Morgunblaðið - 19.11.2005, Page 52

Morgunblaðið - 19.11.2005, Page 52
✝ Sigríður Jósefs-dóttir fæddist í Ormskoti í Vestur- Eyjafjöllum 16. apr- íl 1917. Foreldrar hennar voru Guð- rún Hannesdóttir, sem ólst upp á Hlemmiskeiði á Skeiðum, og Jósef Jóhannsson frá Gerðakoti í Vestur- Eyjafjöllum. Sigríð- ur var næstelst af tólf systkinum, níu þeirra komust á legg en þrjú dóu ung. Á lífi eru nú Óskar, Viggó, Elín, Guðjón og Jó- hannes. Sigríður gekk í barnaskóla á Mið-Skála og kennari hennar var Árni Ingvarsson. Eftir barnaskóla- nám hóf hún nám í Húsmæðraskól- anum á Laugarvatni. Síðar gerðist frá Noregi. Barnabörnin eru sex og barnabarnabörnin ellefu. Ragnar og Sigríður hófu búskap í Hvoltungu með móður Ragnars, Torfhildi, og Geir Tryggvasyni, uppeldisbróður Ragnars. Sam- hliða búskap keyrði Ragnar vöru- bíl og flutti vörur í sveitina og keyrði mjólk til baka í Mjólkurbú Flóamanna. Árið 1952 fluttust þau til Reykjavíkur, keyptu sér íbúð í Vogunum og Ragnar hóf vinnu í Stálsmiðjunni þar sem hann vann samfleytt uns hann varð 75 ára. Sigríður vann hjá Þvottahúsinu Grýtu í mörg ár og tók síðan að sér þrif hjá Stálsmiðjunni þar til Ragnar hætti þar. Árið 1960 keyptu þau íbúð á Tómasarhaga 44 og bjuggu þar meðan heilsan leyfði. Þegar heilsuna þraut fluttu þau til sonar síns í Hafnarfirði og síðar á sjúkrahús og þar andaðist Sigríður á hjúkrunardeild á Elli- heimilinu Grund, en Ragnar and- aðist fyrir rúmu ári. Útför Sigríðar verður gerð frá Eyvindarhólakirkju í Austur-Eyja- fjöllum í dag og hefst athöfnin klukkan 13. hún starfskona hjá séra Jakobi Ó. Lárus- syni og konu hans Sigríði Kjartansdótt- ur. Þegar séra Jakob hætti prestskap hélt hún áfram vinnu í Holti fyrir nýja prest- inn séra Jón M. Guð- jónsson og konu hans Lilju Pálsdóttur. Hinn 1. júlí 1939 giftist Sigríður Ragn- ari Eyjólfssyni frá Hvoltungu. Þau eign- uðust þrjú börn. Þau eru: 1) Torfhildur Eyrún, f. 8.8. 1939, eiginmaður Skjöldur Magn- ússon frá Borgarnesi. 2) Einar Þór, f. 21.8. 1940 (kjörsonur Þóru systur Ragnars og Einars Sigurðs- sonar í Vestmannaeyjum), eigin- kona Díana Ágústsdóttir. 3) Gunn- ar Jósep, eiginkona Tove Dahle Fölnar rós og bliknar blað á birkigreinum. Húmar eins og haustar að í hjartans leynum. (Kristján Jónsson.) Þetta vísukorn, sem heitir „Haust“, kom í huga minn er ég frétti lát Sigríðar, en hún hafði verið vinkona mín alveg frá því fyrst ég sá hana 1939. Það var á fögrum sum- ardegi 1939 þegar Ragnar kom með þessa fallegu brúði sína að Hvol- tungu og kynnti hana fyrir heimilis- fólki þar. Þau giftust 1. júlí 1939. Þá var Sigríður ófrísk að fyrsta barni þeirra en vildi strax fara að vinna í heyskapnum og mér var falið að vinna með henni að rakstri. Þá fann ég hvað hún var mikill forkur til vinnu þótt hún væri komin langt á leið. Upp frá þessu urðum við miklir vinir og ég mat hana því meira sem ég kynntist henni betur. Næsta sumar, 1940, var síðasta sumarið sem ég vann í sveitinni áður en ég flutti alfarið frá Hvoltungu. Og ennþá var mér falið sama verkefnið ásamt Sigríði en þá var hún aftur ófrísk. Ég man hvað hún var oft las- in og vildi láta lítið á því bera. Ég reyndi allt sem ég gat til að taka erf- iðustu verkin eins og að taka heyið upp úr bleytu og koma því á þurra staði. Ekki minnkaði