Fréttablaðið - 19.12.2005, Page 6

Fréttablaðið - 19.12.2005, Page 6
Komdu í spennandi heim afþreyingar og upplýsinga Smelltu þér á www.ogvodafone.is, farðu í næstu verslun Og Vodafone eða hringdu í 1414 fyrir nánari upplýsingar. 24.900 kr. MOTOROLA V3 RAZR SÍMI 6 19. desember 2005 MÁNUDAGUR SKIPULAGSMÁL Álftnesingar í Sam- tökum um betri byggð ganga um þessar mundir milli húsa og safna undirskriftum gegn nýju miðbæjar- skipulagi þar í bæ. Berglind Libungan, einn af for- svarsmönnum samtakanna, segir 350 kosningabæra menn hafa skrif- að undir. „Svo hef ég fengið um hundrað athugasemdir frá fólki sem við munum svo skila inn en frestur til þess rennur út á Þorláksmessu,“ segir Berglind. Það sem mest brennur á mót- mælendum, að sögn Berglindar, er það hversu þéttbyggður miðbærinn á að vera. Aðeins ein gata á að vera þar í gegn og telja mótmælendur að mikil slysahætta skapist við slíkar aðstæður. Í byrjun þessa mánaðar stóðu samtökin fyrir opnu húsi þar sem skipulagsmálin voru rædd. „Það voru um tvö hundruð manns sem mættu. Það er alveg ljóst að það er hiti í fólki vegna þessa,“ segir hún. Guðmundur G. Gunnarsson bæj- arstjóri harmar það hversu harðar deilurnar séu orðnar. Hann hefur svarað gagnrýni samtakanna á þann veg að betra sé að hafa þéttan miðbæjarkjarna svo ekki þurfi að byggja þar sem fuglalíf og náttúru- fegurð ríkja og að miðbærinn verði íbúavænn fremur en bílvænn og því dugi einn vegur. - jse Miðbæjarskipulagi á Álftanesi mótmælt af Samtökum um betri byggð: Undirskriftalistum safnað SKIPULAGSDEILUR Á ÁLFTANESI Skilti frá Samtökum um betri byggð var tekið niður fyrir skemmstu en er nú komið upp aftur. Það er aðeins einn anginn af þeirri deilu sem nú er komin upp í sveitarfélaginu. Skilorðið afnumið Hæstiréttur hefur dæmt þrítugan mann í sjö mánaða fangelsi fyrir að taka við þremur fartölv- um hjá bróður sínum, en sá hafði stolið þeim úr verslun. Dómurinn sagði að þegar litið væri til brotaferils mannsins, sem á sér rúmlega tíu ára sögu, væri ekki hægt að skilorðsbinda dóminn. Héraðsdómur Reykjavíkur hafði áður skilorðsbundið fimm mánuði refsing- arinnar. HÆSTIRÉTTUR FUGLAFLENSAN Norrænu heilbrigð- isráðherrarnir hafa ákveðið að fresta ákvörðun um sameiginlega verksmiðju til framleiðslu á bólu- efni gegn fuglaflensunni fram í mars á næsta ári og leyfa Svíum og Dönum að útfæra hugmyndir sínar á meðan. Jón Kristjánsson heil- brigðisráðherra segir að samstaða sé samt um sameiginlega norræna lausn. Heilbrigðisráðherrarnir hitt- ust á fundi í Kaupmannahöfn til að fjalla um skýrslu vinnuhóps um norræna bóluefnaverksmiðju. Búist var við átökum á fundinum vegna yfirlýsingar sænska heil- brigðisráðherrann um að Svíar hygðust reisa verksmiðju í Sví- þjóð í samvinnu við alþjóðlegt lyfjafyrirtæki. Fram að því hafði verið miðað við að verksmiðjan yrði reist í Danmörku. Ekki urðu þó jafnmiklar deilur og búist hafði verið við enda mætti sænski heil- brigðisráðherrann ekki á fundinn. Niðurstöður Dana og Svía verða lagðar fyrir matsnefnd, sem allar þjóðirnar eiga fulltrúa í. Mats- nefndin leggur síðan tillögu sína fyrir ráðherrafund sem haldinn verður í síðasta lagi í mars. Þá