Morgunblaðið - 19.11.2005, Side 57
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 19. NÓVEMBER 2005 57
KIRKJUSTARF
guðsþjónustuna og hádegishress-
ingu mun Gunnbjörg Óladóttir guð-
fræðingur og doktorsnemi flytja er-
indi er hún kallar „Tilhugalífið og
ábyrgðin“. Er þessi fyrirlestur sér-
staklega ætlaður foreldrum ferm-
ingarbarna vorsins 2006. Vonumst
til að sjá sem flesta.
Útvarpsguðsþjónusta
og barnastarf í Frí-
kirkjunni í Reykjavík
ÚTVARPSGUÐSÞJÓNUSTA kl. 11.
Athugið breyttan messutíma. Frá og
með haustinu færðist almennur
guðsþjónustutími safnaðarins frá kl.
11 til kl. 14 og er þessi útvarpsguðs-
þjónusta undantekning þar á. Tón-
listin verður í höndum Önnu Sigríð-
ar Helgadóttur og Carls Möller auk
Fríkirkjukórsins. Einnig fáum við
gestaspilarana Einar Val Scheving,
sem leikur á trommur, og föður
hans, Árna Scheving, sem mun leika
á bassa. Hjörtur Magni Jóhannsson
prestur og forstöðumaður Fríkirkj-
unnar prédikar og þjónar fyrir alt-
ari ásamt sr. Ásu Björk Ólafsdóttur.
Í predikun dagsins verður meðal
annars fjallað um ójafna stöðu trú-
félaga hér á landi. Einnig verður
fjallað um nýtt frumvarp ríkisstjórn-
arinnar um réttarstöðu samkyn-
hneigðra.
Barnaguðsþjónusta kl. 14. Hug-
ljúft samfélag með Biblíusögunni
um Jesú og samversku konuna, Bibl-
íumyndum og miklum söng. Barn
verður borið til skírnar. Stundina
leiða Ása Björk og Hjörtur Magni.
Andabrauðið verður á sínum stað
að lokinni stundinni. Kaffisopi, djús
og kex í anddyrinu í lok samveru.
Kópavogskirkja –
Gerðubergskórinn
GERÐUBERGSKÓRINN kemur í
sína árlegu heimsókn í Kópavogs-
kirkju og syngur í guðsþjónustu kl.
14. Það er Kári Friðriksson sem
stjórnar kórnum sem syngur nokkur
lög að predikun lokinni. Gestirnir
frá félagsstarfinu í Gerðubergi taka
virkan þátt í guðsþjónustunni, lesa
upphafs- og lokabæn og þau Anna
Magnea Jónsdóttir og Valdimar
Ólafsson lesa ritningarlestra. Þá fær
kirkjan góða heimsókn frá Söng-
skólanum í Reykjavík en Hulda
Jónsdóttir nemandi skólans syngur
einsöng. Kór Kópavogskirkju syng-
ur og leiðir safnaðarsöng. Boðið
verður upp á kaffi og konfekt í safn-
aðarheimilinu Borgum að guðsþjón-
ustu lokinni.
Tómasarmessa í
Breiðholtskirkju
ÞRIÐJA Tómasarmessan á þessu
hausti verður í Breiðholtskirkju í
Mjódd sunnudagskvöldið 20. nóv-
ember kl. 20.
Tómasarmessan hefur unnið sér
fastan sess í kirkjulífi borgarinnar,
en slík messa hefur verið haldin í
Breiðholtskirkju í Mjódd síðasta
sunnudag í mánuði, frá hausti til
vors, síðustu átta árin og verður
sami háttur hafður á í vetur. Að
þessu sinni verður messan þó 3.
sunnudag í nóvember, þar sem 27.
nóvember er fyrsti sunnudagur í að-
ventu. Framkvæmdaaðilar að þessu
messuhaldi eru Breiðholtskirkja,
Kristilega skólahreyfingin, Félag
guðfræðinema og hópur presta og
djákna.
Tómasarmessan einkennist af
fjölbreytilegum söng og tónlist, mik-
il áhersla er lögð á fyrirbænarþjón-
ustu og sömuleiðis á virka þátttöku
leikmanna. Stór hópur fólks tekur
jafnan þátt í undirbúningi og fram-
kvæmd Tómasarmessunnar, bæði
leikmenn, djáknar og prestar.
Fyrirlestur í
Landakoti
„Í VOTTA viðurvist – Heilög messa í
vitnisburði helgra manna.“ Sr. Jür-
gen heldur áfram fyrirlestri sínum
um altarisþjónustu heilagrar messu
mánudaginn 21. nóvember kl. 20 í
safnaðarheimilinu. Að þessu sinni
fjallar erindið um Agnus Dei: Ser-
gíus páfa I – Söngurinn við brotning
brauðsins.
