Fréttablaðið - 14.12.2005, Page 76
Komdu í spennandi heim
afþreyingar og upplýsinga
Smelltu þér á www.ogvodafone.is, farðu í næstu verslun Og Vodafone
eða hringdu í 1414 fyrir nánari upplýsingar.
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
O
G
V
3
06
37
12
/2
00
5
KOMDU Í SPENNANDI HEIM
AFÞREYINGAR OG UPPLÝSINGA
14.900 kr.
NOKIA 6020
SÍMI
Kl. 12.15
Yrsa Sigurðardóttir les úr spennu-
sögu sinni, Þriðja táknið, í bókasal
Þjóðmenningarhússins í hádeginu.
Á veitingastofunni verður einnig
í boði blóðrauð rauðrófusúpa eða
súpa dagsins.
Undanfarin níu ár hefur Sigrún
Hjálmtýsdóttir komið fram á tón-
leikum í Mosfellskirkju skömmu
fyrir jól með Blásarasextett Mos-
fellsbæjar. Þau eru farin að nefna
sig „Diddú og drengina“ og bjóða
upp á fjölbreytta tónlist á sínum
árvissu tónleikum í kvöld.
Blásarasextettinn er skipað-
ur tveimur klarínettuleikurum,
þeim Sigurði I. Snorrasyni og
Kjartani Óskarssyni, tveimur
hornleikurum, Emil Friðfinns-
syni og Þorkeli Jóelssyni, og
tveimur fagottleikurum, þeim
Brjáni Ingasyni og Birni Árna-
syni.
„Við erum bara með eitt stutt
verk eftir Mozart í ár,“ segir Sig-
urður I. Snorrason, annar klarin-
ettuleikaranna, en bætir því við
að þau séu strax farin að hugsa til
næsta árs, sem verður sannkall-
að Mozart-ár því þá verður þess
minnst út um allan heim að 250
ár eru liðin frá fæðingu hans.
„Það verður mikill Mozart hjá
okkur á næsta ári. Ég hugsa að
hópurinn komi líka saman utan
þessa jólatíma og haldi þá Moz-
art-tónleika.“
Auk þessa verks eftir Mozart
flytja þau í kvöld atriði úr óperu
eftir Handel, tvær aríur og milli-
þáttamúsík, þar á meðal einn
þátt sem heitir Vopnadans. Á efn-
isskránni eru einnig verk eftir
Bach, Mascagni og Atla Heimi
Sveinsson.
Söngrödd og sex blásturshljóð-
færi er frekar óvenjuleg samsetn-
ing, en Sigurður segir þetta bjóða
upp á mikinn fjölbreytileika í
tónlistarvali.
„Þegar maður er með þó þetta
mörg hljóðfæri þá er hægt að
útsetja fyrir okkur nánast hvað
sem er, hvort sem það eru sálm-
ar eða óperuaríur eða annað. Það
heillaði okkur líka dálítið að bæta
söngröddinni við, en það kallaði
reyndar á vinnu því ekkert er til
fyrir söngrödd og þennan hljóð-
færahóp, þannig að það hefur
þurft að útsetja sérstaklega fyrir
okkur allt sem við höfum flutt.“
Það er Kjartan Óskarsson,
annar klarinettuleikaranna,
sem hefur haft veg og vanda af
öllum útsetningunum. Sum verk-
in flytja blásararnir síðan einir
og óstuddir án söngraddarinnar,
þannig að Diddú fær að hvíla sig
inn á milli.
„Við blöndum þessu nokkuð
jafnt þótt hún sé auðvitað í aðal-
hlutverki.“
Ávöxtur þessa samstarfs blás-
aranna sex og Diddúar kom út á
geisladiski í fyrra, þar sem hún
söng nítján uppáhalds Ave Marí-
urnar sínar og hlaut diskurinn afar
góðar móttökur. Nokkrar af þess-
um Ave Maríum, sem eru á disk-
num, verða fluttar á tónleikunum í
kvöld, en að auki flytja þau Diddú
og drengirnir eina Ave Maríu sem
ekki er að finna á plötunni.
„Við erum reyndar að frum-
flytja hana, en hún er eftir Loft
Guðmundsson, þann merka ljós-
myndara og kvikmyndagerðar-
mann. Hann samdi þetta þegar
sonur hans gerðist kaþólskur
prestur árið 1947.“
Að sögn Sigurðar samdi Loft-
ur ekki mikið af tónlist, „en það
sem er þekkt eftir hann er gott“.
Tónleikarnir í Mosfellskirkju
hefjast klukkan 20.30 í kvöld. ■
Í MOSFELLSKIRKJU Árvissir tónleikar Diddúar og blásaranna sex verða í Mosfellskirkju í
kvöld.
Sex lúðrar blása með Diddú
„Ólíkt öðrum djassböndum færir Roundtrip okkur
tónlistina án þess að kaffæra hana í rokk-popp
rusli,“ segir Germein Linares á vefsíðunni All About
Jazz í dómi sínum um fyrsta disk norsku hljómsveit-
arinnar Roundtrip. Diskurinn kom út í mars á þessu
ári, heitir Two Way Street og hefur hlotið góða
dóma og frábærar viðtökur.
Þessi norska djasshljómsveit er komin til Íslands
og verður með tónleika í Norræna húsinu í kvöld.
Þeir hefjast klukkan 20.
Roundtrip var stofnuð árið 2002 af þeim Klaus
Ellerhusen Holm á alt- og baritónsaxófón, Ole
Morten Vågan á kontrabassa og Ole Thomas Kolberg
á trommur. Þeir stunduðu allir nám við tónlistarhá-
skólann í Þrándheimi. Upphaflega komu þeir fram
undir nafninu Megatsunami, eða Risaflóðbylgjan, en
eftir hörmungarnar í Asíu og þegar sænski víbrafón-
leikarinn Mathias Ståhl bættist í hópinn breyttu þeir
nafninu í Roundtrip.