verður tekin ákvörðun um hvort verksmiðjan verði reist í Dan- mörku eða Svíþjóð. Í báðum tilfell- um er um hálfopinberar lausnir að ræða en í Danmörku yrði verk- smiðjan undir regnhlíf dönsku sóttvarnastofnunarinnar. Ágreiningur Dana og Svía snýst fyrst og fremst um staðsetn- ingu, báðar þjóðir vilja að verk- smiðjan verði reist í landi þeirra. Í sænskum fjölmiðlum hefur komið greinilega fram síðustu daga að Svíar finni fyrir ótta heima fyrir um að vera neitað um bóluefni ef skortur verði á því. Þeir telji því öruggast að hafa verksmiðjuna í Svíþjóð þar sem þeir geti haft stjórn á henni. „Ég hefði helst viljað ganga frá þessu núna en það er samt mikils virði að það er samstaða um að leita samráða annarra til lausnar. Ég lagði áherslu á að það þyrfti að flýta málinu eins og hægt er til að komast að niðurstöðu um hvaða leið verður fyrir valinu,“ sagði Jón Kristjánsson heilbrigðisráðherra eftir fundinn. Hann kvaðst undrandi á því að Svíar skyldu koma með tillögu tveimur dögum fyrir ráðherra- fundinn. Sænsku blöðin sögðu í gær að Svíar hefðu stuðning Íslendinga og Finna en þar segir Jón að Svíarnir hafi hlaupið á sig. Íslendingar séu fylgjandi dönsku leiðinni. ghs@frettabladid.is Íslendingar vilja verk- smiðju í Danmörku Svíar og Danir deila um hvort norræn verksmiðja til framleiðslu á bóluefni gegn fuglaflensu skuli rísa í Svíþjóð eða Danmörku. Tekin verður ákvörðun í mars. Heilbrigðisráðherra segist fylgjandi því að reisa verksmiðju í Danmörku. FUGLAFLENSAN Enn er samstaða meðal Norðurlandanna um að reisa sameiginlega verksmiðju þótt Danir og Svíar takist á um staðsetninguna og ákvörðun tefjist af þeim sökum. FRÉTTABLAÐIÐ/REUTERSVEFTÍMARIT Nýtt veftímarit íslenskra stjórnmála- og stjórn- sýslufræðinga var opnað á slóð- inni stjornmalogstjornsysla.is á fimmtudag. Vefritinu er ætlað að auka fræðilega umfjöllun um stjórnmál og stjórnsýslu og mun gegna fjölþættu hlutverki fyrir íslenska stjórnmálafræði. Á vefnum, sem er öllum opinn, er meðal annars ritrýndur hluti sem gegnir hlutverki fræðitímarits í stjórnmála- og stjórnsýslufræð- um en slíkt rit hefur ekki verið til staðar hingað til. - sh Veftímarit um stjórnmál: Nýtt fræðirit á vefnum TOLLSKOÐUN Ekki er gert ráð fyrir tolla- og vegabréfaeftirliti á flugvellinum á Egilsstöðum og höfninni á Seyðisfirði. Reglulega lenda flugvélar í millilandaflugi á Egilsstöðum og Norræna siglir vikulega til Seyðisfjarðar. „Það er akkúrat engin aðstaða,“ segir Ástríður Sól- rún Grímsdóttir, sýslumaður á Seyðisfirði, um aðbúnað tolla- og vegabréfaeftirlits á Austurlandi. Ástríður tók við starfi um miðj- an október og með hennar fyrstu verkum var að þarfagreina skip- an mála en við það naut hún aðstoðar sýslumannsins á Kefla- víkurflugvelli. Engin tæki eru til að grann- skoða vegabréf og þarf starfs- fólk því að gera það með berum augum í kjöltu sér. Þurfi að toll- skoða húsbíla sem koma með Nor- rænu þarf að gera það úti undir berum himni innan um farþega. Þurfi að taka fólk til líkamsleitar á Egilsstaðaflugvelli er það gert á kaffistofu starfsfólks. Sem dæmi um skipan mála á Egilsstaðaflugvelli má nefna að farangur fer í gegnum