Fréttablaðið - 14.12.2005, Síða 86
HVAÐ? HVENÆR? HVAR?
DESEMBER
11 12 13 14 15 16 17
Miðvikudagur
■ ■ LEIKIR
19.15 ÍR og Haukar mætast í DHL
deild karla í handbolta í Austurbergi.
■ ■ SJÓNVARP
10.10 Heimsmeistaramót félags-
liða á Sýn. Bein útsending fr´´a leik
á mótinu.
16.20 Heimsmeistaramót félags-
liða á Sýn.
18.00 Íþróttaspjallið á Sýn.
Þorsteinn Gunnarsson fær til sín
góða gesti.
18.12 Sportið á Sýn. Farið verður
yfir allar helstu fréttir dagsins.
18.30 Sharapova á Sýn. Þáttur um
þessa ungu tennisdrottningu.
19.00 Bikarmótið í fitness á Sýn.
Endursýning.
19.25 Bestu bikarmörkin á Sýn.
Sýnd verða mörk Man. Utd.
20.20 Best á Sýn. Þáttur um þessa
knattspyrnugoðsögn.
23.45 Strákarnir í Celtic á Sýn.
Endursýndur þáttur.
Baldur Ingimar Aðalsteinsson, sem í
haust sagði upp samningi sínum við
Val, ætlar sér að leika hér á landi næsta
sumar en hann er þessa dagana í samn-
ingaviðræðum við knattspyrnudeild
Vals. „Það eru nú margar ástæður fyrir
því að ég ætla mér að leika hér á landi.
Ég og kærasta mín erum nýlega búin
að eignast dóttur og það vegur þungt.
Þar að auki er ég í áhugaverðu starfi hjá
Vinnumálastofnun. Ég er að ræða við
Val og reikna með því að ég semji við
félagið aftur á næstunni.“
Baldur var einn af bestu leikmönnum
Vals síðastliðið sumar og skoraði meðal
annars sigurmark Vals í úrslitaleik VISA-
bikarkeppninnar, þegar Valur lagði Fram
að velli með einu marki gegn engu.
Willum Þór Þórsson, þjálfari Vals-
manna, segir það vera ánægjulegt að
Baldur Ingimar verði í leikmannahópi
Vals, en mikil óvissa hefur ríkt um
nokkra leikmenn hjá félaginu,
auk þess sem tveir leikmenn
hafa nýlega yfirgefið her-
búðir liðsins.
„Ég er búinn að
vera frekar rólegur
yfir þessari stöðu.
Það er ánægjulegt
að nú sé útlit fyrir
að Baldur verði í
leikmannahópn-
um. Hann var
lykilmaður
liðsins á
síðastliðnu
sumri og þess vegna
er mikilvægt að halda honum áfram,
sérstaklega í ljósi þess að við höfum
verið að missa leikmenn að undanförnu.
Grétar Sigurðsson er farinn í Víking og
Garðar Gunnlaugsson til Skotlands. Það
er líka óljóst með Stefán Helga Jónsson,
Sigurð Sæberg Þorsteinsson og Kristin
Lárusson, og það munar um minna.
Þetta eru reynslumiklir leikmenn
sem hafa staðið sig vel og þeir
hafa gegnt lykilhlutverki utan
vallar að auki. Ég reikna með
því að við þurfum að leita
út fyrir landsteinana eftir
leikmönnum þar sem
það er ekki hægt að finna
leikmenn hér á landi sem
geta fyllt þeirra skarð.“
BALDUR INGIMAR AÐALSTEINSSON: ÆTLAR AÐ LEIKA HÉR Á LANDI NÆSTA SUMAR
Stendur í samningaviðræðum við Val
FÓTBOLTI Þórður Einarsson fer
hörðum orðum um úthlutun
styrkja frá Knattspyrnusambandi
Evrópu, UEFA, til knattspyrnu-
félaga í Landsbankadeildinni á
heimasíðu félagsins, en tæplega
fimmtíu milljónum króna var
nýlega úthlutað til þeirra.
