Fréttablaðið - 14.12.2005, Qupperneq 45
Áætlað er að japanskur banki
muni tapa um 1.400 milljónum
vegna mistaka sem kölluð eru
„Sverfingraheilkennið“ (fat
finger syndrome). Þetta kemur
fram á fréttavefnum timeson-
line.
Ónefndur verðbréfasali hjá
verðbréfafyritækinu Mizhuo
ætlaði að selja einn hlut í fjar-
skiptafyrirtækinu J.com á 600
þúsund jen, jafnvirði 324 þúsund
íslenskra króna, en seldi vegna
mistaka 600 þúsund hluti á 50
aura hvern. Mistökin ollu keðju-
verkun á markaðinum sem
leiddi til tveggja prósenta lækk-
unar á Nikkei-vísitölunni þar
sem verðbréfasalar seldu bréf í
öllum japönskum verðbréfa-
fyrirtækjum því enginn vissi hjá
hvaða fyrirtæki mistökin voru
gerð. Það verður væntanlega
enginn jólabónus í ár hjá
Mizhuo.
Í nóvember 1999 rak einn
seinheppinn sig í lyklaborðið
með olnboganum og seldi sex
hundruð hluti Premier oil fyrir
tuttugu krónur hvern þegar
hlutirnir hefðu farið á meira en
tvöhundruð milljónir íslenskra
króna.
Í desember 2001 tapaði miðl-
ari hjá svissneska fjárfestingar-
bankanum andvirði átta millj-
arða íslenskra króna á nokkrum
sekúndum. Miðlarinn hafði ætlað
að selja sextán hluti í japanska
auglýsingarisanum Dentsu á 600
þúsund jen hvern en seldi þess í
stað 610 þúsund hluti fyrirtæk-
inu á sex yen á hlut.
Í febrúar 2005 ætlaði miðlari
að selja 15 þúsund hluti í EMI
tónlistarútgefandanum á um 300
krónur á hlut en setti þess í stað
inn pöntun á 15 milljón hluti á
verði sem hljóðaði upp á rúm-
lega fjóra milljarða. - áa
!!" # "
$
%
&
!
"!# $%%
&
' (
!#) $%%***+ +
Hinn 14. desember árið 1911 steig Roald Amund-
sen fyrstur manna á suðurpólinn. Hann hafði náð
takmarki sem marga hafði dreymt um, að rjúfa
kyrrð syðsta odda hnattarins.
Afrekið átti eftir að gera Amundsen og sam-
ferðamenn hans heimsfræga, en í bréfi þar sem
hann lýsir tilfinningunni sem fylgdi því að komast
á syðsta punkt jarðar skrifar hann: „Enginn maður
hefur verið eins langt frá takmarki sínu
landfræðilega og ég var þá“. Takmark hans hafði
nefnilega alltaf verið að komast á norðurpólinn.
Amundsen var fæddur í litlu þorpi nálægt Osló
og ólst upp við afrek landa síns Fridtjov Nansen,
sem var heimsfrægur landkönnuður. Amundsen
var því ekki hár í loftinu þegar hann hafði
skipulagt framtíð sína. Hann lét hins vegar undan
vilja móður sinnar, sem vildi að hann lærði læknis-
fræði. Þegar Amundsen var 21 árs lést móðir hans
og þá beið hann ekki lengur með að láta draum sinn
um að gerast landkönnuður rætast. Hann seldi
skólabækur sínar og tilkynnti öllum sem hann
þekkti þá áætlun sína að kanna framandi staði.
Eftir mikinn undirbúning fékk Amundsen „Fram“
skip Fridtjovs Nansen lánað og lagði af stað í
leiðangur á Norðurpólinn, en þær áætlaninr fóru
fyrir lítið þegar fréttir bárust að Bandaríkjamað-
urinn Robert Peary hefði náð Pólnum.
Amundsen var ekki lengi að jafna sig af þessum
ótíðindum heldur breytti áætlunum sínum, nú
skyldi hann verða fyrstur til að stíga fæti á Suður-
pólinn.
Það var vitað að Englendingurinn Robert Scott,
sem hafði misheppnast einu sinni áður, var að
leggja í sína aðra ferð til að sigra pólinn.
Kapphlaupið var hafið, í janúar 1911 lagðist
Fram við akkeri í Hvalaflóa á Suðurskautslandinu
en sextíu mílum fjær pólnum sjálfum lagðist skip
Roberts Scott við akkeri. Hinn 19. október hófst
hin eiginlega ferð á pólinn eftir að Amundsen hafði
komið sér upp matarbirgðum á nokkrum stöðum á
leiðinni. Amundsen lagði af stað ásamt fjórum fé-
l ö g -
um á
hunda-
sleðum.
Í fyrstu
gekk ferð-
in mjög vel og það
var ekki fyrr en
þeir komu á Axel
Heiberg-jökulinn með sínum botnlausu sprungum
og hrikalegu landslagi að ferðin fór að sækjast
hægar. En mennirnir voru vel þjálfaðir og sigruð-
ust á jöklinum. Eftir það sóttist þeim ferðin vel.
Ótti þeirra að leiðangursmenn Scotts yrðu fyrri til
á pólinn reyndist ástæðulaus og hinn 14. desember
1911 náðu Amundsen og samferðamenn hans
áfangastað. Scott og hans menn náðu seinna póln-
um en létust allir á leið sinni til baka. - áa
S Ö G U H O R N I Ð
Roald Amundsen
fyrstur á Suðurpólinn
MARKAÐURINN MIÐVIKUDAGUR 14. DESEMBER 2005 7
Ú T L Ö N D
Villa veldur milljarðatapi
ÁHYGGJUFULLUR VARÐBRÉFAMIÐLARI Áætlað er að japanskur banki muni tapa 1.400
milljónum vegna innsláttarvillu.
06_07_Markadur lesið 13.12.2005 15:03 Page 3