Morgunblaðið - 19.11.2005, Síða 32
32 LAUGARDAGUR 19. NÓVEMBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ
MENNING
Í HALLGRÍMSKIRKJU verður að
vanda efnt til fjölbreyttra list-
viðburða á tónlistarhátíð á aðventu.
Auk árlegra jólatónleika Mót-
ettukórsins, sem jafnframt eru út-
gáfutónleikar geisladisksins Jóla-
gjafarinnar með íslenskum
jólalögum, verður boðið upp á org-
eltónleika með Birni Steinari Sól-
bergssyni, organista Akureyr-
arkirkju, sem leikur franska
jólatónlist, og heildarflutning á Jóla-
óratóríu Bachs með Schola cantor-
um og Alþjóðlegu barokksveitinni í
Haag.
Jólatónleikar Mótettukórs Hall-
grímskirkju hafa verið fastur liður í
tónlistarlífinu um rúmlega tveggja
áratuga skeið. Að þessu sinni verða
tónleikarnir með íslensku yfirbragði
og mörg af ástsælustu jólalögum og
-sálmum þjóðarinnar munu hljóma.
Einsöngvari verður Ísak Ríkharðs-
son, Sigurður Flosason leikur á
saxófón og Björn Steinar Sólbergs-
son á orgel. Hörður Áskelsson
stjórnar. Tónleikarnir verða þriðju-
daginn 29. nóv. kl. 20 og laugardag-
inn 3. des. kl. 17.
Á tónleikum sínum í Hallgríms-
kirkju sunnudaginn 4. desember kl.
17 leikur Björn Steinar Sólbergsson
orgeltónlist frá ýmsum tímum
tengda aðventu og jólum.
Jólaóratorían í
barokkflutningi
Jólaóratóría Jóhanns Sebastians
Bachs er þekktasta og stórbrotnasta
tónverk sem samið hefur verið í til-
efni af fæðingarhátíð Krists og er
sjálfsagður hluti af hátíðarbrag
jólanna um allan heim. Um er að
ræða fyrsta heildarflutning á verk-
inu með fullskipaðri barokkhljóm-
sveit hér á landi, kantötur I–III
verða fluttar á tvennum tónleikum
og kantötur IV–VI á einum. Kamm-
erkórinn Schola cantorum syngur
óratóríuna undir stjórn Harðar Ás-
kelssonar, en einsöngvarar verða
Hulda Björk Garðarsdóttir, Sesselja
Kristjánsdóttir, Eyjólfur Eyjólfsson
og Ágúst Ólafsson.
Með þeim leikur Alþjóðlega bar-
okksveitin í Haag, skipuð hljóðfæra-
leikurum frá 20 þjóðlöndum, sem
hafa sérhæft sig í flutningi barokk-
tónlistar. Jólaóratórían verður flutt
laugardaginn 10. desember kl. 17
(kantötur I–III), sunnudaginn 11.
desember kl. 15 (kantötur I–III) og
kl. 18 (kantötur IV–VI).
Miðasala á tónleika hátíðarinnar
er í Hallgrímskirkju.
Morgunblaðið/Sverrir
Tónlistarhá-
tíð á jóla-
föstu í Hall-
grímskirkju
HADDA Fjóla Reykdal myndlist-
armaður tekur þátt í samsýningu
þrjátíu myndlistarmanna í gall-
eríinu Konstruktiv Tendens í
Stokkhólmi 19. nóvember til 18.
desember. Sýningin ber yfirskrift-
ina Geometrisk Abstraktion XXIV
en þetta er árleg sýning á verkum
valdra abstraktlistamanna.
Galleríið er hið eina í Svíþjóð
sem einbeitir sér eingöngu að sýn-
ingum og sölu á óhlutbundinni
myndlist. Það var stofnað fyrir
aldarfjórðungi og þar er stærsti
sýningarsalur einkaaðila í Stokk-
hólmi.
Hadda Fjóla lauk BA-prófi frá
grafíkdeild Myndlista- og hand-
íðaskóla Íslands árið 1998 og hefur
unnið við myndlist og myndlist-
arkennslu síðan. Hún hélt einka-
sýningu á vatnslitamyndum í List-
húsi Ófeigs árið 2002 og sýningu á
olíumálverkum á vinnustofu sinni í
Gautaborg í maí sl.
Hadda málar óhlutbundin verk
með olíu á striga og er innblást-
urinn sóttur til náttúrunnar á Ís-
landi og í Svíþjóð. Það eru þá smá-
atriðin úr náttúrunni, form þeirra,
litir, ljós og skuggar sem mynda
einfalda heild á striganum.
Konstruktiv Tendens hefur
ákveðinn hóp myndlistarmanna á
sínum snærum, sænskra og er-
lendra. Hadda segir of snemmt að
segja til um hvort hún verði tekin
inn í þann hóp en auðvitað yrði það
lyftistöng fyrir feril hennar. „Það
hefur mikla þýðingu fyrir mig að
vera boðið að taka þátt í þessari
sýningu núna. Þannig fæ ég tæki-
færi til að kynna myndirnar mínar
fyrir fleira fólki og vonandi aukast
líkurnar á að ég geti sýnt víðar,“
segir Hadda.
Hadda Fjóla sýn-
ir í Stokkhólmi
Verk eftir Höddu Fjólu Reykdal.