vopnaleit- arvél áður en farþegar innrita sig til flugs. „Farþegar taka svo við farangrinum aftur og innrita sig og þá er vopnaleitin ónýt því fólk getur tekið úr töskunni, til dæmis hnífa, og sett í handfar- angur án þess að nokkur fylgist með því. Vopnaleitin er því falskt öryggi,“ segir Ástríður. Vikulegt flug er milli Egilsstaða og Kaup- mannahafnar og í febrúar hefst vikulegt flug frá Póllandi. „Ég get ekki uppfyllt skyld- ur mínar sem skyldi við þessar aðstæður,“ segir Ástríður, sem bíður þess að fá fund með fjár- málaráðherra til að ræða málin. Tollamál heyra undir fjármála- ráðherra. Hún segir það kosta nokkra tugi milljóna að færa ástandið í viðunandi horf og er vongóð um að úr rætist. - bþs Sýslumaðurinn á Seyðisfirði segir enga aðstöðu til tolleftirlits á Austurlandi: Líkamsleit gerð á kaffistofu starfsmanna Auknar samgöngur við Líbanon Samningar náðust hinn 13. desember um flugumferð milli Íslands og Líbanon. Flugmálayfirvöld í Beirút auk flugfé- lagsins Middle Eastern Airlines hafa að sögn mikinn áhuga á aukinni umferð landanna á milli. Formaður samninga- nefndar Líbanon hét Íslendingum allri þeirri aðstoð sem unnt væri að veita til þess að þeir gætu á grundvelli samningsins nýtt sér viðskiptatækifæri í heimshlutanum. FLUGSAMGÖNGUR FRÁ SEYÐISFIRÐI Þurfi að tollskoða húsbíla er það gert úti undir berum himni og innan um farþega. KJÖRKASSINN Mun friður komast á í Írak nú eftir að búið er að kjósa til þings? já 13,3 nei 86,7 SPURNING DAGSINS Í DAG Mun ríkisstjórnin lækka landbúnaðarstyrki? Farðu inn á visir.is til að greiða atkvæði GJÖF Segulmottur með geðorðun- um tíu munu berast inn á öll heim- ili í Reykjavík á næstu dögum. Geðorðin eru einföld ráð sem ætlað er minna á ábyrgð hvers og eins á sjálfum sér og gagnvart samfélaginu. Forvarnarnefnd Reykjavíkur og Velferðarsvið standa að send- ingunni og vona að segullinn endi á ísskápshurðum allra heimila. Einhverjir kunna að fá geðorð- in á ensku og vilji þeir fá íslensku útgáfuna er þeim bent á að hringja í síma 411-9000. - sh Reykjavíkurborg gefur segla: Geðorðin tíu á ísskápshurðir Hundrað þúsund í nístingskulda Meira en 100.000 manns í borginni Kyzil í Síberíu voru án hitaveitu á sunnudag, en þá var 37 gráðu frost á svæðinu. Skammhlaup í rafkerfi hitaveitunnar um hádegi að staðartíma orsakaði bilunina sem vonast var til að hægt væri að laga fyrir nóttina. RÚSSLAND ÍRAK, AP Susanne Osthoff, þýska konan sem var tekin í gíslingu í Írak, hefur verið látin laus að því er þýsku utanríkisráðherrann greindi frá í gærkvöld. „Það gleður mig að geta tilkynnt að Susanne Osthoff er ekki lengur í höndum mannræningja,“ sagði ráðherrann, Frank-Walter Stein- meier, á blaðamannafundi í Berlín. Að hans sögn virtist Osthoff vera við góða heilsu, en hún hafði verið í höndum mannræningja síðan 25. nóvember er henni var rænt ásamt íröskum bílstjóra sínum. Mann- ræningjarnir höfðu hótað að taka gíslana af lífi slitu þýsk stjórnvöld ekki öll tengsl við Íraksstjórn.  Þýski gíslinn í Írak: Osthoff látin laus heil á húfi SUSANNE OSTHOFF Var rænt í Írak 25. nóvember. FRÉTTABLAÐIÐ/AP

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.