Morgunblaðið - 19.11.2005, Qupperneq 35

Morgunblaðið - 19.11.2005, Qupperneq 35
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 19. NÓVEMBER 2005 35 DAGLEGT LÍF SALT er jafnvel enn hættulegra heilsunni en áður hefur verið talið. Í Svenska Dagbladet kemur fram að sænska matvælastofnunin, Livs- medelsverket, hefur nú skorað á matvælaframleiðendur að minnka saltmagn í matvælum og áformar herferð í því skyni. Á umbúðum er yfirleitt hægt að lesa hve mikið salt matur inniheldur. 1,25 g af salti í 100 g af mat telst mikið salt en 0,25 g/100 g telst lítið. Stundum er aðeins natríummagn gefið upp og þá er góð þumalputta- regla að margfalda það magn með 2,5 til að fá út saltinnihald. Hæsti ráðlagði dagskammtur af salti eru 6 g fyrir karla en 5 g fyrir konur. Í SvD er lesendum ráðlagt að minnka saltneyslu t.d. með því að spara salt- ið við matreiðslu, benda starfsfólki mötuneyta á ef maturinn er of salt- ur, forðast að borða mikið brauð t.d. á veitingastöðum þar sem brauðið er oft mjög salt, forðast skyndibita. Heilablóðfall eða hár blóðþrýstingur Ofneyslu á salti getur fylgt hár blóðþrýstingur og hætta á heilablóð- falli eða hjartaáfalli. Hár blóðþrýst- ingur kemur yfirleitt fyrst fram eftir fimmtugt og langvarandi ofneysla salts er ein af orsökunum. Því er mikilvægt að leggja grunn að heil- brigðum neysluvenjum snemma. Fyrir nokkrum árum tengdu bandarískir vísindamenn aukna neyslu á skyndibita og aukna salt- neyslu. Sænskir vísindamenn hafa nú fylgt þessari rannsókn eftir og benda á að Svíar neyta að meðaltali 12-13 g af salti á dag sem er aukning um 4 g á tveimur árum. Nú þegar hafa heilbrigðisyfirvöld í Bandaríkjunum, Bretlandi og Finnlandi varað við ofneyslu salts og bent á að það sé einn af stóru áhættuþáttunum hvað varðar heils- una. Sérstaka áherslu leggur sænska matvælastofnunin á skyndi- bita sem er mjög saltur og hann er á borðum æ fleiri. Einn skammtur getur innihaldið allan ráðlagða dag- skammtinn. Einnig er bent á að barnamatur í krukkum getur verið mjög saltur, mismunandi eftir tegundum þó, og í hlutfalli við líkamsþyngd geta börn því fengið í sig meira salt en full- orðnir, sem aftur getur valdið háum blóðþrýstingi snemma á ævinni. Sænska matvælastofnunin hyggst fá veitingastaðaeigendur og kokka til liðs við sig og boðar til viðræðna við veitingaiðnaðinn í því skyni. Einnig eru sjónvarpskokkar beðn- ir að hugsa sig um áður en þeir mæla með miklu salti í matargerð. Ljósmynd/Kristinn Ingvarsson Ofneysla á salti hættuleg  RANNSÓKN flísar Stórhöfða 21, við Gullinbrú, sími 545 5500. www.flis.is ● netfang: flis@flis.is Allt fyrir baðherbergið Gull- og Silfursmiðjan Erna Skipholti 3 • sími 552 0775 • www.erna.is Fallega Jólaskeiðin frá Ernu kr. 6.900 AUGLÝSINGADEILD netfang: augl@mbl.is eða sími 569 1111 Símar: 660 4753 • 462 4250 www.tindur.is • tindur@tindur.is Fyrsti kossinn er orðinn langur ... „Rokklífið á Íslandi er bara tilbrigði við Rúnar Júl“. Bjartmar Guðlaugsson Rúnar Júlíusson stendur á sextugu. Hann gekk í bítlahljómsveitina Hljóma úr Keflavík 18 ára, var kominn á topp- inn nokkrum vikum síðar og hefur verið þar síðan. Við upphaf tónlistar- ferilsins stóð knattspyrnuferillinn sömuleiðis í blóma. Í bókinni HERRA ROKK lítur Rúnar yfir tónlistarferilinn til þessa dags, rifjar upp gömul afrek af knattspyrnu- vellinum og segir frá öðrum baráttu- málum sínum svo sem því að halda lífi eftir að í ljós kom fyrir nokkrum árum að hann hafði verið með hjarta- galla frá fæðingu. Höfundur er Ásgeir Tómasson, fréttamaður. Guðni Ágústsson, ráðherra: „Fyrstu minningar mínar um Rúnar Júlíusson eru 40 ára gamlar. Þá var ég stadd- ur á Laugarvatni. Þar var Landsmót ungmennafélaga. Séníið úr Keflavík er að koma á lokuðum bíl inn á Landsmótið. Í lögreglufylgd. Glæsilegur maður, Rúnar Júlíusson. Líkur Þóroddi frá Þóroddsstöðum. Fullur af orku stóðhestsins stígur hann út. Það líður yfir ungu stúlkurnar sem snerta hann. Ég stend þarna 16 ára unglingur og horfi á þetta undur og er það ógleymanlegt. Ég geri mér grein fyrir því að ég hef hitt séníið úr Keflavík sem er að breyta Íslandi. Sem hefur tekið að sér að flytja hljóminn, röddina, heim. Sem gerir kröfur um frelsi æskunnar. Bítl- arnir, Rolling Stones, Hljómar. Afl til æskunnar, til að gera uppreisn á heimilum. Það eru fjörutíu ár síðan ég upplifði þetta vor á Laugarvatni. Engin stúlka leit á mig. Allar elskuðu Rúnar Júlíusson.“ Hemmi Gunn: „Við Rúnar vorum and- stæðingar inni á vellinum en samherjar á skemmti- stöðum“. Meðal þeirra sem segja frá: Þorsteinn Eggertsson Magnús Kjartansson Magnús Torfason Gerður G. Bjarklind Hermann Gunnarsson Ámundi Ámundason Björgvin Halldórsson Bjartmar Guðlaugsson Óttar Felix Hauksson Valgerður Sverrisdóttir
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.