Réttur - 01.10.1950, Qupperneq 69
RETTUR
309
eigi svo margt sameiginlegt, þegar um tilveru og frelsi verkalýðs-
ins og samtaka hans er að tefla, að þeim beri að taka höndum sam-
an í verkalýðshreyfingunni og bjarga henni frá því að verða her-
fang atvinnurekenda og stjórnmálaflokka þeirra.
Flokksstjórnarfundurinn skorar á allan verkalýðinn og alla
alþýðu að vinna að því á hverjum þeim vettvangi, er að gagni
má verða, að þessi nauðsynlega samfylking verkalýðsins geti erðið
að veruleika sem allra fyrst og telur brýna nauðsyn á, að verka-
lýðurinn einangri öll þau öfl, er þar kynnu að standa í vegi.
Flokksstjórnarfundurinn telur samvinnu sósíalista og Alþýðu-
flokksmanna í verkalýðshreyfingunni óhjákvæmilega forsendu
slíkrar samfylkingar, en lítur jafnframt svo á, að verkalýður, sem
telur sig til annara stjórnmálaflokka, eigi velferðar að gæta í því,
að þessi stéttareining verkalýðsins megi takast.
III.
FRIÐURINN ER ÍSLANDS LÍF OG HEILL
Fundur flokksstjórnar Sósíalistaflokksins fagnar þeim mikla
sigri, sem heirrsfriðarhreyfingin undir forystu franska vísinda-
mannsins Frédéric Joliot-Curie hefur unnið undanfarin tvö ár
frá því á stofnþinginu í París í apríl 1949, og sér í lagi hinum
glæsilega árangri af undirskriftasöfnuninni undir Stokkhólms-
ávarpið um bann við kjarnorkuvopnum, sem 400 milljónir manna
hafa þegar fylkt sér um.
Fundurinn lýsir yfir trausti sínu á því, að með nógu almennum
og öflugum alþjóðlegum samtökum sé unnt að slá vopnin úr hönd-
um stríðsæsingamanna og hindra auðvaldið í því að koma af stað
nýrri heimsstyrj öld, enda aðhyllist fundurinn eindregið þá skoðun
forgöngumanna friðarhreyfingarinnar, að það sé á valdi mann-
kynsins sjálfs, almennings í heiminum, að tryggja varanlegan
frið. . '
Fundurinn vill vekja athygli allra flokksmanna og allra íslend-
inga á hinu stórvægilega gildi friðarhreyfingarinnar fyrir ísland