vinátta okkar eftir þetta síðasta sumar í heyskapn- um. Nú koma kaflaskil í vináttu okkar þegar ég kynntist konu minni 1946, Þórunni, og fór austur að Hvoltungu til að kynna hana fyrir fóstru minni og heimilisfólkinu þar. Þá mynduð- ust strax mikil vináttubönd milli Sig- ríðar og Þórunnar sem entust þar til Þórunn lést 1985 og bar aldrei skugga á þá vináttu. Ég held ég segi það satt að Þórunn átti aldrei jafn- trausta og góða vinkonu. Þegar við fluttum á Tómasarhagann 1953 þá byrjaði Sigríður að hjálpa Þórunni að skipuleggja heimilið því að Þór- unn var ung og Sigríður hafði meiri reynslu. Það var mikill gestagangur hjá okkur Þórunni bæði innlendra og erlendra gesta. Þórunn bjó til matinn sjálf en Sigríður var henni til aðstoðar. Þá leið Þórunni vel. Það þurfti ekki veisluhöld til að þær hitt- ust og nytu stundarinnar saman. Og ekki var síðra að fara með Ragnari og Sigríði um sveitirnar, því Ragnar var sérstaklega skemmtilegur ferða- félagi og sögufróður með afbrigðum. Ekki má gleyma því að Sigríður var sérstaklega vinföst við tengdamóður sína, Torfhildi, og allar systurnar í Hvoltungu. Sigríður gerði mörg góðverk, sem enginn veit um, en þó man ég það sérstaklega að þegar hún og Ragnar tóku elsta bróður hennar, Axel, heim til sín en hann var þá yfirkominn af krabbameini. Mér finnst ógleyman- legt hvað þau sýndu af sér mikinn kærleik. Það var gaman oft að fá Ragnar og Sigríði í heimsókn þar sem þau sögðu frá liðnum tímum, ekki síst hafði ég gaman af að heyra Sigríði segja frá veru sinni í Holti og bar því fólki, prestunum báðum og fjöl- skyldum þeirra, mjög góða sögu. Henni fannst lærdómsríkt að kynn- ast þessu góða fólki. Sérstaklega hafði ég gaman af að heyra hana segja frá manni, sem fylgdi báðum prestunum. Hann kom að Holti með séra Kjartani Einarssyni, sem hafði tekið hann upp á sína arma þegar hann var prestur á Húsavík. Hann hét Kristján Jóhannes Sigurðsson, fæddur á Húsavík 1865. Hann mundi engin nöfn og kallaði alla Kunningja, þess vegna var hann allt- af kallaður Kunningi sjálfur. Eftir að Kjartan Einarsson dó fylgdi Kunningi næsta presti og þegar hann hætti tóku séra Jón Guðjóns- son og Lilja við honum. Kunningi átti marga vini og meðal annars einn sérstaklega, Guðbrand Magnússon, sem var ráðsmaður hjá séra Jakobi, en hann varð síðar forstjóri ÁTVR. Það var mikil gleði þegar þeir hitt- ust vinirnir hvort sem var í Holti eða á heimili Guðbrands í Reykjavík. Þá sungu þeir saman einu vísuna sem Kunningi hafði numið í æsku og kunni: Ástin gerir ennþá mig ákaflega pína. Fæ ég ekki að faðma þig fallegasta Sína? Þrátt fyrir fötlun Kunningja var hann mjög trúr því sem honum var falið að gera og sagði oft: „Vertu trúr, því að Guð sér til þín.“ Sigríður unni æskuheimili sínu, Ormskoti, og öllu Holtshverfinu mikið ásamt öllu því fólki sem þar bjó. Fyrir augum sínum hafði hún alltaf þetta fallega fjall, Holtsnúp. Lítið ljóð eftir Björgu Jónsdóttur á Ásólfsskála lýsir tilfinningum henn- ar til æskustöðvanna. Síðasta erind- ið er svona: En þegar lífsins lýkur árum og lagt er í hinztu för, þá vindur upp segl, er vakir á bárum og vaggar hinn smái knör; og tekur mið af tindinum hljóður á tindrandi stjarna her. Það er Holtsnúpur, hollur og góður, til himins sem bendir þér. Nú hefur