Fréttablaðið - 19.12.2005, Side 86
19. desember 2005 MÁNUDAGUR58
FÓTBOLTI Sao Paulo varð í gær
heimsmeistari félagsliða þegar
liðið lagði Evrópumeistara Liver-
pool að velli með einu marki gegn
engu.
Jafnræði var með liðunum
framan af leik en Mineiro skoraði
sigurmark leiksins á 27. mínútu
þegar hann komst einn inn fyrir
vörn Liverpool, en Sami Hyypiä
gerði sig þá sekan um slæm mistök
þegar hann ætlaði að skilja Min-
eiro eftir rangstæðan.
Eftir markið sótti Liverpool án
afláts en tókst ekki að skora þrátt
fyrir fjölda marktækifæra.
Varnarleikur Sao Paulo var hins
vegar sterkur og áttu leikmenn
Liverpool, þá sérstaklega Fernando
Morientes, erfitt með slíta sig lausa
frá varnarmönnunum.
Rafael Benitez, knattspyrnu-
stjóri Liverpool, var að vonum
óánægður í leikslok, en mínútu
þögn var fyrir leikinn vegna frá-
falls föðurs Benitez fyrr í vikunni.
„Ég er stoltur af leikmönnum
mínum. Þeir reyndu allt til þess
að vinna leikinn en það eina sem
vantaði upp á var að koma boltan-
um í netið. Sao Paulo er erfitt lið
að leika gegn og það var slæmt að
lenda undir snemma leiks. Leik-
menn mínir brugðust vel við og
gerðu allt sem þeir gátu til þessa að
vinna leikinn, en það var því miður
ekki nóg.“
Rogerio Ceni, markvörður Sao
Paulo, varði oft á tíðum frábær-
lega í markinu og hélt liði sínu á
floti í síðari hálfleik, en hann er
þekktastur fyrir að skora mörk
úr vítum og aukspyrnum fyrir lið
sitt. „Mér fannst við eiga þetta skil-
ið og það kom aldrei til greina að
tapa leiknum eftir að við komumst
yfir. Liverpool sótti mikið en okkur
tókst að vinna leikinn. Ég tileinka
þennan sigur stuðningsmönnum
okkar, sem voru frábærir í þessari
keppni,“ sagði Ceni að leik loknum
við breska ríkisútvarpið.
Liverpool gekk illa að nýta sér
fjölmargar hornspyrnur í leiknum,
en Liverpool fékk sautján horn-
spyrnur í leiknum á móti engri hjá
Sao Paulo.
Nokkrir leikmanna Sao Paulo er
eftirsóttir hjá stórliðum í Evrópu
og má þar helsta nefna bakvörðinn
Cicinho, sem Manchester United
hefur reynt að fá til liðs við sig, en
útlit er fyrir að hann fari til Real
Madrid að tímabilinu loknu.
magnush@frettabladid.is
Sao Paulo varð heims-
meistari félagsliða í gær
Brasilíska knattspyrnufélagið Sao Paulo varð í gær heimsmeistari félagsliða
þegar liðið lagði Liverpool að velli í úrslitaleik keppninar í Japan.
FÓTBOLTI Besti knattspyrnumaður
heims, Ronaldinho, myndi ekki
hafa neitt á móti því að fá Thierry
Henry og Frank Lampard til liðs
við sig hjá Barcelona, sem hefur
verið orðað við báða leikmenn-
ina. „Allir hjá Barcelona vilja að
Thierry og Frank komi til okkar.
Ég yrði mjög ánægður ef þessir
tveir leikmenn skrifuðu undir hjá
Barcelona. Henry er stórkostleg-
ur leikmaður og hefur fullkomna
tækni. Ég virði hann mikið sem
persónu og knattspyrnumann.
Hann minnir mig á sjálfan mig.“
Henry hefur verið orðaður
sterklega við Katalóníurisaveldið
og bendir margt til þess að liðið
muni gera Arsenal tilboð í hann
næsta sumar. Lampard er einnig á
óskalista Barcelona, sem mætir ein-
mitt Chelsea í sextán liða úrslitum
Meistaradeildarinnar. „Það væri
frábært ef klúbburinn næði að
krækja í Frank,“ segir Ronaldinho.
Henry hefur sjálfur gefið til
kynna að hann vilji reyna fyrir sér
á Spáni og hefur ekki skrifað undir
framlengingu á samningi sínum,
sem rennur út eftir átján mánuði.
Lampard hefur lýst yfir ánægju
sinni hjá Chelsea en risatilboð frá
einu besta liði heims gæti verið of
freistandi til að sleppa fyrir Eng-
lendinginn. - hþh
Sterkir leikmenn úr ensku úrvalsdeildinni orðaðir við Barcelona:
Ronaldinho vill Lampard og
Henry til Barcelona
FÓTBOLTI Rúnar Kristinsson, leik-
maður Lokeren í Belgíu, hefur
spilað einstaklega vel að undan-
förnu og virðist vera eins og vín,
hann verður bara betri með aldr-
inum en hann er orðinn 36 ára
gamall. „Já, ég vona það þó svo
að það sé erfitt að segja til um
það sjálfur. Mér líður að minnsta
kosti vel í augnablikinu og hef
verið að spila vel og þá kvartar
maður ekki. Ég hef ekki lent í
neinum meiðslum enda hugsa ég
vel um mig og sé til að ég sé í fínu
standi,“ sagði Rúnar við Frétta-
blaðið í gær en hann hefur dregið
vagninn hjá liðinu í undanförnum
leikjum.
„Það hefur vantað marga leik-
menn og ég hef verið að reyna að
berja saman mannskapinn enda
reynsluboltinn og sá sem hefur
verið lengst í liðinu.Við getum
ekki annað en verið sáttir við
árangurinn. Við höfum spilað vel
alveg fram í nóvember en höfum
misst marga leikmenn í leiki í
undanförnum leikjum og þá hefur
aðeins hallað undan fæti.“
Rúnar verður samningslaus
eftir tímabilið og vill ólmur halda
áfram atvinnumennskunni. „Ég
er með samning út þetta tíma-
bil en við höfum ekki viðrað það
mikið hvort ég muni framlengja
eða ekki. Ég hefði mikinn áhuga
á því eins og ég er að spila þessa
dagana og hvernig mér líður en
þetta veltur líka á forsetanum
okkar auk þess sem við fáum
nýjan þjálfara í janúar.“
Ekkert lið á Íslandi hefur
verið í sambandi við Rúnar, sem
gæti vel lagt skóna á hilluna í
stað þess að spila á Íslandi. „Ég
er þó ekki búinn að ákveða neitt
og ég mun bíða fram í febrúar
eða mars með að ákveða mig. Ég
hef ekki leitt hugann neitt sér-
staklega að því að spila heima á
Íslandi enda ætla ég að einbeita
mér að því að halda mér heilum
og spila vel eins og ég hef verið
að gera og vonandi get ég haldið
áfram hér.“ - hþh
Rúnar að slá í gegn í belgísku knattspyrnunni, 36 ára að aldri:
Eitt ár til viðbótar?
RÚNAR KRISTINSSON Rúnar hefur leikið
frábærlega með Lokeren upp á síðkastið.
FRÉTTABLAÐIÐ/HILMAR
FRANK LAMPARD Ronaldinho
vill fá tvo bestu leikmenn ensku
úrvalsdeildarinnar til Barcelona.
FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY
HARRY KEWELL STÖÐVAÐUR Kewell var líflegur á vinsti kantinum hjá Liverpool en varnar-
mönnum Sao Paulo tókst þó oft að stöðva hann á síðustu stundu. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY