Fréttablaðið - 14.12.2005, Page 82

Fréttablaðið - 14.12.2005, Page 82
NIKKAN ÞANIN Hekla Einarsdóttir hafði ofan af fyrir gestum enda unna allir sannir nýhilistar harmóníkutónlist öðru fremur. Nýhil gerði sér glaðan dag á skemmtistaðnum Dillon á laugardagskvöld í tilefni þess að fyrstu bækurnar í ritröð- inni Norrænar bókmenntir hafa litið dagsins ljós. Vinir og velunn- arar Nýhil og ljóðsins létu sig ekki vanta og skáldleg spekin sveif yfir vötnum langt fram á nótt. Alls koma út níu bækur í rit- röðinni og á dögunum komu þær fyrstu fjórar út; Gamall þrjótur, nýir tímar eftir Örvar Þóreyjar- son Smárason, Rispa jeppa eftir Hauk Má Helgason, Blandara- brandarar eftir Eirík Örn Norð- dahl og Gleði og glötun eftir Óttar Martin Norðfjörð. Í vor koma út bækur eftir Kristínu Eiríksdóttur, Steinar Braga, Ófeig Sigurðsson, Val Brynjar Antonsson og Þórdísi Björnsdóttur. KAMPAKÁTUR Örvar Þóreyjarson Smárason spjallaði við vinkonu sína og var hæstánægður með útgáfu bókar sinnar, Gamall þrjótur, nýir tímar. MÁLIN RÆDD Hvort nýhilistarnir Haukur Már Helgason, Hildur Lilliendahl og Eiríkur Örn Norðdahl hafa verið að ræða stöðu ljóðsins skal ósagt látið, en Haukur og Eiríkur eiga báðir bækur í ritröðinni.FRÉTTA- BLAÐIÐ/ÓMAR LJÓÐ DREKKA BJÓR VINIR LJÓÐSINS Þessi tvö litu við á efri hæð Dillon og nutu afurða og samskipta við Nýhilhópinn. Jólapakki www.btnet.is. M.v. 12 mánaða samning extra light V16 Kíktu í næstu BT verslun og fáðu þér áskrift! Allir sem fá sér áskrift í desember fá jólapakka • • Einn mánuður frítt hjá Stöð2 • • Fyrsti áskriftar mánuður frítt hjá BTnet • • 12.000 kr. afsláttur af öllum tölvum í BT DRIFKRAFTARNIR Þór Steinarsson, markaðsstjóri Nýhil, og Viðar Þorsteinsson hafa staðið í ströngu við útgáfuna og voru að vonum ánægðir. Brokeback Mountain, kvikmynd um hommakúreka eftir Ang Lee, er tilnefnd til sjö Golden Globen- verðlauna en tilnefningarnar voru tilkynntar í gær. Verðlaunin þykja gefa sterka vísbendingu um það sem koma skal á óskarnum. Brokeback Mountain hefur fengið frábæra dóma gagnrýn- enda en hún snertir á viðkvæmu máli í þeim karlmennskuheimi sem veröld kúreka óneitanlega er. Myndin fær þó harða samkeppni í flokknum Besta dramatíska mynd- in. Þar mun hún etja kappi við The Constant Gardener í leikstjórn Fernandos Meirelles sem síðast gerði City of God, Good Night and Good Luck eftir George Clooney, David Cronenberg myndina A His- tory of Violence auk Match Point sem Woddy Allen gerði með Scarl- ett Johansson en hún er einnig tilnefnd fyrir leik í aðalhlutverki. Leikstjórarnir eru og allir tilefndir. Önnur mynd sem stimplar sig rækilega inn fyrir kapphlaupið um Óskar frænda er Walk the Line sem gerir upphaf ástarsambands John- nys Cash og June Carter góð skil. Myndin Munich er tilnefnd fyrir bestu leikstjórn og besta handritið en ekki sem besta myndin. Steven Spielberg er sagður vera þar með eldfimt efni í höndunum en hún fjallar um eftirmála hryðjuverk- anna í Munchen árið 1972 og tekur á stirðri sambúð gyðinga og araba í Ísrael. Nánast allar leikkonurnar í Aðþrengdum eiginkonum eru til- nefndar fyrir leik sinn í sjónvarps- flokknum og sem besta dramatíska þáttaröðin en þessar þáttaraðir nutu mikilla vinsælda hér á landi. Brokeback Mountain með flestar tilnefningar TILNEFNINGARNAR TILKYNNTAR Það voru þau Steve Carell og Kate Beckinsale sem tilkynntu hverjir hefðu verið tilnefndir til Golden Globe-verðlaunanna. FRÉTTABLAÐIÐ / GETTY IMAGES 14. desember 2005 MIÐVIKUDAGUR

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.