Fréttablaðið - 14.12.2005, Page 90
14. desember 2005 MIÐVIKUDAGUR54
FÓTBOLTI Athygli vekur að Lúkas
Kostic, þjálfari U-21 landsliðs
Íslands í knattspyrnu, velur tvo
leikmenn í æfingahóp U-21 lands-
liðsins sem ennþá eru ekki leik-
færir, en það eru Sverrir Garð-
arsson hjá FH og Keflvíkingurinn
Ingvi Rafn Guðmundsson. Þeir
eru báðir að jafna sig eftir erfið
meiðsli og geta því ekki beitt sér
á æfingunum sem fara fram 17.
og 18. desember, en þetta er fyrsti
hópurinn sem Lúkas velur síðan
hann tók við þjálfun U-21 lands-
liðsins.
Lúkas segist gera þetta vilj-
andi þar sem hann telur þá þurfa
á stuðningi hans að halda.
„Ég hef fylgst vel með ungum
leikmönnum á Íslandi undanfarin
ár og þekki vel til þeirra flestra.
Mér finnst mikilvægt að sýna
efnilegum leikmönnum traust því
það getur verið erfitt að lenda í
slæmum meiðslum á þessum aldri.
Ég valdi því Sverri og Ingva Rafn
í hópinn vegna þess að ég tel þá
mikilvæga leikmenn og á meðan
þeir geta ekki leikið með liðinu
mæta þeir á æfingar og fylgjast
með þeim áherslum sem ég notast
við inni á vellinum.“
Íslandsmeistarar FH eiga
flesta fulltrúa en sex leikmenn
félagsins eru í æfingahópnum.
Breiðablik kemur næst með fimm
fulltrúa en önnur félög eru með
færri leikmenn.
Lúkas segir unga leikmenn á
Íslandi vera sambærilega jafn-
öldrum sínum í Evrópu. „Og von-
andi get ég komið saman góðu liði.
Ég treysti öllum þeim leikmönn-
um sem ég vel á æfingar hjá mér.
Ég ætla að vinna samviskusam-
lega með þeim leikmönnum sem
ég boða á æfingar og vonandi nær
liðið góðum árangri.“ - mh
LÚKAS KOSTIC Lúkas tók við U-21 landsliði Íslands af Eyjólfi Sverrissyni, sem var ráðinn
þjálfari A-landsliðs karla. Hann þjálfaði áður U-17 landslið Íslands. FRETTABLAÐIÐ/GVA
ÆFINGAHÓPURINN:
MARKVERÐIR:
HRAFN DAVÍÐSSON ÍBV
MAGNÚS ÞORMAR KEFLAVÍK
AÐRIR LEIKMENN:
ELLERT HREINSSON BREIÐABLIK
GUÐMANN ÞÓRISSON BREIÐABLIK
GUNNAR ÖRN JÓNSSON BREIÐABLIK
KÁRI ÁRSÆLSSON BREIÐABLIK
STEINÞÓR ÞORSTEINSSON BREIÐABLIK
ATLI GUÐNASON FH
DAVÍÐ VIÐARSSON FH
HEIMIR GUÐMUNDSSON FH
MATTHÍAS VILHJÁLMSSON FH
SVERRIR GARÐARSSON FH
TÓMAS LEIFSSON FH
GUNNAR ÞÓR GUNNARSSON FRAM
HEIÐAR GEIR JÚLÍUSSON FRAM
KRISTJÁN HAUKSSON FRAM
EYJÓLFUR HÉÐINSSON FYLKIR
KJARTAN ÁGÚST BREIÐDAL FYLKIR
RAGNAR SIGURÐSSON FYLKIR
ÓSKAR ÖRN HAUKSSON GRINDAVÍK
FINNUR ÓLAFSSON HK
ANDRI JÚLÍUSSON ÍA
HAFÞÓR VILHJÁLMSSON ÍA
HELGI PÉTUR MAGNÚSSON ÍA
ANDRI ÓLAFSSON ÍBV
BJARNI HÓLM AÐALSTEINSSON ÍBV
ARNALDUR SMÁRI STEFÁNSSON ÍR
JÓN GUNNAR EYSTEINSSON KA
BALDUR SIGURÐSSON KEFLAVÍK
GUNNAR HILMAR KRISTINSSON KEFLAVÍK
INGVI RAFN GUÐMUNDSSON KEFLAVÍK
GUNNAR KRISTJÁNSSON KR
KRISTINN MAGNÚSSON KR
SÖLVI DAVÍÐSSON KR
GUÐJÓN BALDVINSSON STJARNAN
PÁLMI RAFN PÁLMASON VALUR
Tveir meiddir í æfingahóp
U-21 árs landsliðsins
Lúkas Kostic, nýráðinn þjálfari U-21 árs landsliðs Íslands, hefur boðað 36 leik-
menn á fyrstu æfingar sínar. Athygli vekur að tveir leikmannana eru meiddir.