Sérstaklega gagnrýnir Þórður
um 1,33 milljóna króna greiðslu
sem öll félögin í Landsbankadeild
fá. „Það er undarlegt að félögin
í Landsbankadeildinni skuli fá
allan þennan pening, því öll félög
í landinu sem eru með uppeldisá-
ætlun um unglingastarfið, og upp-
fylla þannig þau lágmarksskilyrði
sem sett eru, geta í raun fengið
hluta af þessum styrk. Það er ekk-
ert sem segir að félögin í Lands-
bankadeildinni verði að fá allan
þennan pening. Ég held, þvert á
móti, að það sé mikilvægt fyrir
öll íþróttafélög í landinu sem eru
með metnaðarfullt unglingastarf,
að fá hluta af þessum styrk. Þó að
meistaraflokkur félags sé í efstu
deild þá þarf það alls ekki að þýða
að yngri flokka starfið sé ekki
nógu metnaðarfullt. Það er ein-
kennilegt að peningar frá UEFA
sem eiga að fara í að efla knatt-
spyrnustarf ungmenna í landinu,
skuli allir fara til þeirra tíu félaga
sem eru í efstu deild.“
Geir Þorsteinsson, fram-
kvæmdastjóri Knattspyrnusam-
bands Íslands, segir skilyrði
UEFA ekki gefa tilefni til annars
en að félögin í efstu deild fái alla
greiðsluna. „Það er einfaldlega
þannig að félögin í efstu deild eru
þau einu sem eru búin að taka
upp leyfiskerfi sem UEFA er að
innleiða um alla Evrópu, en við
erum ekki komin lengra en svo
að aðeins félögin í efstu deild
uppfylla þau skilyrði sem UEFA
setur. Þannig að það kemur því
miður ekki annað til greina en að
einungis félögin í efstu deild fái
þessa greiðslu.“
Þórður segir skilyrðin hins
vegar ekki gefa tilefni til þess, að
aðeins félögin í Landsbankadeild-
inni geti fengið greiðslu. „Mér
finnst það þröngsýni í forsvars-
mönnum KSÍ að túlka skilyrðin
þannig að aðeins félögin í Lands-
bankadeildinni hafi möguleika
á því að fá greiðslu. Þau gefa að
mínu mati ekki tilefni til þess að
greiðslan fari einungis til félaga í
efstu deild.“
magnush@frettabladid.is
Umdeildir styrkir frá KSÍ
til knattspyrnufélaga
Þórður Einarsson, starfsmaður íþróttafélagsins Leiknis í Reykjavík, segir það
óskiljanlegt að aðeins félög í Landsbankadeildinni fái greiðslu frá UEFA. Geir
Þorsteinsson, framkvæmdastjóri KSÍ, segir ekkert annað koma til greina.
FÓTBOLTI Forráðamenn norska
liðsins Stabæk, sem vann sér sæti
í úrvalsdeildinni í haust eftir árs-
langa dvöl í 1. deildinni, bíða nú og
vona að Christian Wilhelmsson,
sænski landsliðsmaðurinn hjá
Anderlecht, nái samkomulagi við
forráðamenn Fiorentina um kaup
og kjör en belgíska liðið sam-
þykkti tilboð ítalska liðsins upp á
300 milljónir króna í gær. Ástæð-
an er sú að Wilhelmsson er fyrr-
verandi leikmaður Stabæk en var
seldur þaðan til Anderlecht fyrir
tveimur árum. Og í þeim samn-
ingi er að finna klásúlu þess efnis
að Stabæk fái 12,5% kaupverðsins
fari svo að hann verði seldur frá
Anderlecht.
Talið er að Fiorentina muni
bjóða um 300 milljónir króna í
Wilhelmsson á næstu dögum, en
hann hefur staðið sig frábærlega
í Belgíu frá því hann kom þang-
að. Ef Anderlecht tekur tilboðinu
þýðir það að Stabæk fær tæpar 40
milljónir króna, sem er sannkall-
aður happdrættisvinningur fyrir
félag sem er nýkomið í úrvals-
deildina.
„Þegar við létum hann fara
reiknuðum við með því að hann
yrði seldur fyrr en síðar. Þess
vegna lögðum við mikla áherslu á
að fá þessa klásúlu í gegn,“ segir
Tom Schelvan, framkvæmda-
stjóri Stabæk, en hjá liðinu leikur
íslenski landsliðsmaðurinn Veigar
Páll Gunnarsson. „Þessi peningur
mun koma félaginu mjög vel og
verða til þess að við getum styrkt
liðið fyrir átökin í úrvalsdeildinni
á næsta ári.“ - vig
Christian Wilhelmsson er að öllum líkindum á leið til Fiorentina:
Algjör gullnáma fyrir Stabæk
CHRISTIAN WILHELMSSON Ætlar að reynast
sínum gömlu vinnuveitendum í Stabæk
einstaklega vel.
FÓTBOLTI Þeim Freddie Ljungberg
og Kole Toure, samherjunum hjá
Arsenal, lenti saman undir lok
leiksins gegn Newcastle um síð-
ustu helgi og þurfti Shola Ameobi
hjá Newcastle og Philip Senderos
hjá Arsenal til að skilja þá að.