Veitt var úr styrktarsjóðiSvavars Guðnasonar list-málara og Ástu Eiríks-dóttur í Listasafni Íslands
í gær. Að þessu sinni hlutu styrkinn
Hildur Bjarnadóttir og Sigga Björg
Sigurðardóttir og hlýtur hvor um sig
250.000 krónur í styrk. Alls bárust 35
umsóknir til sjóðsins að þessu sinni
og sagði Ólafur Kvaran, forstöðu-
maður Listasafns Íslands, sem á sæti
í dómnefnd, að fjölmargar þeirra
hefðu verið vandaðar og hæfar, sem
endurspeglaði þá miklu grósku sem
nú ætti sér stað í íslenskri myndlist.
Í samtali við Morgunblaðið sagðist
Sigga Björg að vonum ánægð með að
hafa hlotnast styrkurinn. „Þetta er
mikill heiður,“ sagði hún. Aðspurð
sagði hún styrkinn fyrst og fremst
fara í áframhaldandi vinnu. „Hann
kaupir mér tíma, svo ég þurfi ekki að
gera neitt annað en það að vinna að
myndlistinni.“
Hildur Bjarnadóttir var ekki við-
stödd styrkveitinguna, þar sem hún
er stödd erlendis við undirbúning
sýningar, og tók systir hennar við
styrknum fyrir hennar hönd.
Martraðir, leikur og húmor
Sigga Björg Sigurðardóttir stund-
aði nám við Listaháskóla Íslands á
árunum 1997–2001 og síðan við The
Glasgow School of Art og lauk þar
námi. Sigga Björg er búsett bæði í
Reykjavík og í Glasgow, og hefur
hún verið ötul við sýningahald bæði
hérlendis og erlendis að undanförnu.
Af sýningum hér heima má nefna Tí-
volí-sýninguna í Hveragerði í sumar
og einkasýningu í Galleríi Boxi, og
erlendis má nefna Berlinvasion-
uppátæki Klink og Bank í Berlín í
haust, auk fleiri sýninga á erlendri
grund. „Bakgrunn verka hennar má
ef til vill fyrst og fremst finna í
teiknimyndahefðinni og þeim frá-
sagnarmáta, sem hún umskapar og
snýr út úr og sviðsetur um leið nýjar
merkingar,“ sagði Ólafur Kvaran í
ræðu sinni við styrkafhendinguna.
„Hún hefur unnið með teikningar,
vídeó og innsetningar og í þeim
myndheimi sem hún hefur skapað
sviðsetur hún einkum samsettar ver-
ur, sem eru í senn bæði/og eða
hvorki/né, þar sem spunnar eru sam-
an martraðir, leikur og húmor. En ef
til vill þjóna þessar fléttur eða svið-
setningar öðru fremur þeim tilgangi
að vera líkingar fyrir eitthvað annað
en það sem er sýnilegt, hvort sem
það eru aðrar frásagnir, tilfinningar
eða hugarástand.“
Möguleikar textílhefðarinnar
Hildur Bjarnadóttir hefur starfað
mikið í Bandaríkjunum frá því hún
útskrifaðist frá nýlistadeildinni í
Pratt Institute í New York árið 1997,
en einnig verið þátttakandi í fjöl-
mörgum sýningum í Evrópu. Um
þessar mundir tekur hún þátt í sam-
sýningu í Winnipeg og heldur einka-
sýningu í Boise Art Museum í Idaho,
og fyrirhuguð er önnur einkasýning í
Pulliam Defenbaugh Gallery í Port-
land í janúar næstkomandi.
„Hildur hefur í myndlist sinni
einkum verið upptekin við að skoða
möguleika textílhefðarinnar og eig-
inleika handverksins,“ sagði Ólafur í
ræðu sinni við styrkveitinguna. „Hún
vitnar með umbreytingum sínum
með ýmsum hætti í listasöguna og
breytir merkingum og sögulegu
samhengi. Þannig verða til frásagnir
og myndheimur þar sem mörg merk-
ingarsvið birtast, fagurfræði, lista-
sagan, handverkshefðin, og ekki síð-
ur vísanir í áleitin tákn um
kynhlutverk og samfélagslega stöðu
karla og kvenna.“
Veitt í fimmta sinn
Þetta er í fimmta sinn sem veitt er
úr styrktarsjóði Svavars og Ástu, en
honum er ætlað að styrkja „unga og
efnilega myndlistarmenn“. Dóm-
nefndin var skipuð Ólafi Kvaran,
safnstjóra Listasafns Íslands, Hall-
dóri Birni Runólfssyni listfræðingi,
fulltrúa Listaháskóla Íslands, og
Björgu Atla listmálara, fulltrúa Sam-
bands íslenskra myndlistarmanna.
Alls bárust 35 umsóknir um styrk-
inn.
Myndlist | Hildur Bjarnadóttir og Sigga Björg Sigurðardóttir hljóta styrk úr
sjóði Svavars Guðnasonar og Ástu Eiríksdóttur
Endurspeglar mikla grósku
í íslenskri myndlist
Eftir Ingu Maríu Leifsdóttur
ingamaria@mbl.is
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Ólafur, Sigga Björg og Gerður Bjarnadóttir sem tók við styrknum fyrir hönd Hildar systur sinnar.