Í ágúst 2003 hlaut Roundtrip fyrstu verðlaun í
norrænu djasskeppninni Young Nordic Jazz Comets.
Þeir hafa síðan ferðast vítt og breitt um Norðurlönd-
in og nú er röðin komin að Íslandi.
Á tónleikunum í Norræna húsinu mun Davíð Þór
Jónsson píanóleikari koma fram sem sérstakur gest-
ur Roundtrip.
Ómengaður djass
Óðum styttist í að sex þúsundasti
áhorfandinn bregði sér í Iðnó á
sýninguna Ég er mín eigin kona,
þar sem Hilmir Snær Guðnason
fer á kostum. Síðustu sýningar
fyrir jól verða nú um helgina, en
haldið verður áfram eftir áramót.
Leikritið var frumsýnt í haust
og hefur síðan notið gífurlegra
vinsælda. Sýningar eru orðnar
yfir fjörutíu talsins og hefur verið
uppselt á þær flestar.
Leikritið er byggt á sannsögu-
legum atburðum. Aðalpersónan
er Charlotte von Mahlsdorf, sem
fæddist sem drengur en ákvað að
lifa lífi sínu sem kona.
Hilmir Snær Guðnason leik-
ur öll hlutverk sýningarinnar,
sem eru 35 talsins og hefur hlot-
ið frábæra dóma fyrir leik sinn.
Leikstjóri er Stefán Baldursson
og er sýningin fyrsta verkefni
nýstofnaðs leikhúss þeirra Hilmis,
Skámána og er unnin í samvinnu
við Menningar-og listastofnun
Kormáks og Skjaldar.
Leikritið hlaut fjölda verðlauna
þegar það var frumsýnt í New
York fyrir einu og hálfu ári. ■
Nálgast sex þúsund
ÉG ER MÍN EIGIN KONA Hilmir Snær í
hlutverki Charlotte von Mahlsdorf.
Hausthefti Sögu, Tímarits Sögu-
félags er komið út. Að vanda
inniheldur það fjölbreytt efni, til
dæmis fjallar Unnur Birna Karls-
dóttir ítarlega um vananir eða
ófrjósemisaðgerðir hér á landi frá
1938 til 1975 og Sveinbjörn Rafns-
son ræðir um Vatnsdælasögur og
Kristnisögur.
Þá greinir Guðmundur Hálf-
danarson frá sölu Skálholtsjarða
undir lok 18. aldar, sem hann nefn-
ir fyrsta uppboð á ríkiseignum
hérlendis og Sverrir Jakobsson
ræðir um endalok þrælahalds og
vaxandi leiguliðabúskap á tíma-
bilinu 1100-1400.
Viðhorfsgreinar eru þrjár eftir
þá Árna Daníel Júlíusson, Matthías
Á. Mathiesen og Gunnar Karlsson,
og fjalla þeir
m.a. um þjóð-
erni, ritstuld
og fræðileg
v i n nubrögð.
Þá skrifar
Eggert Þór
B e r n h a r ð s -
son um end-
u r h ö n n u n
þriggja aust-
firskra sýn-
inga, þ.e. á
S eyði sf i rð i ,
Reyð a r f i rð i
og Hornafirði.
Síðast en ekki síst er lífleg umfjöll-
un um fjölmargar nýlegar bækur í
heftinu. Ritstjórar eru Guðmundur
J. Guðmundsson og Páll Björnsson.
FORSÍÐA SÖGU Að
venju inniheldur ritið
fjölbreytt efni.
Saga komin út
Tónlistarmaðurinn Daníel Ágúst
Haraldsson heldur útgáfutónleika
í Íslensku óperunni í kvöld í tilefni
af útgáfu fyrstu sólóplötu hans,
Swallowed a Star.
Platan, sem er gefin út af
Smekkleysu og One Little Indi-
an í Bretlandi, var í tæp fimm
ár í vinnslu. Um er að ræða heil-
steypta, epíska og magnþrungna
poppplötu þar sem notast er við
strengi, rafhljóð og slagverk.
Seiðandi rödd Daníels Ágústs er
þó ávallt í fyrirrúmi.
Daníel mun koma fram ásamt
fimm manna strengjasveit sem
í eru Gréta Guðnadóttir, Roland
Hartwell, Guðmundur Krist-
mundsson, Sigurður Bjarki Gunn-
arsson og Hávarður Tryggvason.
Sérstakir gestir verða Mr. Silla og
hljómsveitin Rass.
Tónleikarnir hefjast klukkan
21.00 og er miðaverð 2.000 krón-
ur. Forsala fer fram í plötubúð
Smekkleysu við Laugaveg. ■
DANÍEL ÁGÚST Útgáfutónleikarnir
í kvöld eru í tilefni af fyrstu sóló-
plötu hans, Swallowed a Star.
Útgáfutónleikar Daníels Ágústs
> Ekki missa af ...
... útgáfutónleikum tangósveitar-
innar L‘amour fou, sem haldnir
verða í Þjóðleikhúskjallaranum
annað kvöld.
... hinum árlegu jólatónleikum
Sinfóníuhljómsveitar Íslands í
Háskólabíói á laugardaginn.
... litlu jólum Rafrænnar
Reykjavíkur á Gauki á Stöng í
kvöld. Þar verða öll helstu jóla-
börnin úr elektrógeiranum.
14. desember 2005 MIÐVIKUDAGUR40
menning@frettabladid.is
!