Barnamessur í
Stóra-Núpsprestakalli
EITT af verkefnum þjóðkirkjunnar
er að bjóða upp á barnastarf, en
barnastarfið er hluti af fræðslu
kirkjunnar sem hefur það að mark-
miði að styrkja hvert og eitt okkar
til þess að öðlast dýpri skilning á
kristinni trú og þroskast sem mann-
eskjur. Í prestakallinu hefur þetta
starf kirkjunnar einkum verið á þá
leið að presturinn hefur komið í leik-
skólana og eitthvað örlítið í grunn-
skólann.
Enn fremur og ekki síst hafa
barnaguðsþjónustur verið í kirkj-
unum af og til. En mætingin þar hef-
ur verið upp og niður. Það skiptir
miklu máli og reyndar mjög miklu
máli að fjölskyldur sinni því að koma
til kirknanna. Þó það sé margt að
gera hjá okkur öllum og mörg bú-
mannsraunin, þá er það nærandi að
eiga samfélag í kirkjunum þegar til
þess er kallað og endranær.
Boðið verður upp á 3 sérstakar
barnamessur til áramóta fyrir öll
sóknarbörn og ég bið ykkur að
koma til kirknanna jafnvel þótt þið
verðið að fara í hina kirkjuna í
prestakallinu. Barnamessurnar
verða kl. 11 og sú fyrsta verður í
Stóra-Núpskirkju hinn 20. nóv-
ember. Önnur messan verður kl. 11
4. desember í Ólafsvallakirkju og sú
þriðja 18. desember kl. 11 í Stóra-
Núpskirkju.
Sem sagt barnamessa á Stóra-
Núpi á sunnudaginn kemur, hinn 20.
nóv., kl. 11 og fyrir öll sóknarbörnin
og gesti þeirra.
Sóknarprestur.
Árangursrík
fjársöfnun
fermingarbarna
SVO SEM undanfarin ár gengu
fermingarbörn á Selfossi í hús hinn
7. nóvember síðast liðinn. Tilgang-
urinn var að safna fé til styrktar
Hjálparstarfi íslensku þjóðkirkj-
unnar, sem síðan er varið til að-
stoðar við bágstadda, bæði hér
heima og erlendis.
Það er skemmst frá því að segja,
að eftirtekjan af þessari söfnun hef-
ur aldrei verið betri en nú. Alls bár-
ust Hjálparstarfinu 276.910 kr., er
safnað var á Selfossi. Er það mun
hærri upphæð en áður hefur verið.
Ég vil leyfa mér að færa sókn-
arbörnum mínum á Selfossi inni-
legar þakkir fyrir það hve vel þau
tóku fermingarbörnunum, og fyrir
það að hafa látið fjármuni svo rausn-
arlega af hendi rakna til þessa brýna
málefnis.
Fundir með foreldr-
um fermingarbarna í
Selfosskirkju
ÞRIÐJUDAGSKVÖLDIÐ 22. nóv-
ember og miðvikudagskvöldið 23.
nóvember næst komandi, bæði
kvöldin kl. 20.30, verða haldnir
fundir með foreldrum þeirra barna,
sem fermast í Selfossprestakalli á
vori komanda. Foreldrar geta valið
um, hvorn fundinn þeir sækja, eftir
hentugleikum. Rætt verður um
ferminguna í vor, fermingarstörfin í
vetur og fleira, er að þessu efni lýt-
ur. Fundirnir verða haldnir í safn-
aðarheimili Selfosskirkju, og þar
verður heitt á könnunni.
Ég vona, að sem flestir foreldrar
sjái sér fært að mæta.
Með bestu kveðju,
Gunnar Björnsson, sókn-
arprestur.
Tvær guðsþjónustur
í Dómkirkjunni
TVÆR guðsþjónustur verða í Dóm-
kirkjunni nk. sunnudag, önnur kl.
11, en það er hefðbundin guðsþjón-
usta þar sem sr. Karl V. Matthíasson
messar. Kjartan Sigurjónsson er
organisti og Telma Sigurdórsdóttir
mun syngja einsöng.
Um kvöldið kl. 20 verður svo æðru-
leysismessa. Þar mun Rúna Esradótt-
ir flytja tvö frumsamin sálmalög við
sálmana Kom huggari, kom hugga
þú og Lát mig starfa. Rúna mun einn-
ig leiða almennan sálmasöng en und-
irleikarar verða þau Hafdís Bjarna-
dóttir gítarleikari og Ástvaldur
Traustason píanóleikari. Að venju
mun einn kirkjugesta segja reynslu
sína. Allir eru hjartanlega velkomnir
í starf Dómkirkjunnar.
