Morgunblaðið - 19.11.2005, Page 70
70 LAUGARDAGUR 19. NÓVEMBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ
BYGGÐ Á SÖNNUM ATBURÐUM
ÞAÐ SEM KOM FYRIR EMILY ROSE ER
ÓHUGNANLEGRA EN NOKKUÐ SEM
ÞÚ GETUR ÍMYNDAÐ ÞÉR
FÓR BEINT Á TOPPINN Í
BANDARÍKJUNUM!
Sýnd kl. 2, 5, 8 og 10.40 B.i. 16 ára
kl. 2, 5, 8 og 10.40
Sýnd kl. 5.20
eee
MMJ Kvikmyndir.com
Sýnd kl. 8 og 10.40 B.i. 12 ára
eee
MBL
TOPP5.IS
eee
Sýnd kl. 3, 5.30, 8 og 10.20 B.i. 14 ára
Sýnd kl. 2, 5, 8 og 10.40 B.i. 16 ára
Þau eru góðu vondu gæjarnir.
Frá höfundi Buffy the Vampire Slayer.
Ótrúlegar brellur og svöl átakaatriði.
BYGGÐ Á SÖNNUM ATBURÐUM
ÞAÐ SEM KOM FYRIR EMILY
ROSE ER ÓHUGNANLEGRA
EN NOKKUÐ SEM ÞÚ GETUR
ÍMYNDAÐ ÞÉR
FÓR BEINT Á TOPPINN Í
BANDARÍKJUNUM!
Miðasala opnar kl. 13.30
Sími 564 0000
hörku spennumynd frá leikstjóra 2
fast 2 furious og boyz´n the hood
Sýnd kl. 5.45 bi. 16 ára
eee
MMJ Kvikmyndir.com
Sýnd kl. 3 og 5.30
Sýnd kl. 8 og 10.20 bi. 16 ára
Sjóðheit spennumynd með
ofurtöffaranum Paul Walker og
hinni stórglæsilegu Jessicu Alba.
Þetta var hið fullkomna frí
þangað til þau fundu fjársjóðinn!
„Nokkurs konar Beðmál í Borginni í
innihaldsíkari kantinum. …leynir víða
á sér og er rómantísk gamanmynd í
vandaðri kantinum.” eee
HJ MBL
Þetta var hið
fullkomna frí
þangað til
þau fundu
fjársjóðinn!
TILBOÐ Á FYRSTU SÝNINGAR DAGSINS - AÐEINS 400 KR.
ATH! SÝNINGAR SÉRMERKTAR MEÐ RAUÐU
TIL F ST S I SI S - I S .
T ! S I S T
Sýnd kl. 8 og 10.15 bi. 14 ára
Sýnd kl. 3
Sýnd kl. 2 ísl tal - 450 kr
HLJÓMSVEITIN The White Strip-
es lýkur Evróputúr sínum með tón-
leikum í Laugardalshöll annað
kvöld.
The White Stripes samanstendur
af Jack White, gítarleikara og
söngvara, og Meg White trommu-
leikara. Hún var stofnuð í Detroit
árið 1997 en sveitin hefur verið á far-
aldsfæti undanfarin misseri að
kynna nýjustu breiðskífu sína Get
Behind Me Satan, sem jafnframt er
sú fimmta sem sveitin gefur frá sér.
Uppselt er í stúku en enn eru til
miðar í stæði og voru um 900 miðar
óseldir að sögn tónleikahaldara
seinnipart gærdagsins. Miðasala fer
fram í verslunum Skífunnar og á
midi.is og verði einhverjir miðar af-
gangs verða þeir seldir við inngang-
inn í Laugardalshöllinni á sunnudag-
inn.
Húsið verður opnað klukkan 19 og
upphitunarhljómsveitin Jakobín-
arína stígur á svið klukkan 20 og
The White Stripes þar á eftir.
The White Stripes leika í Laugardalshöllinni á morgun.
Tónlist | The White Stripes
í Laugardalshöllinni á morgun
Ennþá til miðar
Á DÖGUNUM kom út þriðja breið-
skífa hljómsveitarinnar Deep Jimi
and the Zep Creams sem ber einmitt
hið stórfurðulega en lýsandi nafn
hljómsveitarinnar sjálfrar. Síðasta
plata Deep Jimi, Seybie Sunsicks
Rock ’n Roll Circus, kom út árið 1995
og því eru tíu ár liðin frá því að sveitin
hélt síðast út á lendur íslensks plöt-
umarkaðar.
Stjarna Deep Jimi and the Zep
Creams reis hæst í upphafi tíunda
áratugarins þegar sveitin gerði
samning við dótturfyrirtæki hljóm-
plöturisans Warner Brothers, East
West. Platan Funky Dinosaur kom út
árið 1993 og fimm laga tónleikaskífa
stuttu seinna sem tekin var upp á hin-
um alræmda tónleikastað CBGB’s í
New York. Ævintýrið stóð þó stutt
yfir og var þar stefnubreytingum fyr-
irtækisins að mestu um að kenna sem
fór að einbeita sér að tónlist-
armönnum í léttari kantinum.
Nýja platan sem nú um ræðir var
tekin upp í haust hér á Íslandi og í
Danmörku en undirbúningur að end-
urkomu sveitarinnar hófst fyrir rúm-
um tveimur árum.
Góður andi í hljómsveitinni
Sigurður Eyberg, söngvari sveit-
arinnar, segir að það hafi flækt málin
lítillega að meðlimir sveitarinnar hafi
ekki allir búið í sama landi undanfarin
ár en viljinn hafi þó alltaf verið fyrir
hendi.
Hann er spurður hvort það hafi
ekki verið skrítið að koma saman aft-
ur eftir allan þennan tíma:
„Nei, nei. Ég myndi ekki segja að
það hafi verið skrítið. Frekar að það
hafi verið hrikalega gaman og það
kom manni á óvart hversu gott band-
ið var. Miklu betra en mig minnti.
Menn hafa þroskast heilmikið og í
dag verða ekki litlir hlutir til þess að
allt fari í háaloft.“
Hann heldur áfram að tala um
mjög góðan anda innan bandsins og
að þeir félagar hafi einnig komist að
því að þeir ynnu best allir saman.
„Það virkaði til dæmis ekki núna að
einhver einn kæmi með lag og kenndi
svo hinum.“
Hvað frekari breytingar varðar
segir Sigurður að spilamennskan hafi
aðallega tekið stakkaskiptum.
„Það var miklu meiri gredda á fyrri
plötunum tveimur en núna er þetta
mun þéttara og öflugra. Hins vegar
erum við ekki komnir í nógu mikla
fjarlægð frá þessari plötu til að geta
dæmt hana hlutlægt en hún er – held
ég – heilsteyptari.“
Sigurður segir að það hafi vissu-
lega verið stór ástæða fyrir því að
þeir réðust í þessa plötu að þeir væru
allir gamlir vinir sem hefðu gaman af
því að koma saman og spila. „En það
er líka alvara á bak við þessa útgáfu
og við ætlum okkur að kynna hana
eins vel og við getum í desember.“
Ljósmynd/Atli Már GylfasonTíu ár eru liðin frá seinustu plötu Deep Jimi and the Zep Creams.
Tónlist | Deep Jimi and the Zep Creams gefa út nýja plötu
Þéttari og öflugri
Eftir Höskuld Ólafsson
hoskuldur@mbl.is
Deep Jimi and the Zep Creams
verða með útgáfutónleika í kvöld á
Grand Rokk.