FÓTBOLTI Eiður Smári Guðjohnsen
var í hlutverki sáttasemjara á
jólahlaðborði Chelsea sem fram
fór á sunnudagskvöldið, að því er
enska götublaðið The Sun greinir
frá. Partíið fór gjörsamlega úr
böndunum og mátti engu muna að
upp úr syði á milli dyravarða og
nokkurra leikmanna Chelsea.
„Þegar speglarnir í salnum
voru brotnir héldu veisluhald-
arar að þeir hefðu misst stjórn á
hlutunum. Leikmönnum var sagt
að róa sig niður og Eiður Smári
Guðjohnsen gekk á milli manna
og reyndi að koma vitinu fyrir
þá auk þess sem hann bað starfs-
fólkið um að henda engum út úr
veislunni,“ sagði sjónarvottur
að uppákomunni við The Sun, en
hann vildi ekki koma fram undir
nafni.
Fyrirliðinn John Terry fór
mikinn í boðinu eftir að hafa
unnið rúmar 20 milljónir króna í
spilavíti skömmu fyrir hlaðborðið
og segist The Sun hafa heimild-
ir fyrir því að Terry hafi borg-
að alla drykki í hófinu. Hljóðaði
reikningur hans á barnum upp á
1,8 milljónir króna, sem er rétt
rúmlega þau dagslaun sem hann
hefur hjá Chelsea. „John skemmti
sér augljóslega mjög vel og sagði
dyravörðum að hleypa öllum fal-
legum stúlkum inn í partíið,“
sagði heimildarmaðurinn.
Knattspyrnustjórinn Jose
Mourinho var ekki í veislunni og
kaus þess í stað að taka á móti verð-
launum frá BBC sem persónuleiki
ársins í íþróttaheiminum á Eng-
landi. „Ég fór ekki vegna þess að
þetta var þeirra partí. Leikmenn-
irnir hafa verið frábærir í ár og
áttu þetta skilið. Ég gaf þeim frí
á mánudeginum til að jafna sig,“
sagði Mourinho sem hefði líklega
betur átt að láta sjá sig til að hafa
hemil á lærisveinum sínum.
„Þetta eru ungir drengir sem
verða stundum að gera það sem
þeim líkar að gera. Ég vill ekkert
hafa með slíka hluti að gera. Þeir
mega ekki halda að ég sé þarna
að fylgjast með þeim,“ segir
Mourinho. - vig
Jólahlaðborð Chelsea var haldið á sunnudaginn og fór úr böndunum:
Eiður Smári reyndi að róa
niður mannskapinn
FÓTBOLTI Rio Ferdinand, varnar-
maður Manchester United, segir
að vandi félagsins þessa dagana
sé fyrst og fremst slæmt and-
rúmsloft í leikmannahópnum, en
leikmenn liðsins hafa verið nið-
urlútir eftir að liðið féll út úr Evr-
ópukeppninni.
„Við vitum allir að það er ekki
ásættanlegt fyrir Man. Utd. að
komast ekki áfram í Meistaradeild
Evrópu. Síðustu dagar hafa verið
erfiðir en við leikmenn erum samt
staðráðnir í því að komast í gegn-
um þetta skeið. Við finnum fyrir
pressunni og það reynir á okkur.
Við þurfum að koma félaginu á
sigurbraut á ný,“ sagði Ferdinand.
Miklar vangaveltur hafa verið
um hvort Alex Ferguson eigi að
halda áfram sem knattspyrnu-
stjóri liðsins en Rio Ferdinand er
ekki í nokkrum vafa um að hann
sé rétti maðurinn til þess að halda
áfram með liðið. „Það er enginn
betri en Ferguson þegar kemur
að því að rífa menn upp úr lægð.
Hann mun vonandi halda áfram
starfi sínu hér og á eflaust eftir að
ná góðum árangri á nýjan leik.“
Rio Ferdinand óánægður með lífið þessa dagana:
Slæmt andrúmsloft
upp á síðkastið
RIO FERDINAND Ferdinand segir lífið erfitt
þessa dagana en reynir að horfa á björtu
hliðarnar. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY
FÉLAGAR John Terry héldu engin bönd á barnum á jólahlaðborðinu hjá Chelsea um helg-
ina en Eiður Smári var í því að koma reglu á svæðið.
