Fréttablaðið - 14.12.2005, Síða 55

Fréttablaðið - 14.12.2005, Síða 55
MARKAÐURINN MIÐVIKUDAGUR 14. DESEMBER 2005 17 H É Ð A N O G Þ A Ð A N Vorum að fá í sölu 138,4 fm iðnaðarhúsnæði auk 120 fm millilofts. Snyrtilegt pláss sem getur losnað fljótlega. Verð 17,5 milljónir. Glæsilegt fullbúið 215,9 fm verslunarhúsnæði á þessum eftirsótta stað. Stefnt er að sölu á eigninni, en leiga kemur til greina. Verð 43 milljónir. Heil rishæð í þessu vandaða húsi í miðbænum. Eignin er tveir eignahlutar en selst sem einn. Var innréttað sem tannlæknastofur, en er nú nýtt sem íbúðir. Verð 21,5 milljónir. Glæsilegt nýtt 546 fm atvinnuhúsnæði til sölu/leigu. Laus strax. Verð: Tilboð. Runólfur Gunnlaugsson lögg. Fasteignasali Skrifstofur okkar eru opnar alla virka daga frá kl. 9-17 Sími: 565 8000 Netfang: hofdi@hofdi.is Vegna miki l lar sölu undanfar ið vantar okkur e ignir á skrá strax - skoðum og metum atvinnuhúsnæði samdægurs. Trönuhraun 3 Fjarðargata 13-15 Barónsstígur 5 Flatahraun 3 Lykla-Pétur skiptir um nafn Veiruvarnarforrit Friðriks Skúlasonar ehf., sem þekkt er á Íslandi undir nafninu Lykla-Pét- ur, hefur í meira en fimmtán ár verið selt á heimsmarkaði undir vörumerkinu F-PROT Antivirus. Til að samræma markaðssetn- ingu fyrirtækisins innanlands sem utan hefur fyrirtækið tekið ákvörðun um að Lykla-Pétur verði framvegis seldur á Íslandi undir nafninu F-PROT Antivirus. Þótt nafni forritsins sé breytt nú mun Windows-útgáfa þess áfram koma út í íslenskri útgáfu. Allur stuðningur og þjónusta verða jafnframt áfram veitt íslenskum viðskiptavinum á íslensku. Tryggingamiðstöðin hlaut á dögunum vottun Sjá ehf. og Öryrkjabandalags Íslands um að nýr vefur fyrirtækisins www.tryggingamidstodin.is stæðist kröfur um aðgengi fyrir fatlaða. Dæmi um breyt- ingar sem orðið hafa á vef TM eru að blindir og sjónskertir geti notað talgervla og sérhönnuð lykla- borð með síðunni eða stækkað letrið. Lesblindir geta breytt um bakgrunnslit og hreyfihamlaðir geta vafrað án þess að nota músina. Til viðbótar þessu hafa verið settar inn útskýringar á allar myndir, tenglaheiti hafa verið gerð skýrari og stærð og teg- und viðhengja kemur vel fram. Skammstafanir hafa jafnframt verið teknar út eða eru með útskýr- ingu. Engar reglur eru í gildi hérlendis um aðgengi að heimasíðum en í nágrannalöndunum er komið í lög að heimasíður opinberra stofnana sem og flestra fyrirtækja eigi að vera aðgengilegar öllum notendum, óháð fötlun eða getu. TM stenst kröfur fatlaðra ÍSLANDSBANKI EFNDI TIL KVÖLDVERÐAR- BOÐS Í SANTIAGO Á myndinni eru Fernando Ramos frá Skretting Chile, Bjarni Ármannsson, Einar K. Guðfinnsson og Andrés Daroch frá Foodcorp. Íslandsbanki hóf nýlega samvinnu við Fjord Seafood Chile (FSC) og er bankinn þar með orðinn einn af mikilvægustu lánveitendum FSC, en fyrirtækið er í eigu Norðmanna og er fimmta stærsta laxeldisfyrirtækja heims. FSC rekur einnig reykhús í Bandaríkjunum. Nokkrir af íslenskum viðskiptavinum bankans eru með vaxandi starf- semi á þessum slóðum og má þar nefna Atlantis, Fram Foods, Marel, Maritech og Vaka, en þessi fyrirtæki eru með starfsstöðvar í Chile. Þá er HB Grandi hluthafi í chilesku sjávarútvegsfyrirtæki, Friosur, sem sérhæfir sig í bolfiskveiðum og vinnslu, auk vaxandi starfsemi í fiskeldi. FORSVARSMENN ÍSLANDSBANKA VORU Í VIKUFERÐALAGI Í PERÚ OG CHILE Í NÓVEMBER OG MEÐ Í FÖR VORU VILHJÁLMUR EGILSSON RÁÐUNEYTISSTJÓRI OG EINAR K. GUÐFINNSSON SJÁVARÚTVEGSRÁÐHERRA Tilgangur ferðarinnar var að skoða og kynna sér starfsemi nokkurra fyrirtækja sem bankinn starfar með á svæðinu. Hópurinn skoðaði meðal annars líka sjávarútvegsráðuneytin í Perú og Chile. Íslandsbanki hefur á síðustu árum unnið náið með fyrirtækjum sem starfa á sviði sjávarútvegs og fisk- eldis á þessum mörkuðum. ALVARO VARELA, AQUACHILE, JÓN GARÐAR GUÐMUNDSSON, ÍSLANDSBANKA, JORGE CASSIGOLI, VAKI CHILE, OG CHARLES NAYLOR, CAMANCHACA. Íslandsbanki vinnur með fimm fyrirtækjum í Chile. Aðaláherslan hefur verið lögð á fiskeldisfyrirtæki, en Chile er ásamt Noregi fremst í flokki landa heims í eldi á laxfisk- um. Perú er mikilvægasta framleiðsluland fiski- mjöls í heiminum í dag, með um 30% af heims- framleiðslu fiskimjöls. Perú er einnig önnur mikil- vægasta fiskveiðiþjóð veraldar, einungis Kínverjar veiða meira. Íslandsbanki hefur lagt áherslu á ráð- gjöf við kaup og sölu á fyrirtækjum í starfsemi sinni í Suður-Ameríku, auk þess sem bankinn veitir fyrirtækjum í fiskeldi og sjávarútvegi víðtæk- ari þjónustu á sviði alhliða fjármögnunar. 16_17_Markadur lesið 13.12.2005 15:18 Page 3
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.