Morgunblaðið - 19.11.2005, Qupperneq 76
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040,
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 LAUGARDAGUR 19. NÓVEMBER 2005 VERÐ Í LAUSASÖLU 220 KR. MEÐ VSK.
ÍBÚÐAVERÐ á höfuðborgarsvæð-
inu heldur áfram að hækka. Það
hækkaði um 0,8% að meðaltali í októ-
bermánuði frá mánuðinum á undan.
Verð á sérbýli hins vegar lækkaði lít-
ilsháttar, en hækkaði á fjölbýli.
Verðið að meðaltali hefur þá
hækkað um 1,1% síðustu þrjá mán-
uði, 9,2% síðasta misserið og hækk-
unin síðustu tólf mánuðina nemur
36,4%.
Þetta kemur fram þegar vísitala
íbúðaverðs á höfuðborgarsvæðinu er
skoðuð en hún sýnir breytingar á
vegnu meðaltali fermetraverðs, en
íbúðarhúsnæði er skipt í flokka eftir
stærð og hvort það telst fjölbýli eða
sérbýli. Reiknað er meðalfermetra-
verð fyrir níu flokka íbúðarhúsnæð-
is.
Þegar hins vegar sérbýlið er skoð-
að annars vegar og fjölbýlið hins
vegar kemur í ljós að sérbýli lækkar
um 1,3% milli mánaða, en verð á
íbúðum í fjölbýli hækkar hins vegar
um tæplega 1,6% milli september og
október.
Sérbýli lækkar um 1,3%
í verði milli mánaða
LEIKARINN góðkunni sir Roger Moore
er væntanlegur til landsins um mán-
aðamótin. Hann er þekktastur fyrir að
leika njósnarann James Bond í fjölmörg-
um kvikmyndum.
Moore hefur starfað sem velgjörð-
arsendiherra UNICEF síðan í ágúst 1991
og kemur hingað í þeim erindagjörðum
að vera viðstaddur undirritun styrkt-
arsamningsins 1. desember nk. Ekki
verður að svo stöddu gefið upp hvaða fyr-
irtæki eiga í hlut, en um er að ræða öflug
íslensk fyrirtæki sem vilja leggja sitt af
mörkum til að bæta líf barna í þróun-
arlöndunum, segir í frétt frá UNICEF.
Meðan á heimsókn Moores stendur
mun hann einnig líta á jólakortasölu UNI-
CEF á Íslandi. Hún var ein fyrsta fjár-
öflun meðal almennings sem samtökin
efndu til og er enn stór tekjulind þeirra.
Moore hefur á þeim rúmum fjórtán ár-
um sem hann hefur starfað sem velgjörð-
arsendiherra UNICEF farið víða og látið
gott af sér leiða. Meðal annars til Mexíkó,
Slóveníu, Makedóníu, Gana, Indónesíu,
Japans, Kóreu og nú síðast Indlands.
Sir Roger Moore veitir ungri flóttastúlku
í Kósóvó eiginhandaráritun.
Roger Moore á
leið til Íslands
SAMKEPPNISEFTIRLITIÐ
hefur komist að ákvörðun um sam-
runa 365 ljósvakamiðla og Saga
film, en fyrrnefnda fyrirtækið
keypti allt hlutafé í Saga film í júlí
sl. Eftirlitið telur samrunann hafa
skaðleg áhrif á samkeppni og setur
fram skilyrði í átta liðum, sem eig-
endur 365 ljósvakamiðla hafa fallist
á að uppfylla.
Samkeppniseftirlitið telur þessa
aðila hafa það sterka stöðu á sínum
mörkuðum að grípa þurfi til íhlut-
unar til að koma í veg fyrir sam-
keppnishömlur sem samruninn feli
í sér. Þannig hafi Saga film yfir-
burðastöðu í framleiðslu sjónvarps-
efnis.
Helsta skilyrðið sem samkeppn-
isyfirvöld setja er að fullur rekstr-
arlegur og stjórnunarlegur að-
skilnaður verði á milli 365
ljósvakamiðla annars vegar og
Saga film hins vegar. Stjórnar-
menn, starfsmenn og eigendur að
meira en 1% hlut í 365 ljósvaka-
miðlum og/eða tengdum fyrirtækj-
um mega ekki sitja í stjórn eða
varastjórn Saga film. Gildir þetta
einnig um maka og skyldmenni. Þá
er stjórnendum og starfsmönnum
þessara fyrirtækja óheimilt að
miðla upplýsingum sín á milli um
viðskipti eða viðskiptahugmyndir
hvors aðila. Eiga þeir að undirrita
sérstaka yfirlýsingu um þagnar-
skyldu og trúnað og afrit send
Samkeppniseftirlitinu.
Meðal annarra skilyrða þá er
Saga film óheimilt að synja þeim
sem þess óska um framleiðslu á
dagskrárefni, auglýsingum eða
leigu á tækjabúnaði, nema ríkar
málefnalegar ástæður séu forsenda
synjunar. Þá er 365 ljósvakamiðl-
um og Saga film óheimilt að tvinna
saman viðskipti um birtingu aug-
lýsinga í fjölmiðlum 365 annars
vegar og framleiðslu eða önnur
kaup á auglýsingaefni hjá Saga film
hins vegar.
Samruni 365 ljósvakamiðla og Saga film hefur skaðleg áhrif á samkeppni
Samkeppnisyfirvöld fara
fram á fullan aðskilnað
Eftir Björn Jóhann Björnsson
bjb@mbl.is
Meira á mbl.is | itarefni
HANN hefur trúlega áhuga á því að gerast
flugmaður í framtíðinni, ungi snáðinn á leik-
skólanum Álfasteini, sem reyndi sitt besta til
að koma þessari heimasmíðuðu flugvél á loft
þegar ljósmyndari leit í heimsókn í gær. Ekki
er líklegt að flugferðin hafi varað lengi, þrátt
fyrir aðstoð nærstaddra við þessa tilraun til
flugtaks, en það skiptir ekki öllu þegar andinn
kemst á loft.
Morgunblaðið/Golli
Flogið um loftin blá í huganum
ÞAÐ var ekki sama í gær hvort keypt var í
matinn í Bónus eða Krónunni fyrir hádegi
eða eftir hádegi. Verð lækkaði og hækkaði
í kringum hádegið í kjölfarið á verðkönnun
sem Morgunblaðið gerði tvisvar í Krón-
unni og tvisvar í Bónus.
Guðmundur Marteinsson, fram-
kvæmdastjóri Bónuss, segir að verð hafi
verið lækkað í Bónus í kjölfar verðlækk-
unar sem gerð hafi verið í Krónunni á með-
an verðkönnun stóð yfir. Árni Þór Frey-
steinsson, rekstrarstjóri Krónunnar, segir
hins vegar að ákveðið hafi verið í fyrra-
kvöld að lækka verð á sumum vörutegund-
um í gær. Þær verðbreytingar hafi ekki
allar skilað sér á sama tíma í verslanirnar.
Lítill verðmunur var á vörukörfunni í
Krónunni og Bónus. | 34
Lágvöruverðsverslanir
Tíðar verð-
breytingar
♦♦♦