Fréttablaðið - 14.12.2005, Page 84

Fréttablaðið - 14.12.2005, Page 84
Pabbi leikkonunnar Sienna Mill- er er sagður hafa hótað að drepa Jude Law ef hann heldur aftur framhjá Siennu. Parið var statt í New York þar sem öll fjölskyldan koma saman til að fagna frumsýningu mynd- ar Siennu, Casanova. „Hann lagði mikið á sig til að reyna að átta sig á því hvers konar maður hann væri. Ég sagði honum að ef hann gerði eitthvað þessu líkt aftur myndi ég drepa hann,“ sagði pabbinn. Sienna ku vera mjög sátt við að vera byrjuð aftur með Law því hann sé besti vinur henn- ar sem hún gat einfaldlega ekki útilokað úr lífi sínu. Áður hafði Law viðurkennt að hafa haldið framhjá henni með barnfóstru þeirra, Daisy Wright, í júlí. „Ég er aðeins hluti af miklum meirihluta fólks sem hefur gengið í gegnum ótryggð í samböndum. Ég er ekki fyrsta manneskjan og verð ekki sú síðasta,“ sagði Sienna. Pabbinn hótar Law MILLER OG LAW Pabbi Siennu Miller hótar Law öllu illu ef hann heldur framhjá dóttur sinni aftur. Reggísveitin Hjálmar verður á far- aldsfæti fram að jólum. Á fimmtu- dag mun sveitin spila á Litla-Hrauni og síðar sama dag spilar hún á Ránni í Keflavík. Á föstudag spila Hjálmar ásamt Mugison og Trabant á Nasa og dag- inn eftir verður sveitin á Grand Rokk. Hljómsveitin Mammút sér um upphitun. Hjálmar eru að fylgja eftir nýjustu plötu sinni, sem er samnefnd sveitinni. Styttist óðum í að hún nái gullsölu, eða 5.000 ein- tökum. Hjálmar á Litla-Hrauni HJÁLMAR Reggísveitin Hjálmar mun hafa í nógu að snúast fram að jólum. Fjöldi hljómsveita kemur fram á tónleikum á Gauki á Stöng í kvöld til stuðnings 11. september-hreyf- ingunni. Yfirskrift tónleikanna er „Hvar eru sannanirnar?“ „Við erum að setja þrýsting á íslensk stjórnvöld að birta sönnun- argögn fyrir því að al-Kaída stóð fyrir ellefta september,“ segir Stefán Þorgrímsson. „Bandarísk stjórnvöld hafa aldrei sýnt nein sönnunargögn um að Osama bin Laden og félagar hafi staðið á bak við árásina. Út frá þessum sönn- unargögnum var farið í stríð við Afganistan og stríðið í Írak er í raun og veru afleiðing þess.“ 11. september-hreyfingin var stofnuð 11. september á þessu ári en tilgangur hennar er að rann- saka hryðjuverkin 11. september og standa fyrir vitrænni umræðu um hryðjuverkin og afleiðingarnar sem þau hafa haft fyrir heiminn. Hljómsveitirnar sem troða upp á Gauknum í kvöld eru Megasukk, Noise, Mammút, Touch, Lokbrá, Palindrome, Bent og 7berg, Bob, We painted the walls og Brylli. Aðgangseyrir er 500 krónur. Tónleikar vegna 11. september MEGASUKK Hljómsveitin Megasukk kemur fram á Gauki á Stöng í kvöld. KVIKMYNDIR [UMFJÖLLUN] Lögfræðingar í bandarískum kvik- myndum eru yfirleitt ógeð og ill- menni. Í kvikmyndinni The Ice Harvest er Charlie Arglist engin undantekning á þeirri reglu. Hann er verjandi glæpaforingjans Bill Gerard sem svífst einskis í viðskipt- um sínum en kauði rekur nektarbúll- ur og framleiðir klámmyndir milli þess sem hann limlestir fólk hér og þar. Charlie sér um að hreinsa upp skítinn eftir hann og nýtur fyrir það virðingar í smábænum Wichita. Á einum eða öðrum tímapunkti ákveður lögfræðingaskömmin hins vegar, í samvinnu við aðstoðar- mann Bill, að ræna yfirmann sinn. Þetta eru engir smáaurar heldur rúmar tvær milljónir dollara auk skiptimyntar. Það er þó enginn ann- ars bróðir í leik og Charlie þarf að beita öllum hugsanlegum klækj- um til að komast lífs af úr þessari svikamyllu. Það er „film noir“ stíll yfir myndinni; lánlausa söguhetjan, tálkvendið, afmarkaðar aðstæður og draumurinn um að komast burt. Látlaus rigning og rauð jól gera umhverfið allt frekar dökkt. Mynd- in byggist á leik Johns Cusack og ef svo ólíklega vill til að kvikmynda- húsagestum líki ekki við þann ágæta leikara þá er The Ice Har- vest