FÓTBOLTI Jay Bothroyd, liðsfélagi
Hermanns Hreiðarssonar hjá
Charlton Athletic, lenti í óvenju-
legu bílslysi fyrir skemmstu en
hann féll í yfirlið meðan hann var
að keyra bíl og endaði ökuferðina
á rafmagnsstaur.
Peter Varney, talsmaður
Charlton, var þó vongóður um að
Boythroyd myndi ná sér fljótt.
„Ég hef rætt við Boythroyd og
umboðsmann hans. Við höfum
áhyggjur af honum vegna þess
að það hefur liðið yfir hann áður.
Hann mun fara í frekari rann-
sóknir á næstunni og við munum
fylgjast vel með þeim,” sagði Var-
ney en jafnvel er talið að Bothroyd
þjáist af einhverskonar mígreni.
Bothroyd, sem meðal annars
hefur leikið með Blackburn Rov-
ers og Perugia, hefur leikið ágæt-
lega með Charlton á tímabilinu
en hann hefur þó verið töluvert á
varamannabekknum. - mh
Jay Boythroyd hjá Charlton:
Féll í yfirlið og
klessti á staur
JAY BOTHOROYD Bothroyd fer í frekari
rannsóknir vegna yfirliða á næstunni.
FRETTABLAÐIÐ/GETTY
FÓTBOLTI Paul Jewell, knattspyrnu-
stjóri enska úrvalsdeildarliðsins
Wigan, segist ekki hafa trú á því
að Jose Mourinho, knattspyrnu-
stjóri Chelsea, hafi verið að gagn-
rýna leikstíl Wigan þegar hann
sakaði leikmann Wigan um leik-
araskap í viðureign liðanna fyrir
skömmu sem endaði með 1-0 sigri
meistaranna.
„Ég skil Mourinho alveg. Það
er ekki hægt að sætta sig við
leikaraskap. Hann á ekki að vera
hluti af leiknum,“ sagði Jewell en
Mourinho er vanur að láta leik-
menn sem hann telur sýna leik-
araskap heyra það.
„Ég veit hins vegar að Lee
McCulloch, sem Mourinho sakaði
um leikaraskap, myndi aldrei gera
slíkt. Þess vegna tek ég þessum
ásökunum Mourinho ekki alvar-
lega. Ég held að hann hafi misskil-
ið þetta eitthvað,“ sagði Jewell.
- mh
Paul Jewell um Mourinho:
Hann misskildi
McCulloch
PAUL JEWELL Jewell er ekki hrifinn af leik-
araskap. FRETTABLAÐIÐ/GETTY
FÓTBOLTI Enski landsliðsmiðherj-
inn Michael Owen vonast til þess
að lið hans Newcastle United kom-
ist á sigurbraut eftir að liðið lagði
Arsenal, 1-0. „Mér hefur ekki liðið
jafn vel eftir sigur í langan tíma.
Það skiptir mig miklu máli að vera
í sigursælu liði og auðvitað vil ég
að Newcastle vinni sem flesta
leiki. Það er undir okkur komið að
ná góðum árangri.“
Owen hefur verið óheppinn
með meiðsli síðan hann kom til
Newcastle en hann vonast nú til
þess að þau séu að baki. „Núna er
ég að komast í mitt besta form. Ég
verð að skora mörk í næstu leikj-
um til þess að öðlast meira sjálfs-
öryggi.“ - mh
Michael Owen:
Þurfum á sigr-
um að halda
MICHAEL OWEN Owen hefur staðið sig
ágætlega með liði Newcastle síðan hann
kom til liðsins frá Real Madrid.
FRETTABLAÐIÐ/GETTY
FÓTBOLTI Forráðamenn og stuðnings-
menn sænsku meistaranna í Djurg-
ården hoppuðu hæð sína af gleði í
gær þegar sænski vængmaðurinn
Tobias Hysén skrifaði undir nýjan
þriggja ára samning við félagið.
Hysén var langbesti leikmaður
liðsins á síðustu leiktíð og voru
fjölmörg erlend lið á eftir hinum
23 ára gamla leikmanni, sem hefur
verið að brjóta sér leið inn í sænska
landsliðið að undanförnu.
„Mér hefur liðið mjög vel allan
minn tíma hjá félaginu og ég trúi
því að liðið geti gert það gott í Evr-
ópukeppninni á næstu árum. Þess
vegna ákvað ég að vera áfram,“
segir Hysén en sem kunnugt er
leika íslensku landsliðsmennirnir
Kári Árnason og Sölvi Geir Otte-
sen með Djurgarden. - vig
Gleðifréttir fyrir Djurgården:
Hysén ætlar
ekki að fara