Sænskir fjölmiðlar fjölluðu mikið
um málið í gær en á myndbands-
upptökum sést greinilega hvernig
Ljungberg storkar Toure með því
að ota höfðinu að höfði Toure sem
svarar með því að ýta Svíanum
knáa kröftuglega frá sér.
Ekki er vitað hvort forráða-
menn Arsenal ætla að grípa til
einhverra aðgerða vegna málsins
en þetta er þó ekki í fyrsta sinn
sem Ljungberg lendir upp á kant
við samherja sinn því á HM í
Japan og S-Kóreu árið 2002 slóst
hann við Olaf Mellberg á einni
æfingu sænska landsliðsins. - vig
Freddie Ljungberg og Kolo Toure:
Lenti saman
gegn Newcastle
FREDDIE LJUNGBERG Er greinilega ekki
ánægður með gengi Arsenal þessa dagana.
Hann fær útrás fyrir reiði sinni með því að
níðast á samherjum sínum.
SKILYRÐI UEFA FYRIR GREIÐSLU TIL FÉLAGA:
1. GREIÐSLAN FER Í GEGNUM VIÐKOMANDI KNATTSPYRNUSAMBAND.
2. AÐEINS FÉLÖG SEM HAFA UPPELDISÁÆTLUN SEM UPPFYLLIR LÁGMARKSKRÖFUR LEYF-
ISKERFIS VIÐKOMANDI KNATTSPYRNUSAMBANDS VARÐANDI BARNA- OG UNGLINGASTARF
GETA FENGIÐ GREIÐSLU.
3. FJÁRHÆÐIN SKIPTIST MILLI FÉLAGANNA SAMKVÆMT ÁKVÖRÐUN VIÐKOMANDI STJÓRNAR.
4. FÉLÖG SEM TÓKU ÞÁTT Í MEISTARADEILD EVRÓPU 2004/2005 FÁ EKKI HLUTDEILD Í ÞESSARI
GREIÐSLU.
GEIR ÞORSTEINSSON OG ÞÓRÐUR EINARSSON Deila um hvort réttmætt sé að lið utan efstu
deildar fái ekki krónu af þeim 50 milljónum sem KSÍ var nýlega úthlutað frá UEFA.
FÓTBOLTI Dave Bassett, sem nú
stýrir liði Southampton í ensku 1.
deildinni, segir það ekki koma til
greina að selja ungstirnið Theo
Walcott sem er aðeins sextán ára
gamall, en er samt farinn að láta
mikið að sér kveða með aðalliðinu.
Hann hefur skorað nokkur mörk
í vetur og eru öll stærstu liðin í
úrvalsdeildinni farin að líta hýrum
augum til pilts.
„Við munum gera allt sem í
okkar valdi stendur til þess að
halda Theo í okkar röðum en hann
hefur staðið sig feikilega vel að
undanförnu. Ég skil vel að stærstu
félög landsins séu að fylgjast með
honum því hann hefur ótrúlega
hæfileika. En ef ég fær einhverju
ráðið, þá mun hann ekki fara frá
Southampton fyrr en í fyrsta lagi
eftir þrjú ár,“ sagði Bassett. - mh
Dave Bassett:
Theo Walcott
er ekki á förum
THEO WALCOTT Er gríðarlega mikið efni.
> Logi útilokar EM
Handboltamaðurinn Logi Geirsson
hjá Lemgo þarf að taka sér hvíld frá
handbolta til 16. janúar og hefur útilokað
þátttöku með íslenska landsliðinu á EM
í Sviss sem hefst í lok næsta mánaðar.
Þetta varð ljóst eftir að myndataka leiddi
í ljós að smávegis bakslag hefði átt sér
stað í langri baráttu Loga um að ná sér
góðum af þrálátum bakmeiðslum. „Ég
hef þegar hringt í Viggó
þjálfara og tjáð honum
að ég muni ekki gefa
kost á mér,“ sagði Logi
við Fréttablaðið í gær
en bætti því við að
eftir að þessari
hvíld væri lokið
ætti hann að vera
búinn að ná sér
fullkomlega
fyrir fullt og
allt.
50 14. desember 2005 MIÐVIKUDAGUR
sport@frettabladid.is
Kári skoraði
Kári Árnason var á skotskónum fyrir
lið sitt Djurgarden í Skandinavíu-deild-
inni í fótbolta í gærkvöldi. Kári skoraði
síðara mark síns liðs í 2-1 sigri danska
liðinu Álaborg en með sigrinum náði
Djurgarden toppsæti 3. riðils keppninnar.