Dómsdagur í
Hafnarfjarðarkirkju
NÆSTKOMANDI sunnudnagur er
síðasti sunnudagur kirkjuársins. Þá
er þema guðsþjónustunnar í Hafn-
arfjarðarkirkju sjálfur Dómsdagur.
Spurt verður um merkingu dóms-
dags og hvernig hann tengist með-
ferð okkar á gömlu fólki í dag á Ís-
landi, öryrkjum, fátækum, viðhorfi
okkar gagnvart pyntingum banda-
manna okkar á föngum og und-
anbrögðum Þjóðkirkjunnar í mál-
efnum samkynhneigðra. Gæti verið
að öll þessi mál og það hvernig við
bregðumst við þeim snerti spurn-
inguna um Dómsdag? Gæti verið að
sjálf Þjóðkirkjan og fulltrúar hennar
muni þurfa að svara fyrir dómi á
Dómsdag? Svörin við þessu fást ef til
vill á sunnudag í Hafnarfjarð-
arkirkju. Prestur er sr. Þórhallur
Heimisson en organisti Antonia He-
vesi. Kór Hafnarfjarðarkirkju leiðir
söng. Guðsþjónustan hefst kl. 11.
Morgunblaðið/ÓmarAkureyrarkirkja
Á 19. öld sátu skákmenn í Evrópu
í heimahúsum og kaffihúsum að tafli
á milli þess sem þeir sötruðu kaffi
eða te. Konum var sjaldan hleypt
upp á dekk í þessa iðju enda óvíst að
þeim hafi þótt áhugavert að sitja í
reykmettuðum herbergjum á með-
an karlpeningurinn reyndi að máta
hver annan. Frá sjónarhóli þess sem
horfði á framkomu og hegðun skák-
manna gæti virst sem tíminn stæði í
stað og það eina sem gerðist væri
hreyfing keppenda þegar þeir færðu
menn sína á taflborðinu. Í hnotskurn
hefur þessi mynd af tafliðkun haldið
sér þar sem í nútímanum er for-
grunnurinn ávallt sá að tvær mann-
eskjur sitja andspænis hvor annarri
og leiða saman hesta sína. En er
þetta að breytast? Mun vera hægt
að þróa skákina þannig að hlutverk
áhorfenda verði virkara? Hefur
skák möguleika á að nýta sér tækni-
undrið og gera tafliðkun gagnvirk-
ari?
Einn möguleiki væri að frá öflug-
ustu skákmótum heims væru skýr-
ingar gerðar gagnvirkari, þ.e. að
skákskýrandi geti fengið spurningar
í mynd og mál hvaðanæva að í heim-
inum. Skákskýrandinn og áhorfand-
inn gætu þannig verið í milliliða-
lausu sambandi þó að heimsálfur
skilji þá að. Slíkt myndi óneitanlega
gera skákina áhorfendavænni og ná
til fleiri manna en nú er. Þannig
mætti ímynda sér að áhorfendur
hefðu möguleika á að færa taflmenn
á sýningarborði á Netinu eða rita
niður tillögur sínar á spjallrásum
sem skýrandinn gæti svo brugðist
við. Í dag er þetta gert en þá yfirleitt
án þess að hægt sé að fylgjast með
skákskýrandanum í mynd. Það væri
mikill kostur ef hægt væri að hafa
mynd, hljóð og texta þegar skák er
skýrð í beinni útsendingu.
Þessar vangaveltur eru settar
fram m.a. vegna þess að Netskák
hlýtur að ná sterkari fótfestu á kom-
andi árum og taka stærri skerf af
tíma bestu skákmanna heims. Þann-
ig má ímynda sér að fleiri lokuð mót
verði haldin á Netinu þar sem kepp-
endur gætu þess vegna verið heima
hjá sér og myndavélum yrði komið
þar fyrir til að minnka líkurnar á að
þeir svindli. Enn sem komið er er
tæknin ekki orðin fullburðug fyrir
þetta en sjálfsagt verður það þróun-
in. Það er einnig athyglisvert að
ungir skákmenn hafa langflestir til-
einkað sér tölvutæknina og hafa til
að mynda keppendur á heimsmeist-
aramóti unglinga, 20 ára og yngri,
sem fram fer þessa dagana í Istan-
búl í Tyrklandi, hagnýtt sér hana til
að stúdera skákir sínar og svalað
heimþránni með því að hafa sam-
skipti við vini og ættingja á Netinu. Í
stað þess að kryfja skák hverrar um-
ferðar til mergjar með eingöngu
taflborð sér við hlið er tölvan orðin
miðpunktur athyglinnar. Þetta sést
berlega þegar myndir eru skoðaðar
frá mótinu í Istanbúl.
Það má geta þess að fyrsta lands-
mótið í Netskák var haldið á Íslandi
árið 1996. Taflfélagið Hellir stóð fyr-
ir mótahaldinu og á morgun kl.