Sigríður tekið flugið í rétta átt og Holtsnúpur hann vísar henni veginn til að komast í faðm eiginmanns síns, systkina og vina sem á undan fóru. Ég sendi börnum hennar, barna- börnum, systkinum og öllum þeim sem henni þótti vænt um, mínar innilegustu samúðar- og vinarkveðj- ur. Þar fór hreinskiptin og góð kona. nú drúpa aspir lauflausum greinum og sakna. (Guðrún Gunnarsdóttir.) Ég þakka Sigríði fyrir alla vináttu við mig og konu mína, alla hjálp og góð ráð sem hún gaf okkur báðum, og þar naut hún eiginmanns síns Ragnars. Á þennan vinskap hefur aldrei borið skugga. Ég bið þann al- vald sem skóp hana að taka á móti henni í nýjum heimkynnum og leið- beina henni gegnum þau völundar- hús sem þar er að finna. Guð blessi minningu Sigríðar Jós- efsdóttur frá Ormskoti. Friðrik Jörgensen. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Gekkst þú með Guði, Guð þér nú fylgi, hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt. (V. Briem.) Með þessum orðum sálmaskálds- ins langar mig að kveðja mágkonu mína Sigríði Jósefsdóttur. Hún var fædd og uppalin í einni af fegurstu sveitum landsins, að Ormskoti í Vestur-Eyjafjallahreppi, næst elst barna hjónanna Guðrúnar og Jósefs sem þar bjuggu. Hún byrjaði ung að vinna eins og þá þótti sjálfsagt með börn. Á hennar bernskuárum var skólaskylda aðeins fjórir vetur. Einnig fór hún í Húsmæðraskólann á Laugarvatni og þótti það góð und- irstaða út í lífið, fyrir og um miðja síðustu öld. Oft fór hún í vist til þeirra sem þurftu á hjálp að halda. Árið 1939 giftist hún Ragnari Eyj- ólfssyni í Hvoltungu og þar bjuggu þau í félagi við Torfhildi móður Ragnars og fjölskyldu. Síðar inn- réttuðu þau sér íbúð austast í þorp- inu í Hvoltungu. Já, Hvoltungubær- inn var einn stílhreinasti burstabær sem ég hef séð, og er sjónarsviptir að honum. Sigga og Ragnar bjuggu í Hvoltungu þar til þau brugðu búi og fluttu til Reykjavíkur 1952. Þar sköpuðu þau sér fallegt heimili, enda var hún mjög hreinleg og myndarleg kona, virðuleg í fasi og bein í baki með sitt ljósa hár. Hún var víkingur til verka og mjög greiðvikin, enda fengu margir notið hennar hjálpar. Mig langar að koma á framfæri al- veg sérstöku þakklæti frá mér fyrir alla þá hlýju og hjálp sem þau hjón veittu mér, alveg sérstaklega í kringum sjúkrahúsdvalirnar mínar. Hún þvoði þvottana fyrir okkur og færði okkur þvottinn straujaðan og samanbrotinn. Og einnig hjálpaði hún mér í sláturgerð og hef ég ekki smakkað betra slátur. Hún gerði allt svo vel. Nú þegar leiðir skiljast kemur margt upp í hugann. Er þess fyrst að minnast að á fyrstu árunum sem Rangæingafélagið leigði út húsið í Hamragörðum buðu Sigga og Ragn- ar okkur Viggó með sér þangað, og við dvöldum í nokkra daga í gamla bænum. Við nutum lífsins í sveita- sælunni. Þaðan var labbað bak við Seljalandsfoss og upp í heiði og víð- ar. Þau hjón voru frábærir félagar. Nú er hún mágkona mín loksins laus úr viðjum þessa erfiða alzheim- erssjúkdóms, og verður hún lögð í sína hinstu hvílu við hlið eiginmanns síns í hinni fögru Eyjafjallasveit. Ég votta börnum, tengdabörnum og af- komendum öllum innilega samúð. Guð blessi minningu þeirra heið- urshjóna Sigríðar og Ragnars. Sigrún I. Þorsteinsdóttir. Elsku Sigga og langamma. Okkur langar til að kveðja þig með nokkr- um