Fréttablaðið - 14.12.2005, Qupperneq 4

Fréttablaðið - 14.12.2005, Qupperneq 4
ÁSTRALÍA, AP Lögreglan í Sydney í Ástralíu hefur fengið aukin völd til að berjast gegn óeirðaseggjum sem hafa sett allt á annan end- ann í kynþáttaóeirðum í suður- hluta borgarinnar undanfarna tvo daga. Óeirðirnar hófust á sunnu- daginn þegar um fimm þúsund manns gerðu aðsúg að nokkrum mönnum sem eiga ættir að rekja til Mið-Austurlanda. Talið er að ástæður átaka megi rekja til þess að viku áður voru tveir lífverðir á Cronulla-ströndinni í Sydney barðir af mönnum sem var lýst af vitnum sem arabískum í útliti. Í gær slösuðust sjö manns í áframhaldandi átökum og ellefu óeirðaseggir voru settir í gæslu- varðhald. „Lögreglan verður kölluð á neyðarfund á fimmtudaginn og henni verður veitt aukið svig- rúm til að fást við glæpamenn- ina sem hafa valdið óeirðunum í borginni,“ sagði Morris Iemma, leiðtogi ríkisstjórnarinnar í Nýja Suður-Wales í Ástralíu. Einnig hefur verið ráðist á fjöl- skyldur frá Mið-Austurlöndum í Perth í vesturhluta Ástralíu og á líbanskan leigubílstjóra í Adela- ide í Suður-Ástralíu. Talið er að rekja megi þær árásir til kynþátta- óeirðanna í Sydney. - sk Ástralska lögreglan grípur til aðgerða eftir uppþot og ólæti: Hart tekið á kynþáttahöturum HITI Í MÖNNUM Lögregla hefur ákveðið að taka þá sem efnt hafa til óspekta að undanförnu föstum tökum. FRÉTTABLAÐIÐ/AP DÓMSMÁL Tveir menn, 21 og 22 ára, hafa verið dæmdir til að borga sektir vegna hass sem fannst falið í farangri þeirra í Leifsstöð við komuna frá Kaupmannahöfn 12. ágúst síðastliðinn. Sá yngri var með 42 grömm í farangri sínum og þarf að greiða 154.000 krónur í sekt, en hinn var með 66 grömm í sínum farangri og var gert að greiða 226.000 krónur. Menn- irnir játuðu báðir brot sitt greið- lega fyrir dómi. Sævar Lýðsson, fulltrúi sýslumanns á Keflavík- urflugvelli, sótti bæði málin, en í þeim var dæmt á mánudag í Hér- aðsdómi Reykjaness. Dómari var Guðmundur L. Jóhannesson. - óká Tveir þurfa að borga sektir: Komu með hass frá Köben Átök á Vesturbakkanum Þrír særðust þegar ísraelskir hermenn skutu á hóp palestínskra mótmælenda í borginni Nablus á Vesturbakkanum í gærmorgun. Tveir mannanna eru sagðir alvarlega særðir. Talsmaður Ísraelshers neitaði að staðfesta skotárásina en sagði hins vegar tvo hermenn hafa særst af völdum sprengna sem kastað hafi verið að þeim í átökunum í morgun. PALESTÍNA ÞÚSUNDASTI ÍBÚINN Alexandra Líf, þús- undasti íbúi Voga, fékk glaðning frá hrepps- nefndinni. MYND/VÍKURFRÉTTIR Íbúatal Hreppsnefnd Vatnsleysu- strandarhrepps afhenti þús- undasta íbúa sveitarfélagsins glaðning í tilefni tímamótanna. Þúsundasti íbúinn fæddist 10. nóvember síðastliðinn og heitir Alexandra Líf Ingþórsdóttir. Á heimasíðu sveitarfélagsins, vogar.is, kemur fram að í kjölfar átaksins „Vogar færast í vöxt“ hafi fólksfjölgun verið ör í sveit- arfélaginu á síðustu árum. Á vefsíðunni kemur einnig fram að íbúum þar hafi fjölgað um rúm 32 prósent á síðustu sjö árum. - sk Íbúarnir orðnir eitt þúsund: Íbúum fjölgar um þriðjung STJÓRNMÁL Aðgerðir í byggðamál- um frá árinu 2002 hafa ekki skilað nægum árangri á nokkrum land- svæðum, svo sem á Vestfjörðum, Norðurlandi vestra, norðaustur- horninu og sunnanverðum Aust- fjörðum. Þetta kemur fram í mati Byggðastofnunar á framvindu byggðaáætlunar árin 2002 til 2005, sem Valgerður Sverrisdóttir iðn- aðarráðherra lagði fram á Alþingi fyrir helgina. Í umsögn Byggðastofnunar segir að við þessu þurfi að bregð- ast, en það hafi verið gert að nokkru leyti, svo sem með gerð vaxtarsamnings fyrir Vestfirði. Einnig sé unnið að slíkum samn- ingum fyrir Suðurland og Vest- mannaeyjar. Stofnunin leitaði álits hjá atvinnuþróunarfélögum og sveit- arfélögum víða um land þegar aflað var gagna um framvinduna undanfarin ár. Í samantekt Byggðastofnunar kemur fram að meginmarkmið byggðaáætlunar hafi verið skýrari nú en í fyrri áætlunum enda gætti þar langtímamarkmiða. „Hins vegar kemur einnig fram það sjónarmið að þrátt fyrir að mark- mið byggðaáætlunar séu góð hafi nokkuð skort á að þeim hafi verið fylgt eftir með framkvæmdum.