20.00, sunnudaginn 20. nóvember,
verður tíunda mótið haldið. Eins og
öll hin mótin verður Íslandsmótið
haldið á skákþjóninum ICC en hann
er sá vinsælasti á meðal skákmanna
í heiminum. Mótið er opið öllum og
telft er í einum flokki þó að einnig
verði um að ræða hápunkt Bikar-
syrpu Eddu útgáfu hf. og Hellis.
Bikarsyrpa þessi hófst fyrr á árinu
og hafa níu mót verið haldin þar sem
keppendur hafa unnið sér inn stig í
samræmi við þann vinningafjölda
sem þeir fengu í hverju móti. Snorri
G. Bergsson hefur farið mikinn í
keppninni og leiðir hana með 56
vinninga en næstur kemur Magnús
Örn Úlfarsson með 50 vinninga.
Jafnvel þó að Íslandsmótið telji tvö-
falt er ólíklegt að tryggri stöðu
Snorra í efsta sætinu verði ógnað.
Nánari upplýsingar um keppnina er
að finna á www.skak.is.
Ólafsvíkurmótið
fer fram í dag
Taflfélag Snæfellsbæjar stendur
fyrir stórmóti í skák í Ólafsvík í dag,
laugardaginn 19. nóvember. Mótið
hefst kl. 13 en fríar sætaferðir eru
frá BSÍ kl. 10. Tefldar verða átta
umferðir eftir Monrad-kerfi þar sem
í fyrstu fjórum skákunum verða
tefldar hraðskákir en næstu fjórum
atskákir. Góð verðlaun eru í boði og
þátttökugjaldi er stillt mjög í hóf.
Skemmtileg stemning hefur ávallt
myndast á skákstað enda mótshald-
arar kunnir að höfðingsskap þar
sem á milli umferða geta skákmenn
gætt sér á kaffi og kökum og að móti
loknu er boðið upp á dýrindis máltíð.
Netskák – er það framtíðin?
ÍSLANDSMÓT Í NETSKÁK
Skák
Taflfélagið Hellir og
Edda útgáfa hf.
Ljósmynd/Fatma Yildiz
Skák og tölvur eru ofarlega í huga keppenda á HM unglinga.
Helgi Áss Grétarsson
20. nóvember 2005
daggi@internet.is
hafa ekki erindi sem erfiði og sama
gildir um jaxlana úr Borgarnesi þá
Rúnar og Jón E. Úrslit urðu annars
eftirfarandi síðasta spilakvöld:
Sveinn Hallgrímss. – Magnús Magnúss. 65
Sveinbjörn Eyjólfsson – Lárus Pétursson 53
Jón Einarsson – Rúnar Ragnarsson 41
Guðm.r Kristinss. – Ásgeir Ásgeirsson 41
Þorsteinn Pétursson – Guðm. Pétursson 33
Staðan eftir tvö kvöld er því:
Sveinn Hallgrímss. – Magnús Magnúss. 133
Sveinbjörn Eyjólfss. – Lárus Pétursson 111
Jón Einarsson – Rúnar Ragnarsson 93
Sigurður – Stefán – Dóra 87
Guðm. Kristinsson – Ásgeir Ásgeirsson 41
Íslandsmót í parasveitakeppni
26.–27. nóvember
Íslandsmótið í parasveitakeppni
verður haldið 26.–27. nóv. í Síðumúla
37, húsn. Bridgesambandsins.
Spiluð verður sveitakeppni, raðað
eftir Monrad-kerfi, sjö umferðir og
16 spila leikir. Gullstig eru veitt fyrir
hvern leik, 0,5 stig á mann fyrir unn-
inn leik og 0,25 fyrir jafntefli. Einnig
uppbótarstig fyrir fjögur efstu sæt-
in. Keppnisstjóri verður Aron Þor-
finnsson.
Spilaðar eru 4 umf. á laugardeg-
inum og 3 umferðir á sunnudeginum.
Keppnisgjald er 12.000 kr. á sveit.
Bridsdeild
Breiðfirðingafélagsins
Sunnud. 13/11 var spilaður tví-
menningur á tíu borðum. Úrslit voru
eftirfarandi. Norður-Suður:
Lilja Kristjánsd. – Sigfús Skúlason 260
Gunnar Guðmss. – Sveinn Sveinsson 221
Jóhann Sigurðars. – Ingólfur Sigurðars. 219
Austur – Vestur
Garðar Jónsson – Guttormur Vik 268
Birgir Lúðvíksson – Brynjar Olgeirsson 262
Birgir Kristjánss. – Jón Jóhannsson 219
Sunnudaginn 20/11 hefst þriggja
kvölda keppni í tvímenningi.
Spilað er í Breiðfirðingabúð,
Faxafeni 14 kl. 19.