Fréttablaðið - 14.12.2005, Page 79
MIÐVIKUDAGUR 14. desember 2005 43
Fjáröflunardansleikur
Zontaklúbbs Selfoss
7. janúar 2006
Veislustjóri:
Steingrímur J. Sigfússon
Fordrykkur klukkan 19.00
Fjögurra rétta hátíðarkvöldverður
Vínartónlistardagskrá
Danssýning Vínardansa
Dansleikur til klukkan 03.00
Verð með gistingu:
10.600,- krónur
á mann í tvíbýli.
Verð án gistingar:
6.800,- krónur
Samkvæmisklæðnaður skilyrði
Pantanir í síma 483 4700
info@hotel-ork.is
á Hótel Örk laugardaginn 7. janúar
Einsöngvari
Sigrún Hjálmtýsdóttir
Undirleikur
Anna Guðný Guðmundsdóttir
Einleikur á fiðlu
Sigrún Eðvaldsdóttir
Hljómsveitin Veislutríóið
Sigurður Ingvi, Anna Guðný,
Páll Einarsson og Sigrún
Eðvaldsdóttir spila fram á nótt.
Matreiðslumenn
Jakob V. Arnarson
Snorri Jóhannsson
Hótel Örk - Paradís rétt handan heiðar!
Vinardansleikur
page 1
Monday, December 12, 2005 14:44
Composite
Komdu í spennandi heim
afþreyingar og upplýsinga
Smelltu þér á www.ogvodafone.is, farðu í næstu verslun Og Vodafone
eða hringdu í 1414 fyrir nánari upplýsingar.
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
O
G
V
3
06
37
12
/2
00
5
16.900 kr.
MOTOROLA V360v
SÍMI
KOMDU Í SPENNANDI HEIM
AFÞREYINGAR OG UPPLÝSINGA
„Við ætlum að vera hryllilega
skemmtileg,“ segir Svana Berg-
lind Karlsdóttir um jólaskemmt-
un Sopranos, þriggja sópransöng-
kvenna sem ætla að bjóða upp á
óborganlega jólatónleika í Sel-
tjarnarneskirkju í kvöld.
„Við verðum með bland í poka,
eitthvað fyrir alla, bæði hátíðlegt
og fyndið, háklassík og létt. Þetta
verður allur pakkinn.“
Með Svönu í tríóinu Sopranos
syngja þær Margrét Grétarsdótt-
ir og Hörn Hrafnsdóttir en um
undileik sjá Hólmfríður Sigurð-
ardóttir píanóleikari, Guðmund-
ur Hafsteinsson trompetleikari
og Örnólfur Kristjánsson sellól-
eikari.
Gestur á tónleikunum verð-
ur hinn vinsæli bariton Hrólfur
Sæmundsson, en hann kemur
funheitur úr hommaóperunni
„Gestur, síðasta máltíðin“, sem
sýnd er í Iðnó um þessar mundir.
Á tónleikunum verður meðal
annars frumflutt jólalag eftir
Egil Gunnarsson tónskáld sem
stundar nú mastersnám í tón-
smíðum á Ítalíu. Hann hefur jafn-
framt útsett mikið af efni tónleik-
anna ásamt söngkonunum.
„Við ætlum til dæmis að flytja
Ó, helga nótt í nýrri útsetningu
eftir Egil, og svo flytjum við
Leppur, Skreppur og Leiðinda-
skjóða eftir Gunnar Þórðarson
sem Halli og Laddi sungu. Ég
held að fólk eigi eftir að springa
úr hlátri þá. Síðan verðum við
með fullt af amerískum jólalög-
um, æðislega fallegum og væmn-
um.“
Um Sopranos geta menn
fræðst betur á vefsíðum þeirra á
www.sopranos.is, en jólaskemmt-
un þeirra í Seltjarnarneskirkju
hefst klukkan 20 í kvöld.
Sopranos með allan pakkann
SOPRANOS Þær Hólmfríður píanóleikari og söngkonurnar Svana, Hörn og Margrét slá bæði á létta og alvarlega strengi á jólaskemmtun í
Seltjarnarneskirkju í kvöld.
„Þessi saga sprettur svolítið út úr
skugganum eins og allar íslenskar
þjóðsögur,“ segir Felix Bergsson
leikari um Ævintýrið um Augastein.
„Sagan er svolítið dimm þannig að
þau yngstu eru aðeins með í magan-
um þegar Grýlan birtist en þau eru
líka ofsalega hugrökk og stolt af því
eftir á að hafa setið hana af sér.“
Fyrir jólin 2002 sendi Felix frá sér
barnabókina Ævintýrið um Auga-
stein og setti jafnframt upp sam-
nefnda jólasýningu fyrir börn, sem
var frumsýnd í London sama ár.
„Við höfum síðan sýnt leikritið
alltaf í desember,“ segir Felix, en í
ár gefast þó ekki mörg tækifæri til
þess að líta þessa fallegu sýningu
augum. Í dag og á morgun verða
nokkrar sýningar á verkinu í skól-
um og um helgina verða þrjár sýn-
ingar í Þjóðleikhúsinu en síðan ekki
söguna meir.
„Þetta verða einu sýningarnar
hjá okkur í ár. Við vorum á Akur-
eyri í síðustu viku og það var meiri-
háttar. Mikil stemning.“
FELIX OG KOLBRÚN Þau Felix Bergsson og
Kolbrún Halldórsdóttir eru komin af stað
á ný með jólasýningu sína, Ævintýrið um
Augastein.
Sprettur úr skugga
■ ■ FUNDIR
12.00 Landssamband sjálfstæð-
iskvenna og vefritið Tíkin standa
fyrir hádegisfundi á Kaffi Sólon
um stjórnarmyndun Gunnars
Thoroddsens og klofning
Sjálfstæðisflokksins árið 1980.
Framsögumaður verður Guðni
Th. Jóhannesson sagnfræðingur.
Pallborðsumræður leiða, ásamt
Guðna, Björn Bjarnason dóms-
málaráðherra og Þorsteinn Pálsson
lögfræðingur og fyrrverandi formaður
Sjálfstæðisflokksins.
■ ■ BÆKUR
12.15 Yrsa Sigurðardóttir les úr
spennusögu sinni, Þriðja tákninu,
í bókasal Þjóðmenningarhússins í
hádeginu. Súpa í boði á veitingastof-
unni.
Upplýsingar um viðburði og sýningar
sendist á hvar@frettabladid.is ekki
síðar en sólarhring fyrir birtingu.