ekki rétta myndin. Smásagan um fjölskyldu Charlie er bráðfynd- in en hann missti konuna sína í hendur besta vinar síns sem nú er fyllibytta, þjakaður af samviskubiti og kynkaldri eiginkonu. Handritið er oftast mjög gott en myndin missir aðeins dampinn á köflum. Það kemur þó ekki að sök því áðurnefndur Cusack og Billy Bob Thornton eru einfaldlega traustir leikarar. Helsti veikleiki myndar- innar er Connie Nielsen í hlutverki nektarbúllueigandans Renötu en hún nær að bjarga sér fyrir horn. Randy Quaid er skemmtilegur í hlutverki illmennisins en hefði að ósekju mátt vera fyrirferðarmeiri. The Ice Harvest kemur skemmti- lega óvart. Kvikmyndin leit í fljótu bragði út fyrir að vera léleg jóla- mynd um tvo misheppnaða glæpona með Billy Bob Thornton (man ein- hver eftir Bandits?). Þegar á hólm- inn er komið reynist hún hins vegar vera prýðileg skemmtun með góðu plotti þar sem hnífstunga í bakið er ekki óalgeng. Freyr Gígja Gunnarsson Stunginn í bakið THE ICE HARVEST LEIKSTJÓRN: HAROLD RAMIS Aðalhlutverk: John Cusack, Billy Bob Thorn- ton og Connie Nielsen Niðurstaða: The Ice Harvest er svört kóm- edía sem gerist í smábæ um jólin. Í fyrstu virtist ekki um merkilegan pappír að ræða en myndin vinnur á og reynist vera hin besta skemmtun þegar allt kemur til alls. Rockstar Games fyrirtækið hefur gefið út leikinn Grand Theft Auto Liberty City Stories fyrir PSP- leikjatölvuna. Núna er í fyrsta skipti er hægt að spila Grand Theft Auto í „multi- player,“ en allt að sex geta spilað saman í leiknum í sex mismun- andi „multiplayer“ möguleikum. Leikarinn Michael Madsen talar fyrir aðalpersónu leiksins, en þar að auki er leikurinn stútfullur af góðri tónlist. Einnig geta leikmenn sett sín eigin lög í leikinn. Leikur- inn er bannaður innan 18 ára. Sex geta spilað í einu GRAND THEFT AUTO Leikurinn er gefinn út fyrir PSP-leikjatölv- una. Írski leikarinn Colin Farrell er algjörlega örmagna og jafnframt háður verkjatöflum. Hefur hann skráð sig inn á meðferðarheimili til að ráða bót á vandanum. Farrell fékk verkjatöflurnar eftir að hann meiddist í baki. Næsta mynd hins 29 ára Farrell er ævintýramyndin The New World. Hann hefur áður leikið í myndum á borð við Alexander og Phone Booth. Farrell í meðferð COLIN FARRELL Írski hjartaknúsarinn hefur skráð sig inn á meðferðarheimili. HUGSAÐU STÓRT SÍMI 564 0000 Sýnd kl. 5.20 B.i. 12 ára ��� -MMJ Kvikmyndir.com Sýnd kl. 5.20 ��� - HJ MBL ��� -L.I.B. Topp5.is Sýnd kl. 8 og 10.30 B.i. 16 ára ��� - SK DV ��� - topp5.is ��� - SV MBL Sýnd kl. 6, 8 og 10 B.i. 16 ára Jólamynd í anda Bad Santa Frá leikstjóra Groundhog Day og Analyze This Það gerðist á aðfangadagskvöld Hættulegir þjófar á hálum ís! Kolsvartur húmor! Missið ekki af þessari! ���� - ÓÖV DV Sýnd kl. 5.40, 8 og 10.20 Sýnd í Lúxus kl. 5.40, 8 og 10.20 Yndisleg jólamynd fyrir alla fjölskylduna Jólamyndin 2005 Hún er að fara að hitta foreldra hans ...hitta bróður hans ...og hitta jafnoka sinn Sýnd kl. 8 og 10.10 B.i. 16 ára SÍMI 551 9000 400 kr. í bíó! Gildir á allar sýningar merktar með rauðu Sýnd kl. 5.50, 8 og 10.10 B.i. 16 ára Jólamynd í anda Bad Santa Frá leikstjóra Groundhog Day og Analyze This Það gerðist á aðfangadagskvöld Hættulegir þjófar á hálum ís! Kolsvartur húmor! Missið ekki af þessari! Sýnd kl. 6, 8 og 10 B.i. 16 ára ���� - ÓÖV DV Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30 B.i. 16 ára FÓR BEINT Á TOPPINN Í BANDARÍKJUNUM! ÞAÐ SEM KOM FYRIR EMILY ROSE ER ÓHUGNANLEGRA EN NOKKUÐ SEM ÞÚ GETUR ÍMYNDAÐ ÞÉR ��� - SK DV ��� - topp5.is ��� - SV MBL Sýnd kl. 5.40, 8 og 10.20 Yndisleg jólamynd fyrir alla fjölskylduna Jólamyndin 2005 Hún er að fara að hitta foreldra hans ...hitta bróður hans ...og hitta jafnoka sinn

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.