orðum. Nú eruð þið langafi Ragnar saman, þetta hjálpaði Kára litla að eiga við sorgina þegar hann frétti að þú værir dáin og það hjálp- aði mér líka. Við hittum þig ekki mikið núna síðustu árin, en við mun- um þig og munum gera alla tíð. Það var svo notalegt að koma til ykkar á Tómasarhagann, hvað þá á jólunum þegar ég og þú urðum að fá okkur eitt sjerríglas saman, það var svo notalegt og þér fannst svo gaman að sitja í litla króknum í eldhúsinu og spjalla, og strákarnir sátu inni í stofu í sínu spjalli. Við söknum þín en minning þín mun lifa með okkur. Við sendum ástvinum þínum okk- ar innilegustu samúðarkveðjur. Guðrún og Kári. SIGRÍÐUR JÓSEFSDÓTTIR 52 LAUGARDAGUR 19. NÓVEMBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR Skil Minningargreinar skal senda í gegnum vefsíðu Morgunblaðsins: mbl.is (smellt á reitinn Morgunblaðið í fliparöndinni – þá birtist valkosturinn „Senda inn minningar/afmæli“ ásamt frekari upplýsingum). Skilafrestur Ef birta á minningargrein á útfarardegi verður hún að berast fyr- ir hádegi tveimur virkum dögum fyrr (á föstudegi ef útför er á mánudegi eða þriðjudegi). Ef útför hefur farið fram eða grein berst ekki innan hins tiltekna skilafrests er ekki unnt að lofa ákveðnum birtingardegi. Þar sem pláss er tak- markað getur birting dregist, enda þótt grein berist áður en skilafrestur renn- ur út. Minningargreinar Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur samúð og vinarhug við andlát og útför elskulegs sonar míns, bróður okkar, mágs, frænda og vinar, ÞORKELS STEINSSONAR (Gulla), Hafnarstræti 16, Akureyri. Sérstakar þakkir til starfsfólks lyflækningadeildar I Fjórðungssjúkrahúss Akureyrar fyrir góða umönnun. Steinn Steinsson, Bryndís Guðmundsdóttir, Þorsteinn Steinsson, Sigurbjörg Guðmundsdóttir, Finna Birna Steinsson, Baldur Hafstað, Friðrik Steinsson, frændsystkini og starfsfólk og íbúar í Hafnarstræti 16. Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, SIGURÐUR E. ÞORKELSSON fyrrverandi skólastjóri, Vatnsnesvegi 29, Keflavík, verður jarðsunginn frá Keflavíkurkirkju mánudaginn 21. nóvember kl. 14.00. Hildur Harðardóttir, Melkorka Sigurðardóttir, Valtýr Guðbrandsson, Þorkatla Sigurðardóttir, Þröstur Ingvason, Þorkell Snorri Sigurðarson og barnabörn. Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir og amma, KATRÍN PÉTURSDÓTTIR Akurgerði 37 Reykjavík andaðist á öldrunar- og hjúkrunardeild Landspítala, Landakoti, miðvikudaginn 16. nóvember. Jarðarförin verður gerð frá Bústaðakirkju fimmtu- daginn 24. nóvember kl. 13.00. Einar Hannesson Hannes Einarsson Linda Buanak Pétur Einarsson Kristín Sigurþórsdóttir Margrét Rósa Einarsdóttir Sigurður H Ólason og barnabörn. Móðir okkar og tengdamóðir, GUÐBJÖRG KARLSDÓTTIR frá Stekkjarholti, Ölduslóð 26, Hafnarfirði, lést á heimili dóttur sinnar laugardaginn 12. nóvember. Útförin fer fram frá Krossinum, Hlíðasmára 5-7, Kópavogi, þriðjudaginn 22. nóvember kl. 15.00. Blóm og kransar vinsamlega afþakkaðir en þeim, sem vilja minnast hennar, er bent á ABC hjálparstarf. Anna Fía Emilsdóttir, Björn Magnússon, Hallfreður Emilsson, Kristín Björg Hákonardóttir, Emil Hörður Emilsson Jóhanna Sigrún Jónsdóttir, Karl Ingiberg Emilsson og fjölskyldur.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.