið hunsaðar á
svæðinu.
Stjórnarandstaðan segist hafa
verið svipt sigri í kosningunum því
um 700.000 kjósendur eru í Jaffna.
Samkvæmt opinberum tölum sigraði
Rajapakse með innan við 190.000 at-
kvæða mun.
Reuters
Ákafir stuðningsmenn sigurvegarans í forsetakjörinu á Sri Lanka, Mahinda Rajapakse, fagna í höfuðborginni Col-
ombo þegar úrslitin voru kynnt í gær. Hann hét því að koma á „sæmdarfriði“ í deilunum við tamíla-tígrana.
Vilja að kosið
verði aftur í Jaffna
Mahinda
Rajapakse
Ranil
Wickremesinghe
Eftir Kristján Jónsson
kjon@mbl.is
Bagdad, Khanaqin. AFP, AP. | Minnst 75
manns féllu í sprengjutilræðum í
Írak í gær. Sjálfsmorðstilræðismenn
sprengdu sig í tveim moskum síja-
múslíma í Khanaqin, norðaustan við
höfuðborgina Bagdad, skömmu eftir
að tvær bílsprengjur sprungu fyrir
utan hótel í Bagdad. Föstudagur er
aðalbænadagur jafnt sjía-múslíma
sem súnní-múslíma í viku hverri og
var fjöldi fólks í moskunum.
Khanaqin er í Diyala-héraði í
grennd við landamærin að Íran.
Meirihluti íbúanna er Kúrdar af sjía-
grein íslams.
Tveir menn með sprengjubelti á
sér fóru inn í moskurnar tvær og
sprengdu sig í loft upp í miðri bæn.
Þak annarrar moskunnar hrundi og
var óttast að enn væri fólk undir
brakinu, að sögn Ibrahim Hasan al-
Bajalans, yfirmanns héraðsráðsins í
Diyala. Þegar var gefin skipun um
útgöngubann í Khanaqin. Bíl-
sprengjurnar sem sprungu í Bagdad
nokkru áður urðu að minnsta kosti
sex manns að bana á Hamra-hóteli,
þar á meðal konu og tveim börnum.
Um 40 að auki særðust. Fjöldi út-
lendinga er yfirleitt á Hamra og rétt
hjá því eru húsakynni á vegum inn-
anríkisráðuneytisins þar sem leyni-
leg fangelsi fundust nýlega. Þar kom
í ljós að fangar, óvíst hve margir,
höfðu verið pyntaðir og munu flestir
hafa verið súnní-arabar.
Íraskir Kúrdar eru flestir súnnít-
ar en hafa unnið með sjía-aröbum,
sem eru í meirihluta í Írak en voru
öldum saman kúgaðir af súnní-aröb-
um. Tryggðu Kúrdar og sjítar að ný
stjórnarskrá, sem nýlega var borin
undir þjóðaratkvæði, fengi sam-
þykki. Súnnítar voru hins vegar
mjög á móti henni.
Þingkosningar verða í Írak 15.
desember og gera bandarískir emb-
ættismenn ráð fyrir að árásum og til-
ræðum muni fjölga í aðdraganda
þeirra.
Mikið mann-
fall í Írak
MIKLIR eldar byrjuðu að geisa á svæði með mörgum olíubrunnum við bæ-
inn Ventura, norðvestan við Los Angeles í Kaliforníu, aðfaranótt föstu-
dags. Talið er að um 1.500 ekrur hafi orðið eldinum að bráð. Unnu um 200
slökkviliðsmenn hörðum höndum við að halda eldinum frá mannabyggð.
Ljósmynd/Matthías Ingimarsson
Skógareldar í Ventura
Kabúl. AFP. | Portúgalskur friðar-
gæsluliði týndi í gær lífi í sprengju-
tilræði í Kabúl, höfuðborg Afganist-
ans. Portúgalinn starfaði að
friðargæslu á vegum alþjóðlega ör-
yggisliðsins í Afganistan (ISAF).
„Einn hermaður ISAF týndi lífi og
þrír særðust, þar af einn alvarlega, í
sprengingu í Bagram-hverfi Kabúl-
borgar,“ sagði talsmaður ISAF er
hann greindi frá tilræðinu. Þeir sem
særðust eru einnig frá Portúgal.
Portúgalar halda úti um 200
manna liðsafla í Afganistan og sagði
portúgalski varnarmálaráðherrann
að ekki stæði til að kalla herliðið
heim. Sagði hann fyrir liggja að
verkefnið í Afganistan væri hættu-
legt og portúgölsku hermennirnir í
lífshættu.
Á mánudag var þýskur friðar-
gæsluliði drepinn í sjálfsmorðsárás í
höfuðborginni og sama dag voru sex
óbreyttir borgarar myrtir þar.
14 íslenskir friðargæsluliðar hafa
að undanförnu verið við störf í Afg-
anistan. Ákveðið hefur verið að kalla
þá sem starfa í norðurhluta landsins
heim en sjö félagar þeirra munu
áfram starfa í vesturhlutanum.
Tilræði í Kabúl