“ Efling byggðarlaga með mesta aðdráttaraflið er sagt umdeilt markmið og nokkur sveitarfélög telja sig afskipt í byggðaaðgerð- um. Umsagnir af Vesturlandi bera með sér að hlutur landshlutans í byggðaáætlun hafi verið rýr. Vest- firðingar benda á að aðgerðir hafi ekki náð að stöðva fækkun íbúa og starfa og árangur sé að því leyti ekki viðunandi. Þó bindi þeir vonir við nýjan vaxtarsamning. Í umsögnum frá Norðurlandi vestra segir að landshlutinn hafi verið afskiptur í aðgerðum stjórn- valda í byggðamálum. Markmið byggðaáætlunar séu raunhæf en skort hafi aðgerðir. Umsögn er jákvæðari af Eyja- fjarðarsvæðinu en þó eru stjórn- völd gagnrýnd fyrir að hafa ekki staðið sig sem skyldi við flutning starfa í opinberri þjónustu til svæðisins. Samband sunnlenskra sveitar- félaga taldi í umsögn sinni þörf á að móta sérhæfða byggðastefnu fyrir hvern landshluta. Þótt umsagnir í skýrslu ráðherra byggðamála séu að þessu leyti neikvæðar er vakin athygli á því að íbúaþróun hafi verið hagstæðari undanfarin ár en áður og atvinnuleysi minna. Engu að síður hafi atvinnutekjur ekki aukist á landsbyggðinni jafn mikið og á höfuðborgarsvæðiðnu. Sjá síðu 26 johannh@frettabladid.is Óviðunandi árangur í byggðapólitík Árangur stjórnvalda er rýr og jafnvel óviðunandi í byggðamálum segir í um- sögnum um framvindu byggðaáætlunar 2002 til 2005. Meginmarkmið í áætlun- inni eru sögð skýrari nú en í fyrri áætlunum. Þó skorti á að þeim sé fylgt eftir. VESTMANNAEYJAR Bæjaryfirvöld Vestmannaeyjabæjar gagnrýna stjórnvöld fyrir að nýta ekki möguleika til að flytja opinber störf út á landsbyggðina og hefðu sjálf viljað fá Vakt- stöð siglinga. VALGERÐUR SVERRISDÓTTIR Umsagnir bera með sér að byggðamarkmiðin séu góð en talsvert skorti á fram- kvæmdir. Mæðgur reka vændishús Mæðgur í San Antonio í Texas hafa verið hand- teknar fyrir að reka vændishús í íbúðar- hverfi í borginni. Nágrannar kvennanna tóku eftir tíðum mannaferðum og skynj- uðu að ekki var allt með felldu. Þegar lögreglan kom á svæðið báru þær af sér allar sakir, þær starfræktu einungis nuddstofu. BANDARÍKIN 4 14. desember 2005 MIÐVIKUDAGUR GENGIÐ GENGI GJALDMIÐLA 13.12.2005 Gengisvísitala krónunnar Bandaríkjadalur 62,88 63,18 Sterlingspund 111,16 111,7 Evra 74,94 75,36 Dönsk króna 10,057 10,115 Norsk króna 9,401 9,457 Sænsk króna 7,936 7,982 Japanskt jen 90,08 90,62 SDR 88,46 89,06 HEIMILD: Seðlabanki Íslands KAUP SALA 105,4811 LÖGREGLA Lögreglan á Selfossi handtók í fyrrinótt mann á þrí- tugsaldri sem liggur undir grun um að hafa stolið fjallajeppa í Breiðholti í síðustu viku. Bíllinn, sem er af Nissan Patr- ol-gerð, fannst við Rauðavatn og eins og greint var frá í Fréttablað- inu hafði allt laust sem fast verið hirt úr bílnum. Að sögn eiganda bílsins var það glöggt auga vegfaranda sem leiddi til handtöku hins grunaða, hann hafði séð til ferða bílsins eftir að sagt var frá þjófnaðinum. - sk Strípaði jeppinn við Rauðavatn: Einn grunaður um þjófnaðinn FJALLABÍLLINN Bílilnn fannst við Rauðavatn og allt nýtilegt hafði verið tekið úr honum. BRETLAND Lögreglan í Lundúnum hefur þrívegis komið í veg fyrir hryðjuverkaárásir síðan tilraun til slíkra árása var gerð þann 21. júlí síðastliðinn. Hálfum mánuði áður fórust 56 manns í árásum á samgöngukerfi borgarinnar. Þetta kom fram í máli Ians Blair, lögreglustjóra Lundúna- lögreglunnar, á blaðamannafundi í fyrrakvöld. Hann varaði þó við því að hættan væri vissulega enn til staðar. Fimmmenningarnir sem stóðu fyrir árásunum misheppnuðu hafa verið ákærðir og er búist við að réttarhöld í máli þeirra hefjist í september á næsta ári. ■ Lundúnalögreglan: Kom í veg fyrir þrjár árásir
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.